Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 33
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
33
I>V
Helgarblað
Ragnhildur Sif Reynisdóttir gullsmíðameistari sýnir hjá Hansínu Jensdóttur:
Smíðaði fyrsta gripinn ellefu ára
Ragnhildur Sif Reynisdóttir er 31
árs gullsmíðameistari og heldur
hún sýningu á gripum sínum hjá
Hansínu Jensdóttur gullsmiði á
Laugavegi 20b. Hún er þriðji ættlið-
ur gullsmiða; faðir hennar og afi
eru báðir gullsmiðir.
„Ég byrjaði snemma að þvælast í
kringum pabba á verkstæðinu. Ég
tíndi upp afskurð frá gullsmiðun-
um, sem var svo bræddur aftur og
notaður. Fyrstu hringana mína
smíðaði ég upp úr tíu ára aldri og
gaf vinum mínum,“ segir Ragnhild-
ur Sif.
Tíu ár í faginu
Ragnhiidur Sif segist hafa haft
áhuga á mörgu. Hún hugsaði um
viðskiptanám og snyrtifræði en ein-
hvern veginn beindust sjónir henn-
ar alltaf að gullsmíðinni. Ragnhild-
ur hefur í tíu ár unnið hjá fjöl-
skyldufyrirtækinu, Gull- og silfur-
smiðjunni Ernu, sem hefur aðallega
sérhæft sig í gerð borðbúnaðar.
„Síðustu tíu árin hef ég verið sú
eina sem hef smíðað þrikrossinn
fyrir Blindrafélagið. Auk þess hef ég
verið að vinna að mínum eigin grip-
um.“
Þegar Ragnhildur er spurð hvort
hún líti á sig sem handverksmann
eða listamann segir hún:
„Það er erfitt að svara þvi. Ég
hugsa bara um mig sem gullsmið.“
Áhrif umhverfisins
„Fyrir tveimur árum byrjaði ég
fyrir alvöru að hanna skartgripi. Ég
smíða mikið úr silfri en dags dag-
lega vinn ég mest með gull. Mér
finnst mjög gott að vera á ferðinni.
Allt umhverfi mitt hefur áhrif á mig
og það sem ég geri. Ég verð til dæm-
is fyrir miklum áhrifum frá lands-
lagi og formum í umhverfi mínu og
náttúrunni.“
Um þessar mundir er sagt að ís-
land sé í tísku í hönnunar- og lista-
heiminum. Ragnhildur segir að það
geti verið vegna þess að við séum
mjög fljót að grípa nýjungar.
„Við erum fersk. Við erum fá en
samt eru íslendingar út um allt.
Hins vegar held ég að við séum ekki
jafn sérstök og við höldum."
Getur alltaf búið til nýtt
Ragnhildur kveðst mjög sátt við
að hafa valið gullsmíðiri.
„Ég er líka ánægð með það sem
ég er að fást við núna í hönnuninni
og það gefur mér mikið.“
Eins og gefur að skilja er Ragn-
hildur ekki í vandræðum með
skartgripina við hátíðleg tækifæri.
„Ég smíða sjálf alla skartgripi
sem ég geng með. Það er þó svo
skrýtið að dags daglega er ég ekki
mikið með skartgripi. En fyrir
stærri atburði þykir mér mjög gam-
an að búa til gripi og ganga með þá.
í rauninni þyrfti ég ekki að vera
tvisvar með sama skartgripinn. Ég
get alltaf búið til nýjan. Það er mjög
þægilegt." -sm
- þarf aldrei að bera sama skartgripinn tvisvar
Meistarinn með gripi sína
Ragnhildur Sif Reynisdóttir gullsmíðameistari hefur verið viðloðandi gullsmíði fr& því hún var tveggja ára.
DV-MYND E.ÓL.
Sviðsjjós
Nicolas Cage
loksins að skilja
Um þessar
mundir berast
þær sérstæðu
fréttir af hjóna-
bandi þeirra
Nicolas Cage og
Patriciu Arquette
að þau séu í þann
veginn að skilja.
Ástæðurnar segja
hjónin vera óá-
sættanlega mis-
klíð af ýmsu tagi
en sögur af hjóna-
bandi þeirra hafa
gengið árum sam-
an og þóttu ein-
kennilegar, jafn-
vel á mælikvarða
Hollywood. Cage
og Árquette gift-
ust árið 1995 en
bjuggu aldrei
saman undir einu þaki. Þrátt fyr-
ir þessa fjarlægð lýstu þau því
yfir níu mánuðum eftir gifting-
una að skilnaður væri yflrvof-
andi. Samt héldu þau áfram að
koma saman fram opinberlega og
mæta saman í veislur og á frum-
sýningar. Þau gerðu meira að
segja eina kvikmynd saman á
þessum tima, sem hét Bringing
out the Dead.
Nicolas sótti formlega um
skilnað á síðasta ári og kallaði þá
hjónaband þeirra skrípaleik og
sýndarmennsku. Siðan snerist
honum hugur og sagt er að hann
hafi greitt Patriciu 3 milljónir
punda sérstaklega fyrir að gera
enn eina tilraun til
að láta þetta sér-
stæða hjónaband
ganga. Sú tilraun
hefur greinilega
mistekist þvi nú
ríkir eining meðal
hjónanna um að
slíta hjónaband-
inu.
Leikarinn Nicolas
Cage er aö skilja við
konu sína til margra
ára
Hjónaband þeirra
hefur verið með ein-
dæmum sérkenni-
iegt, jafnvel á mæli-
kvarða Hollywood.
Til sölu:
Garland-djúpsteikingarpottur, 2ja hólfa
Garland-grillhella, stór
Pitsuofn
101 hnoðari
Kæliskápur
frystiskápur
Upplýsingar ísíma 587 7556 og 863 5807
Við sögum
niður verðið!
Kolap°t#*,s
Opið
alla daga
til jóla
Mighty
Qareth
Skemmtir
í Kolaportinu
alla sunnudaga
í desember