Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 24
36 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 Tilvera v; lifiA E F T I R V. I N N U Málþing um skammdegis- þunglyndi Náttúrulækningafélag íslands efnir til málþings um skammdegisþunglyndi i kvöld kl. 20. Fjallað verður um orsök, afleiðingu og úrræði við skammdegisþunglyndi. Frummælendur á málþinginu eru Tómas Zoéga yfirlæknir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur, Jóhann Axelsson, prófessor í lifeðlisfræði og Leifur Þorsteinsson frá Ferðafélagi íslands. Auk þeirra taka þátt í umræðum þau Borghildur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafi, Guðjón Bergmann jógakennari, Hulda B. Hákonardóttir sjúkraþjálfari og Jón G. Stefánsson geðlæknir. Málþingið er öllum opið. Klúbbar ■ STEFNUMOT A GAUKNUM Stefnumót Undlrtóna verður í kvöld á Gauki á Stöng. Þar veröa hljóm- sveitirnar Trompet, God speed og Fuga, sem áöur hét Beespiders. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Allir eldri en 18 ára eru velkomnir. Leikhús ■ HAALOFT Geö- veiki svarti gaman- einleikurinn Háaloft er nú sýndur áfram eftir áramótin. Sýn- ing T kvöld kl. 21T Kaffileikhúsinu í Hlaövarpanum. Ein- leikari og höfundur verksins er Vala Þórsdóttir leikkona. Opnanir I FRASAGNARMALVERKIÐ I HAFNARHUSINU A sýningunni Frá- sagnarmálverkiö, sem stendur nú T Hafnarhúsinu, eru sýnd verk eftir hóp franskra listamanna sem uröu mjög áberandi þegar popplistin leit dagsins Ijós á sjöunda áratugnum. ■ SÓFAMÁLVERKH) í HAFNAR- HUSINU Sýningin Sófamálverkiö veröur stendur nú í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsl, en henni er ætlaö aö skírskota til þeirrar heföar á íslenskum heimilum aö gera stofuna aö miöpunkti heimilis- ins þar sem sófinn, með hinu hefö- bundna málverki fýrir ofan, er miö- punktur henngr. Sýningarstjórar eru Anna Jóa og Ólöf Oddgeirsdóttur. ■ ÁRLEG SÝNING BLAÐAUÓS- MYNDARA I GERÐARSAFNI Arleg sýning Ljósmyndarafélags Isjands og Blaöaljósmyndarafélags íslands. stendur nú í Llstasafni Kópavogs, Geröarsafni,. Sýningarnar bera yfir- skriftina Aö lýsa flöt og Mynd ársins 2000. Forseti Islands. Sýningarnar standa til 11. febrúar. ■ PÉTUR HALLDORSSON j GALL- ERII SÆVARS KARLS Pétur Hall- dórsson er meö sýningu í Galleríí Sævars Karls. Ferill hans er oröinn alllangur en hann tók þátt í fyrstu samsyningu sinni áriö 1977 og fýrstu einkasýninguna hélt hann áriö 1986. Pétur sýnir alls sex verk á sýningunni, þrjár olíumyndir og þrjú takn. Olíumyndirnar eru geröar síö- ustu fjögur árin, táknin fimm síðustu árin og eru verkin öll „í rólegu þróun- arferli“ eins og Pétur kemst aö orði. Pétur segir einnig fullum fetum að þetta sé besta sýning hans til þessa. Sjá nánar: Líflö eftlr vlnnu á Vísi.ls Ný útrás til Norður-Ameríku: Hönnun sem endurspeglar ís- Háskólabíó/Bíóhöllin - Cast Away jý jý Koffínlaus Krúsó Gunnar Smári Egilsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. lenska menningu íslenska fyrirtækið Hexa og am- eríska fyrirtækið Elfworks hafa tek- ið upp samstarf á nýstárlegri ullar- vörulínu sem á að fara á markað í Bandaríkjunum og Kanada. Línan einkennist af hönnun sem endur- speglar íslenska náttúru og arfleifð íslenskra þjóðsagna um álfa og huldufólk. Peggy Olsen, eigandi Elfworks, er af íslenskum ættum og með doktors- próf í goðafræði. Hún segir að á námsárunum hafi hún haft sérstak- an áhuga á tré lífsins og út frá því hafi hún fengið áhuga á íslenskri goðafræði og þjóðsögum. „Eftir að ég lauk námi starfaði ég um tíma sem sérkennari og varð þess íljót- lega vör að sögur um íslenskt huldufólk höfða sterkt til barna. Mig hefur alltaf langað til að fara út í sjálfstæðan atvinnurekstur þar sem ég get nýtt menntun mína og komið goðsögnum og þjóðsögum á framfæri. Elfworks er sérstaklega stofnað til að koma íslenskum vör- um á markað í Norður-Ameríku. Við fengum Michael Caney tísku- hönnuð til liðs við okkur og hann var fljótur að átta sig á þeim mögu- Föt fyrir börn og fulloröna Hönnunin endurspeglar ístenska náttúru og arfleifö þjóösagna um álfa og tröll. Hönnun, ull og þjóðsögur Michael Casey tískuhönnuöur, Peggy Olsen, eigandi Elfworks, og Barbara Griffiths frá bandaríska sendiráöinu. leikum sem íslenska ullin hefur upp á að bjóða. Fötin sem við erum að setja á markað eru bæði fyrir börn og fullorðna. Hönnunin á barnatot- unum tekur mið af íslenskri nátt- úru og endurspeglar sjó, kindur, sveppi og álfa. Kvenfatalínan tekur aftur á móti mið af fomu víkinga- mystri." Peggy segir að hverri flík fylgi lít- il bók með íslenskum huldufólks- sögum og um næstu jól standi til að vera með sögur um íslensku jóla- sveinana. „Við verðum að visu að laga sögurnar um jólasveinana að Ameríkumarkaði og breytum sum- um þeirra í stelpur." Byijað verður að kynna fram- leiðsluna í New York um miðjan febrúar og í Las Vegas í mars. Vöru- listar eiga aö vera tilbúnir í byrjun febrúar og um svipaö leyti verður hægt að kaupa fótin í gegnum Net- ið. -Kip Róblnson Krúsó nútímans Tom Hanks í hlutverki Chucks Nolans sem lifir einn af flugslys. Skáldsaga Daníels Defoe um Ró- binson Krúsó kom út árið 1719 og varð ein af fyrstu metsöluskáldsög- um sögunnar. Síðan eru liðin ein 282 ár - og ellefu, tólf kynslóðir hafa drukkið þessa sögu í sig og misjafn- ar endurgerðir og eftirlikingar hennar. Þessi saga er því klassísk- ari en nokkuð annað. Maðurinn þreytist ekki á að velta fyrir sér hvemig honum reiddi af ef hann yrði skilinn eftir einn í náttúrunni; hvort mennskan myndi gagnast honum; hvort honum tækist að við- halda mennsku sinni eða félli niður á dýrslegt plan; hvort lífið eigi sér einhvern tilgang handan mannfé- lagsins - og svo framvegis. Rammi sögunnar um Róbinson Krúsó er ekki klassískur fyrir ekki neitt - frásögn innan hans er dæmd til að fjalla um það sem i gamla daga var kallað: innstu rök tilverunnar. Og auðvitað er forvitnilegt að vita hvemig gulldrengir Hollywood fara með þessa sögu; leikstjórinn Robert Zemeckis, eins konar minni og glað- ari Spielberg (Romancing the Stone, Back to the Future, Who Framed Roger Rabbit, Forrest Gump), hand- ritshöfundurinn William Broyles Jr. (Apollo 13, Entrapment, Planet of the Apes) og tvöfaldi óskarsverð- launahafinn Tom Hanks (Sleepless in Seattle, Philadelphia, Forrest Gump, Saving Private Ryan). Saga Defoe er upphafning á gildum enskra herramanna; Robinson sigr- ar náttúruna með sömu staðfestu, æðruleysi og kjarki og Englending- ar trúðu síðar að væri rótin að upp- byggingu mesta heimsveldis sög- unnar. Sambúðin við náttúruna herðir Robinson svo aö honum tekst að umbreyta henni þannig að hún þjóni honum; hann hefur náttúru- skilning átjándu aldar - Robinson er herra Jarðarinnar. Chuck Nol- and er hins vegar 20. aldar maður. Frá hans sjónarhóli hefur mann- kynið sigraö náttúruna (með belli- brögðum) en hver maður má síns lítils gagnvart henni. Maðurinn á heldur ekki sama erindi við náttúr- una og á tímum Robinsons - heldur á náttúran erindi við manninn. Maðurinn hefur tapað sér í sinni til- búnu veröld og nálgast ekki sjálfan sig aftur fyrr en í náttúrunni. Robinson sigraði af því hann gaf hvergi eftir. Sigur Chuck felst í því aö hann lætur af mennsku sinni; til- gangur Robinsons var kalvínísk eljusemi - tilgangur Chucks er að draga andann; eins konar búddismi. Af þessu má sjá að aðstandendur Cast Away hafa ekki ætlað sér að bylta mannskilningi bíógesta eða sýn hans á mannfélagið og náttúr- una. Andlegur grunnur Cast Away er sá sami og finna má í viötölum í Vikunni, hjá Keikó í Klettsvik og annarri hverri bíómynd; þetta er nýaldarlegt sullumbull - rikjandi ástand í andlegu lífi Vesturlanda- búa. Robert Zemeckis er mikill fag- maöur. Hann kann á kvikmyndir. Flugslys myndarinnar er tíu mínút- ur af fagmannlegri snilld. Á eyðieyj- unni fær Zemeckis hins vegar fá tækifæri til að nota tæknina til að ganga fram af áhorfendum. Þetta er þvi í raun ekki bíómynd fyrir hann; hún dregur frekar fram veikleika hans en styrk. Handrit William Broyles Jr. er fullspart á átök og hangir því við brún leiðindanna all- an tímann; það felur ekki í sér nógu sterka undiröldu eða traustan grunn til að þola hæga framvindu. Stærsti galli handritsins er þó sá að setja vendipunkt þroskasögu Chucks utan frásögunnar - en kannski var honum fórnað í klippi- herberginu. Þessi mynd er hins vegar sniðin að þörfum Toms Hanks fyrir stjörnuhlutverk; hann er einn á tjaldinu meira en helming myndar- innar. Styrkur Hanks er hófstilltur leikur og samsömun hans við hinn venjulega mann - hann er James Stewart okkar daga. Þessi leikur nýtur sín best í myndum mikilla sviptinga; þau draga þá fram stað- festu og seiglu persónunnar. Meiri átök í Cast Away hefðu því hjálpað Hanks. Aðrir leikarar fara með veigaminni hlutverk. Helen Hunt (As Good As It Gets, Pay It Forward, What Women Want) er kvenkyns Hanks; hugmynd Bandaríkjamanna um konuna í næsta húsi. Senuþjóf- urinn er hins vegar blakbolti sem verður trúnaðarvinur Chucks og frumstætt guðalíkneski á eyðieyj- unni - hann hlýtur að verða til- nefndur til óskarsverðlauna fyrir besta leik í aukahlutverki. Cast Away er um margt forvitni- leg mynd um metnaðarfullt sögu- efni. En hún er feilskot; hana skort- ir bæði inntak og ævintýr til að geta orðið góð mynd. Og þetta ætti að- standendum hennar að hafa verið ljóst í upphafi; þeir hafa hins vegar treyst á að galdrar Zemeckis og Hanks fengju áhorfendur til að sætta sig við veikar undirstöður og dauflega framvindu. Það tókst ekki. Lelkstjórn: Robert Zemeckis. Handrit: William Broyles Jr. Tónllst: Alan Silvestri. Kvikmyndataka: Don Burgess. Leikarar: Tom Hanks, Helen Hunt o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.