Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Side 53
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
rs
i>v
_______63-
Tilvera
Nató leitaði að fljúgandi .
furðuhlutum við Langanes
- ratsjárstöð Nató fylgist með þremur óþekktum flugförum koma inn í lofthelgi landsins
Þaö er fallegt að horfa til him-
ins á stjörnubjartri vetrarnótt og
virða fyrir sér stjörnumerkin og
norðurljósin. Þeir sem eru heppn-
ir sjá hægfara gervitungl líóa yfir
hvelflnguna eða geta óskað sér
þegar þeir sjá stjörnuhrap. Teikn
á himni hafa lengi vakið forvitni
manna og sum þeirra hafa hlotið
goðsagna- eða þjóðtrúarlegar
skýringar. Kristnir menn tala um
himnaríki, í Norræni goöafrœói
er regnboginn brú milli heima og
samkvæmt þjóðtrúnni boða víga-
hnettir stríö einhvers staðar i
heiminum.
Annað slagið birtast í fréttum sög-
ur af fólki sem telur sig hafa séð
fljúgandi furðuhluti eða hafa verið
brottnumið af geimverum. Einn slík
birtist í til dæmis í DV fyrir
nokkrum árum og fjallaði um fólk í
Reykjavík sem taldi sig hafði verið
brottnumið af geimverum. Geimver-
ur og fljúgandi furðuhlutir (FFH)
hafa lengi vakið forvitni manna og
bækur á borð við Voru guðirnir
geimfarar? eftir Eric von Daniken
seljast í heilu bílformunum.
Þjóðfræðingar sem láta sig þessi
mál varða hafa aftur á móti bent á
sameiginleg einkenni þessara sagna
og gömlu sagnanna um álfa og huldu-
fólk.
Sá bröndótti
í íslenzkum annálabrotum Gisla
biskups Oddssonar er á nokkrum
stöðum sagt frá skrýtnum loftsjónum
sem menn urðu varir við á tólftu öld.
Á árunum 1157-1159 sáust kross-
merki á tunglinu og stundum þijár
sólir eða tungl á lofti í einu og 1168
sáust menn í loftinu. Gísli
gefur engar skýringar á
fyrirbærunum og talar
um þau í sama dúr og
hann nefhir skrímsli
og drepsóttir.
í bókinni Sögur
og sagnir frá Bol-
ungarvík er saga
sem heitir Sá
bröndótti og fjallar
um viðskipti sveita-
manns að vestan og fljúg-
andi furðuhlutar.
Kári Kárason var að koma framan
úr Syðridal í Bolungarvík þegar
hann sá allstóra ljóskúlu koma velt-
andi á móti sér. Fyrirbærið tók á sig
ýmsa króka á leiðinni og stoppaði á
milli, en fór hratt yfir. Að lokum
stoppaði kúlan beint fyrir framan
Kára og var hún svo nálægt að hann
gat teygt fram hendina og komið við
fyrirbærið. Hann virti kúluna fyrir
sér, hún var lítið hærri en Kári og
mannsmynd inni í henni.
„Var sem mannslíkan þetta flyti í
rauðleitu Ijósi, en utan um það var
blár ljóshringur. Þegar Kári hreyfði
sig til að komast fram hjá kúlunni
valt hún í veg fyrir hann. En hvem-
ig sem kúlan valt, haggaðist ekki
myndin, sem inni í henni var. Maður
sá, er inni í kúlunni var, sýndist vera
á miðjum aldri. Kára virtist hann
vera klæddur pijónasamfellu, hvítri
með dökkrauðum þverröndum, sem
voru mikið dekkri en ljósið í kúl-
unni. Hár hafði maður þessi mikiö og
biksvart, einnig svartar loðnar
augnabrúnir, skegg á efrivör og
svartan hökutopp. Andlitið var
grannt og skjallhvít, og sást enginn
blóðdropi í því. Allir andlitsdrættir
voru óbifanlegir."
Þegar Kári hafði skoðað kúluna
um stund fór honum að leiðast
hangsið og vildi halda áfram fór
sinni, en í hvert skipti sem hann
reyndi að komast fram hjá henni valt
hún í veg fyrir hann. Að lokum réðst
hann á kúluna með barsmíðum og
spörkum en ekkert gerðist. „Hann
gerði hvert áhlaupið á fætur öðru,
stökk til hliðar og reyndi að komast
fram hjá kúlunni. En allt var árang-
urslaust. Hann bölvaði og sótaðist og
vísaði þessum kúluanda niður fyrir
öll sjö vítin. Einnig reyndi hann Fað-
irvorið en ekkert stoðaði.
Honum tók nú að kólna, því frost
var allmikið, þó hægviðri væri. Kári
sló þá upp á kæruleysi, tók ofan ann-
an vettling sinn, losaði buxnaklauf-
ina, dró félaga sinn út og sprændi
beint á kúluna. En nú skeði það sem
Kára þótti skrítið. Frá kúlunni
heyrðust brestir, og skelfingarsvipur
færðist yfir ásjónu þess bröndótta.
Kúlan fór að hoppa og tók nokkur
hopp unz hún þeyttist upp í loftið og
hvarf út i loftgeiminn eins og lítil
stjarna."
www.ufomag.co.uk
Á heimasíðu breska tímaritsins
UFO Magazine er að finna grein sem
fjallar um leit að FFH fyrir utan
Langanes árið 1992. í greininni er
sagt að á árum kalda stríðsins hafl
verið fylgst vel með svæðinu um-
hverfis ísland vegna hernaðarbrölts
Sovétríkjanna. Síðan segir að 20. des-
ember hafi ratsjárstöð Nató fylgst
með þremur óþekktum flugfórum
koma inn í lofthelgi landsins og
hverfa í hafið fyrir norðaustan land.
Skömmu eftir að þetta áttu sjómenn
við Langanes að hafa orðið varir við
óvenju stórt neðansjávarfar, sem fór
hratt yfir með blikkandi ljósum, og
loftfar sem fylgdi því eftir. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins eru sjó-
menn á þessum slóðum vanir kafbát-
um á fiskislóð, en að neðansjávarfar-
ið hafi verið mun stærra en venjuleg-
ur kafbátur og að það hafi stór-
skemmt net þeirra. Sjómennirnir
höfðu þvi samband við Land-
helgisgæsluna og báðu um
fylgd í land.
Þremur dögum síð-
ar, 23. desember, á
svo gæslan að hafa
sent þrjú vopnuð
skip með leynd til að
vakta svæðið fyrir
utan Langanes og
stuttu seinna komu
nokkur herskip Nató á
svæðið til að taka þátt í
leitinni. Skip Landhelgisgæsl-
unnar fluttu sig um set og hófu vakt
við „Alice fjord" fyrir austan land.
Höfundur greinarinnar hefur það
fyrir víst að opinber skýring á leit-
inni hafi verið sú að radíóstöð Nató
hafi orðið vör við ferð stórs sovésks
kafbáts i hafmu fyrir austan land.
Leit var haldið áfram langt fram á
vor og í apríl 1993 eiga sovésk her-
skip einnig að hafa tekið þátt í leit á
svæðinu, sem náði um aflt norðan-
vert Atlantshaf afla leið til Síberíu.
Að lokum var þó leit hætt vegna þess
að hún bar engan árangur. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins eiga ís-
lenskir sjó- og flugmenn oft að hafa
orðið varir við eitthvað skrýtið í haf-
inu og loftinu umhverfis landið á
fyrri hluta árs 1993.
Við lauslega athugun í íslenskum
dagblöðum frá þessum tíma kom ekk-
ert í ljós sem benti til þess að Land-
helgisgæslan eða floti Natóskipa
væri við leit við Langanes. Annað-
hvort hefur engin leit átt sér stað eða
blöðin eru þátttakendur í að hylma
yfir tilvist fljúgandi furðuhluta.
Gelmverir flokkaðar efflr
kerfi Línneusar
Lýsingum sjónarvotta á geimver-
um ber ekki saman og ætla mætti að
margar mismunandi tegundir komi
reglulega til jarðar til að skoða
mannlífið.
Geimverulíffræðingurinn Patrick
Huyghe skiptir geimverum í fjóra
mismunandi flokka eftir útliti þeirra.
Stærsti flokkurinn er skipaður geim-
verum sem hafa svipað útlit og
menn, þær hafa tvær hendur, tvo
fætur, búk og höfuð. í þessum flokki
eru t.d. hinir svartkfæddu, MIB (Men
in Black), sem mjög fór að bera á eft-
ir 1964. Sumar geimverur líta út eins
og dýr, eru loðnar, skríða á fjórum
fótum eða hafa vængi. í þriðja
flokknum eru geimverur sem líkjast
vélmennum og í síðasta flokknum
eru verur sem likjast engu sérstöku
og teljast framandi.
Sívinsælt efni
Áhugi fólks á FFH er geysilega
mikill. Við einfalda leit á Netinu
fundust rúmlega 37.000 færslur þegar
„ufo“ var slegið inn og við leit á
Amazon komu í ljós 578 bókartitlar
um efhið. Sjónvarpsþættir eins og X-
Files og Star Trek njóta gríðarlegra
vinsælda og á hverju ári eru fram-
leiddar nokkra kvikmyndir sem
fjalla um geimverur eða samskipti
við þær.
Bandaríski geölæknirinn John E.
Mack hefur í nokkur ár tekið viðtöl
við fólk sem telur sig hafa haft sam-
skipti við geimverur og telur að það
sé ekki með neinu móti hægt að
halda því fram að allt þetta fólk ljúgi.
Mack er sannfærður um að skjól-
stæðingar sínir hafi lent í einhvers
konar lífsreynslu sem hafi haft djúp
áhrif á líf þeirra.
Það skal ósagt látið hvort geimver-
ur séu til eða ekki, en trúin á yfir-
náttúrlegar verur er mjög sterk á ís-
landi, þannig að það er ekki ólíklegt
að margir eigi eftir að verða varir við
fljúgandi furðuhluti og geimverur í
framtíðinni. Á íslandi er starfræktur
félagsskapur sem nefnist Félag
áhugamanna um fljúgandi furðu-
hluti. Félagið hefur haldið fræðslu-
fundi um fyrirbærið og safnar sögum
frá fólki sem telur sig hafa komist í
tæri við geimverur.
-Kip
AMERÍSKAR DÝNUR
Serenade
Queen 153 x203cm
King 193 x 203cm BESMHiIil
Cal.King 183x213cm ■3*ifeiM.t|
verð með undirstöðum
www.lman.is
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SIMI 5 53 7 1 00 & 553 60 1 1