Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 DV Fréttir Villtist á Esjunni: Erlendum feröa- manni bjargað Björgunarsveitarmenn úr Slysa- varnafélaginu Landsbjörg stóðu að giftusamlegri björgun erlends ferða- manns sem villtist á Esjunni á sunnudagskvöldið. Maðurinn var vel útbúinn og hafði farsíma með- ferðis sem hann notaði til þess að kalla á hjálp er hann uppgötvaði að hann hafði villst eftir að myrkur skall á. Félagar úr björgunarsveit- inni Kyndli í Mosfellsbæ fóru upp i Esju ásamt leitarhundi en svæðis- stjórn björgunarsveitanna stýrði að- gerðum. Aðstæður voru erfiðar þar sem ís og snjór huldi klettabelti efst í fjall- inu og notuðu björgunarmenn sig- búnað við að koma manninum nið- ur. Hann hélt þó ró sinni allan tim- ann og var vel haldinn er niður kom. -SMK Kópavogur: Pitsubíl stolið Pitsubíl var stolið af Smiðjuvegi í Kópavogi aðfaranótt laugardagsins. Bilnum var lagt fyrir utan útibú Hróa Hattar á Smiðjuveginum og var stolið á timabilinu frá miðnætti til klukkan flmm um morguninn. Bíllinn er rækilega merktur Hróa Hetti í bak og fyrir en leit að honum hefur engan árangur borið. Bifreiðin er af gerðinni Toyota Corolla og ber númeraplöturnar DT 951. Lögreglan í Kópavogi biður þá sem gætu hafa orðið bílsins varir um að hafa samband við sig í síma 560 3050. -SMK Grafarvogur og Stórhöfði: Kveikt í gám- um og ný- byggingu Skömmu eftir hádegi í gær var slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kallað út vegna elds í nýbyggingu en hún stendur á móts við Bónus í Spönginni í Grafarvogi. Þar hafði einhver hellt mótaolíu á gólfið og borið eld að. Að sögn varðstjóra slökkviliösins var þó ekkert sem gat brunnið í nýbyggingunni, svo engar skemmdir hlutust af eldinum. Fjöl- margir hringdu í neyðarlínuna til þess að tilkynna um brunann. Á sunnudagskvöldið var eldur borinn að tveimur gámum Sorpu á Sævarhöfða og við Gylfaflöt í Graf- arvogi. Á seinni staðnum logaði mikill eldur. Engan sakaði og eru brennuvargamir ófundnir enn. Reykjavík - fjölmenningarlegt samfélag: Unnið gegn for- dómum og fáfræði borgar um málefni nýbúa. „Það er áhugavert að við erum ekki lengur bara að tala um útlendingana heldur erum við líka að tala um hvað við öll sem búum í þessari borg þurfum að gera til þess að samfélagið verði frið- vænlegt. Grundvöllurinn í þessari stefnu er að það er ekki bara að út- lendingar þurfi að aðlagast íslensku samfélagi heldur að íslenskt samfé- lag þarf að aðlagast útlendingum sem flytjast hingað." Helga bætti því við að stefnan gerði ráð fyrir því að útlendingar yrðu virkir þátttakendur í þjóðfélag- inu á sem flestum sviðum og að sú þjónusta sem borgin byði upp á sé aðgengileg fyrir fólk af erlendum uppruna, sem og þá borgarbúa sem em fæddir hér og uppaldir. Áhersla lögö á fræðslu „Fólk er oft óöruggt, það veit ekki alveg hvað því fmnst um útlendinga. Við heyrum alltaf það neikvæða sem er að gerast úti í heimi en ekkert já- kvætt sem tengist innflytjendum, svo það er ekkert skrítið að fólk skuli vera óöruggt," sagði Helga. „Þess vegna er það mjög jákvætt að það skuli vera komin þessi stefna þar sem kemur fram að við viljum vinna gegn fordómum og auka þekk- ingu okkar og nýta okkur kosti fjöl- menningarlegs samfélags. Við verð- um líka að fara að gefa bömunum okkar skýr skilaboð um hvemig við viljum að sé talað um og komið fram við fólk sem hér býr en er ekki fætt hér og uppalið og eða er af öðrum uppruna." Stór áhersla í nýrri stefhu borgar- innar er lögð á fjölmenningarlega kennslu þar sem markmiðið er að gera alla nemendur hæfa til að búa í fjölmenningarlegu samfélagi. Þá er sérstakur þungi lagður á skólakerflð en samkvæmt nýrri rannsókn mannfræðinema í Háskóla íslands er yngra fólk haldið meiri fordómum gagnvart nýbúum en eldra fólk. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn í Reykjavík, sagði i samtali við DV að frekar sjaldgæft væri að árásarmál vegna kynþátta- fordóma kæmu inn á borð til lög- Reykjavíkurborg er um þessar mundir að gefa út greinargerð sem fylgir úr hlaði stefhu borgarinnar um fjöhnenningarlegt samfélag 2001 til 2004. Greinargerðin var unnin af samstarfsnefnd um málefni nýbúa á vegum þróunarsviðs Ráðhúss Reykjavíkur. Leiðarljós stefriunnar er „að reyk- vískt samfélag fái notið fjölbreytni í mannlífi og menningu þar sem þekk- ing, víðsýni, jafnrétti og gagnkvæm virðing einkenni samskipti fólks af ólíkum uppruna". Greinargerðin verður gefin út í fáum eintökum og er ætíuð fyrir borgarráð en stefnan mun fara til breiðari hóps fólks og verður hún gefin út á fimm tungumálum, ís- lensku, ensku, pólsku, rússnesku og taflensku. Um þrjú prósent borgar- búa eru erlendir ríkisborgarar. Skýr stefna „Reykjavíkurborg veit nú hvert hún vill stefna varðandi það hvemig okkar fjölmenningarlega samfélag á að líta út og það er mjög mikilvægt," sagði Helga Þórólfsdóttir, verkefnis- stjóri samstarfsnefhdar Reykjavíkur- Stefna í málefnum nýbúa Helga Þórólfsdóttir, verkefnisstjóri samstarfsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni nýbúa. Stefna Reykjavíkurborgar í málefnum nýbúa Borgin hefur látiö vinna greinargerö um fjölmenningarlegt samfélag Reykjavík- ur og sett hefur verið ákveðin stefna sem unniö verður eftir. reglu. Hann bætti því þó við að þar sem nýbúar væru ekki einkenndir á neinn hátt væri það ekki einfalt mál að fylgjast með því hvort oftar er ráö- ist á nýbúa en aðra Islendinga eða hvort nýbúar eru oftar kærðir. „Við sjáum það ekki í fljótu bragði og okkur hefur hingað til ekki þótt ástæða til þess að skoða það sérstak- lega,“ sagði Karl Steinar. Helga sagði að fólk verði að vara sig á því að tengja alla umræðu um útiendinga vandamálum. Flest fólk af erlendum uppruna hefur valið ísland af fúsum og frjálsum vilja og mikill meirihluti þeirra er ánægt hér. „Ég hefði meiri áhyggur ef útlend- ingar flyttust burt af landinu i stór- um stíl bæði með eða án íslenskra maka og bama. Það sem flestir sögðu í könnun sem Gallup lagði fyr- ir fólk af erlendum uppruna að væri jákvæðast við að búa á íslandi var að hér ríkir friður og hér er öruggt að búa - þetta eru lífsgæði sem við gleymum oft en við verðum að vera á varðbergi svo að við missum þau ekki,“ sagði Helga og bætti þvi við að útlendingar búsettir hér á landi gætu bent okkur á þessi lífsgæði. -SMK Veðrlð í kvöld Lægir viða í kvöld Austan- og suöaustanátt, víða 8-13 m/s, en lægir víða með kvöldinu. Rigning með köflum sunnan- og vestanlands en úrkomulaust á Norðausturlandi. Hiti 0 til 7 stig. REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 17.10 16.40 Sólarupprás á morgun 10.10 10.09 Síödegisflóö 22.16 02.49 Árdegisfióö á morgun 10.35 15.08 Skýfingar á vaðurtákiuuí) 10°—hiti 1$ -10° >> VINDSTYRKUR ! m«trum i s«kiin<lii FR0ST HEIÐSKÍRT -fe, ■O LETTSKÝJAO HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKÝJAÐ W w í? RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA V = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR P0KA Hálka víða um land Samkvæmt upplýsingum frá Vega- geröinni er snjóþekja á Hellisheiði. Hálkublettir og hálka eru á Vestfjörðum, Norðuraustulandi og Austurlandi. Að ööru leyti er greiðfært á helstu vegum. Suðaustanátt á öllu landinu Suðaustanátt um land allt. Rigning sunnan- og vestanlands en víöast þurrt á Norðausturlandi. Hita á bilinu 1 til 6 stig. Vestan- og suövestanátt, 5 til 10 m/s víðast hvar. Skúrir um sunnan- og vestanvert landlö en úrkomulitlö á Norðaustur- landi. Hitl 1 tll 6 stlg. Föstaöi - • ' I , J Vindur: 13-20 m/» Hiti 2° til 6° G<(8i! Sunnan- og suöaustanátt, 15 til 20 m/s um vestan- vert landlö en 13 tll 18 m/s um landið austanvert. Rlgnlng eöa skúrlr víða um land. Hltl 2 til 6 stig. Suöaustanátt, 8 til 13 m/s vestanlands en 5 til 8 m/s og úrkomulaust austanlands. Skúrir eöa slydduél suövestanlands en annars úrkomulaust. Veðfffö W. 6 AKUREYRI skýjað -1 BERGSSTAÐIR alskýjaö 0 BOLUNGARVÍK -1 EGILSSTAÐIR -1 KIRKJUBÆJARKL. rigning 4 KEFLAVÍK skúrir 6 RAUFARHÖFN alskýjaö 3 REYKJAVÍK rigning 4 STÓRHÖFÐI rigning 6 BERGEN lágþokublettir -2 HELSINKI snjókoma -3 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 2 ÓSLÓ þoka —6 STOKKHÓLMUR -8 ÞÓRSHÖFN skúrir 6 ÞRÁNDHEIMUR súld 0 ALGARVE heiöskírt 6 AMSTERDAM lágþokublettir 0 BARCELONA BERLÍN snjókoma 7 CHICAGO þokumóöa 4 DUBLIN þokumóða 7 HALIFAX skýjað -7 FRANKFURT skýjaö 1 HAMBORG þokumóöa 2 JAN MAYEN snjóél -3 LONDON mistur 2 LÚXEMBORG þokumóöa -2 MALLORCA heiöskírt 3 MONTREAL heiöskírt -8 NARSSARSSUAQ hálfskýjaö -9 NEW YORK skýjað 3 ORLANDO hálfskýjaö 17 PARÍS skýjað 2 VÍN alskýjaö 1 WASHINGTON alskýjaö 3 WINNIPEG heiöskírt -14 2E2E

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.