Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Blaðsíða 2
2 Fréttir LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 DV Síldarvinnslan hf. tapaði 416 milljónum á síðasta rekstrarári: Fýrst og fremst vegna utanaðkomandi ástæðna - segir Björgólfur Jóhannesson forstjóri DV, AKUREYRI:_____________________ „Eg er auðvitað ekki sáttur við þessa niðurstöðu en hún er fyrst og fremst til komin vegna utanað- komandi ástæðna sem í sumum til- fellum er erfitt að ráða við og í öðr- um tilfellum ógerlegt," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. i Neskaup- stað sem rekin var með 416 millj- óna króna tapi á árinu 2000. Tap af reglulegri starfsemi nam 355 millj- ónum króna. Veltufé frá rekstri nam 355 milljónum króna saman- borið við 284 milljónir króna árið 1999. Rekstrartekjur námu 2.910 millj- ónum króna og hækkuöu um 5,7% milli ára en rekstrargjöld voru 2.407 milljónir króna, sem er 1,3% hækkun á milli ára. Hagnaður fyr- ir afskriftir og fjármagnsliði nam 503 milljónum króna, eða sem svarar til 17,3% af rekstrartekjum. Árið áður nam þessi fjárhæð 377 milljónum króna eða 13,7% af rekstrartekjum. Afskriftir námu samtals 442 milljónum króna, sam- anborið við 354 milljónir árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármuna- tekjur námu 571 milljón króna, samanborið við jákvæöa íjárhæð á árinu 1999 upp á 233 milljónir króna. Tap af reglulegri starfsemi félags- ins eftir skatta var 356 milljónir króna, samanborið við hagnað upp á 172 milljónir árið 1999. Þegar tek- ið hefur verið tillit til hlutdeildar í tapi dóttur- og hlutdeildarfélaga er Síldarvinnslan gerð upp með 416 milljóna króna tapi, samanborið við 136 milljóna króna hagnað árið áður. Veltufé frá rekstri nam 355 milljónum króna en var 284 milljón- ir árið 1999. Þetta er hækkun um 24,9% á milli ára. Björgólfur segir þrjár meginá- stæður fyrir taprekstrinum á ný- liðnu ári. „I fyrsta lagi jókst fjár- magnskostnaður félagsins verulega sem rekja má til mikils gengistaps á síðari hluta ársins og hækkandi vaxta á árinu. í öðru lagi hækkaði olíuverö umtalsvert á árinu og enn fremur var verð á mjöl- og lýsisaf- urðum fremur lágt. Þá hafði verk- fall í fiskimjölsverksmiðju félagsins í maímánuði einnig nokkur áhrif,“ segir hann. Björgólfur segir að rekstrarhorf- ur fyrir yfirstandandi ár séu nokk- uð góðar. „Samkvæmt áætlunum fé- Harmleikur þegar bifreið ók inn á biðstöð skólabarna í Flórída: Sonur minn miður sín - segir móðir drengs af íslenskum ættum sem slapp naumlega Tíu ára drengur af íslenskum ætt- um var hætt kominn í Orlando í Flór- ída fyrr í vikunni þegar bíl var bakk- að upp á gangstétt þar sem hann beið eftir skólabíl ásamt félaga sínum. ís- lenski drengurinn lenti lítillega utan í bílnum en bandarískur félagi hans varð fyrir honum og lést. Móðir drengsins, Helga Sveinsdóttir Anderson, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í Orlando, sagði í viðtali við DV í gær að yfirleitt biðu 10-12 skólaböm eftir skólabilnum á horninu þar sem slysið varð. Að þessu sinni hefðu sonur hennar, Erik Þór Anderson, og félagi hans verið þeir einu sem voru þar. Það sem gerðist var að kona sem ók bifreið- inni hafði verið að koma með sín eigin böm í veg fyrir skólabílinn. Hún hafði snúið bílnum en síðan sett hann óvart Erik Þór slapp naumlega en skólabróöir hans fórst. Hér stendur Erik milli tveggja matreiðslumanna á þorrablóti í Orlando nýlega. í bakkgír. Þegar hún áttaði sig á því sem var að gerast virðist hún hafa ætl- að að stíga á bremsuna en stigið í stað- inn á bensíngjöfma þannig að bíllinn jók enn ferðina aftur á bak. Erik Þór kastaði sér til hliðar en höndin á honum slóst þó utan i bílinn. Hinn drengurinn, átta ára, varð fyrir bílnum. Höggið var svo mikið að hann hentist nokkra vegalengd. Hann reyndist látinn þegar að var komið. Erik Þór hljóp á eftir bílnum til að reyna að gera ökumanninum viðvart um það sem var að gerast en það var of seint. „Syni mínum líður vel líkamlega en honum finnst að hann hefði átt að gera eitthvað meira til að bjarga skólafélaga sínum,“ sagði Helga. „En það var ekk- ert sem hann hefði getað gert. Hann er miður sín eftir atburðinn." Helga sagði það mikla mildi að ekki hefðu verið komin fleiri böm á bið- stöðina þegar slysið varð. -JSS lagsins er gert ráð fyrir hagnaði á yfirstandandi ári og umtalsvert meiri fjármunamyndun en á árinu 2000. Reiknað er með að landvinnsla félagsins skili betri afkomu á árinu og að hagræðing við flutning bol- fisksfrystingar komi til með að skila sér að fullu á þessu ári í aukinni framlegð. Enn fremur hefur samein- ing við Skipaklett hf. áhrif strax á þessu ári í aukinni framlegð vinnslu í landi og á sjó. Þá gerum við ráð fyrir að afkoma í veiðum og vinnslu uppsjávarfisks verði betri á þessu ári en í fyrra,“ segir Björgólf- ur. Hann segist þó vilja minna á að komi til verkfalls sjómanna muni það hafa veruleg áhrif á rekstrará- ætlun Síldarvinnslunnar eins og annarra íslenskra sjávarútvegsfyr- irtækja. -gk Frásögn af slyslnu. Blaðaúrklippa þar sem greint var frá slysinu í Orlando. Mildi þótti að ekki biðu fleiri börn eftir skólabílnum á biöstöðinni. Stjúpfaðir sýknaður í kynferðisafbrotamáli í héraðsdómi: Tek málið upp á Alþingi - segir Guörún Ögmundsdóttir sem fylltist réttlátri reiði við fregnimar „Svona vinnubrögð eru ekki boð- leg. Hagsmunir bama eiga alltaf að vera í fyrirrúmi og þegar svona ger- ist þá er þeim einfaldlega kastað fyr- ir róða. Ég fyllist réttlátri reiði,“ sagði Guðrún Ögmundsdóttir al- þingismaður um sýknudóm Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir manni sem sakaður hafði verið um aö beita fyrrum stjúpdóttur sína kynferðis- legu oíbeldi. Við yfirheyrslur hafði hann viðurkennt að hafa strokið stjúpdóttur sinni minnst tvívegis um klofið auk þess að hafa látið barnið taka af sér ljósmynd þar sem hann var nakinn að koma úr baði. „Ég tek þetta mál upp á Al- þingi strax á mánudaginn og uni mér ekki friðar fyrr en ég sé hagsmunum barna borgið. Þetta er ekki Guðrún Ög- mundsdóttir Ekki boðleg vinnubrögö. hægt,“ sagði Guðrún Ögmundsdótt- ir. Fyrir rétti neitaði stjúpfaðirinn allri sök og var sýknaður á grundvelli þess að bamið kom aldrei sjálft fyrir dómara. Var það vegna þess að for- eldrar stúlkunnar höfðu óskað eftir því og gert kröfu um að barn þeirra yrði yfirheyrt í Barnahúsinu en dóm- arinn vildi yfirheyra það í húsakynn- um Héraðsdóms. Fór sá ágreiningur fyrir Hæstarétt sem studdi málstað dómarans. Skýrslur sem teknar vom af stúlkunni í Bamahúsinu voru því Ur Barnahúsinu Skýrslur meö framburði stúlkunnar, sem teknar voru þar, dugðu ekki gegn neitun stjúpfööurins fyrrverandi. aldrei teknar gildar þegar dómur var upp kveðinn og dugðu ekki gegn neit- un stjúpfóðurins fyrrverandi. -EIR Enn hallar Viðskiptahallinn eykst og var á síðasta ári 69 milljarðar. Árið áður var hann tæpir 44 milljarðar. Gjald- eyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 5,3 milljarða á árinu en ijárfesting íslendinga erlendis nam 25 milljörð- um króna. Áfram 17 ára Ökuprófsaldur verður enn um sinn miðaður við 17 ára aldur ef farið verð- ur að tillögum starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði til að kanna kosti þess að hækka hann í 18 ár. Starfshópurinn leggur hins vegar til að sektargreiðslur vegna umferðarlagabrota verði hækkaðar um helming. Fræ flutt út Landgræðslan hyggst flytja lúpínufræ til Alaska í tonnatali en lúpínan hefur gagnast mjög vel hér á landi til uppgræðslu örfoka svæða. Lúðuverðlaun Nýsköpunarverðlaun rannsókn- arráös íslands hafa falliö Fiskeldi Eyjaríjarðar í skaut. Verðlaunahaf- inn hefur sérhæft sig í lúðueldi og er stefnt að því að margfalda fram- leiðsluna á næstu ámm. Vildi lifandi lömb Líbýumenn óskuðu eftir því á dögunum að fá keypt lifandi lömb á fæti hér á landi og flytja út með júmbóþotum. Lömbunum átti að slátra og nota við helgiathafnir að íslömskum sið. Hætt við eyðnipróf Starfsfólk á Vogi er hætt að taka eyðnipróf af þeim sem þar leggjast inn vegna áfengis- og vímuefna- notkunar. Ástæðan er fjárskortur. Póstbúð Til athugunar er að íslandspóstur opni matvöruverslun á Breiðdals- vík. Ef af yrði væri þetta nýmæli í rekstri íslandspósts sem fram að þessu hefur einbeitt sér að póst- dreifingu. Skattur á Neti Ríkisskattstjóri gerir ráð fyrir að um helmingur framteljenda á land- inu skili skatta- framtali sínu á Net- inu. Þrefait Þrjár bílveltur urðu á Reykjanes- brautinni árla gærmorguns á innan við þremur stundarfjóröungum. Lög- reglann kennir um lúmskri isingu og of hröðum akstri bílstjóranna sem all- ir sluppu með skrekkinn. Út í búð Opnuð hefur veriö matvöruversl- un á Bakkafirði en þar hefur engin slík verslun verið undanfarnar fimm vikur. Nýja búðin heitir Sjafn- arbúð og geta Bakkfirðingar nú gengið út í búð eftir nauðsynjum eins og áður fyrr. -Eir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.