Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2001, Qupperneq 28
m
Frumsýnum
nýjan Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Nýr borgarstjórabíll:
Með topp-
lúgu og leð-
ursætum
- í stað Nissan Primera
* „Þetta eru gæði á góðu verði,“ sagði
Jóhannes Reykdal, blaðafulltrúi Heklu,
um nýjan borgarstjórabíl sem keyptur
hefur verið handa Ingibjörgu Sólrúnu
Gisladóttur. „Þetta er Audi A6 með 2,4
lítra vél, sjálfskiptur, 165 hestafla með
leðursætum og lúgu. Verðið er 4,2 millj-
ónir,“ sagði Jóhannes Reykdal en Hekla
tók gamlan Nissan Primera upp i kaup-
verðið en á þeim bíl hafði borgarstjór-
inn lengi ekið.
Audi A6 komst í undanúrslit í keppn-
inni um Stálstýrið og bíl ársins sem
fram fór fyrir skemmstu hér á síðum
DV en í keppninni sigraði Mercedes
Benz-bifreið: „Sá tími er liðinn að
stjómmálamenn aki um á 10 milljóna
króna Benz þegar þeir geta fengið sam-
bærileg gæði í b0 eins og Audi fyrir
miklu minna verð,“ sagði Jóhannes
Reykdal og staðfesti að Valgerður Sverr-
isdóttir viðskiptaráðherra hefði nýverið
fengið alveg eins bil og borgarstjóri.
Sjálfur ekur Davíð Oddsson forsætisráð-
herra á Audi en hann er stærri, Audi
A8,“ sagði Jóhannes Reykdal. -EIR
Hæsta tilboði tekið vegna tölvubúnaðar sem nota á í flugvallarkosningunum:
Nýi borgarstjórabíllinn
Bílstjóri borgarstjóra viö nýja Audi-bílinn. Glæsivagninn er leöurklæddur meö topplúgu og 165 hestöfl meö 2,4 lítra vél.
Öryrkjamál í nefnd
Fyrstu umræðu um öryrkjamálið
lauk í gærkvöld eftir mikið maraþon
þar sem margir þingmanna stigu
margoft i pontu. Málið fer nú til heil-
brigðis- og trygginganefndar þar sem
fjallað verður um það í dag og á morg-
un. Áætlað er að taka það til annarr-
ar umræðu í þinginu eftir helgi. -JSS
Ráðherra í hönd-
um hjartalækna
Ingibjörg
Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra
liggur enn á
hjartadeild Land-
spitaians í Foss-
vogi eftir að hún
fékk aðsvif i
beinni útsendingu
fréttatíma Sjón-
varpsins í fyrra-
kvöld. Dr. Uggi
Agnarsson hjartalæknir annast ráð-
herrann. Áður en hann fór á stofúgang
í morgun sagði hann að ekkert nýtt
væri að frétta af rannsókn á heilsufari
ráðherrans. Búist er við að Ingibjörg
dveljist á sjúkrahúsi þangað til á morg-
un. Henni hafa hvaðanæva borist blóm
og hlýjar óskir um bata, -rt
Ingibjörg
Pálmadóttir.
Davíð nær botni
í Helgarblaði DV verður fjallað
um vinsældir Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra eins og þær hafa
birst í skoðanakönnunum DV sið-
ustu 10 árin eða þann tíma sem Dav-
íð hefur leitt ríkisstjóm. í vikunni
mældust óvinsældir Davíðs meiri
en nokkru sinni áður á ferli hans.
Einnig verður rætt við Bjöm Jör-
und Friöbjörnsson um kvikmynd-
ina Villiljós og fleira, spjallað við
Andra Snæ Magnason, höfund verð-
launabókarinnar Bláa hnattarins,
um frumsýningu leikgerðar verks-
ins.
Stjömukort ráðherranna eru
skoöuð og reynt að átta sig á því
hverjum lyndir best við hverja á
ríkisstjórnarheimilinu.
Eg vil alvöruútboð
- segir framkvæmdastjóri Kuggs sem átti lægsta tilboðið - kosið í Kringlunni
„Það veröur
farið að þeim
reglum sem gilda
um kosningar og
kosið í nokkrum
skólum í Reykja-
vík, svo og í
Kringlunni ef sú
leið reynist fær,“
sagði Kristín
Ámadóttir, að-
stoðarkona borg-
arstjóra, um
kosningamar
vegna staðsetningar Reykjavíkur-
flugvallar sem fram eiga að fara 17.
mars næstkomandi. „Við komum til
móts við kjósendur með því að láta
hanna miðlæga kjörskrá sem þýðir
að Reykvíkingar geta kosið á þeim
kjörstað sem næstur er, óháð bú-
setu. Þess vegna leggjum við
áherslu á að koma upp kjördeild í
Kringlunni þar sem yfirleitt er
margt um manninn," sagði Kristín
Árnadóttir.
Ein heiidarlausn
í tengslum við flugvallarkosning-
una var gengið til samninga við
tölvufyrirtækið Einar J. Skúlason
um tölvukerfi sem annað gæti raf-
rænni kosningu eins og þeirri sem
fram fer vegna flugvallarins. Verkið
var boðið út og sendu nokkur tölvu-
fyrirtæki inn tilboð. Þrátt fyrir að
sum þeirra gerðu tilboð upp á þrjár
milljónir var samið við Einar J.
Skúlason en tilboð fyrirtækisins
hljóðaði upp á tæpar átta milljónir:
„Einar J. Skúlason var eini tilboðs-
gjafinn sem gat boðið heildarlausn í
tölvubúnaði vegna þessara kosn-
inga,“ sagði aðstoðarkona borgar-
stjóra.
... skil ekki
Valgarður Guð-
jónsson, fram-
kvæmdastjóri
hugbúnaðarfyrir-
tækisins Kuggs,
er þó ekki sam-
mála aðstoðar-
konu borgarstjóra
en Kuggur átti
lægsta tilboðið i
tölvubúnaðinn
vegna flugvallar-
kosninganna:
„Okkar tilboð var metið fullgilt
og ég skil ekki hvernig Innkaupa-
stofnun borgarinnar hefur getað
reiknað sig upp í þá niðurstöðu sem
varð. Næst vil ég alvöruútboð,"
sagði Valgarður Guðjónsson sem
sendi inn þrjú tilboð sem voru á bil-
inu frá tveimur milljónum upp í
tæpar þrjár milljónir.
Andstaða í nágrannabyggðum
Rafræn kosning, eins og sú sem
stefnt er að 17. mars, auðveldar
mjög talningu atkvæða sem telja sig
í raun sjálf um leið og kosið er. Nið-
urstaða ætti því að liggja fljótt og
örugglega fyrir. Líklegast er talið að
valið í kosningunum standi á milli
þess að hafa höfuðstöðvar innan-
landsflugsins í Reykjavík, þar sem
flugvöllurinn er nú, eða þá í Kefla-
vík. Aðrar hugmyndir þykja lítt
fýsilegar vegna kostnaðar eða þá
andstöðu sveitarfélaga í nágrenni
Reykjavíkur sem hafa ekki áhuga á
landfrekum flugvelli sem tæki upp
dýrmætt byggingarland framtíðar-
innar. -EIR
Krlstín Árnadóttir
EinarJ. Skúlason
meö einu heildar-
lausnina.
Valgarður
Guöjónsson
Viö vorum lægst-
ir - og meö gilt
tilboö.
Eldur í þakíbúð á Laugavegi:
Ónýt eftir bruna
Þakíbúð eyðilagðist af eldi á Lauga-
vegi 18b um klukkan 22 í gærkvöldi.
íbúðin er í sama húsi og verslunin
Dressmann.
„Þetta var dæmi um góðar eldvamir
sem verða til þess að eldurinn helst á
takmörkuðu rými og veldur þá ekki öðr-
um íbúum eða fyrirtækjum óþægind-
um,“ sagði Friðrik Þorsteinsson, stöðv-
arstjóri slökkviliösins í Skógarhlið.
Það var starfsfólk Máls og menning-
ar, sem er í næsta húsi við, sem varð
vart við eldinn og gerði slökkviliðinu
viðvart skömmu fyrir klukkan 22. í
fyrstu var ekki vitað hvort fólk væri í
íbúðinni og fóru slökkviliðsmenn frá
þremur stöðvum - Skógarhlíð, Tungu-
hálsi og Reykjavíkurflugvelli - á stað-
inn, ásamt tveimur ranabílum. Vitað
var að umgangur hafði verið um íbúð-
ina fyrr um kvöldið en fljótlega kom í
ljós að hún var mannlaus.
Eldvamarhurðir og annar frágang-
ur íbúðarinnar héldu eldinum í skefj-
um en Friðrik sagði þennan frágang
vera til fyrirmyndar. „Þetta var af-
markaður eldur svo menn gátu beint
sér að þessu því að í upphafi hafði
ekki, eins og gerist oft, mikill reykur,
sót og hiti borist um nærliggjandi
rými. Það var sáralítið af því og þetta
tókst vel til þar sem það var hægt að
Mikill fjöldi slökkviliösmanna
Allt tiltækt slökkviliö var kallaö til er
eldur kom upp á efstu hæöinni.
halda þessu svo afmörkuðu," sagði
Friðrik. Greiðlega gekk að slökkva eld-
inn. Enn er ekki vitað hver eldsupptök
vora en lögreglan hóf rannsókn í gær-
kvöldi og ætlaði að halda því starfi
áfram i dag. -SMK
Heilsudýniur t sérflokki!
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpl prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.ls/rafport