Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2001, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaöið
oCen kaupir mPres-
ence frá OZ.COM
OZ.COM hefur gert umfangs-
mikinn samning við fyrirtækið
oCen sem sérhæfir sig í netþjón-
ustu á fyrirtækjasviði, aðallega á
Asíumarkaði. oCen kaupir mPres-
ence samskiptalausnina frá
OZ.COM og samhæflr sinni; oCen
CommPortal. mPresence er heild-
arlausn fyrir farsímafyrirtæki og
netfyrirtæki sem vilja, með lítilli
fyrirhöfn, bjóða viðskiptavinum
sínum upp á rauntímasamskipta-
og upplýsingaþjónustu sem nýtir
möguleika Netsins í hvivetna.
Fyrir tilstilli mPresence getur
oCen gert viðskiptavinum sínum
kleift að eiga samskipti og nálgast
upplýsingar í rauntíma, óháð
tækjum og staðsetningu.
oCen býður viðamikla netþjón-
ustu á Asíumarkaði, með sérstaka
áherslu á netsímaþjónustu og aðr-
ar nettengdar samskiptalausnir.
mPresence frá OZ.COM gerir
oCen kleift að auka þjónustu sína
enn frekar og færa yfir á farsíma-
svið og bjóða upp á rauntímaskila-
Skúli Mogensen, forstjóri OZ.COM, segir mPresence-þjónustuna sniðna að
samskiptalausnum á borð við oCen CommPortal.
boð, einstaklingsbundna þjónustu ur fyrirtækið boðið viðskiptavin-
og hópfundaþjónustu. Þannig get- um sínum upp á símtöl, funda-
þjónustu, netsímtöl, SMS-skila-
boð, veffundi og textafundi, svo
nokkuð sé nefnt.
„Við stefnum ætið að því að
bjóöa upp á þá þjónustu sem er
best hverju sinni,“ segir Jim
Courtney, framkvæmdastjóri
oCen. „mPresence gerir okkur
kleift að bjóða upp viöskiptavin-
um okkar margvíslega þjónustu,
sníða hana að þörfum hvers og
eins og síðast en ekki síst bjóða
upp á einstæða farsíma- og net-
þjónustu."
Skúli Mogensen, forstjóri
OZ.COM, segir mPresence-þjón-
ustuna sniðna að samskiptalausn-
um á borð við oCen CommPortal.
„Við erum að sjálfsögðu ánægð-
ir yfir samningnum við oCen. Við
höldum áfram að fjölga viðskipta-
vinum og samstarfið við oCen er
sérstaklega spennandi þar sem
það opnar leiðir inn á Asíumark-
að.“
Lítils háttar hagnaður Frumherja
Frumherji hf. var rekinn með 0,5
milljóna króna hagnaði á síðasta
ári, samanborið við 21,2 milljóna
króna hagnað árið á undan. Rekstr-
artekjur ársins voru 446,8 milljónir
króna og jukust um 15,9% frá 1999.
Rekstrargjöld fyrir afskriftir voru
387,9 milljónir króna og jukust um
15,2% frá 1999. Hagnaður fyrir af-
skriftir nam 58,9 milljónum króna
og jókst um 21% frá árinu 1999.
Eigið fé félagsins nam 319,8 millj-
ónum króna í lok tímabilsins. Eigin-
fjárhlutfall var 66,7% og veltufjár-
hlutfall 1,43.
Aukning í afskriftum
I tilkynningu frá Frumherja segir
að verri afkomu félagsins á árinu
2000 miðað við árið á undan megi
einkum rekja til aukningar í af-
skriftum vegna afskrifta viðskipta-
vildar vegna kaupa á dótturfélögum
og hærri fjártnagnsliða vegna geng-
isbreytinga. „Þrátt fyrir verri af-
komu gekk eiginleg starfsemi fé-
lagsins ágætlega á árinu og hagnað-
ur af rekstri félagsins fyrir afskrift-
ir jókst um 21% eða 10 m.kr. Ástæð-
ur þessa eru einkum bætt afkoma
dótturfélaga. Rekstur móðurféiags
var með svipuðum hætti og árið
áður. Félagið keypti tvær fasteignir
á tímabilinu fyrir rekstur skoðunar-
stöðva fyrir bifreiðar, í Skeifunni og
í Grafarvogi, en það er í samræmi
við stefnu félagsins að færa þjón-
ustu þess nær viöskiptavinum sín-
um. Félagið keypti einnig allt hluta-
fé Athugunar hf. sem annast skoðun
ökutækja og er rekstur félagsins
reiknaður í samstæðu Frumherja
hf. fyrir árið 2000 en ekki fyrir árið
1999. Tölur fyrir árin 2000 og 1999
eru því ekki fyllilega samanburðar-
hæfar,“ segir i tilkynningu frá
Frumherja.
Stímir noröur
Ingunn AK 150 er hér á leiö frá
Ghile og lítur glæsilega út.
Ingunn milli
Kúbu og Haítí
á heimleið
DV, AKRANESI:
Ingunn AK 150, nýjasta skipiö í
flota HB, sigldi fyrir helgina á um
14 sjómílna hraða á milli Kúbu og
Haítí í Karíbahafinu og kemur brátt
inn á Atlantshaf og tekur þá stefn-
una fyrst til norðurs til St. Johns á
Nýfundnalandi þar sem olía og kost-
ur verða tekin.
Reiknað er með að Ingunn verði í
St. Johns fimmtudaginn 1. febrúar.
Síðan verður kúrsinn tekinn á ís-
land og stutt í að Skagamenn fái að
líta augum langþráð skip sem mik-
ill dráttur hefur orðið á aö afgreiða
hjá skipasmiöum í Chile. -DVÓ
Okeypis smáauglýsingar!
►I Gefins
-alltaf á miövikudögum
► Tapað - fundið
-alltaf á þriöjudögum
Smáauglýsingar
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á
ÞRIDJUDAGUR 30. JANÚAR 2001
I>V
igg'IBilTSB—
HEILDARVIÐSKIPTI 8211 m.kr.
Hlutabréf 3722 m.kr.
Húsbréf 4034 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Frjálsi fjárfestingarb. 3577 m.kr.
Q Sölumiðst. hraðfrystih. 45 m.kr.
0 Össur 34 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Talenta-Hátækni 14,3%
0 Sölumiðst. hraðfrystih. 2,6%
© Samherji 1,8%
i MESTA LÆKKUN
| 0 íslenski hugbúnaðarsjóö. 5,6%
| © Búnaðarbankinn 2,9%
© Húsasmiöjan 2,1%
ÚRVALSVÍSITALAN 1222 stig
- Breyting 3 0,16 %
George Soros
gengur I lið með
mótmælendum
George Soros, fjármálaspekingur-
inn og mannvinurinn, sagði að
hann væri sammála þeim sem mót-
mæla aukinni alþjóðavæðingu að
því leyti að umbætur þyrftu að
verða til að koma í veg fyrir aukna
misskiptingu gæða í hagkerfi
heimsins.
Hann sagði að alþjóðavæðing
„skapaði leikreglur sem væru ekki
sanngjarnar gagnvart öllum. Það
eru fíku löndin, sem skilja að
mörgu leyti ekki hvernig þriðji
heimurinn hefur það, sem skapa all-
ar leikreglur."
Hann sagði einnig að ríkisstjórn-
ir heimsins og stofnanir þyrftu að
leita leiða til að hvetja einstök riki
til að fylgja efnahagsstefnu sem
skapaði hagvöxt - en að ekki mætti
láta markaösöflunum það frjálst eft-
DaimlerChrysler
hyggst fækka um
25.000 störf
Fastlega er búist við að stærsti
bílaframleiðandi heims, Daim-
lerChrysler, fækki starfsfólki um
25.000. Miklar vonir voru bundnar
við samruna Daimler Benz og
Chrysler á sínum tíma en sérfræð-
ingar telja þær nú vera brostnar.
Fyrirhuguð uppsögn um 20% af
vinnuafli fyrirtækisins kemur í
kjölfar fyrirhugaðra áætlana um að
endurskoða rekstur fyrirtækisins
frá grunni en það miðar að því að
fyrirtækið skili arði. Mun a.m.k.
þremur verksmiðjum verða lokað
vegna þessa. Búist er við fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu vegna
þessa síðar í dag.
EB ... 3001,2001 M. 9.15
KAUP SALA
IhlDoHar 86,150 86,590
SSpund 125,650 126,300
i*í Kan. dollar 57,330 57,690
RBpönskkr. 10,5980 10,6570
feP^Norsk kr 9,6550 9,7080
CBsænsk kr. 8,9450 8,9940 i
H*HfI. mark 13,2984 13,3784
jí S Fra. franki 12,0540 12,1264
M llBolg. franki 1,9601 1,9718
3 Sviss. franki 52,0000 52,2900
CShoII. gyllini 35,8799 36,0955
” Þýskt mark 40,4273 40,6702 :
1 llt*. líra 0,04084 0,04108 ;
2E Aust. sch. 5,7462 5,7807
K' Port. escudo 0,3944 0,3968
L*—JSná. peseti 0,4752 0,4781 :
| • jjap. yen 0,73970 0,74410
M ijirskt pund 100,396 101,000
SDR 111,2500 111,9200
^ECU 79,0689 79,5441