Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2001, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001 Fréttir DV Heilbrigðisyfirvöld í Noregi rannsaka nýtt afbrigði sauðfjárriðu: Mér er ekki rótt - segir Sigurður Sigurðarson dýralæknir - vill hætta við innflutning fósturvísa Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, segir að nýtt afbrigði sauð- fjárriðu, sem greinst hefur í Noregi, styrki enn þá skoðun sína að fresta eigi og helst að hætta við innflutning fósturvísa úr norskum kúm. Að sögn hans er þetta norska afbrigði annað en það sem verið hefur í sauðfé hér á landi. Það virðist leggjast á fé sem er með mótstöðu gegn riðuveiki. Með- göngutíminn virðist lengri heldur en þegar um „venjulega" riðu er að ræða. Þetta nýja afbrigði hefur þótt hegða sér eins og kúariða. Sigurður segir að ekki sé hægt að setja samasemmerki þar á milli. Þetta afbrigði sé nýtt. Hins vegar hafi menn óttast að kúariðan fari yfir í sauðfé enda hafi reynst auð- velt í sýkingartilraunum að smita fé af kúariðu. Sauðfjárriða hafi ekki reynst fólki hættuleg. Hins vegar geti kúariða verið hættuleg ef hún fer í sauðfé sem þýði að einnig þurfi að fara að huga að sauðfjárafúrðum í því tilliti. „Við munum ganga úr skugga um að þetta afbrigði sé ekki til hér á landi,“ segir Sig- urður. „Það er ekkert sem bendir til þess en það er vita- skuld ekkert tilhlökkunarefhi að fá þetta hingað ef svo skyldi fara. Við megum ekki taka neina áhættu." Varðandi fyrirhugaðan inn- flutning á fósturvísum úr norskum kúm segir Sigurður að engum hafi dulist að hann hafi viljað fara varlegar en margir aðrir sem hafi verið hlynntir honum. Sigurður fer raunar á næstunni til Noregs ásamt Halldóri Runólfssyni yfirdýralækni til að fara yfir undirbúnig innflutningsins. „Mér er sannarlega ekki rótt yfir þessu. Ég tel að kúariðuhætta hafi aukist í Noregi með innflutningi á lifandi grip- um og innflutningi á kjöti eins og við höfum veriö að gera upp á síðkastið. Þetta gefúr norska'landbúnaðarráðherr- anum tilefni til að segja að hættuminna sé að borða inn- flutt kjöt heldur en norskt. Ég held að þaö sé rangt þvi þau próf sem menn hafa til afnota taka einungis þá gripi sem eru rétt að því komnir að verða veikir. Þeir geta verið með þetta í sér fyrir og þá erum við að skapa falskt ör- yggi. Það viljum við ekki.“ Sigurður segir að kjötmjöl hafi verið í fóðri sem nautgripir í Nor- egi séu fóðraðir á. Meðan ekki sé ljóst hvaðan þaö sé gæti þar hugsanlega leynst áhætta. Aðspurður hvaða viðbrögð Sigurður myndi vilja sjá hjá ráðamönnum nú þegar aukin hætta sé á kúariðu i Noregi og nýtt afbrigði af sauðfjárriöu hafi stungið sér niður þar segir hann að menn ættu að fara sér hægt og flytja fósturvísa ekki inn í bili. Áður en flutt sé inn verði að sýna fram á að það sé fólgin hagkvæmni í því eins og lögin kreflist. Slikt hafi ekki verið gert. Þá þurfi að liggja fyrir vottorð frá viðkom- andi yfirvöldum um að í Noregi séu ekki smitsjúkdómar sem kunni að vera hættulegir íslenskum búpeningi. Sig- urður kveðst efast um að slík vottorð sé hægt að gefa. Vaxandi hætta sé á kúariðu í Noregi. Smitefnið fmnist í blóði og því sé augljóst að allir vefir lík- amans komist í snertingu við það, þar á meðal kynfrumumar. Því megi æfla að fósturvísar geti borið með sér smitið, þótt þaö hafi ekki verið sannað. Ekki sé hægt að útiloka alla hættu í þeim efn- um. Við innflutning þurfi að passa upp á ein tuttugu atriði sem sum hver byggj- ast á ófullkomnum prófum og ófullkom- leika manna sem standa að málum. „Þess vegna enn og aftur, í guðanna bænum takið enga áhættu,“ segir Sig- urður. „Við erum að brjóta niður vöm landsins gegn smitsjúkdómum sem við höfum varið með miklum fómum.“-JSS Sigurður Sigurðarson. Seinni hluti stóra fíkniefnamálsins: Sakborningur játar, vitni neitar - skipti milljónum króna fyrir fíkniefnabraskara sem neitar aðild DV-MYND INGÓ Viðurkenndi að hafa sent peninga Ákæröi, Bjarki Þór Hilmarsson, viöurkermdi fyrir dómi í gær aö hafa sent mik- iö fé úr landi fyrir Sverri Þór Gunnarsson sem vinargreiöa. Héraðsdómur Reykjavíkur hlýddi í gær á 28 ára gamlan mann játa að mestu leyti ákæra á hendur sér um að hafa skipt í erlenda mynt og sent úr landi milljónir íslenskra króna fyrir einn af höfuðpauram stórfellds fikni- efnasmyglara á árunum 1997 til 1999. Það skaut því skökku við þegar höfuð- paurinn sjálfur var kallaður til sem vitni því hann sagðist aldrei hafa beð- ið manninn um að skipta neinum pen- ingum fyrir sig, hvað þá sjá um að senda fé úr landi fyrir sig. Bjarki Þór Hilmarsson er ákærður fyrir að hafa á tveggja ára tímabili, frá 12. maí 1997 til 26. mai 1999, tekið við samtals rúmlega 12 milljónum króna frá Sverri Þór Gunnarssyni og skipt í erlendan gjaldeyri í íslensk- um peningastofn- unum. Bjarka Þór er gert að sök að hafa vitað að pen- ingamir vora af- rakstur Sverris Þórs af fikniefnasölu og að Sverrir Þór ætlaði sér að nota þá til frekari fíkni- efnakaupa erlendis. Bjarki Þór viðurkenndi að hafa sent og skipt peningum fyrir Sverri Þór en mundi hvorki hversu oft það var né um hversu háa fjárhæðir var að ræða og kenndi óreglu sem hann var í á þessum tima um minnisleysið. Pening- amir fóra meðal annars til Þýska- lands, Spánar og Danmerkur. Áfrýjun tekín fyrir í næstu viku Þegar Sverrir Þór mætti sem vitni fyrir dómi í gær sagðist hann hins veg- ar aldrei hafa beðið Bjarka Þór um að skipta fyrir sig peningum eða senda peninga til úflanda. Veiðieftirlitsmaður, sem var að fylgjast með veiðum áhafnar smá- bátsins Guðrúnar NS frá Bakka- firði, var heldur seinheppinn þar sem hann fylgdist grannt með fram- vindu veiðanna. Ágætlega fiskaöist og var aflinn blandaður steinbít. Eftirlitsmaðurinn strauk stærðar steinbít um höfuð sem gerði sér lít- ið fyrir og skellti saman skoltum. Sverrir Þór var ákærður sem einn af forsprökkum umfangsmikils eitur- lyfjasmygls, sakfelldur og dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í fyrrasumar og upptöku á rúmlega 21 milljón Áhöfninni og eftirlitsmanninum tókst sameiginlega að losa hönd hans úr kjafti óvættarins en blæð- andi sár var afleiðing árásarinnar. Skömmu síðar var lokað stóru svæði út af Digranesi fyrir öllum veiöum. Sjómenn á Bakkafírði telja að steinbíturinn eigi samleið með þeim í afstöðu til eftirlitsmanna Fiskistofu. -rt króna, en hann er talinn hafa hagnast um tugi milljóna á fikniefnabraski sínu. Auk Sverris Þórs vora 14 aðrir sakfelldir og dæmdir í allt að níu ára fangelsi vegna þessa máls. Við rann- sókn málsins lagði lögrelgan hald á gíf- urlegt magn fíkniefna en smyglið fór fram í gámum skipafélags sem siglir meðal annars tfl Hoflands, Danmerkur og Bandaríkjanna. Sverrir Þór áfrýjaði dómi sínum ásamt fjórum öðrum mönnum. Fyrir hér- aösdómi játaði Sverrir Þór að hafa átt að- Od að fíkniefnasmygli en dró stórlega úr magni innfluttra eiturlyfla og flölda smyglferðanna. Áfrýjanirnar verða tekn- ar fyrir í Hæstarétti í næstu viku. Vinargreiði í dómsal í gær kom i ljós að Bjarki Þór hefur verið atvinnulaus síðan árið 1997 og lifað á félagslegum bót- um. Árin 1997 tfl 1999 sagðist hann stundum hafa sent peninga utan fyr- ir Sverri Þór, en þeir voru saman í sveit sem böm og gengu í sama grannskóla. Samkvæmt upplýsingum frá Seðla- banka íslands skipti Bjarki Þór stund- um fé aUt að flóram shinum á dag og bar hann því við að hann hefði ekki vfljað ganga með svo háa upphæð á sér sem heUdarfúlgan þessa daga nam. í fyrstu sagði Bjarki Þór aUar send- ingar tO Danmerkur hafa verið tO bamsmóður sinnar en þær námu nim- lega 1,2 mifljónum króna. Þegar hann var spurður nánar út i þetta og þá stað- reynd að samkvæmt skattaframtali hefði hann verið með um hálfa mUljón í tekjur á ári hverju 1997 tO 1999 sagði hann hluta þessara sendinga hafa ver- ið á vegum Sverris Þórs. Bjarki Þór sagðist aldrei hafa spurt Sverri Þór af hveiju hann væri að senda peninga utan og taldi víst að Sverrir Þór stæði í bflakaupum og fasteignaviðskiptum erlendis. Hann sagðist ekki hafa fengið neitt greitt fyrir þennan „vinargreiða" en þeir Sverrir Þór áttu í „nánum kunningsskap". Sverrir Þór sagðist hins vegar þekkja Bjarka Þór lítið og benti auk þess á að ef Bjarki Þór væri að segja satt hlytu að vera tfl upptökur af sím- tölum þeirra tveggja þar sem lögreglan hleraði síma Sverris Þórs í nokkra mánuði áður en hann var handtekinn í september 1999. Saksóknari lagði ekki tU-nein hlerað samtöl Bjarka Þórs og Sverris Þórs. Dæmt fyrir peningaþvætti í fyrsta sinn í þessum síðari hluta Stóra fikni- efnamálsins svokaUaða era, auk Bjarka Þórs, 12 aðrir einstaklingar ákærðir í aUs fimm ákærum sem varða fíkniefnamisferli og peninga- þvætti. Málflutningi í tveimur ákær- um er lokið þar sem meðal aimars tannlæknir og lögmaður era ákærðir fyrir peningaþvætti. í fyrri hluta máls- ins var ákært fyrir peningaþvætti en vegna formgaUa í ákæranni var henni vísað frá. Búið er að ákæra þann mann að nýju og er sú ákæra ein af þeim fimm sem era fyrir dómstólum þessa dagana. íslenskir dómstólar hafa því aldrei áður tekið efnislega afstöðu í ákærum um peningaþvætti. Búist er viö að Hjördís Hákonardótt- ir héraðsdómari og tveir meðdómend- ur hennar dæmi i málinu í febrúar. -SMK Neitaði aðild að fjársendingum Sverrir Þór Gunn- arsson sagöist aldrei hafa beöiö Bjarka Þór um aö senda eöa skipta fyrir sig peningum. Bakkafjörður: Steinbítur beit veiðieftirlitsmann KB; Óbreyttir vextir íbúðalánasjóður hefur ákveðið að fara að tilmælum Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra að fresta hækkun vaxta á lánum vegna byggingar leiguhúsnæðis þar til fyrir liggja tUlögur um aðstoð hins opinbera við leigjendur. Vext- irnir verða því óbreyttir 3,9% en ekki 4,9% eins og tUkynnt hafði ver- ið að þeir yrðu á þessu ári. Nýtt afurðamet Sauðfjárafurðir hafa aldrei verið meiri en á síðasta hausti. Meðalaf- urðir á hverja kind voru tæplega 28 kUó, sem er langbesta útkoma frá því skýrsluhald hófst. Mestar afurð- ir eru hjá bændum í Strandasýslu. Mbl. greindi frá. Naglanotkunargjald Starfshópur Gatnamálastjóra og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur heldur utan tfl Noregs á næstu dög- um og mun kynna sér hvernig Norðmenn hafa dregið úr notkun nagladekkja með því að taka upp gjald fyrir notkunina. Hópurinn á að leita úrræða til að draga úr ryk- mengun í höfuðborginni. Sighvats saknað Sighvatur Björg- vinsson hefur verið skipaður í starf framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnu- sjóðs. Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingar, seg- ist gleðjast fyrir hönd Sighvats Björgvinssonar en segir jafnframt mikla eftirsjá að honum. Undirbýr greiðslu bóta Hjá Tryggingastofnun er þessa dagana unnið að útreikningum og undirbúningi vegna greiðslu bóta til öryrkja í samræmi við væntanlega löggjöf Alþingis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Leitar leiða Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra mótar nú viðbrögð vegna innflutnings á irsku nautakjöti sem yfirdýralæknisembættið leyfði fyrir jól. Hann viU nú leita leiða tO að banna algerlega innflutning á kjöti frá kúariðulöndum. Prófmál og flýtimeðferð Formaður heilbrigðis- og trygg- inganefndar, Jónína Bjartmarz, seg- ir að lokaorðið um hvað sé réttur skflningur á öryrkjadómi Hæsta- réttar eigi dómstólamir. Það hljóti að verða farið i mál um þetta. Dag- ur greinir frá. Sleipnir vill vagnstjórana Óskar Stefáns- son, formaður Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis, telur eðli- legt að vagnstjórar hjá nýju sameignar- félagi um almenn- ingssamgöngur á höfuðborgarsvæð- inu verði í einu stéttarfélagi. Vonast hann tfl að menn beri gæfu til að sameinast um Sleipni. Dagur grein- ir frá. Skilnaðaralda á íslandi Alda skilnaða ríður nú yfir ís- land. Að sögn presta hafa umsóknir um skOnað aldrei verið fleiri en nú og er ungt fólk þar í miklum meiri- hluta. Orsökina telja þeir vera spennu, hraða og auknar kröfur i samfélaginu. Stöð 2 greindi frá. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.