Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Blaðsíða 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 DV______________________________________________________ Útlönd Denise og Clinton Denise gaf demókrötum stórfé áöur en fyrrverandi eiginmaöur hennar var náöaöur. Denise í Hvíta húsinu kvöldið fyrir náðanir Denise Rich, fyrrverandi eigin- kona landflótta auðkýfingsins Marc Rich, var í heimsókn í Hvíta húsinu í Washington ásamt Qármálastjóra landsnefndar Demókrataflokksins kvöldið áður en Bili Clinton, fyrr- verandi Bandaríkjaforseti, náðaði fyrrverandi eiginmann hennar. Denise Rich, sem gefið hefur yfir 1 milljón dollara í sjóði demókrata og 450 þúsundir dollara í bókasafns- sjóð Clintons var að minnsta kosti 13 sinnum í heimsókn í Hvíta hús- inu á meðan Clinton var við völd. Fyrrverandi íjármálastjóri demókrata, Beth Dozoretz, sem er vinur Clintonhjónanna, sagði við rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings í gær að hún myndi ekki bera vitni við yfirheyrslur um náðanir Clint- ons á sakamönnum síðasta dag hans 1 embætti. Nefndin rannsakar meint tengsl peningagjafa og náðan- anna. Bænahald við mosku spámannsins Hann er ekki hár í loftinu þessi piltur en lét sig þó ekki muna um aö biöjast fyrir meö öllum hinum ködunum fyrir utan mosku spámannsins í hinni helgu borg Medínu í Sádi-Arabíu. Hundruö þúsund pílagríma heimsóttu gröf spámannsins Kraftaverk í fimbulkuldanum í Edmonton í Kanada: Ungbarn lifnaði við eftir að hafa frosið til bana systir ætluðu að gista hjá vinafólki sínu þegar sú stutta skreið út úr rúmi móður sinnar og komst út á bleiunni aðfaranótt síðastliðins laugardags. Þá var 24 stiga frost í Edmonton. Móðir stúlkunnar fann hana ekki fyrr en nokkrum klukku- stundum síðar þar sem hún lá sam- anhnipruð í snjónum. Sjúkraflutningamenn sögðu að þeir hefðu ekki fundið neinn púls þegar þeir komu að stúlkunni. Henni var lýst svo að hún hefði ver- ið gaddfreðin, svo freðin að það var erflðleikum bundið að opna á henni munninn. Talið er að hjarta hennar hafi hætt að sjá í allt að tvær klukkustundir. Læknar álita aö kuldinn og smæð stúlkunnar hafi í sameiningu dregið úr þörf hennar fyrir súrefni til heil- ans, á sama tima og mjög hægði á blóðstreymi í æðunum. Við svipað- ar aðstæður stöðvast hjarta fullorð- ins fólks oft of fljótt, að sögn lækn- anna. Læknar notuðu teppi sem þeir hituðu með blæstri til að verma stúlkuna. Hjarta hennar tók að slá aftur af sjálfsdáðum um það bil sem átti að setja hana í hjarta- og lungnavél. Ekki verður ljóst fyrr en eftir nokkrar vikur hversu alvarlega stúlkan er kalin og hvort taka verð- ur af henni tær eða aðra útlimi af þeim sökum. Þrettán mánaða gamalt stúlku- barn í borginni Edmonton í Kanada virðist hafa náð sér furðanlega vel eftir að það ráfaði út í fimbulkulda, á bleiunni einni fata, og kólnaði svo mikið að hjartað hætti að slá. Læknar segja að stúlkan hafi í raun verið látin þegar komið var með hana á sjúkrahús aðfaranótt laugardagsins. Þeir segja að ekki sjáist nein merki um heilaskaða en enn sé eftir að meta hversu alvar- lega hana hefur kalið. Hjúkrunarfólk hefur lýst undrun sinni á bata stúlkunnar og segir að aðeins sé vitað um fjögur til fimm svipuð tilfelli þar sem barn hefur lifað af slíkan fimbulkulda. Líkams- hiti litlu stúlkunnar var ekki nema 16 gráður þegar sjúkraflutninga- menn komu að henni og fluttu á sjúkrahús. Litla stúlkan, móðir hennar og Risin upp frá dauðum Þrettán mánaöa gömul kanadísk stúlka sefur rótt á sjúkrahúsi í borginni Ed- monton þar sem hún komst á bleiunni einni fata út í 24 stiga frost. Stúlkan IVErBENZ*E~280 4-MÁTiC jgBLAR, SSK., EK. 20 Þ. KM. AUKAHLUTIR: CD (MAGAZIN), 16" ÁLF. f RAFDR. RÚÐUR/TOPPLÚGA/SPEGLAR ABS, TOPPLÚGA, SPÓLVÖRN ÞJÓFAVÖRN, BL« nFTPi'ioi, PARKTRONIC _______ V. 4.350.000 Bush fékk flest atkvæði í Flórída George W. Bush hefði að öllum líkindum sigrað í forsetakosningun- um þó að Hæstiréttur Bandaríkj- anna hefði ekki stöðvað handtaln- ingu. Þetta sýnir talning á vegum fjölmiðlasamsteypunnar Knight Ridder sem gefur meðal annars út blöðin Miami Herald og USA Today. Lokaniðurstöðu er að vænta eftir nokkrar vikur en blööin birtu í gær niðurstöðu frá þremur kjördæmum þar sem handtalning var stöðvuð. í Miami-Dade, þar sem Gore fékk meirihluta atkvæða, voru 10.600 ógild atkvæði sem talningarvélar höfðu ekki skráð. Demókratar voru sannfærðir um að meðal þessara at- kvæða væri að finna nógu mörg at- kvæði ætluð Gore til þess að 537 at- kvæða forskot Bush í Flórída yrði að engu. En samkvæmt endurtaln- ingu fiölmiðlanna sigraði Gore í Mi- ami-Dade með aðeins 49 atkvæða mun. Samkvæmt niðurstöðu nýju talningarinnar hefði Bush sigrað í öllu Flórídariki með 140 atkvæða mun. Repúblikanar segjast ánægðir George W. Bush Löglega kjörinn forseti. með að handtalningin skuli hafa sýnt að Bush hafi verið löglega kjör- inn forseti Bandaríkjanna. Aðalfundun Flugleiða Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. mars árið 2001 í efri þingsölum Hótels Loftleiða og hefst fundurinn kl. 14:00. Aðgöngumiðar, atkvæða- seðlar og fundargögn verða afhent í lilutabréfa- dcild Flugleiða, l.hæð á aðalskrifstofu felagsins á Reykjavikurflugvelli dagana 12.-14. mars frá kl. 09.00 til 17.00 og á fundardag til kl. 12.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfúndarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á samþykktum þess efiiis að heimilt verði að gefa út hlutabréf félagsins með rafrænum hætti. 3. Tillaga um heimild félagsstiómar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. laga nr. 2/1995. 4. Önnur mál löglega borin upp. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfúnd. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja ffamrni á skrifstofu félagsins hluthöfúm til sýnis sjö dögum fýrir aðalfúnd. Stjóm Flugleiða hf. ICELANDAIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.