Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001
PV________________________________________________________ Útlönd
Ariel Sharon enn með afgerandi forystu í skoðanakönmmum í ísrael:
Arafat býr sig undir fund
með gamla erkióvininum
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, er farinn að búa sig undir
að þurfa að sitja samningafundi
með gömlum erkióvini sínum,
hægrisinnanum Ariel Sharon, leið-
toga Likud-bandalagsins.
Þegar aðeins er vika til forsætis-
ráðherrakosninganna í ísrael bend-
ir allt til að Sharon muni sigra
Ehud Barak forsætisráðherra með
miklum yfirburðum. Samkvæmt
skoðanakönnunum sem birtust í
morgun hefur Sharon enn tuttugu
prósentustiga forskot á Barak.
Arafat hafnaði því i gær að lýsa
yfir stuðningi sínum við annan
hvorn frambjóðandann, minnugur
friðarviðræðna við helsta harðlínu-
mann ísraelskra stjórnmála á árinu
1998.
Arafat minnist þess eflaust líka
að það var Sharon sem stjórnaði
innrás Israela í Líbanon á árinu
1982. í kjölfar hennar neyddust Ara-
fat og stuðningsmenn hans að flýja
Ofbeldisverk á Vesturbakkanum
ísraelskir hermenn viröa fyrir sér bíl ísraelsks landnema sem var skotinn til bana
á Vesturbakkanum í gær. ísraelskir hermenn drápu Palestínumann á Gaza.
til Túnis og setja upp höfuðstöðvar
sínar þar.
En bæði Arafat og hinn 72 ára
gamli Sharon virðast hafa sætt sig
við það að þeir þurfi að setjast sam-
an að samningaborðinu eftir kosn-
ingarnar 6. febrúar.
Arafat sagði í gær að þokast hefði
í samkomulagsátt á fundum Israela
og Palestínumanna í Egyptalandi
sem lauk um helgina. Hann lýsti yf-
ir vilja sínum til að taka upp
þráðinn að nýju eftir kosningarnar
í næstu viku.
Ofbeldisverkin héldu áfram á
heimastjórnarsvæðunum í gær.
ísraelskir hermenn skutu 21 árs
gamlan Palestínumann til bana á
Gaza. Síðar um daginn skutu Palest-
ínumenn svo 55 ára gamlan ísra-
elskan landnema til bana á Vestur-
bakkanum. Átökin hafa nú staðið í
fjóra mánuði og hafa 313 Palestínu-
menn fallið, 49 ísraelar og þrettán
ísraelskir ai-abar.
'mmmœlÉl
Neitar að segja af sér
Abdurrahman Wahid
Indónesíuforseti er sagöur tengjast
víötækum fjársvikum.
Varar við valda-
töku hersins
Vamarmálaráðherra Indónesíu,
Mahfud M. D., varaði í morgun við
því að herinn kynna að taka völdin
hættu stjórnmálaleiðtogar ekki
karpi sinu og einbeittu sér í staðinn
að þvi að stjórna landinu.
Forseti Indónesíu, Abdurrahman
Wahid, vísaði í gær á bug kröfum
um afsögn hans. Um 10 þúsund
námsmenn frá nokkrum háskólum í
Jakarta og öðrum borgum gengu að
þinghúsinu í gær til að leggja
áherslu á kröfuna um rannsókn
þingsins á tveimur spillingarmálum
sem forsetinn er sagður tengjast.
Óttast er að blóðug átök brjótist út
milli stuðningsmanna forsetans og
andstæðinga hans. í morgun var
kyrrt í Jakarta.
Borgaði sig út úr
bresku fangelsi
Auðugur breskur kaupsýslumað-
ur borgaði sig út úr fangelsi með
því að vísa til mannréttindalaga.
Sérfræðingar óttast að þar með
verði um tvenns konar réttlæti að
ræða, eitt fyrir fátæka og annað fyr-
ir ríka.
Kaupsýslumaðurinn, Alun
Phillips, sem er 36 ára, sat i gæslu-
varðhaldi grunaður um morð á eig-
inkonu sinni. Hann leigði öryggis-
verði sem gættu hans allan sólar-
hringinn og gat þannig haldið
áfram að lifa í lúxus. Phillips var þó
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
morðið á eiginkonunni sem hann
eignaðist þrjú börn með. Hann var
sakaður um að hafa hálfkyrkt hana,
síðan handjámað hana og drekkt í
baðkeri. Phillips hafði fundið nýja
kærustu en vildi ekki skilja. Við
skilnað hefði eiginkonan fengið
hluta föðurarfs hans sem var yfir 3
milljarðar íslenskra króna.
Morð í Noregi:
Nýnasistar óku um í leit
að þeldökku fórnarlambi
Síðastliðið fóstudagskvöld, þegar
Benjamin Labaran Hermansen,
þeldökkur 15 ára unglingur, var
myrtur í úthverfi Óslóar, óku
nýnasistar um og leituðu að
þeldökku fómarlambi, að því er
heimildarmaður norska blaðsins Af-
tenposten greinir frá. Slíkur bíltúr
er kallaður veiðitúr.
Fimm ungmenni hafa verið hand-
tekin vegna morðsins, þrír karlar
og tvær konur á aldrinum 17 til 21
árs. Þau eru öll í nýnasistahreyflng-
unni Boot Boys.
Lögreglan hefur lýst eftir sjötta
nýnasistanum, 19 ára, í allri Evrópu
vegna morðsins. Einn hinna hand-
teknu segir hann hafa framið morð-
ið skömmu fyrir miðnætti á fóstu-
dagskvöld.
Norska lögreglan rannsakar nú
hvað gerðist áður en Hermansen
var myrtur til þess að komast að því
hvort morðið á honum hafi verið
skipulagt.
„Ég veit að margir í Boot Boys
tóku þátt í leitinni að fórnarlambi.
Þetta var greinilega skipulagt
morð,“ segir heimildarmaður Aften-
posten sem veit þó ekki hvort búið
var að ákveða fyrirfram að ráða
einmitt Hermansen af dögum.
Morðið var framið í úthverfl þar
sem margir af erlendum uppruna
búa. Hermansen var á göngu ásamt
félaga sínum skammt frá heimili
sínum þegar maður stökk út úr bíl,
elti Hermansen uppi og stakk hann
í brjóst og kviðarhol.
Norska stjómin lýsti því yflr á
fundi með fréttamönnum í gær að
gripiö yrði til allra ráða í barátt-
unni gegn nasisma og kynþáttahatri
kæmi í ljós að morðið á Hermansen
hefði verið vegna kynþáttahaturs.
Dómsmálaráðherra Noregs,
Hanne Harlem, tilkynnti í gær að
stjómin ætlaði að skipa nefnd sem
fara ætti til Svíþjóðar og Þýskalands
til að kanna hvernig bann gegn nas-
istahreyfingum virkar. „Þetta þýðir
að viö íhugum bann við nasista-
hreyfingum og samtökum kynþátta-
hatara," sagði ráðherrann.
Vetrarhátíö undirbúin
Japanir undirbúa nú vetrarhátíö í Sapporo og sýningu á 326 ísskúlptúrum. Búist er viö 2,2 milljónum feröamanna á
vetrarhátíöina sem hefst þann 6. febrúar næstkomandi.
r*"*
Vilhjálmur prins
Forvitnin um prinsinn er svo mikil aö
óprúttnir náungar eru tilbúnir aö
reyna aö hlera samtöl hans.
Komið upp um
samsæri um að
hlera Vilhjálm
Breska leyniþjónustan MI5 hefur
komið upp um samsæri um að hlera
símtöl og tölvupóst Vilhjálms prins
þegar hann kemur til náms í háskól-
anum í St Andrews í Skotlandi
næsta haust.
Leyniþjónustumenn fundu nýlega
hlerunarbúnað í bænum. Að sögn
heimildarmanna breskra dagblaða
var búnaðinum ætlað að fara í gang
þegar ákveðin orð væru töluð í síma
prinsins eða kæmu fyrir í tölvu-
pósti hans.
Rektor háskólans í St. Andrews
hefur varað nemendur og kennara
við alvarlegum afleiðingum greini
þeir flölmiðlum frá því sem prins-
inn tekur sér fyrir hendur.
Kúariðufárið að
sliga fjármál ESB
Landbúnaðarráðherrar Evrópu-
sambandsins fengu þær fregnir í
Brussel í gær að svo gæti farið að
kúariðufárið myndi sliga landbúnað-
ardeild ESB. Kostnaðurinn vegna
kúrariðunnar hefur farið hraðvax-
andi og sala á nautakjöti hefur
minnkað mikið, með þeim afleiðing-
um að kjötbirgðir hlaðast upp og er
komið í geymslu á kostnað skatt-
greiðenda.
„Ófremdarástandið á nautakjöts-
markaðinum nær lengra en maður
gæti haldið," sagði landbúnaðar-
stjóri ESB, Franz Fischler.
Óttinn við kúariðu hefur nú
breiðst út utan Evrópu, meðal annars
til Indlands og Bandaríkjanna.
Augusto Pinochet
Einræöisherrann fyrrverandi /' Chile
vill ekki koma fyrir rétt vegna ákæra
um morö og mannrán.
Dómari fyrirskip-
ar að Pinochet
skuli handtekinn
Chflenski dómarinn Juan Guzman
fyrirskipaði í gær að Augusto Pin-
ochet, fyrrum einræðisherra í ChOe,
skyldi handtekinn vegna ákæra um
morð og mannrán. Dómarinn vísaði
á bug tilraunum tO að stöðva réttar-
höld yfir Pinochet á þeim forsendum
að hann sé heilsuveOl.
Guzman hefur rannsakað Pinochet
í þrjú ár. Hann lagði fyrirskipun sína
fyrir dómstól i Santiago í gær.
Lögmaður Pinochets sagði að
reynt yrði að fá úrskurði Guzmans
hnekkt þar sem hann væri mjög svo
óréttlátur. Pinochet hefur fimm dagá
tO að áfrýja úrskurðinum.