Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Fréttir
DV
Evrópusambandið reynir að sefa ótta almennings við kúariðu:
Hef borðað kjöt í 50 ár
og ekki orðið meint af
- segir sextugur franskur slátrari sem hefur meðhöndlað kjöt í 47 ár
Kýr á beit á Spáni
Þessar fallegu kýr á beit eru úr þorpinu Belaindo í Galiciu-héraði á norðvestanverðum Spáni. Fyrstu kúariðutilfellin
greindust á Spáni í síðustu viku og hafa yfirvöld þegar gripið til ráðstafana.
„Ég er búinn að borða kjöt í
fimmtíu ár og mér hefur ekki orðið
meint af. Eru allir orðnir geggjaðir?
Um daginn heyrði ég um konu sem
fékk kúariðu, jafnvel þótt hún væri
grænmetisæta.“
Þetta sagði sextugur franskur
slátrari í París þegar blaðamaður
danska blaðsins Jyllands-Posten
leitaði eftir viðbrögðum hans við
kúariðuóttanum sem hefur heltekið
fjölmörg Evrópulönd. Sala á nauta-
kjöti hefur hrunið í Frakklandi og
víðar og neytendur reyta hár sitt í
örvilnan. Þannig telja 63 prósent
Frakka að þeir geti beðið heilsutjón
af því sem þeir láta ofan í sig, að því
er fram kom í könnun sem gerð var
opinber í síðustu viku.
Svindlað með kjötmjöl
Gefum slátraranum Yves, sem
hefur verið 47 ár í kjötbransanum,
aftur orðið:
„En auðvitað er þetta vandamál
sem stjórnmálamennirnir hefðu fyr-
ir löngu átt að vera búnir að ráðast
á. Það hefur verið svindlað með
kjöt- og beinamjöl i fóðri í fjölda
ára, og jafnvel þótt það hafi verið
bannað í Frakklandi hefur það kom-
ið frá Bretlandi í gegnum önnur
lönd, eins og Belgíu.“
Nú hafa stjórnmálamennirnir
hins vegar gripið í taumana, eða
réttara sagt fulltrúar þeirra í emb-
ættismannakerfi Evrópusambands-
ins í Brussel. Framkvæmdastjórn
ESB ákvað á miðvikudag að leggja
til blátt bann við notkun kjötmjöls í
öllu dýrafóðri. Reyndar gekk bann
við notkun þess í fóðri jórturdýra í
gildi í ESB í ágúst 1996 en hér eftir
má ekki gefa það öðrum dýrum, svo
sem svínum, alifuglum og eldislaxi.
Kjötmjöl er talin vera helsta smit-
leið kúariðunnar sem getur valdið
Erlent fréttaljós
banvænum heilarýmunarsjúkdómi
í mönnum, nýju afbrigði Creutz-
feldt-Jakob.
Framkvæmdastjórn ESB lét þó
ekki þar við sitja, heldur ákvað hún
að kjöt af öllum nautgripum sem
eldri eru en 30 mánaða og sem ekki
Tll verndar neytendum
David Byrne, sem fer meö neytenda-
mál í framkvæmdastjórn ESB, svar-
ar spurningum fréttamanna um aö-
gerðir ESB gegn kúariðu.
hafa verið rannsakaðir vegna
kúariðu fari ekki í fæðukeðjuna.
Það gæti orðið til þess að farga
þyrfti um tíunda hluta nautgripa í
öllu Evrópusambandinu.
Innyfli á bannlista
Sannað þykir að dýr yngri en 30
mánaða fái ekki kúariðu og því sé
óhætt að borða af þeim kjötið. Þá
vill framkvæmdastjómin að öll inn-
yfli nautgripanna verði sett á lista
yfir vafasamar afurðir.
Embættismenn viðurkenndu þó
fúslega að aðildarríkin væru ekki
tilbúin fyrir slikar aðgerðir. Til að
svo megi verða þarf fleiri tilrauna-
stofur, betri aðstöðu til að taka pruf-
ur úr dýraskrokkunum og meira
geymslupláss.
„Ég tel ekki að þau verði tilbúin
til að rannsaka í stórum stíl á næst-
unni,“ sagði einn heimildarmaður
breska blaðsins Guardian.
Landbúnaðarráðherrar ESB
koma saman 1 Brussel á mánudag
til að fjalla um tillögur fram-
kvæmdastjómarinnar. Búist er við
að kjötmjölsbannið gildi aðeins í
sex mánuði til að byrja með en ólík-
legt þykir annað en það verði fram-
lengt. Almenningur myndi hrein-
lega ekki sætta sig við annað.
Þekkir engin landamæri
„Kúariða þekkir engin landa-
mæri. Neytendur eiga það skilið að
þeim sé sagt að við gerum ýtrustu
varúðarráðstafanir til að vemda
þá,“ sagði David Byrne, sem fer með
öryggismál matvæla innan fram-
kvæmdastjómar ESB.
Franz Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn-
inni, sagði að boðaðar aðgerðir yrðu
dýrar en það væri fjárfesting sem
skynsamlegt væri að fara út í.
Ekkert kúariðutiifelli hefur kom-
ið upp í Danmörku frá því i febrúar
þegar kýr á bóndabæ á Norður-Jót-
landi drapst úr sjúkdóminum.
Frakkland hefur verið í heljar-
greipum kúariðuóttans undanfarna
daga og vikur. Kúariðutilfellum hef-
ur fjölgað mjög þar á þessu ári, með
tilheyrandi afleiðingum í sölu á
nautakjöti. Frakkar héldu til
skamms tíma, eins og svo margar
aðrar Evrópuþjóðir, að þeir þyrftu
ekki að hafa áhyggjur af sjúkdómi
þessum. Að minnsta kosti tveir
Frakkar hafa látist af völdum nýs
afbrigðis af heilarýrnunarsjúkdóm-
inum Creutzfeldt-Jakob sem talinn
er stafa af neyslu kjöts af smituðum
nautgripum.
Fyrstu kúariðutilfellin komu upp
í Þýskalandi í siðustu viku. Þjóð-
verjar hafa lengið talið aö þeim staf-
aði engin hætta af kúariðunni og
hafa ásakað Frakka fyrir að gera of
mikið úr henni.
Kúariðu varð fyrst vart í naut-
gripahjörð á bóndabæ í sunnan-
verðu Englandi árið 1985. Síðan eru
„Við höfum horft upp á að hrun
markaðarins fyrir nautakjöt er al-
varlegra en var 1996 og þess vegna
er nauðsynlegt að grípa til viðtækra
aðgerða, nema við viljum glata hon-
um alveg," sagði Fischler.
Franska blaðið Libération segir
tilfellin orðin rúmlega 175 þúsund. í
október síðastliðnum lést fjórtán
ára bresk stúlka af völdum Creutz-
feldt-Jakob-sjúkdómsins. Alls hefur
181 maður í Bretlandi látist af völd-
um sjúkdóms þessa sem er ólækn-
andi.
Teygir sig eftir nautakjöti
Þýsk kona teygir sig eftir nautakjöts-
bita í verslun í Hamborg í vikunni.
að Evrópusambandið hafi kúvent í
kúariðumálinu frá því Jacques
Chirac Frakklandsforseti flutti sjón-
varpsávarp þann 7. nóvember síð-
astliðinn þar sem hann krafðist
þess að kjötmjöl yrði bannað með
öllu. Hvorki framkvæmdastjórn
ESB né félagar Frakka voru hrifnir
af þessu frumkvæði Chiracs sem
hann tók án þess að ráðfæra sig við
aðra þjóðaleiðtoga og sem þeir töldu
að gæti valdið ótta meðal almenn-
ings.
Ekki er lengra síðan en 15. nóv-
ember að áðurnefndur David Byrne
úr framkvæmdastjórn ESB sagði að
bann við notkun kjötmjöls væri
blekking. Þegar hann lét þau orð
falla var landbúnaðarkommissarinn
Fischler við hlið hans í Strasborg.
Erfðabreyttar sojabaunir
Leitin að fóðri i stað kjötmjölsins
sem nú hefur verið bannað gæti
leitt til annars eins uppistands með-
al evrópskra neytenda.
Ríkisstjórnir sumra landa og um-
hverfisverndarsinnar hafa þegar
látið í ljósi efasemdir um þann kost-
inn sem líklegast yrði ofan á, það er
aukinn innflutningur sojabauna frá
Bandaríkjunum. Þar eru erfða-
breyttar sojabaunir hins vegar mjög
algengar og slíkt fellur í grýttan
jarðveg hérna megin Atlantshafs-
ins.
„Ég get bara ekki skipt einni til-
finningaþrunginni umræðunni út
fyrir aðra,“ sagði Wilhelm Molterer,
landbúnaðarráðherra Austurríkis, í
vikunni.
„Enginn hefur nokkra hugmynd
um hvaða áhrif það hefur á búpen-
inginn að gefa honum mjöl úr erfða-
breyttum sojabaunum til lang-
frama,“ sagði Andy Tait úr Green-
peace umhverflssamtökunum.
En spákaupmenn vestur í
Chicago, þar sem sojabaunir ganga
kaupum og sölum, eru nokkuð viss-
ir um hver niðurstaðan verður, ef
marka má orð eins miðlarans:
„Menn eru að leita að sojamjöli
eins og börn í leit að páskaeggjum."
Byggt á Jyllands-Posten, Libér-
ation, The Guardian, The Obser-
ver og Reuters.
í Evrópu
Kúariðu hefur ekki orðið vart í
Póllandi. Stjómvöld ákváðu samt
fyrir viku að banna innflutning af
nautakjöti frá Þýskalandi, Spáni,
Belgíu og Hollandi. Áður höfðu Pól-
verjar ákveðið að setja innflutnings-
bann á nautakjöt og kjötmjöl frá
Bretlandi, írlandi, Frakklandi,
Portúgal, Italíu og Sviss.
ítalir hafa hingað til verið lausir
viö kúariðu en rétt eins og Pólverj-
ar taka þeir enga áhættu. Þannig
hafa ítalir lýst yfir einhliða inn-
flutningsbanni á frönsku nautakjöti
og ítalskir bændur hafa sett upp
vegatálma við landamærin að
Frakklandi og Austurriki.
Tvö kúariðutilfelli hafa komið
upp á Spáni og grunur leikur á að
smitið hafi borist frá Hollandi og
Austurríki. Stjórnvöld vísa því á
bug að um faraldur sé að ræða en
þau hafa engu að síður gripið til að-
gerða eftir að sala á nautakjöti
hrundi í einstökum héruðum.
Svíar, Finnar og Austurríkis-
menn hafa sloppið við kúariðuna til
þessa.
Ottinn viö kúariðu