Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2001, Blaðsíða 28
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Bfffteimar
Hrútafjörður:
Flutningabíll valt
Ökumaður flutningabíls missti
stjórn á bíl sínum í Hrútafirði á ti-
unda tímanum á sunnudagskvöldið
{ v með þeim afleiðingum að bíllinn valt
út fyrir veg. Mikið hvassviðri var á
svæðinu á þessum tima og gekk á með
dimmum éljum. Atvikið varð rétt fyr-
ir sunnan Guðlaugsvík og að sögn
lögreglunnar á Hólmavík slapp mað-
urinn ómeiddur frá veltunni. Hann
var með rúmt tonn af saltfiski í bíln-
um, og slapp fiskurinn óskemmdur,
þótt einhverjar pakkningar skemmd-
ust. Bíllinn er mikið skemmdur eftir
atvikið. -SMK
DV-MYND HILMAR
Landburöur af ioönu
Verið var að landa úr Faxa RE
í Reykjavíkurhöfn í gær.
Loðnan:
Mokveiði í
Faxaflóa
Mjög góð loðnuveiði er nú út af
>> Snæfellsnesi og inn í Faxaflóann. Þar
er á ferðinni „Vestfjarðagangan" svo-
kallaða sem kom að landinu vestur af
Vestfiörðum fyrir skömmu og veitt
hefur verið úr þegar veður hefur ekki
hamlað veiðum.
Að sögn skipstjóra sem DV ræddi
við lágu veiðar niðri í um sólarhring
um helgina vegna veðurs, en í gær
viðraði vel og menn voru strax komn-
ir í mokveiði. Um helgina var landað
45 þúsund tonnum og var þá heildar-
aflinn á vertíðinni orðinn 412 þúsund
tonn. Þarf af höfðu 126 þúsund tonn
veiðst á sumar- og haustvertíð. Eftir-
stöðvar kvóta námu þá rúmlega 400
þúsund tonnum.
Hæstu löndunarstaðir eru Eskifiörð-
ur með 40.575 tonn, Neskaupstaður
34.690 tonn, Vestmannaeyjar 28.226
tonn, Grindavík 25.895 tonn, Akranes
24.809 tonn og Þórshöfn 21.528 tonn. -gk
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001
SOT FYRIR SOLU!
Garðabær:
Kviknaði í nudd-
og sólbaðsstofu
LfV-IVtriNU f\ULBKUN
Haröfiskur í staö blóma
Davíð Oddsson forsætisráðherra, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Magnús Jóhanesson ráöuneytisstjóri voru á
Flateyri í gær þar sem þau titkynntu heimamönnum að 158 miiljðnir króna yrðu lagðar til endurreisnar staöarins eftir
snjóflóðin mannskæðu. í þakklætisskyni færöu ibúasamtökin gestunum harðfisk. Sjá bls. 2.
Eldur kom upp á nudd- og sól-
baðsstofu í Kirkjulundi í Garðabæ
um klukkan 21.30 í gærkvöld. Hús-
næðið var mannlaust er eldurinn
kom upp. Slökkviliðið á höfuð-
borgarsvæðinu mætti á staðinn og
gekk greiðlega að slökkva eldinn
sem kviknaði í einhverju plastíláti
inni í húsnæöinu. Töluverðar
reyk- og sótskemmdir urðu. Lög-
reglan í Hafnarfirði rannsakar nú
upptök eldsins.
-SMK
Gjaldþrot NASCO í Bolungarvík stærsta tap í seinni tíð:
Rikisendurskoðun
samþykkir ekki
- frekari afskriftir,
„Það liggur fyrir af okkar hálfu að
þegar gert er tilboð í eign sem er yfir
okkar veðkröfu þá er okkar krafa
tryggð. Við getum ekki afskrifað eða
slegið af slíkri kröfu. Við höfum ekki
lagalega heimild til slíks og Ríkisend-
urskoðun myndi ekki samþykkja það,“
segir Kristinn H. Gunnarsson, formað-
ur stjómar Byggðastofnunar, um nýj-
ustu hugmyndir heimamanna í Bol-
ungarvík um kaup á rækjuverksmiðju
NASCO.
Kristinn segir að krafa heimamanna
i sinu tilboði sé að Byggðastofnun af-
skrifi af veði sínu 15 milljónir, en áður
hafði verið gerð krafa um að stofnunin
afskrifaði 37 milljónir króna. Fyrri
slíkri niðurfellingu sé ekki lagaleg
heimild. Annað tveggja verði þvi að
gera; að heimamenn leggi til 15 miilj-
ónir í hlutafé til viðbótar þvi sem
áformað var, eða að menn þiggi tilboð
segir Kristinn H. Gunnarsson og segir boltann hjá heimamönnum
I urn að meiru af I 1 236 milliónir króna Samkvæmt hvi Kriítirm cppir ckintaetiórn haf:
um að meiru af
skuldinni við
Byggðastofnun
yrði breytt í hluta-
fé. Það þýðir aftur
á móti að þar með
yrðu heimamenn
ekki með hréina
meirihlutaeign í
fyrirtækinu. Hann
segir boltann nú
hjá heimamönnum
Kristinn H.
Gunnarsson.
og þeir séu að hugsa málið.
„Þeim stendur til boða að ræða mál-
in á þeim grundvelli að meira af lán-
inu verði breytt i hlutafé, eða að fá það
lánað samkvæmt almennum skilyrð-
um lántakenda."
Stærsta tap í seinni tíð
„Málin standa þannig að það er
búið að gera tilboð i eignimar upp á
236 mifljónir króna. Samkvæmt þvi
er það veð á þriðja veðrétti sem
Byggðastofnun á eftir vel tryggt, en
það veð endar í 187 milljónum
króna. Við erum hins vegar að tapa
tveimur öðrum lánum, samtals upp
á nærri 150 milljónir króna. Það er
lán sem veitt voru í fyrra til að
styrkja rekstur þessarar rækjuverk-
smiðju, en entust þvi miður ekki
nema í nokkra mánuði. Þetta er
stærsta tap sem stofnunin er að
verða fyrir í seinni tíð á einu máli.“
- Hvað með hugsanlega málsókn
Sjóvár-Almennra á Byggðastofnun?
„Sjóvá-Almennar eru ekki kröfu-
hafi í þetta þrotabú og eru því ekki
að tapa neinu á þessu fyrirtæki.
Þeir eru með tryggingabréf á fiórða
veðrétti fyrir öðrum kröfum vegna
reksturs annars félags sem er óskylt
þessu þrotabúi."
Kristinn segir skiptastjóra hafa
samþykkt veðröðina og það hafi Sjó-
vá-Almennar líka gert þegar þeir
tóku tryggingabréfið. „Það er ekki
hlutverk Sjóvár að ráðstafa eignum
Byggðastofnunar. “
Kristinn segir að í tilboðinu sé
gert ráð fyrir að Sjóvá fái greiddan
helminginn af þeirra kröfu, en á
sama tíma er krafa um að Byggða-
stofnun afskrifi. „Ef þeir vilja gefa
eftir helminginn af sinni kröfu, af
hverju eru þeir þá að tengja saman
málshöfðun á Byggðastofnun og
samþykkt á tilboði frá þriðja aðila?
Þeir hafa hins vegar ekki samþykkt
þær leiðir sem við höfum lagt fyrir
þá,“ segir Kristinn og segir það því
ósatt að málið sé í hnút hjá Byggða-
stofnun, eins og fram kom í máli
Ólafs B. Thors, lögfræðings Sjóvár-
Almennra, í DV á íostudag. -HKr.
Frækinn knattspyrnukappi vill endurheimta æruna:
Gæði og glæsileiki
Vill fá 20 milljónir
króna fyrir mannorðið
smort
(silbaistofaj
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
„Skjólstæðingur minn fer fram
á 20 mifljónir króna í skaðabætur
fyrir að hafa setið í 49 daga
gæsluvarðhcddi og veriö í farbanni
í 230 daga,“ sagði Karl G. Sigur-
björnsson lögmaður í morgun
Skjólstæðingur Karls, Davíð Garð-
arsson, sætti fyrrgreindri meðferð
vegna meintra tengsla hans við
fikniefnamál sem teygði anga sína
víða. Davíð var á árum áður
Davíö
Garðarsson.
þekktur knatt-
spyrnumaöur og
átti glæstan feril
með meistara-
flokki Vals. Dav-
íð byggir kröfu
mifljónakröfu
sína á því að
mannorð sitt hafi
beðið óbætanlega
hnekki þegar
hann var úrskurðaður í gæslu-
varðhald og settur í farbann í tæpt
„Ég hef ekkert um þetta að
segja. Ég vísa á lögmann minn,“
sagði Davíð Garðarsson i morgun.
Krafa hans um 20 mifljóna króna
skaðabætur vegna mannorðsmiss-
is verður tekin fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur 22. mars.
-EIR
SYLVANIA
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4