Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001
DV
Fréttir
Fimm manna fjölskylda lenti í háska á sunnudagskvöldið:
Beltin björguðu okkur
- segir Guðrún Björg Vignisdóttir
„Viö vorum öll í bílbelti.
Ef við hefðum ekki verið
það værum við sjálfsagt
ekki hér í dag,“ segir Guð-
rún Björg Víkingsdóttir,
hárgreiðslumeistari frá
Neskaupstað, en hún lenti,
ásamt fjölskyldu sinni, í
bilslysi á sunnudagskvöld-
ið skammt vestan við
Sandskeið á Norðfjarðar-
veginum, á milli Eskifjarð-
ar og Neskaupstaðar.
Jeppi fjölskyldunnar lagð-
ist á hliðina og rann um
átta metra niður hlíðina.
Guðrún ók jeppanum en
auk hennar var eiginmað-
ur hennar i bilnum, Pálmi
Þór Stefánsson, og þrjú
börn þeirra, 8, 9 og 12 ára.
„Ég veit eiginlega ekki
hvað gerðist, bíllinn bara
valt. Það var rosalega vont
veöur þarna, maður sá
illa,“ sagði Guðrún. „Hann
fór út í kantinn og ég
missti stjórn á honum þar
og hann valt.“
DV-MYND HELGI GARÐARSSON
Bíllinn líklega ónýtur
Fimm manna fjölskylda lenti í umferöarslysi á Oddsskarði á sunnudagskvöldið. Enginn slasað-
ist alvarlega og má líklega þakka bílbeltum það.
Guðrún og maður henn-
ar hringdu í Neyðarlínuna
og biðu svo eftir björgun-
armönnum. Vegna hriðar-
innar og myrkurs gekk
illa aö fmna þau og segir
Guðrún þau hafa beðiö I
hátt í klukkutíma eftir að-
stoðinni. Björgunarmenn
fundu bílinn ekki fyrr en
Pálmi fór upp á veg og
beið eftir að björgunar-
menn óku fram hjá.
Rúður brotnuðu úr allri
annarri hliðinni er bíllinn
valt og komst snjór inn
svo fólkinu var orðiö kalt
þegar hjálpin barst. Fariö
var með þau á sjúkrahúsið
í Neskaupstað en ekkert
þeirra slasaöist alvarlega.
Guðrún vildi þakka
björgunarmönnum aöstoð-
ina.
Billinn er mikið
skemmdur eftir veltuna.
-SMK
Forsætisráðherra kom færandi hendi til Flateyrar:
Sjóðir Samhugar til uppbyggingar
- bætum Flateyringum skaðann, sagði Davíð Oddsson
DV, ISAFJARDARBÆ:
Fjölmenn hátíðarsamkoma var
haldin í gær í íþróttahúsinu á Flateyri,
tilefnið var að formlega var gengið frá
úthlutun fjármuna úr sjóðnum Sam-
hugur í verki. Allt það fé sem í sjóðn-
um er skal renna óskipt til uppbygg-
ingar á Flateyri, alls 58 milljónir króna
sem skiptast þannig: 14 milljónir
króna til endurbóta á íþróttamann-
virkjum, 10,5 milljónir til endurbóta
grunnskólans, 8,5 milljónir til félags-
mála, 17 millj. til skógræktar, 2 millj-
ónir til kirkjunnar og sálgæslu og 6
milljónir til heilbrigðismála. Ofanflóða-
sjóður og ríkissjóður munu leggja til 50
milljónir króna hvor til uppbyggingar
vatnsveitu og gatnagerðar á staðnum.
Alls fá því Flateyringar 158 milljónir til
uppbyggingar. Allt frá því endurreisnar-
staríi eftir snjóflóðin lauk hefúr verið
gagnrýnt af heimamönnum að peningar
úr sjóðnum Samhugur i verki skyldu
ekki notaðir alfarið til að ljúka uppbygg-
ingunni.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í ávarpi sinu til Flateyringa að
atburöir þeir sem dundu yfir Flateyri
og ollu miklum mannskaða og eigna-
tjóni væru öllum enn í fersku minni
og mundu verða greyptir í þjóðarsál-
ina um aldur og ævi.
„Viðbrögðin við þessum hörmung-
um létu ekki á sér standa og voru sterk
og afdráttarlaus. Á slíkum stundum
sýnir þjóöin samhug þó hún geti verið
sundruö á köflum. Við erum hér til að
innsigla þann ásetning að bæta Flat-
eyringum þann skaða sem í mannlegu
valdi stendur að bæta,“ sagði Davið
Hann minnti fólk á að í litlu samfé-
lagi skipti sérhver manneskja máli og
sagði bjartsýni, þor og elju vera þá
kosti sem skiptu mestu máli í lífsbar-
áttunni. Forsætisráðherra taldi Flat-
eyringa hafa staðið sig vel í uppbygg-
ingunni eftir slysið.
í fóruneyti Davíðs var Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra og þingmenn
Vestfjarða auk aðstoðarmanna.
Einar Oddur Kristjánsson þingmað-
ur, sem er heimilisfastur á Flateyri,
Samningur staöfestur
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjaröarbæjar, Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráöherra undirrituðu í gær samning um
endurreisn á Flateyri.
sagði þetta ánægjulega stund fyrir Flat- hann ríkja mikla og almenna gleði yfir
eyringa að sjá nú fram á uppbyggingu þessum góðu tíðindum.
þorpsins eftir þetta mikla slys og sagði -KS
Ekki safnað fyrir Krabbameinsfélagið
- heldur oklcur sjálf, sagði forseti íslands
í gærmorgun var haldinn blaða-
mannafúndur í húsnæði Krabbameins-
félags íslands við Skógarhlíð. Fundur-
inn var sérstæður fyrir þær sakir að
hann sátu bæði núverandi forseti ís-
lands, Ólafur Ragnar Grimsson, og
fyrrverandi forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir. Eins og flestum er í
fersku minni bauð líka forstjóri
Krabbameinsfélagsins, Guðrún Agn-
arsdóttir, sig fram tfl forseta fyrir fiór-
um árum.
Krabbamein ekki dauðadómur
Einkunnarorð söfnunarátaksins er
Einn af hverjum þremur íslendingum
fær krabbamein - þrir af hverjum
þremur halda að þeir sleppi.
Guðrún Agnarsdóttir tók fyrst til
máls og sagði að enn á ný leitaði
Krabbameinsfélagið til þjóðarinnar
um stuðning. Hún sagði að fyrir fiöru-
tíu árum hefðu greinst 300-400 íslend-
ingar með sjúkdóminn á hverju ári, en
nú séu þeir 1000-1100. Greining og
meðferð krabbameins gangi sífellt bet-
ur og batahorfur sjúklinga aukast með
hverju árinu. „Krabbamein er ekki
lengur dauðadómur," sagði Guðrún.
DV-MYND HILMAR PÓR
Forsetar saman
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og fyrrverandi forseti íslands, Vig-
dís Finnbogadóttir, borðuöu saman hollan morgunverð í húsnæði Krabba-
meinsfélagsins í gær. Þau ieggja bæöi söfnunarátaki félagsins lið.
„En það sem skortir á er að styðja fólk
út í lífið á nýjan leik eftir meðferð.
Þennan mikilvæga hlekk, sem er sál-
rænn stuðningur og endurhæfing, hef-
ur vantað í keðjuna. Nú leitum við til
þjóðarinnar um fiárstuðning svo megi
gera átak í endurhæfingunni."
Guðrún tók til þess hve átakinu
væri mikill fengur að því að fá svo
dáða þjóðarleiðtoga sem Ólaf Ragnar
og Vigdísi tfl þess að leggja hönd á
plöginn, auk þess sem Lions- og
Kiwanismenn ætluðu að gera stórfellt
átak í því að ganga í hús og safna fé.
Sjónvarpsþáttur verður á laugardags-
kvöldið þar sem margir landsþekktir
listamenn koma fram í þágu félagsins,
söfnunarvefsíða hefur verið opnuð og
enn fremur verður leitað til fyrirtækja
um fiárstuðning.
Enginn veit hver veröur næstur
Forseti íslands tók til máls og lýsti
yfir ánægju sinni með að fá að styðja
átakið. Hann sagði að krabbamein
snerti allar fiölskyldur í landinu og
andlegt álag á þá sem standa að
krabbameinssjúklingum væri gríðar-
legt. Mikflvægt væri að styrkja og
styðja þetta fólk til endurhæfingar.
Forsetinn lauk máli sinu á því að segja
að söfnunarátakið sem nú er í uppsigl-
ingu væri ekki fyrir Krabbameinsfé-
lagið, heldur okkur sjálf, þar eð enginn
veit hver verður næstur til glímunnar
við vágestinn. -þhs
Skuldir og vanskil
---------- Jóhanna Sigurðar-
dóttir ræddi efna-
hagsmál á Alþingi í
gær. Skuldir heimil-
anna og yfirdráttur
eru vandamál og
* spurði Jóhanna við-
skiptaráðherra hvort
hún teldi ekki tilefni til aðgerða. Val-
gerður svaraði því til að vanskil færu
minnkandi en viðurkenndi aukningu
„dýrra“ láná. - Dagur greindi frá.
Útlán hækkuðu
„Gengislækkun krónunnar hækkaði
útistandandi útlán um 4 milljarða
króna,“ segir m.a. í frétt frá Búnaðar-
bankamnn um afkomuna árið 2000.
Ætla má að skuldir landsmanna hafi
hækkað vegna þessa um eina 20 millj-
arða. Bankinn hafði nær 300 mflljónir
í gengishagnað.
Gagnagrunnur í Smára
Áform eru um að setja upp miðlæg-
an gagnagrunn á verslunarsviði í nýju
risaverslunarmiðstöðinni sem opnar í
Smáranum í Kópavogi næsta haust.
Sérhver verslun verður tengd þessum
grunni en upplýsingar um veltu hverr-
ar fyrir sig verða dulkóðaðar.
Eyþór borgarstjóraefni?
Sigurður Kári
Kristjánsson, formað-
ur Sambands ungra
sjálfstæðismanna,
lýsir mikilli ánægju
með að Bjöm Bjama-
son skuli vera að
hugleiða borgar-
stjóraslaginn og um-
ræða sé nú um fleiri kandídata. Segir
hann að Eyþór Amalds hafi sterklega
verið orðaður við forystu flokksins í
Reykjavik. - Dagur greindi frá.
10 fundir
Sameiningamefnd sveitarfélaganna
í Rangárvallasýslu hefur ákveðið að
boða til 10 kynningarfunda fyrir íbúa á
næstunni vegna sameiningar sveitar-
félaga í Rangárvallasýslu. Kosið verð-
ur um sameininguna laugardaginn 31.
mars nk. - Visir.is greindi frá.
Eldri borgarar í slagsmái
Aðalfúndur Félags
eldri borgara fór
fram i Reykjavík um
helgina. Ólafúr Ólafs-
son, formaður sam-
takanna, segir að
kaflaskil séu fram
undan hjá félaginu.
„Við erum að fara í
slagsmál. Við emm búin að gefast upp
á bænaleiðinni. - Dagur greinir frá.
300 skinn eyöilögðust
Hátt í 300 hreindýraskinn eyðilögð-
ust í sútun hjá Skinnaiðnaði á Akur-
eyri. Nærri lætur að um sé að ræða
70% skinna af þeim dýrum sem leyfi-
legt var að veiða hér á landi í fyrra
Verkefni úr landi
Ólafur Öm Haraldsson, þingmaður
Framsóknarflokks, benti á fyrirliggj-
andi verkefnaskort í skipasmíðaiðnaði
á Alþingi í gær. Hann sagði hart að ís-
lendingar misstu stórverkefni líkt og
varðskipsviðgerðh-nar.
Lækkun fasteignagjalda
Það var vissulega gleðflegt að taka á
móti fasteignagjaldaseðlum sinum frá
skrifstofu Snæfellsbæjar nú fyrir stuttu.
Gjöldin höfðu lækkað verulega - allt að
50% og verður það vægast sagt að teljast
gott.“ - Snæfellsbæjarfréttir segja frá.
Miklir hagsmunir
Steingrímur J. Sigfússon spurði í !
fyrirspumartíma á Alþingi í gær hvort j
sjávarútvegsráðherra hefði beitt sér j
fýrir lausn á kjaradeflu sjómanna. j
Steingrimur vísaði til þeirra miklu !
hagsmuna sem í húfi væm ef verkfall j
skellur á. Þar vegur loðnuveiðin ■
þungt. - Dagur greindi frá. -HKr.