Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Qupperneq 59
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
67*''-
DV
Tilvera
Einnig fáanlegt:
AVIS
Gefðu milljón!
UPPBOÐ
til styrktar
mæðrastyrksnefnd
Uppboð á 30 bílum
laugardaginn 2. og sunnudaginn
3. desember nk. milli kl. 12 og 16
að Dugguvogi 10
Sími: 533 1090
Fax: 533 1091
E-mail: avis@avis.is
Dugguvogur10
www.avis.is
AVIS
Allir bílar í mjög góðu ástandí
Komdu og gerðu bestu
kaupin í bænum!
Andvirði eins bíls rennur óskipt til Mæðra-
styrksnefndar og 4% af öllum öðrum bílum!
Kvöldið
lofaði góðu
- eins og hjá sönnum óðalsbónda
Christof Wehmeier, kynningar- og
markaðsstjóri kvikmyndadeildar Skíf-
unnar, er matgæðingur vikunnar að
þessu sinni. Það er nóg að gera hjá
honum enda eru stórmyndir hjá þeim
Skífumönnum forsýndar með „pomp
og prakt“ svo ekki sé meira sagt.
„Ég er búinn að sjá um að kynna og
markaðssetja myndir frá Columbia
Pictures/Sony Pictures í rúm 5 ár,
fyrst i gegnum Stjömubíó og nú í gegn-
um Skífuna. Ég mwmapssssm
gæti í raun ekki
hugsað mér að gera annað en það sem
snýr að kvikmyndasviðinu. Fyrir mér
er starfið fyrst og fremst skapandi hug-
myndavinna og það er gaman þegar
allt gengur upp.
Nú síðustu helgi var um stórkost-
lega opnun stórmyndarinnar
„Charlie’s Angels" að ræða. Allt gekk
vel. Herferðin var frumleg, öflug og
vakti athygli.
I tengslum við herferðina vorum við
líka með tvífarakeppni en við vorum
að leita að tvífórum Cameron Diaz,
Drew Barrymore og Lucy Liu. Og viti
menn, yfir 50 stúlkur tóku þátt.
Maður getur auðvitað líka rennt
blint í sjóinn með hugmyndir en hveij-
um heföi dottið í hug að 550 manns
myndu mæta í jakkafótum eins og
MENNISVÖRTU (Men in Black) fyrir
þremur árum, en það tókst og vakti
mikla athygli," segir Christof.
Þurfti að venjast þorramatn-
um
„Fyrir utan kvikmyndaástriðuna þá
hef ég alltaf elskað mat frá því ég man
eftir mér. En því má líka þakka að eiga
móður sem eldar heimsins bestu krás-
ir. Ef ég væri ítalskur myndi ég eflaust
oft vitna í „mama mia“ og væri stoltur
af því.
Ég kynntist fyrst þýskum mat þar
sem ég er fæddur og uppalinn í Þýska-
landi.
Ég fluttist siðan til íslands þegar ég
var 8 ára gamall og kynntist íslenskum
mat í allri sinni dýrð. Það tók tíma að
venjast þorramatnum en íslenska
lambakjötið er það besta í heimi. Ástr-
alska og nýsjálenska lambið kemst
ekki í hálfkvisti við það íslenska. Og
svo má ekki gleyma fiskinum hér
heima sem er hreint afbragð.
Ég fór þó ekki að kynnast „alþjóð-
legum mat“ fýrr en ég fór í framhalds-
nám erlendis. Ég dvaldi fyrst i Þýska-
landi og síðan í
Bretlandi og þar
kynntist ég kínverskum, víetnömsk-
um, argentínskum og indverskum
mat. Þar fyrir utan er svo ailtaf þrosk-
andi að kynnast útlandinu. Ég fór að
elda sjálfúr og þróaði mig bara áfram,
keypti engar matreiðslubækur eða
slíkt,“ segir Christof.
Hríkalegt afmælisboö
Christof segir eldamennskuna í
byrjun hafa verið ansi skrautlega og
tilraunakennda. „Eitt sinn henti mig
alveg hrikalega hallærislegt atvik þeg-
ar ég átti afmæli og var búinn að bjóða
skólafélögum mínum i mat. Kvöldið
lofaði góðu þar sem gestimir voru
mjög alþjóðlegir og það besta var,
meirihlutinn var stelpur sem komu frá
Bandaríkjunum, Ítalíu, Grikklandi,
Sviss og Þýskalandi.
Ég bauð stúlkunum upp á kampavin
eins og sannkallaður óðalsbóndi en
viti menn, það varð stórslys. Ég var
sannkallaður „nörd“ þetta kvöldið.
Ég hafði aldrei tekið upp kampa-
vinsflösku. Ég rauf innsiglið af og
tappinn flaug af, stefiidi á gleraugun og
ég fann þytinn. Minnstu munaði að ég
hefði breyst í eineygðan sjóræningja,
„One Eyed Jack“, þetta kvöldið. Auð-
vitað hlógum við öU eins og sjúklingar
að þessu,“ sagði Christof og hlær þeg-
ar hann rifjar þetta upp.
„Að sjálfsögðu hefur svo flestum
eins og mér tekist að klikka á því ein-
faldasta eins og gerðist eitt sinn þegar
Bráðum koma blessuð
Öll tækin eru knúin
með 12 V rafmótor.
Hleðslutæki fylgir.
Bílar/hjól
keyra
afturábak og
áfram og eru
tveggja gíra.
Eru einnig með
Ijós, spegla,
síma, hljóð o.fl.
Verð frá
30 þús.
til 36 þús.
Tornados vatnsbyssur, kr. 2.800
Plöstunarvélar f. alla, kr. 4.800
Sólar- og öryggisfilma á hús og bíla
Píptæki á hurðir og glugga, kr. 2.400
Brunastigar, ál/stál, 5 m, á kr. 4.800
Eftirlitsspeglar, ýmsar stærðir.
.(//,, i(,/:
Dalbrekku 22 - sfmt 544 5770
Christof Wehmeier er matgæöingur.
„Maðurgetur auövitaö líka rennt blint í sjóinn meö hugmyndir en hverjum heföi dottið í hug ab 550 manns myndu
mæta íjakkafötum eins og MENN í SVÖRTU (Men in Black) fyrir þremur árum en þaö tókst og vakti mikla athygli",
sagöi Christof Wehmeier, kynningar- og markaösstjóri kvikmyndadeildar Skífunnar.
ég var að baka vöfflur í fyrsta skipti.
Ég gleymdi að setja mjólk í deigið.
Þetta varð svo hrikalega stökkt, en
samt svo teygjanlegt að ég kallaði mín-
ar fyrstu vöfflur Wrigleys tyggjó-
vöfflur og geri aðrir betur.
Eftir aila þessa reynslu fór ég að
vanda mig betur enda er það æfmgin
sem skapar meistarann. Ekki satt!“
sagði Christof að lokum.
paprikuduft og grillkjötskrydd sem og
smávegis af salti á bollumar. Hrærið
svo vel í þessu og hnoðið þetta vel í litl-
ar bollur.
Þar næst þarf að skera nokkra lauka
í litlar ræmur og setja á pönnuna.
Ekki er vitlaust að hafa græna
papriku við höndina. Má líka skera
paprikuna í litla bita sem og setja hana
á pönnuna.
Síðan má setja kjöthakksbollumar á
pönnuna í bland með lauknum og
paprikunni. Leyfið þessu að malla á
lágum hita i um það bil 20-25 mín.
Paprikan og laukurinn gefa af sér
gott sósubragð. Og svo er auðvitað eld-
að pasta með þessu og þá er „Eineygði
Jack“ rétturinn til reiðu.
BON APITITO
„Eineygöi Jack“
nautahakksréttur
Aðferð:
Hitið fyrst pönnuna, hellið síðan
smávegis af oliu á pönnuna. Leyfið
þessu að hitna, en hafið alls ekki á
hæsta hita.
Setjið 500 g nautahakk í stóra skál.
Dreifíð vel úr hakkinu. Setjið síðan
50 g púðursykur
1 tsk. nescafé
4 dl ijómi
1/2 dl viskí
Klæðið botn á springformi með
plasti. Smellið gjörðinni utan um botn-
inn og dreifið maukinu jafnt á botn
formsins. Þeytið saman eggjarauður,
sykur og púðursykur. Þeytið rjómann
og bætið í með sleikju. Leysið kaffi-
duftið upp í viskíinu. Gott er að hita
viskíið örlítið til að kaffið leysist betur
upp. Bætið út i rjómann, setjið í form-
ið og frystið. Berið fram með þeyttum
ijóma og rifnu súkkulaði.
500 g nautahakk
paprikuduft
grillkjötskrydd
salt
nokkrir laukar
græn paprika
Humar í skel
með ostabráð
Fyrir 6
1,2 kg stór humar í skel
150 g hvítlaukssmurostur
200 g smjör
4 stk. hvítlauksgeirar, fint saxaðir
1/2 búnt fuit söxuð steinselja
safi úr 1 sítrónu
salt og pipar
Meðlæti
3 stk. sítrónur
8-10 sneiðar franskbrauð eða snittu-
brauð
hvítlaukssmjör
Kljúf-
ið hum-
arinn
hálffros-
inn eftir
endi-
löngu og
fjarlægið
svörtu
röndina
(gömina), setjið í ofnskúffu og geymið
(helst í frysti) á meðan ostabráðin er
löguð. Bræðið saman ost og smjör og
bætið hvítlauk, steinselju, kryddi og
sítrónusafa saman við. Hrærið vel
saman. Þekið humarinn með ostabráð-
inni með matskeið. Setjið undir grill í
ofni í 4-5 mínútur eða þar til humar-
kjötið losnar aðeins frá skelinni. Berið
fram strax ásamt smjörinu úr skúff-
unni.
Nýkaup
Þar sem ferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Bántí
Fljótleg og einfold, og einstaklega
bragðgóð
9 stk. eggjahvítur j
400 g sykur
400 g kókosmjöl
Krem
300 g
suðusúkkulaði
100 g smjör
6 stk. eggjarauður
100 g flórsykur
Þeytið eggjahvítumar og blandið
svo sykri saman við.Þeytið þar til syk-
urinn er alveg uppleystur.Blandið
kókosmjöli saman við með sleikju.
Bakið við 180° i tveimur formum í ca
18-20 mín. í 26 cm formi.
Krem
Bræðið súkkulaði og smjör saman,
þeytið eggjarauður og flórsykur vel
saman þar til stífúr massi myndast.
Blandið þá súkkulaðinu saman við
með sleikju og setjið kremið strax á
kalda botnana. Kælið tertuna og berið
fram með þeyttum ijóma eða einhverj-
um góðum ís.
Irish coffee
ísterta
Fyrir 6
Botn
50 g möndlur
50 g marsipan
50 g nougat
50 g súkkulaði
50 g makkarónukökur
Allt maukað saman i matvinnsluvél
Sósa
6 stk. eggjarauður
50 g sykur
Uppskríftir