Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2001, Side 12
12
__________________FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001
Skoðun x>V
I grunnskólanum
„íslenskan grundvallarmáliö. “
Björgum íslenskunni strax
Spurning dagsins
Hvaða mánuður finnst þér
skemmtilegastur?
Atli Aðalsteinsson, starfsm. Aco:
Júní, því þá er sumariö aö byrja og
bjartur tími fram undan.
Brynhildur Stefánsdóttir
starfsm. Aco:
Desember, því þá eru jólin og hann
er minn afmælismánuður.
Árni Sigurjónsson sölumaður:
Júní, því þá á ég afmæli og er alltaf
í sumarfríi þá.
Magnús Einarsson sölumaður:
Október, þá er golftíminn búinn og
ég oröinn þreyttur.
Bjarni Ákason forstjóri:
Júlí, þá er svo mikill fiskur i ánum.
Ólafur Hand sölumaður:
September, þá á ég afmæli og allar
flottustu konurnar líka.
íslenskt þjóðfélag
tekur nú örari
breytingum en
nokkru sinni fyrr.
Fólksflóran er gjör-
breytt, hér búa mun
fleiri útlendingar
og af fleiri kynþátt-
um en fyrir
nokkrum áratug-
um. Með tilkomu
tölvunnar og áhuga
yngri kynslóðarinnar á þeim mögu-
leikum sem hún veitir er ekki nema
eðlilegt að enskan, sem er tungumál
tölvunnar, þrengi sér inn í hugskot
margra, yngri sem eldri landsmanna.
Nú hefur enskan verið tekin fram
yfir dönskuna sem byrjendatungu-
mál í grunnskólum. Það var rökrétt
ákvörðun, og breytir aðstæðum,
þannig að nú fá nemendur að kynn-
ast því tungumáli fyrr sem mest
verður notað á eftir okkar eigin
máli, íslenskunni. En íslenskan á
undir högg að sækja. Blindur væri
sá maður á gang þjóðlífsins sem sæi
það ekki. Jafnt í viðtölum og í mál-
Margrét Björnsdóttir
skrifar: __________________________
Langþráður hæstaréttardómur er
fallinn í máli öryrkja. í einfeldni
minni hélt ég að þetta mikla réttlæt-
ismál myndi koma þeim til góða er
minnst mættu sín í þjóðfélaginu. Svo
virðist ekki. Þegar maður skoðar
uppsetta töflu í blöðunum, rennur
það upp fyrir mér, skattgreiðandan-
um, að sá hluti skattgreiðslna minna
sem ég hélt að væri á leiðinni til
þeirra sem hefðu mesta þörfina fer
alls ekki þangað. Þvert á móti. Þeir
öryrkjar sem eru giftir, eða f sambúð
með maka sem hefur hæstar tekjur
fá mest. Þeir sem eru i sambúð með
láglaunamaka fá ekki minnst, nei;
þeir fá ekkert. Ekki krónu.
Það er líka ógeðfellt hvernig póli-
tikusar, eins og formaður Samfylk-
Að greina orð í kyn, tölu,
flokka og fallbeygja þau
œtti ekki að vera ofraun á
þessum aldri og eflaust
tœkju krakkamir þessu ein-
faldlega sem spennandi
leik. Og á ekki að vera
leikur að lœra?“
fari margra sem síst skyldi gruna
um græsku í þessu efni, svo sem út-
varpsmanna, þingmanna, leikhús-
fólks o.fl. o.fl.
Það er undir því komið hvemig við
höldum á málum hvort íslenskan
verður aðalmálið eða enskan tekur
við. Við verðum því að bregðast við
með allt öðrum og sneggri hætti en til
þessa ef við ætlum að bjarga íslensk-
unni. Ég sé ekki nokkra ástæðu til
annars en að byrja að kenna íslenska
málfræði strax í öðrum bekk grunn-
skólans, eða öllum þeim sem orðnir
era læsir. Að greina orð í flokka, kyn,
„Það er ekki málstað ör-
yrkja til framdráttar
hvemig þessi mál virðast
vera að þróast. Það er verið
að skapa múgsefjun sem
engan endi mun taka. “
ingar og fleiri, notfæra sér þetta mál
sér persónulega til framdráttar.
Það er ekki málstað öryrkja til
framdráttar hvemig þessi mál virð-
ast vera að þróast. Það er verið að
skapa múgsefjun sem engan endi
mun taka. Hljóðnemanum er ýtt að
hverjum pólitíkusinum og verka-
lýðsforingjanum eftir annan, að
ógleymdum formanni Öryrkjabanda-
lagsins, og stóryrðin hvergi spöruð.
tölu og að fallbeygja þau ætti ekki að
vera ofraun krökkum á þessum aldri
og eflaust tækju þeir þessu einfald-
lega sem spennandi leik. Og á ekki að
vera leikur að læra?
Samhliða þessari íslenskukennslu
kæmi svo enskan sem fyrsta erlenda
tungumálið en íslenskan túlkuð
þannig af kennurum að hún væri
grundvallarmálið sem hún líka verð-
ur með kennslunni og talmálinu inn-
an skólans. Áherslu yrði að leggja á
að góð íslenskukunnátta væri hinn
eini og rétti grunnur til að byggja á
kunnáttu annarra tungumála.
Niðurstaða mín er þessi: því fyrr
sem lögð er áhersla á málfræðiþekk-
ingu íslenskunnar þeim mun betur
festist tungumálið okkar í huga nem-
endans. Ásamt þeirri innrætingu,
sem hér er nauðsynlegt að beita,
m.a. með því að það sé einmitt
merki um menntunarleysi að puðra
út úr sér slanguryrðum á ensku í
daglegum samskiptum fólks. - Hér
er verk að vinna og nauðsynleg út-
færsla á björgunaraðgerðum þolir
ekki bið.
Nú skal láta kné fylgja kviði og
ríkisstjómin skal sko ekki sleppa í
þetta sinn! - í þessari atrennu náðust
700 milljónir fyrir þá sem hafa það
skást í þessum hópi, en við viljum
meira fyrir þá, 7 ár aftur í tímann,
en ekki 4 ár!
Hér virðist sem um fundiö fé af
himnum ofan sé að tefla og um að
gera að vera bara nógu duglegur og
ósvífmn að ná í það!
Ég styð einlæglega þá sem minnst
mega sín í þjóðfélaginu. En þegar
maður heyrir af því að vel efnað fólk
er að fá ávísun upp á 1,5 milljónir,
tekna af skattfé samborgaranna,
rikra og fátækra, virðist niðurstaðan
vera sú að Öryrkjabandalaginu hef-
ur tekist að tryggja þeim best stæðu
mest, en lágmarksbætur þeim verst
settu.
Geir R.
Andersen
blm. skrifar:
Hverjir fengu peningana?
Dagfari
Leiðtogaefni í hverju horni
Mikil hrifning ríkir nú í herbúðum R-listans
í Reykjavík þegar ljóst er að Inga Jóna Þórðar-
dóttir mun enn einu sinni leiða lista Sjálfstæð-
isflokksins i næstu borgarstjómarkosningum.
Dagfari tók eftir því í DV í gær að Inga Jóna
nýtur mikils stuðnings sem leiðtogi sjálfstæðis-
manna í næstu kosningum. Hefur þar nokkra
yfirburði á Júlíus Vífil Ingvarsson. Þegar hins
vegar hennar eigin flokksmenn eru spurðir
snýst dæmið við. Inga Jóna hefur þá lítið fylgi
sem forystusauður og ljóst að sjálfstæðismenn
vilja helst að Júlíus Vífill setjist í bílstjórasætið.
Athygli vekur að Inga Jóna hefur þónokkurt
meira fylgi sem leiðtogi lista Sjálfstæðisflokks-
ins en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
en 4% vildu hana sem næsta leiðtoga Sjálfstlð-
isflokksins.
Hvemig sem allt fer er ljóst að sjálfstæðis-
menn hafa úr miklu úrvali að velja þegar þeir
ákveða hver leiða skuli lista þeirra fyrir næstu
kosningar og eftir þær. Inga Jóna er þar vitan-
lega ofarlega á blaði enda hefur hún sannað sig
sem sterkur leiðtogi, sérstaklega í kosningum
undanfarið og séð nánast upp á eigin spýtur að
afhenda R-listanum lyklavöldin i Ráðhúsinu.
Margir eru þeirrar skoðunar að kalla beri eftir
Árna Johnsen til þess að leiða listann fyrir
Margir eru þeirrar skoðunar að kalla beri
eftir Árna Johnsen til þess að leiða listann
fyrir næstu kosningar. Ámi hafi sýnt
afburða tdkta sem formaður
samgöngunefndar Alþingis og starfað um
árabil af mikilli elju og samviskusemi sem
þingmaður. Beri stífar mœtingar hans á
þingfundi þingmanninum fagurt vitni.
næstu kosningar. Ámi hafi sýnt afburða takta
sem formaður samgöngunefndar Alþingis og
starfað um árabil af mikilli elju og samvisku-
semi sem þingmaður. Beri stífar mætingar
hans á þingfundi þingmanninum fagurt vitni.
Sjálfstæðismenn hafa úr fleiri möguleikum
að moða. Mörgum finnst sjálfsagt að gefa Dav-
íð tækifæri og svo má ekki gleyma Guðlaugi
Þór Þórðarsyni. Guðlaugur Þór er fuiltrúi
yngri kynslóðarinnar, afburða ræðumaður og
rökfastur. Með öðrum orðum vel líklegur til
þess að standa sig afburðavel þegar mæta þarf
Ingibjörgu Sólrúnu í kappræðum fyrir næstu
kosningar. Þá nýtur Guðlaugur Þór mikillar
virðingar á meðal hins almenna Reykvikings.
Af framansögðu má ljóst vera að sjálfstæðis-
menn eru ekki á flæðiskeri staddir þegar hug-
að er að foringjaefnum í Reykjavík. Lítil inn-
stæða er því fyrir þegar hafinni sigurgleði R-
listans. Sjálfstæðismenn hafa sýnt það undan-
farin ár að þeir kunna best allra að velja sér
fólk til forystu. Inga Jóna er gott dæmi þar um.
Og ekki má gleyma Áma Sigfússyni, þeim sig-
ursæla leiðtoga. Ingibjörg Sólrún mætti nú
fyrst vara sig ef hann kysi að snúa aftur í slag-
Ínn'
Sótt í verðbréfin
Dularfull gengisskráning.
Verðfallið á bréfum
Gunnar Ólafsson skrifar:
Ég er helst farinn að hallast að því
að verðbréfamarkaður hér á landi sé í
besta falli sjónarspil sem almenning-
ur hafi verið blekktur til að taka þátt
i. Jafnvel happdrættin hér á landi séu
áreiðanlegri viðskiptunum á hluta-
bréfa- og verðbréfamarkaðinum. Ég
átti viðskipti í upphafi við einn bank-
ann hér með kaupum á verðbréfum
(ekki hlutabréfum) í sjóðum sem nú
hafa lækkað verulega. Engin vitræn
skýring er á lækkuninni en svörin sí-
fellt þau að ekki megi örvænta um
hækkun síðar. Mér sýnist sem skrán-
ing verðbréfa hér, svo og hlutabréfa,
fari eftir einhverjum tilviljanakennd-
um duttlungum - einhverra sem
„stjórna11 skráningu bréfanna. Ég
vitna einnig til fyrirtækja sem eru
nær alltaf á „sokkaleistunum" en
standa jafnan uppi með sömu eða
svipaða skráningu. Er ekki eitthvað
verulega bogið við þetta allt?
Svindlurum úthýst?
Magnús Sigurðsson skrifar:
Eins og mörgum er kunnugt var
Davíð Oddsson valinn stjórnmálamað-
ur ársins 2000 af lesendum vefritsins
Kreml sem stýrt er af „ungum“
vinstrimönnum. Á vefnum er þess nú
getið að töluvert var um svindlat-
kvæði við kosninguna. Hátt 1 fimm
hundmð svindlatkvæði voru dregin
frá Össuri Skarphéðinssyni og Stein-
grimi J. Sigfússyni við útreikninga á
niðurstöðum. Þeir voru þó aðeins
hálfdrættingar í samanburði við Ólaf
Ragnar Grímsson sem hlaut um eitt
þúsund slík atkvæði. Það var þó til lít-
ils því forseti íslands endaði í neðsta
sæti í þessari kosningu.
Á Kefiavíkurflugvelli
Fleiri tilllögur um Reykjavíkurflugvöll
styðja flutning til Keflavíkur.
Fleiri tillögur, takk!
Reykvíkingur hringdi:
Eins og fram hefur komið í umræð-
unni um Reykavíkurflugvöll hefur nú
verið ákveðið að kosning fari fram
um málið meðal Reykvíkinga. Sýnist
mér bogarstjóri vera fremur á þeirri
skoðun að völlurinn eigi að hverfa að
fullu. Ég er því sammála. Og eins og
borgarstjóri virðist hafa gott innsæi í
pólitík, þykir mér ekki fráleitt að hún
bíði nú aðeins fleiri og fleiri tillagna
um framtíð vallarins í Vatnsmýrinni,
til þess að geta kveðið upp úrskurð
um að allt innanlandsflug verði fært
til Keflavíkur. Sem er líka langódýr-
asti kosturinn.
Ræöa Davíðs á þingi
Sigurjón Ólafsson skrifar:
Frábær málflutningur Davíðs Odds-
sonar á Alþingi sl. miðvikudag var
eftirtektarverður. Hann reifaði dóm
hæstaréttar i smáatriðum og satt að
segja kvað hann stjómarandstöðuna
svo rækilega í kútinn að eftir verður
munað. Hann minnti á ókvæðisorð
andstæðinga sinna í ræðu og riti og
sagði ódrengilegt að fullyrða að rétt
kjörin ríkisstjórn hefði ætlað að snið-
ganga margumræddan dóm hæstarétt-
ar, og ríkisstjórnin hefði verið í
heilögu stríði gegn öryrkjum. Með
þessari ræðu forsætisráðherra á Al-
þingi er hann óumdeilanlega fremsti
stjórnmálamaðurinn sem þar situr.
iDV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 ReyKfavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.