Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 17
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 17 DV Helgarblað Það segir sig auðvitað sjálft að við tölum mikið um leikhúsið og söng- inn utan vinnunar," segir hann og undirstrikar að þau reyni umfram allt að hjálpast að. Að dreyma hlutverk Rúnar Freyr réðst til starfa hjá Þjóðleikhúsinu í upphafi síðasta leikárs og segist ánægður með starfsandann og verkefnaval. Áður en hann innritaðist í Leiklistar- skóla íslands hafði hann þó einnig haft afskipti af leikhúslífi í fram- haldsskóla. Hann lék í Bugsy Malone á fyrsta ári í Versló og setti upp söngleikinn Tommy síðar við sama skóla. Þegar Rúnar Freyr var langt kominn í námi í Leiklistar- skólanum lék hann síðan í Danny Zuko í Grease við miklar vinsældir en alls voru sýndar yfir sjötíu sýn- ingar. Það mætti ætla af þessari upptalningu að söngleikir væru í sérstöku uppáhaldi. Óttast hann ekkert að festast í söngleikjarull- unni? „Nei, nei. Ég hef nú þegar tekið mér ýmislegt annað fyrir hendur og leikið í mjög frábrugðnum verkum sem eiga litið skylt við söngleiki. Ég held að það sé ekki hægt að skil- greina leikara eftir því hvemig verkum þeir leika i. Góður leikari getur tekist á við hvaða tegund verka sem er. Hann getur leikið bæði hetjuna og fíflið.“ En er ekki erfitt að leika í mörg- um verkum á sama tíma? Er ekki hætta á að maður rugli saman hlut- verkum? „Jú, maður þarf auðvitað að passa sig. Sérstaklega held ég að þetta eigi við um yngri leikara sem eru að ná tökum á listinni. Maður kastar ekkert hlutverkinu frá sér þegar maður kemur heim á kvöld- in,“ segir Rúnar Freyr en kveðst þó ekki kannast við að hann hafi fest í hlutverki persónu sem hann hefur leikið. „Ef mig dreymir hlutverkið fyrir frumsýningu þá er það góðs viti.“ -KGP Charlize Theron kom í veg fyrir áflog Jean Claude Van Damme Hann varð sér til skammar á dögun- um þegar hann henti servíettu í fyrr- um eiginkonu sína. Van Damme í forræðisdeilu Hinn lágvaxni naggur, Jean Claude Van Damme, hefur barist í mörgum kvikmyndum. Nú berst hann eins og ljón við fyrr- verandi eiginkonu sína. Ástæða áfloganna er fimm ára sonur þeirra, Nicholas, sem Van Damme hefur umgengnisrétt við. Fyrrum eiginkonan, Darcy LaPier Hughes, vill flytja til Or- egon en þarf samþykki hans fyr- ir því. Vegna þess máls missti leikar- inn mjög stjóm á skapi sínu og henti vandaðri munnþurrku að fyrrum eiginkonu sinni á opin- berum vettvangi. Þetta var túlk- að af lögfræðingum hennar sem ígildi líkamsárásar og bætti alls ekki slæman málstað hans. Van Damme beit svo höfuðið af skömminni i réttarhöldum vegna forræðisdeilunnar þegar í Ijós kom að það eina sem hann vissi fyrir víst um son sinn var nafn hans. Lögfræðingar Van Damme segja að hann hafi verið undir miklu álagi og ekki verið með sjálfum sér en slúðrið segir aö óhófleg kókaínneysla sé búin að steikja heilann í honum. Leikkonan Charlize Theron fór út að skemmta sér í Hollywood á dög- unum. Það væri auðvitað ekki í frá- sögur færandi nema vegna þess að minnstu munaði að óeirðir brytust út á skemmtistaðnum og hún var aðalástæðan. Nú er Charlize nógu falleg til þess að karlmenn væru vís- ir til þess að fara úr jakkanum og slást vegna hennar en þannig var því ekki farið i þetta sinn. Þetta gerðist á hinum vinsæla næturklúbb Factory Club en þangað sækir stjörnulið Hollywood þegar það vill sletta úr klaufunum. Charlize sat i makindum við borð ásamt borðherra sínum og vini þeg- ar syrti í álinn. Þannig var mál með vexti að hinn roskni Playboy-kóngur Hugh Hefner haföi ákveðið að létta sér upp þetta kvöld og ætlaði einmitt í þennan vinsæla næturklúbb ásamt hópi kanínustúlkna sem hann hef- ur með sér hvert sem hann fer. Það er siður þegar slík stórmenni fara út á galeiðuna að þeir senda líf- verði sína eða handlangara á und- an sér til þess að rýma borð og þess háttar. Það var einmitt það sem gerðist. Sendiboðar og vöðvatröll Hefners komu að borð Charlize og ætluðu að reka allt fólkið í burtu því kóngur- inn væri væntanlegur. Tom Florio, sem einnig er tímaritaútgefandi, var staddur þarna með Charlize og tók þessu eins og sannur karlmað- ur. Hann stóð upp og var þess albú- inn að verja heiður fylgdardömu Charlize Theron er engin dúkkulísa Hún kom í veg fyrir að hópslagsmál brytust út þegar lífveröir Playboy-kóngsins ætluðu að henda henni út. sinnar og lét ófriðlega við lífverðina og sagði að þeir hefðu verra af ef þeir snertu hár á höfði hinnar fögru meyjar. Það leit út fyrir að allt færi í bál og brand þegar Charlize hin fagra skarst í leikinn og stillti til friðar með fyrirbænum eins og konum er svo tamt að gera og hafa einar gott lag á þegar karlmenn eru komnir á skyrtuna og byrjaðir að kreppa hnefana. Allt fór vel að lokum og kóngur- inn mætti skömmu síðar með sinn kanínuhóp og næsti bás var rýmdur fyrir hann en stirt mun hafa verið millum fylkinganna það sem eftir lifði kvöldsins. ••af hver ju að láta jeppling duga þegar þú færð alvöru JEPPA á sama eða enn betra verði? 3 dyra frá 1.840.000 kr. 5 dyra frá 2.190.000 kr. Berðu saman getu, aksturseiginleika, bónað, þægindi og rekstrartiagkvæmni jepplinga við það sem þú ■feerð í Suzuki Grand Vitara: grindarbyggðum jeppa með tengjanlegt framhjóladrif og hátt og lágt drif um millikassa. fraweMMI Byggður á grind SUZUKl GRAND VITARA Á meðal nýs búnaðar eru ABS-hemlar með rafeindastýrðri hemlaiöfnun (EBD), rafhitaðir útispeglar, fjarlæsing og tvístillt samlæsing. Hægt er að stilla næð ökumannssætis og stuðning við mjóbak auk þess sem fótarými aftursæta hefur verið aukið. $ SUZUKI • - SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Hátt og lágt drif SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Borgarnes: Bilasala Vesturlands, simi 437 15 77. isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 22 30. Sauðárkrókur: Bíla- og búvélasalan, Borgarröst 5, simi 453 66 70. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bilasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, síml 471 30 05.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.