Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 I>V Akæru aö vænta Vonast er til aö Rade Markovic greini viö yfirheyrslu frá glæpum Milosevics. Undirbýr ákæru á hendur Milosevic Saksóknari í Belgrad undirbýr nú ákæru á hendur Slobodan Milos- evic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, vegna kaupa hans á húsi Dedinjehverfinu. Milosevic er sak- aður um að hafa ekki greint rétt frá eigum sínum þegar hann sótti um að fá að kaupa húsið á miklu lægra verði en markaðsverði. Orðrómur hefur verið á kreiki í Belgrad undanfama daga um yfir- vofandi handtöku Milosevics í kjöl- far handtöku fyrrverandi yfirmanns serbnesku öryggislögreglunnar, Rades Markovics, á föstudaginn. Markovic er talinn bera ábyrgð á morðum á stjómarandstæðingum á undanfórnum árum. Þeir sem vilja réttarhöld gegn Milosevic vona að Markovic segi við yfirheyrslu að Milosevic hafi fyrirskipað morðin. Færeyska stjórn- arandstaðan vill nýjar kosningar Færeyskir jafnaðarmenn, sem eru í stjómarandstöðu, em nú að undirbúa myndun breiðrar land- stjómar, í kjölfar þess að Anfinn Kallsberg lögmaður aflýsti boðaöri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf- stæði Færeyja. Þetta kemur fram í Berlingske Tidende í morgun. Jóannes Eidesgaard, leiðtogi jafn- aðarmanna, vill helst að boðað ver- iö til nýrra kosninga. Hann er þó reiðubúinn að fara með Sambands- flokknum í samvinnu við Fólka- flokkinn og mynda stjóm. Flokkam- ir þrír vilja allir viðræður við dönsk stjómvöld um breytingar á heimastjórnarlögunum þannig að Færeyingar taki að sér fleiri mála- flokka en nú er. Særður innflytjandi Innflytjanda frá Madúra hjálpaö viö komuna til Java í gær. Kveikt í fleiri húsum á Borneo Vopnaðir hópar Dajaka, frum- byggja indónesísku eyjunnar Bomeo, kveiktu í fleiri heimilum innflytjenda frá eyjunni Madúra í morgun samtímis sem öryggissveit- ir gerðu fyrstu tilraun sína til að leggja hald á vopn og stöðva blóð- baðið. Dajakar eru taldir hafa drep- ið hundruð manna undanfarna níu daga. Þeir hafa hrakið yfir 30 þús- und innflytjendur frá Madúra á flótta. Dajakar segjast arðrændir af innflytjendum. Verkamannaflokkurinn í stjórn með Sharon: Peres hafði sigur eftir hávaðadeilur Ariel Sharon, verðandi forsætis- ráðherra ísraels, undirbýr nú myndun samsteypustjórnar af kappi eftir að Verkamannaflokkurinn samþykkti í gær að ganga til sam- starfs viö hið hægrisinnaða Likud- bandalag. Miðstjóm Verkamannaflokksins samþykkti með miklum meirihluta aö mynda þjóðstjóm meö Likud eft- ir mjög stormasaman fund. Shimon Peres, fyrrum forsætisráðherra, sem verður hugsanlega utanríkis- ráðherra í nýrri stjórn, sagði að hann hefði rætt við Sharon eftir at- kvæðagreiðsluna. í viðtali við útvarp ísraelska hers- ins í morgun sagði Peres að Sharon hefði lýst yfir þeirri von sinni að flokkamir gætu unnið saman að friði og öryggi. Margir háttsettir félagar Verka- mannaflokksins fordæmdu ákvörð- un miðstjórnarinnar. „Þið færið honum allt sem hann Shimon Peres Friöarverölaunahafí Nóbels messar yfir félögum sínum í Verkamanna- flokknum um ágæti þess aö mynda þjóöstjórn meö Ariel Sharon. vill,“ sagði Yossi Beilin, fráfarandi dómsmálaráðherra, við 1.600 manna miðstjómina sem féllst á samstarfið með 67 prósentum atkvæða gegn 33 prósentum. Shlomo Ben-Ami, fráfarandi utan- ríkisráðherra, sagði miðstjórninni að sig flökraði við að sjá flokkinn skríða á maganum, eins og hann orðaði það, til samstarfsins viö Sharon. Mikil upplausn hefur ríkt í Verkamannaflokknum frá því Shar- on sigraöi Ehud Barak, fráfarandi forsætisráðherra, með miklum yfir- burðum í forsætisráðherrakosning- unum fyrr í þessum mánuði. Á meðan liðsmenn Verkamanna- flokksins deildu um stjórnarsam- starf sendu bandarísk stjórnvöld frá sér skýrslu þar sem ísraelar eru harðlega gagnrýndir fyrir þá hörku sem þeir hafa beitt til að kveða nið- ur uppreisn Palestínumanna undan- fama fimm mánuði. 1 fgBggiA ■ ~ -J Á flótta undan bardögum Unglingur af albönsku bergi brotinn flýr meö kindahjörö sína frá Makedóníu eftir átök nærri þorpinu Debeide í Kosovo í gær. Skotiö var úr stórum vélbyssum í noröanveröri Makedóníu, nærri landamærunum aö Kosovo, aö sögn frétta- manns Reuters. Skothvellir heyröust afog til í rúmlega klukkustund. Gin- og klaufaveikin heldur áfram aö breiðast út í Bretlandi: Gæti komið í veg fyrir áform Blairs um þingkosningar í vor Gin- og klaufaveikifaraldurinn sem heldur áfram að breiðast út um Bretland gæti oröið til þess að Tony Blair forsætisráðherra hætti viö að boða til kosninga á næstu tveimur til þremur mánuðum. Það hefur verið opinbert leyndar- mál í breskum stjórnmálaheimi að undanfömu að Verkamannaflokk- urinn hefur verið að undirbúa kosn- ingar í apríl eöa mai til að nýta sér þann meðbyr sem hann hefur í fylgiskönnunum. Leiðtogum bænda er hins vegar meinilla við aö stjómmálamenn leggi upp í kosningaferðalög vítt og breitt um landið á meðan ekki hef- ur tekist að komast fyrir þennan bráðsmitandi sjúkdóm. Stjórnmála- menn gætu á þann hátt stuðlað enn frekar að útbreiðslu sjúkdómsins. o0T & MOUTH - -ci'gr Viövörun í dýragaröinum Viövörun um gin- og klaufaveiki hef- ur veriö komiö fyrir í húsdýradeild- inni i dýragaröinum i London. Stjómvöld hafa einmitt bannað almenningi að leggja leið sína á bóndabæi og í námunda við búpen- ing til að draga úr smithættunni þar sem sjúkdómurinn berst auð- veldlega með stígvélum og fatnaði. Dýralæknar slátruðu og brenndu hundruöum svína og kúa í gær í ör- væntingarfullri tilraun til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu gin- og klaufaveikinnar og koma í veg fyrir fjárhagslegt stórtjón. Mikill ótti hefur nú gripið um sig handan Ermarsundsins um að sjúk- dómurinn kunni að hafa komist þangað. Þjóðverjar og Hollendingar hófu, til vonar og vara, slátrun þús- unda gripa sem fluttir voru inn frá Bretlandi. Þá ákváöu Þjóðverjar að loka öllum mörkuðum með búpen- ing í heila viku. mmnimm Dæmdur í 25 ára fangelsi Háttsettur leið- togi Bosníu-Króata í stríðinu 1992 til 1995, Dario Kordi, var í gær dæmdur í 25 ára fangelsi af stríðsglæpadóm- stólnum í Haag. Samstarfsmaður hans, Mario Cerkez, var dæmdur í 15 ára fangelsi. Þeir létu fangelsa og myrða múslíma kerfisbundið. Seölabankinn grípur inn í Seðlabankinn í Tyrklandi hefur gripið til aðgerða vegna hruns á fjármálamörkuöum í landinu. Bank- inn þvingaði vexti í gær niöur i 139 prósent með því að auka framboð á tyrkneskri líru. Myrti eiginmennina 24 ára kona hefur verið handtek- in í Kína í kjölfar andláts fjórða eig- inmanns hennar. Hún er grunuð um að hafa byrlað öllum eigin- mönnum sínum eitur stuttu eftir brúðkaupið. Fríöindin gagnrýnd Nokkrir dönsku þingflokkanna vilja meiri upplýsingar um notkun dönsku konungsfjölskyldunnar um eyðslu á opinberu fé. Fríðindi fjöl- skyldunnar eru sögð mikil og vilja stjórnmálamenn að konungsfjöl- skyldan geri grein fyrir í hvað fénu er varið. Biskup hlíföi barnaníöingi Franskur biskup hefur verið ákærður fyrir að hafa ekki sagt frá kynferðislegu ofbeldi prests gegn ungum bömum. Líkiö af blaðamanni Saksóknarar í Úkraínu sögðu í gær að höfuðlaust lík, sem fannst í fyrra, væri af blaða- manninum Georgi Gongadze. Morðið á honum þykir mesta hneykslismálið frá því að Sovétrikin liðu undir lok. Ásakanir um að Leonid Kútsjma forseti beri ábyrgö á hvarfi blaða- mannsins i september síðastliðnum hafa leitt til gífurlegra mótmæla gegn honum. Heimta endurgreiöslu Sjónvarpsáhorfendur í Þýska- landi vilja fá endurgreidd afnota- gjöld sín af ríkissjónvarpinu þar sem því tókst ekki að tryggja sér sendingarrétt á HM í fótbolta 2002 og 2006. Prínsinn hæddur Sendiherra Þýskalands var í gær kvaddur á fund í japanska utanrík- isráðuneytinu vegna greinar í Súddeutsche Zeit- ung um ófrjósemi Naruhito krónprins og Masako, eiginkonu hans. Kúrdar áfram á flótta 29 kúrdísku flóttamannanna, sem komu til Frákklands fyrir rúmri viku, hafa verið gripnir í Þýska- landi. Flóttamönnunum var komið fyrir í herstöð i Fréjus en fengu í síðustu viku átta daga frelsi. Nokkr- ir notuðu það tO að fara úr landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.