Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Helgarblað________________________________________DV
Vinir morðingjans í Santana-framhaldsskólanum þrumu lostnir:
Rólyndispiltur sem ekki
bar hönd fyrir höfuð sér
Harmur í Santana framhaldsskólanum
Nemandi í Santana framhaldsskólanum í Santee í Kaliforníu leitar huggunar hjá einni hjúkrunarkonu skólans eftir aö
hinn fimmtán ára gamli Charles „Andy“ Williams varö tveimur nemendum aö bana á mánudag. Þrettán manns til viö-
bótar særöust í skotárásinni sem kom eins og þruma úr heiöskíru lofti.
„Þetta er ekki andlitiö á Andy.
Andy hefur gott hjartalag."
Kathleen Seek, fimmtán ára göm-
ul skólastúlka í Knoxville í Mar-
yland, átti erfitt með að trúa sínum
eigin augum þegar hún sá sjón-
varpsmyndir af Charles „Andy“
Williams, jafnaldra hennar sem
skaut tvo skólafélaga sína til bana
og særði þrettán í Santee í Kali-
forníu á mánudag. Kathleen var
kærasta Andys áður en hann flutti
til Kaliforníu seint á árinu 1999.
Skotárásin á mánudag er sú al-
varlegasta sem gerð hefur verið í
bandarískum skóla frá því tveir
piltar myrtu á annan tug nemenda
og kennara í Columbine-framhalds-
skólanum í Kólóradó fyrir tæpum
tveimur árum.
Kathleen var ekki ein um það að
horfa vantrúuð á þetta kunnuglega
andlit, en samt eitthvaö svo undar-
legt, sem birtist á skjánum.
Ekki hinn rétti Andy
„Þetta var ekki hinn eini sanni
Andy, ekki sá Andy sem ég þekkti.
Hann hefði ekki getað gert þetta,"
sagði Zack Thew, einnig 15 ára, þeg-
ar hann reyndi að koma minning-
um sínum um gamlan vin heim og
saman við fréttirnar af voðaverki
hans vestur í Kaliforníu.
Vinir Andys í Maryland minntust
hans í vikunni sem vel liöins ung-
lings. Mörgum þótti meira að segja
mjög vænt um hann. Engu að síður
mátti hann þola háð og spott
margra jafnaldra sinna fyrir það að
vera smávaxinn og rindilslegur.
Hann er ekki nema 152 sentímetrar
á hæð og grannvaxinn eftir því.
Erlent fréttaljós
Sams konar meðferð af hálfu
skólafélaganna beið hans eftir að
hann flutti til Santee, miðstéttarút-
hverfis San Diego í sunnanverðri
Kaliforníu.
Langaði aftur heim
Andy var í síma- og tölvupósts-
samandi við fjölmarga vini á forn-
um slóðum. Þeir sögðu í vikunni að
sjá hefði mátt teikn um að búferla-
flutningarnir til Kaliforníu hefðu
farið illa í hann. Hann sagði vinum
sinum fljótlega eftir flutningana að
hann vildi fara aftur heim í gamla
smábæinn á bökkum Potomac-ár-
innar í Maryland.
Gamlir skólafélagar Andys sögðu
að á undaníornum vikum heföi
hann kvartað mikið yfir stríðni
annarra krakka í Santana-fram-
haldsskólanum í Santee. Hann sagði
að sér liði eins og sveitadreng í
borginni.
„Andy var léttlyndur piltur,"
sagði Art Fairweather, skólastjóri
Brunswick-miðskólans, þar sem
Andy Williams tók virkan þátt í
leiklistarstarfsemi nemenda og
stundaði íþróttir af kappi.
Námsráðgjafinn í skólanum, Bill
Croal, ræddi lengi við Andy um
flutning hans til Kaliforníu á miðju
skólaári, þegar hann var i áttunda
bekk. Faðir hans, Charles Williams,
hafði fengið nýja vinnu þar sem
tæknir á rannsóknarstofu sjúkra-
húss í San Diego. Croal sagði að til-
finningar Andys hefðu verið
blendnar, eins og tilfmningar sér-
hvers þrettán ára unglings hefðu
verið. Samband þeirra feðganna var
náið, þótt Andy notaði hvert tæki-
færi sem gafst til að gista hjá vinum
sínum. Faðir hans er jafnráðþrota
og aðrir.
Bannað að tala um mömmu
Heima í Brunswick í Maryland
virðist sem vinir Andys og foreldr-
ar þeirra hafi að einhverju leyti
megnað að fylla upp í það tómarúm
sem móðir hans skildi eftir þegar
hún flutti að heiman fyrir tíu árum
eða svo. Andy kallaði meira að segja
mæður sumra vina sinna
„mömmu“.
Einu skiptin sem Andy brást reið-
ur við var þegar einhver talaði um
móður hans sem nú býr í Suður-
Karólínu.
„Ef maður ætlaði að tala viö
Andy var regla númer eitt sú að
minnast ekki á móður hans,“ sagði
hinn fimmtán ára gamli Scott
Bryan.
Andy var rólyndispiltur sem bar
aldrei hönd fyrir höfuð sér þegar
skólafélagarnir í Santana kölluðu
hann „viðundur“ og annað í þeim
dúr. Hann greip ekki einu sinni til
eigin ráða eftir að hjólabrettinu
hans var stolið.
„Hann bar aldrei hönd fyrir höf-
uð sér. Maður gat hirt peningana úr
veskinu hcms, rifið hann úr skyrt-
unni og hent henni í ræsið og hann
gekk bara í burtu,“ sagði Scott Wil-
ke, sextán ára nemandi í Santana-
framhaldsskólanum.
Ekki svalur gæi
Enda þótt Andy gerði engar til-
raunir til að sýnast svalur gæi þeg-
ar hann var með nánustu vinum
sínum reyndi hann þó mikið til aö
samlagast unglingunum sem héldu
til í hjólabrettagaröinum Woodglen
Vista, unglingum með litað hár og
hringi í eyrum og kannski víðar, og
í hólkvíðum buxum. Hann var bara
ekki jafngóður á hjólabrettinu og
var óspart strítt fyrir vikið.
„Hann reyndi að vera svalur en
hann var það ekki,“ sagði Keith
Hamlin, sautján ára gutti sem vandi
komur sínar í hjólabrettagarðinn.
1 ljósi alls þessa er kannski ekki
undarlegt að enginn tæki Andy trú-
anlegan þegar hann fór að tala um
það í fyrri viku að hann ætlaði að
taka skotvopn með sér í skólann og
beita þeim. Um síðustu helgi talaði
hann meira um þessar fyrirætlanir
sínar og af meiri nákvæmni en áö-
ur. En þegar gengið var á hann
sagðist hann bara vera að gera að
gamni sínu.
Bara að grínast
Charles Reynolds, 29 ára gamall
sambýlismaður móður eins vinar
Andys, heyrði á tal Andys og
tveggja vina hans á laugardags-
kvöld um skotáform í skólanum.
„Ég spurði þá hvort þeir væru
ekki bara að gera að gamni sínu,“
sagði Reynolds. „Og þeir sögðust
bara vera að grinast."
Reynolds sagði engum frá.
Sálfræðingar og sérfræðingar í
öryggismálum skóla sögðu að svo
virtist sem Andy passaði vel inn í
þá mynd sem menn hafa gert sér af
bandarískum skólabömum í vanda,
utangarðsmaður sem var ekki tek-
inn alvarlega þegar hann hafði í
hótunum um að grípa tO örþrifa-
ráða.
„Það er orðinn hluti af hugar-
heimi barnanna að þannig láti mað-
ur reiði sina í ljós,“ sagði Richard
Butterworth, barnasálfræðingur
sem hefur rannsakað fyrri skotárás-
ir í bandarískum skólum.
„Undanfarin tvö ár höfum við
verið svo hrædd við elda í skólun-
um okkar að við erum búin að setja
slökkvitæki út um allt. En við höf-
um ekki gert neitt til að stöðva það
sem veldur þessum eldi. Þessir
krakkar eru reiðir, þeir vita ekki
hvað þeir eiga að taka til bragðs."
Eric Chester sem hefur rætt mik-
ið við ungt fólk um ofbeldi í skólum,
sagði að ofbeldismyndir í fjölmiðl-
um, auðveldur aðgangur að byssum
og árásir eins og sú sem gerð var í
Columbine hefðu náð að skapa
hættulega forskrift að hermiárásum
í öðrum skólum.
„Svo virðist sem þetta sé enn
einn örvæntingarfullur, utanveltu
krakki sem vildi að tekið væri eftir
sér,“ sagði Chester.
Byggt á Washlngton Post,
Reuters og Los Angeles Times.
Látinna minnst
íbúar bæjarins Santee í Kaliforníu lét rigningu ekki aftra sér frá því aö safn-
ast saman til aö votta látnum og særöum i Santana framhaldsskólanum
viröingu sína. Tveir nemendur féllu í skotárás nemanda á mánudag.