Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Helgarblað
Cameron Diaz.
Ef gera á framhald um Charlie's
Angels munu allir fá kauphækkun
en Cameron mesta.
Cameron Diaz
er dýrust
Cameron Diaz, Drew Barrymore
og Lucy Liu leika allar í hinni
gríðarlega vinsælu kvikmynd um
Charlie’s Angels. Vinsældir henn-
ar hafa orðið til þess að þegar er
farið að ræða um framhald eins og
oft vill verða í Hollywood. Vitað er
að allir vilja fá kauphækkun því
velgengni kvikmynda hækkar
gengi leikara verulega.
Af þeim sem léku aðalhlutverk-
in er talið að Cameron Diaz verði
dýrust en hún viU fá 15 milljónir
punda i stað þeirra 9 milljóna sem
hún fékk í fyrra skiptið. Það er um
það bil 1,5 milljarðar íslenskra
króna eða verð eins frystitogara.
Dew Barrymore vill fá 12 milljónir
i stað sex áður og Liu vill eflaust
fá eitthvað meira en þau 600 þús-
und pund sem hún fékk í fyrstu
umferð.
Fleiri kosta meira og Bill
Murray vill fá 3 milljónir punda
fyrir sinn snúð. Þar fyrir utan
komu 17 handritshöfundar að gerð
handritsins og þeir voru ekki
ódýrir. Þeir verða áreiðanlega
ekki færri þegar kemur að endur-
gerðinni.
ÐV
Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri born.is:
Fékk hugmyndina á samkomu
hjá afrískum prédikara
Hugmyndin að sérstökum vef fyr-
ir foreldra og uppalendur varð til
þegar við systkinin vorum i heim-
sókn hjá fóður okkar í Danmörku
og fórum með honum á samkomu
hjá afrískum prédikara. Prédikar-
inn kallaði okkur öll upp á svið til
sín, okkur algerlega aö óvörum, og
skipaði okkur að tala tungum. Það
er eitthvað sem ég er ekki vanur
svo ég fór með bænir eins og faðir-
vorið og bað til Guðs á íslensku.
Prédikarinn hélt reyndar að ég væri
að tala tungum og varð stórhrifmn.
Hvaö var ég aö segja?
Þegar ég kom heim fór ég mikið
að hugsa um þetta því ég hafði sagt
i sífellu: Hjálpið börnunum, hjálpið
bömunum. Þetta leiddi til þess að
ég fór að skoða efni á Netinu fyrir
foreldra og uppalendur og það varð
síðan til þess að við ákváðum að
setja upp born.is."
Þannig lýsir Sigurður Ragnars-
son, aðaleigandi vefsetursins
born.is, tildrögum þess að hann
ákvað að setja það upp. Vefurinn
born.is hefur verið opinn um hríð,
en þar er hægt að nálgast gríðarlegt
magn upplýsinga um allt sem við-
kemur börnum, þar á meðal bama-
uppeldi. 4000-4500 börn fæðast á ís-
landi árlega og vefurinn er miðaður
við aldurshópinn 0 til 12 ára, að
meðgöngu meðtalinni.
Spjallrásir um börn
„Við viljum höfða til sem flestra.
Við erum með á okkar snærum fjöl-
marga sérfræðinga og ráðgjafa sem
eiga að geta leyst úr flestum fyrir-
spurnum fólks og þeir skrifa einnig
greinar um málefni sem varða for-
eldra. Spjallrásirnar eru einnig vin-
sælar, en þar geta foreldrar skipst á
DVA1YND E. ÓL.
Siguröur Ragnarsson hefur sett upp vefsetur fyrir foreldra og uppalendur
Siguröur fékk hugmyndina aö þessu verkefni á trúarsamkomu hjá afrískum pré-
dikara i Danmörku.
„Störf mín undan-
farin þrjú ár, síðan
ég kom heim frá
námi í Bandaríkj-
unum, hafa með
einum eða öðrum
hœtti tengst Netinu.
Ég var ritstjóri vef-
mála hjá Landsbréf-
um og síðar fram-
kvœmdastjóri hjá
Gœðamiðlun.
ráðleggingum og deilt
reynslu sinni með öðrum,“
sagði Sigurður.
Vefurinn born.is á það
sameiginlegt með öðrum
svipuðum vefjum að hann
þarf að reiða sig á auglýs-
ingatekjur eingöngu. Að
sögn Sigurðar er auglýsinga-
markaðurinn frekar erfiður
á þessu sviði, enda lítil
reynsla komin á slíkt á ís-
landi.
„Við erum með sterka að-
ila með okkur eins og Skelj-
ung, Símann og Lego, en ís-
lenski markaðurinn er of lít-
ill til að treysta á verslun
gegnum Vefinn. Við höfum
hins vegar hug á að fara með
þessa hugmynd út fyrir land-
steinana, en um þessar
mundir er afar erfitt að fá
fjárfesta til að leggja fé í net-
fyrirtæki."
PÁÁ
Hallgrímur Heigason
S
A meöan unglingarnir sofa
Hallgrímur
Helgason
skrifar
Stundum trúir maður þvi að ís-
land sé orðið þetta netvædda, hnatt-
tengda, fjölþjóðlega upplýsingasam-
félag sem talað er um í flnum ræð-
um og flottum auglýsingum. Að við
séum komin eilítið fram úr hinum
vanþróuðu þjóðunum fyrir sunnan
Brússel, kaþólsku risaeðlunum sem
enn hafa ekki einu sinni komið sér
upp SMS-kerfl, hvað þá að þær viti
hvað hugtökin „gervihnattasími",
„sínettenging", „breiðband" og „út-
fjólublá nettengd farsímavirkni”
þýði.
Stundum.
En svo er okkur kastað aftur í
barbariið, aftur á steinöld, aftur í
verkalýðsbaráttu og verkfóll. Við
erum minnt á það hve skólakerfíð
situr aftarlega á okkar netelskandi
meri. Líkt og mótunarafl þess, Al-
þingi, ber skólakerflð enn svip þess
samfélags sem bjó það til. Skóla skal
ljúka fyrir sauðburð að vori og hefj-
ast aftur að loknum fyrstu réttum.
Þá vorum við börnin ódýrt (oftast
reyndar ókeypis) vinnuafl í hey-
skap. Nú segja mér sveitameyjar:
„Pabbi heyjar einn á tveimur dög-
um.“
Samt er skólakerfið ennþá mið-
að við löngu úreltar þarfír bóndans.
Þrátt fyrir falleg loforð og ráðherra-
ræður og „nýja skólaskipan" virðist
ekkert hafa gerst. Skólaárið er enn-
þá bara átta mánuðir. Menntaskól-
inn ennþá fjögur ár. Bóknámið enn-
þá ljósárum ofar iðnnáminu. List-
mennt ennþá talin til fondurs, skól-
arnir að mestu tölvulausir, og laun
kennara ennþá niðrí kjallara.
Kæri Björn. Was up?
Vonandi verður verkfall fram-
haldsskólakennara leyst þegar þetta
birtist en nú hafa skólamir staðið
læstir í tæpan mánuð af þessum
þremur og hálfa sem önnin telur.
Og ekkert bólar á samningum. Það
bólar ekki einu sinni á SAMNINGS-
VILJA. Hvorki hjá ríki né kennur-
um. Og á meðan sofa unglingarnir
til hádegis á hverjum degi, eru
komnir uppí 12 tíma svefn á dag.
Þeir láta sig kannski dreyma um
önnur lönd og aðra skóla; siðuð
samfélög sem ekki láta sitt
launakarp bitna á saklausum böm-
um.
Kennaraverkfall og hin lágu laun
framhaldsskólakennara eru hluti af
stærrra vandamáli: Þaö er fyrir
löngu kominn tími til þess að
stokka upp allt skólakerfið. EN ÞAÐ
Á EKKI AÐ GERA Á MIÐRI ÖNN.
Við skiljum það að kennarar séu
brjálaðir yfir kjörum sínum en það
skiptir engu hve mánaðarlaun fram-
haldsskólakennara munu hækka
mikið: Þau fá ekki bætt þann skaða
sem vannst á fimmtán þúsund ung-
um menntalífum.
Ekki fyrr en menntamálaráð-
herra er búinn að lengja skólaárið
um tvo mánuði getur hann leyft sér
aö horfa rólegur uppá mánaðarlangt
verkfall kennara og hætt að plaffa
niður talsmenn þeirra með hagla-
byssu af hlaðinu á heimasíðu sinni.
Kennarar verða líka að muna að
það eru ekki þeir sem eru að fórna
sér í sinni kjarabaráttu. Það eru 17
ára framhaldsskólakrakkar sem eru
að fórna námsferli sínum, framtíð
sinni, fyrir kennarana sina.
í heita pottinum á miðvikudag-
inn, tvær menntaskólastelpur að
tala saman:
A: „Ég er að spá í að taka mér frí
eftir menntó, fara til Parísar í eitt
ár.“
B: „Ég ætla að fara strax í læknis-
fræðina, það er að segja ef þetta
verkfall leysist og maður nær að
klára stúdentinn í vor.“
A: „Já, ég var að heyra að C væri
hætt í skólanum, farin að vinna á
Maxim*s.“
Framtið efnilegra unglinga er sá
gísl sem kennarar hafa tekið í bar-
áttu sinni. Og ríkið neitar að borga
lausnarféð. Og líkt og 1 öllum gísla-
tökum tapa allir. Gíslamir þó mest.
Hvað er til ráða?
Ráðin liggja öll hjá Ríkisstjóm Is-
lands (sem er eitthvert gamalt
apparat sem maður hefur heyrt að
geti ráðið öllu sem það vill ráða).
Vill hún halda uppi öflugu og fyrsta
flokks menntakerfi? Menntakerfi
sem í raun heldur þessi þjóðfélagi
uppi. Eða vill hún viðhalda þessari
ömurlegu kvennalaunastefnu sinni
sem tryggir körlum hámarkslaun
en konum öll þau störf sem þeir
vilja ekki lengur sinna. Skólakerfið
er vítahringur: Launin standa í
stað, karlamir flýja í önnur störf,
stéttin fyllist af konum og þá lækka
launin ennþá meir. Og allt endar
þetta á sama veg, ár eftir ár: Kon-
umar fara í verkfall en karlamir í
ráðuneytunum vilja ekki semja.
Grátlegt. Sorglegt. Barnalegt.
Fátt lýsir ástandinu betur en
framhaldsskólaneminn sem í verk-
fallinu fékk vinnu á lager þar sem
hann þiggur hærri laun en byrjun-
arlaun framhaldsskólakennara.
Fokk.
Kæri Björn. Sýndu nú smá mann-
dóm og reisn og endurreistu fyrir
okkur skólakerfið í reynd, þetta
skólakerfi sem þú ert búinn að segj-
ast vera að endurreisa í fjögur ár.
Hækkaðu launin og útrýmdu kenn-
araverkfollum í eitt skipti fyrir öll,
þessum smánarbletti á okkar glæsi-
lega upplýsingasamfélagi.
Auðvitað er ekki hægt að gera
það allt á einum laugardegi. Þess
vegna verða kennarar líka að sætta
sig við málamiðlun. ÞETTA GETUR
BARA EKKI GENGIÐ SVONA
LENGUR. ÞAÐ VERÐUR AÐ
SEMJA STRAX. Auðvitað verður sá
samningur aðeins bráðabirgðalausn
eins og allt í þessu þjóðfélagi óþolin-
mæðinnar. En sú lausn verður að
koma því ekki getum við látið ung-
lingana okkar sofa frá sér vitið.
Ekki getum við látið þá fljóta sof-
andi útí lífið?