Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2001, Page 7
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001
I>V
7
Fréttir
Olafur Ragnar
Grímsson
- þurfti
enga hjálp.
Rannveig
Guömundsdóttir
- ofstutt á
ráöherrastóli.
Davíð Oddsson
- fær það sem
hann vill.
. Halldór
Ásgrímsson
- orðrómur
um útkikk.
þings undir merkjum Vinstri-
grænna og hefur ekki sótt starf til
pólitíkusa. Ragnar Arnalds, fyrr-
verandi ráðherra og formaður Al-
þýðubandalagsins, fékk heldur
ekki neitt en hætti á Alþingi fyrir
aldurs sakir. Sverrir Hermanns-
son, formaður Frjálslynda flokks-
ins og áður ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, á að baki þá sérstöku
sögu að ráðherradómur fleytti
honum í bankastjórastól í Lands-
bankanum. Hann sagði síðar af sér
og stofnaði Frjálslynda flokkinn og
situr nú sem óbreyttur þingmað-
ur. Aðrir fyrrverandi ráðherrar
sem sitja sem óbreyttir á Alþingi
eru samfylkingarmaðurinn Guð-
mundur Árni Stefánsson, sem
sagði af sér embætti heilbrigðis-
ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir
og arftaki Guðmundar Árna á stóli
félagsmálaráðherra, Rannveig
Guðmundsdóttir. Samfylkingar-
maðurinn Sighvatur Björgvinsson
situr enn á þingi en hverfur brátt
til annarra starfa, einnig Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, og Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingar. Talið
er að Jóhanna Sigurðardóttir hafi
ekki borið sig eftir vegtylium utan
Alþingis en Rannveig og Guð-
mundur Árni hafa verið of
skamman tíma á ráðherrastólum
til að sjálfsagt þyki að þau fái feit
embætti. Þá situr Margrét Fri-
mannsdóttir óbreytt á þingi, eftir
að hafa verið formaður Alþýðu-
bandalagsins og annað foreldra
Samfylkingarinnar. Margrét náði
aldrei að verða ráðherra, hvað svo
sem framtíðin færir henni. For-
veri Margrétar á formannsstóli,
Ólafur Ragnar Grímsson, þurfti
enga hjálp því þjóðin valdi hann
til embættis forseta íslands.
Síðastur til að hljóta frama utan
stjórnmálanna er Sighvatur Björg-
vinsson sem í gær var ráðinn í
starf forstjóra Þróunarsamvinnu-
stofnunar. Hann hefur verið for-
maður Alþýðuflokksins og gegnt
ráðherraembættum. Þá má ekki
gleyma þvi að hann átti inni greiða
hjá Framsóknarflokknum eftir að
hafa gert Steingrím Hermannsson
að seðlabankastjóra.
Fram undan
Davíð Oddsson hefur setið leng-
ur samfleytt á forsætisráðherra-
stóli en aðrir á lýðveldistímanum.
Spádómar hafa verið uppi um að
hann muni hverfa af stjómmála-
sviðinu á næstunni. Engin vanda-
mál eru varðandi arftaka þar sem
Geir H. Haarde er með þá stöðu
innan flokks að geta tekið við kefl-
inu. Ýmis þreytumerki eru á Dav-
íð eftir að hafa gegnt slítandi starfi
um árabil en þess er skemmst að
minnast að hann dró það mánuð-
um saman að taka af skarið um
það hvort hann færi í slaginn um
forsetaembættið. Víst er að Davíð
fær það embætti sem hann kærir
sig um. Orðrómur hefur verið um
að hinn foringi ríkisstjómarinnar,
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, hafi verið á útkikki eftir
rólegu starfi eftir að hafa staðið í
eldlínunni um áratugaskeið. Hall-
dóri eru allir vegir færir enda á
hann að baki þann feril að hinar
óskráðu reglur setja hann ásamt
Davíð efstan á lista þeirra sem rétt
eiga á embættum. Halldór á þó illa
heimangengt þar sem flokkur hans
er í mikilli lægð og víst að hann
hrekkur ekki frá borði meðan
þannig stendur á. Þá er arftaki
hans ekki í sjónmáli eftir að Finn-
ur Ingólfsson varaformaður gekk í
blóma lífsins til liðs við banka-
stjórn Seðlabankans. Næsta feita
starf sem losnar er staöa Birgis ís-
leifs Gunnarssonar seðlabanka-
stjóra sem er að komast á aldur.
Samkvæmt helmingaskiptaregl-
unni sest sjálfstæðismaður í stól-
inn. Hver það verður er óljóst en
nafn sjálfs Davíðs Oddssonar ber
gjaman á góma. Þá munu á næst-
unni losna bankastjórastörf í Bún-
aðarbankanum þar sem banka-
stjóratríóið er allt að komast á ald-
ur, auk þess að óvíst er hvernig
þeim reiðir af eftir rannsókn sem
fram fer á innri málum bankans.
Þar gæti orðið lag fyrir gamla end-
urskoðandann, Halldór Ásgríms-
son.
Mold
Pottaplöntur
Aburður
Otrúlegt il
úrval aS ■*'
pottaplöntum!
Garðyrkjufræðingarnir
okkar eru búnir að velja inn
yfir 50 tegundir af nýjum
spennandi pottaplöntum og
við höldum okkur við
hagstæðu verðin.
Því ekki að gleðja
bóndann með
einhverju fallegu
sem minnir á ástina
og vorið framundan
hann á það skiliðl
í dag eru aðeins
3 mánuðir i
sumardaginn
fyrsta:
og (ffier rétti tíminn til
.að huga að sáningu á
r stjúpufræjunumí
Gæludýradeildín
Gæludýravörur
Proplan dýrafóður
Dýraleikföng
Blautmatur
Þurrfóður
Fuglafóður
Vr|W|l Frisbee úr
1. M M nautahúð
Komdu í Garðheima ]
þar sem allt er skemmtílegt /7
og á verði sem hentar litlum 7
JaSnt sem stórum buddum! _
MJÓDD
Stekkjarbakki
GARÐHEIMAR
Heimur skemmtilegra hluta
og hugmynda
Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00
Fax: 540 33 01 • Veffang: www.grodur.is
Á myndinni: Nephrolepsis e<a ;ata
sveroburkni. Beaucarnea (Nolina)
Flóskulilja Dracaena reflexa ’Song of
India , Drekatré Kentia forsteriana.
Pálmi, Aloe Vera, Polyscias
Sólhlifarblóm, Phaiaenopsis og
Oncidium orkideur. ficus þenjamina
'Dar.ielle' Fíkjutré, Pachira m
fléttuðum stofni, Agave cg fleiri
þyskbiöðungar, Kaktusar ýmsar
tegundir, margar stærðir
Wj 1■ í W 'VrSmmé
i
wAjí? 'lr*