Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 Fréttir I>V Söfnun Landco til styrktar Einstökum börnum: Félagið fær aðeins smá- hluta af söluupphæöinni - gróðavænlegt að fá góðgerðarsamtök í lið með sér til að auka sölu Svo virðist sem söfnun sú sem fyrir- tækið Landco stendur fyrir og ætlað er til styrktar Einstökum bömum ætli að draga dilk á eftir sér. í fréttum hefur komið fram að einungis 10% af þeim 2.700 kr., sem fólk er beðið að leggja fram, renni til Einstakra bama. DV hefur heimildir fyrir því að sölufólk sem vann við símasöluna hafi gefið fólki rangar eða viilandi upplýsingar. Kona nokkur spurði sölumanneskjuna hversu stór hluti af upphæðinni rynni til Einstakra bama og fékk hún þær upplýsingar að þvi sem næst öll upp- hæðin færi til félagsins. Hins vegar fengi Páll Rósinkrans sjálfur lítinn hluta hennar. Önnur kona sem DV ræddi við sagði að hún hefði verið spurð hvort hún vildi styrkja Einstök böm um 2.700 kr. og fá geisladiskinn í kaupbæti. Kostnaöarþáttur skiptist Guðmundur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Landco, segir að kostn- aðarþátturinn skiptist á milli nokk- urra þátta. Til að mynda fari 1100 krónur í sölu, póstdreifingu og pökk- un, 535 krónur í virðisaukaskatt, 200 krónur fara í búa til diskinn, 120 krón- ur fer til STEF og Páll Rósinkrans færð síðan 250 krónur fyrir hvem disk sem selst. Hann segir að í samningn- um við Einstök böm hafi verið gert ráö fyrir þessum kostnaði. Að sögn Guðmundur var íslensk miðlun fengin til að sjá um símsölu og tekið hafi ver- ið fram að segja ætti við kaupendur að hluti af sölupphæðinni ætti að fara til Einstakra bama en ekki öll upphæðin en svo virðist sem einhveijir starfs- menn hafi boðið diskinn með þeim fyr- irmælum að öll upphæðin færi til fé- lagsins. „Landco fær til að mynda að- eins 300 krónur af upphæðinni sem er eðlilegt hlutfail,“ segir Guðmundur. Hann segir að um fullkomlega löglega söfnun hafi verið að ræða og birta hefði átt að sex mánuðum liðnum hvaö mikið Einstök böm hefðu fengið út úr henni eins og skylda er þegar um landsöfnun er að ræða. Tengslin auka söluna í bréfi sem forsvarsmenn Einstakra bama sendu til Fréttastofu Ríkisút- varpsins em borin til baka orð sem formaður félagsins lét falla um að „starfsmenn fslenskrar miðlunar hafi farið út fyrir verksvið sitt“ og tekið fram að ekki sé „á neinn hátt við ís- lenska miðlun að sakast í þessu máli, heldur reynsluleysi okkar í stjóm fé- lagsins." í umræddu bréfi stendur að félagið sé ánægt með þátttöku sína í þessari söfnun. Einn af þeim aðilum sem DV hafði samband við vegna málsins sagði að alþekkt væri á meðal þeirra sem standa í sölustarfsemi að gróðavænlegt væri að fá einhver góðgerðarsamtök í lið með sér til að auka söluna. Það gæti aukið sölu, t.d. á geisladiskum um þús- undir eintaka og því væri þaö mikið notað. Skúli Sævarsson, deOdarstjóri hjá íslenskri miðlun, segir að fyrirtækið hafi tekið að sér þetta verkefni fyrir Landco og fengið fyrir það sölulaun eins og venjan er en hann var ekki fá- anlegur til að gefa upp hversu há þau vora. Aðspurður segir Skúli aðferðir íslenskrar miðlunar við söluna í góðu lagi og að viðskiptavinum hafi verið gefnar réttar upplýsingar. „Þær upp- lýsingar sem við gefum upp eru sam- kvæmt forskrift þeirra aðila sem að söfnuninni standa. Auðvitað getur komið fyrir að eitthvað af því fjöl- marga sölufólki sem við höfum á okk- ar snæram geri mistök en ég þvertek fyrir að um blekkingar hafi verið að ræða. Hins vegar þarf fólk að gera sér grein fyrir að ágóði af sölu disksins er auðvitað bara sá peningur sem eftir stendur þegar búið er að greiða allan kostnað. Það kostar alltaf peninga að búa til peninga." Hægt aö styrkja félagiö á ann- an hátt Þetta er ekki í fyrsta skipti sem for- svarsmenn félaga sem Einstakra bama leyfa ýmsum aðilum að nota nafh sitt við sölustarfsemi í von um fjármagn. Þekktast er e.t.v. dæmið þar sem Klettaútgáfan gerði samning við Styrktarfélag krabbameinssjúkra bama um að félagið fengi hluta af ágóða sölu ljóðabókar. Þegar upp var staðið kom í ijós að útgáfan fékk í sinn hlut margfalda þá upphæð sem SKB fékk. SKB fór með málið fyrir dóm og krafðist þess að samningurinn sem málsaðilar höfðu gert með sér yrði endurskoðaður og að útgáfan greiddi SKB 6,3 miiljónir króna. Bæði Héraðs- dómur Reykjavíkur og Hæstiréttur sýknuðu Klettaútgáfuna af öllum kröf- um Styrktarfélags krabbameinssjúkra bama. Einstök börn er stuðningsfélag bama með sjaldgæfa og alvarlega sjúk- dóma. Vert er að benda fólki á að hægt er að styrkja félagið með því að leggja inn á reikning þess sem hefur númer- ið 1163-26-2629. -ÓSB/MA DV-MYND E. ÓL. Þakklætisvottur Mæðrastyrksnefndar Fulltrúar fyrirtækjarma þriggja meö viöurkenningarskildina frá Mæörastyrksnefnd Reykjavíkur Mæðrastyrksnefnd: Afhenti þremur fyrirtækjum þakklætisvott Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur af- henti á föstudag þremur fyrirtækjum viðurkenningarskildi með þakklæti fyrir stuðninginn til marga ára. Fyr- irtækin sem fengu viðurkenningar- skildina eru Sjóvá-Almennar, Goði hf. og Ingvar Helgason. Mæðrastyrks- nefnd var stofnuð árið 1928 og hefur á þeim tíma unnið að því að styrkja fá- tæka, til dæmis með matar- og fjár- styrkjum. í gegnum árin hefur hún notið mikils velvOja fyrirtækja í land- inu og ákvað nefndin nú að sýna þakklæti sitt með því að veita fyrir- tækjunum þremur viðurkenningu. Efla á framhaldsnám viö Háskóla íslands: Tvöfalda á niiver- andi fjölda fram haldsnema - á næstu fjórum árum Háskóli Islands gerir ráð fyrir að tvöfalda núverandi fjölda framhalds- nema á næstu fjórum áram. Á yfir- standandi skólaári stefnir i að fjöldi skráðra framhaldsnema verði vel á sjötta hundrað og hefur fjöldi þeirra þrefaldast á síðustu þremur árum. Þetta kom fram á kynningarfundi Páls Skúlasonar, rektors sem haldin var í Háskólanum. Að sögn rektors er það eindreginn ásetningur Háskólans að gera verulegt átak til að efla meistara- og doktors- námið og fjölga nemendum. Með upp- byggingu námsins sé verið að tryggja stöðu Háskólans sem alþjóðlega viður- kennds rannsóknarháskóla. „Efling framhaldsnáms fiölgar menntuðu fólki sem er forsenda fyrir sterku atvinnu- og menningarlífi í landinu," segir rekt- or. Hann segir að með því sé hins veg- ar ekki verið að stuðla að því að ís- lendingar stundi sitt framhaldsnám Eindreginn vlljl aö efla framhaldsnámið Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, kennarar og doktorsnemendur viö skól- ann kynntu eindreginn vilja skólans um að efla framhaldsnám. eingöngu hér á landi. „Stúdentar eiga alltaf að hafa kost á að stunda fram- haldsnám erlendis, „ segir rektor. Tryggja á gæði framhaldsnámsins við Háskólann meðal annars með því að leita reglulega eftir mati innlendra og erlendra sérfræðinga á náminu og Heildarfjöldí skráöra framhaidsnema, meistara- og doktorsnema í Háskóla íslands frá 1990 til 2000 Alls skráðir kynna niðurstöður þess opinberlega. Einnig mun sérstök matsnefnd innan skólans meta hveiju sinni hvort nám í einstökum greinum stenst þær kröfur sem skólinn gerir. Þá er talið mikil- vægt að bæta úr húsnæðisaðstöðu framhaldsnámsins og tryggja þarf framhaldsnemum viðunandi vinnuað- stöðu og starfsumhverfi auk þess sem bæta þarf fiárhagsstöðu framhalds- námsins. Að sögn rektors er kostnaður framhaldsnema áhyggjuefni og finna þurfi lausn á því vandamáli. „Margir framhaldsnemar era í vinnu með nám- inu og geta því ekki einbeitt sér eins og skyldi," segir rektor. Háskólinn ætlar líka að efla á kynn- ingu, bæði innanlands og erlendis, á þeim námsleiðum sem í boði era og á að höfða til nemenda sem nú era í grunnnámi í skólanum, þeirra sem lokið hafa grunnnámi og tO erlendra stúdenta. Áhugi erlendra stúdenta á að stunda nám í skólanum hefúr einmitt aukist á undanfömum árum og í dag stunda um 600 hundrað erlendir nem- endur nám við skólann og era flestir þeirra í grannnámi. Velja hefúr þurft nemendur inn í íslensku fyrir erlenda stúdenta vegna mikillar ásóknar í námið. Um sjötíu mögulegar fram- haldsleiðir era nú í boði við Háskól- ann. -MA ____________Umsjón: Hördur Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.is Af ritaraætt Kapphlaup manna eftir embættum í Framsókn eru með ólíkindum og taka á sig ýmsar spaugilegar mynd- ir. Þingmenn sem ekki hafa boðið sig fram eru nú sagðir leita annarra leiða til þess finna smugur inn í emb- ætti. Sagt er að ísólfur Gylfi Pálmason telji sig eiga nokkurt til- kall í ritaraembætti flokksins. Rök- semdirnar eru þær að systir hans Ingibjörg sé núverandi ritari fiokks- ins og ekki sé óeðlilegt að þetta gangi í ættir. ísólfur Gylfi á líka aðra röksemd sem skiptir ekki minna máli í harðri baráttu fyrir flokkslegum frama. Varla sé þar til sterkari röksemd en sú að faðir þeirra ísólfs og Ingibjargar hafi ver- ið sýsluskrifari í Rangárvallasýslu í 44 ár... Frá haga til maga Eins og alþjóð er kunnugt er Guðni Ágústsson að reisa sér myndarlegt ibúðarhús alveg við þjóð- veg 1 við Ölfusár- brúna. Spaugsamir Selfyssingar gera því skóna að Guðni hugsi þar til fram- tíðar og vilji hafa vaðið fyrir neðan sig i bókstaflegum skilningi ef hann einhvem tímann dytti út úr pólitík- inni. Úr húsi sínu við brúarsporðinn gæti hann sem hægast innheimt vegatoll, eins og gert var forðum á Reykjanesbrautinni. Skemmtilegri era þó vangaveltur nágranna Guðna um að hann selji þar um lúgu heil- næmar landbúaðarvörar undir kjör- orðinu „Frá haga til maga...“ Skörp víglína Fátt virðist verða iðnaðar- og við- skiptaráðherra, Valgerði Sverris- dóttur, til framdráttar í málefnum Búnaðarbankans. Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs, setti sig fljót- lega upp á móti fyrirætlunum hennar í samein- ingarferli bank- anna. Þá hefur snögg afgreiðsla bankastjóraráðningar síst verið til að lægja öldurnar og greinilega alls ekki að skapi ráðherra. Þá er vitað að ráðherra vill skipta bankaráðinu út eins og það leggur sig en sjálf- stæðismenn reyna að gera ráðherra þar erfitt fyrir líka. í dag má búast viö snörpum átökum um bankaráðs- málið og eins víst að Pálmi sitji áfram aö ósk sjálfstæðismanna. Þar vilji menn gera Valgerði skýra grein fyrir að helmingaskiptaregla flokk- anna í skipan bankaráðs sé heilög og yfir þá víglínu vaði ráðherrann ekki... Höfuðborg klámsins Klámrásir tröllríða nú íslenskum sjónvarpsheimi. Keppast menn hver um annan þveran við að koma þess- um göfuga boðskap til neytenda. At- hygli hefur vakið að í stað þess að senda efnið út á öldur ljósvakans með hefðbundnum hætti velja menn að senda þetta eft- ir ljósleiðurum neðanjarðar. Ýmsir telja þetta sam- svara vel efninu sem þoli illa dags- ljósið. Alfreð Þorsteinsson þvær þó hendurnar sínar og vill að Lína-Net komi þar hvergi nærri. Fjöldaum- sóknir um súlustaði á Akureyri hafa líka vakið athygli. Nú velta menn fyrir sér hvort Kristján Þór Júlíus- son og félagar taki af skarið og opni allar mögulegar flóðgáttir, steli glæpnum af siðavöndum Reykviking- um og geri Akureyri þar með að höf- uðborg klámsins á íslandi...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.