Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Helgarblað
I>V
Vinnan göfgar manninn (og konuna):
Elsta atvinnugreinin
- fyrstu heimildir um vændi frá 4000 fyrir Krist
Divine Brown er vændiskona.
Sem slík tilheyrir hún elstu atvinnugrein mannkyns. Divine var mjög mikiö í fréttum fyrir fáum árum sem fuiitrúi síns
fags. Hún afgreiddi þá afskaplega frægan viöskiptavin sem heitir Hugh Grant og fæst talsvert viö kvikmyndaleik.
Grant hefur ekki hætt aö leika eftir þetta en lítiö hefur síöan frést af Divine.
Það er stundum deilt um það á
íslandi í dag hvernig skilgreina
beri vændi, hvað sé vændi og
hvort það sé yfirleitt til hér á jaðri
hins byggilega heims. Um það
verður varla deilt að vændi felst í
því að greiða einhverjum fé fyrir
að hafa í frammi kynferðislegt at-
hæfi í einhverri mynd. Þessi skil-
greining felur það í sér að vændi
birtist í mörgum myndum og
margir stunda vændi, bæði konur
og karlar. Það er engin sérstök
ástæða til þess að telja að ísland
sé vændisfrítt svæði.
I þessari umræðu skjóta stund-
um upp kollinum staðhæfingar
eins og þær að vændi sé elsta at-
vinnugrein mannkyns og viö skul-
um lita aðeins nánar á aldur
vændis.
Samkvæmt fornum goðsögnum
var listin að stunda vændi eða
átrúnaðurinn á vændi meðal
þeirra fjársjóða sem súmerska
gyðjan Inanna fékk að gjöf frá föð-
ur sinum Enki sem var meðal
hinna fornu Súmera talinn vera
guð viskunnar. Inanna færði Súm-
erum þessar gjafir og súmerskir
þegnar ortu ljóð og sálma henni til
dýrðar og stunduðu vændi af tals-
verðri atorku til þess að þóknast
guðunum. Elstu ritaðar heimildir
um vændi meðal Súmera eru frá
því 4000 árum fyrir Krists burð en
ástæða er til að ætla að atvinnu-
greinin sé í rauninni mun eldri og
það mun vera á þessum grunni
sem goðsögnin um vændi sem
elstu atvinnugrein mannkyns er
byggð.
Lágmarksaldur í vændi
Hjá rómverskum sagnfræðing-
um er hægt að lesa nokkuð
skuggalegar skýrslur um vændi í
hinu forna heimsveldi. Sagnfræð-
ingurinn Suetonius lýsir kynlífs-
venjum Tíberíusar keisara þannig
að hann hafði um sig hirð vændis-
fólks á öllum aldri. Þar á meðal
var hópur ungsveina sem Tíberí-
us lét svamla í kringum sig þegar
hann fór í sund og höfðu þeir það
hlutverk að narta í líkama keisar-
ans á völdum stöðum líkt og horn-
síli myndu gera. Þetta og sumt
annað sem Tíberíus stundaði með
mjög ungum bömum fannst jafn-
vel hinum harðsvíruðu Rómverj-
um of mikið af því góða en slíkt
ungbarnavændi náði samt nokk-
urri útbreiðslu meðal yfirstétt-
anna í Róm á valdatíma hans. Því
lauk þegar Domitian keisari gaf út
sérstaka tilskipun um það árið 84
fyrir Krist að böm yngri en sjö
ára mættu ekki stunda vændi.
Þær dýrustu
Vændiskonur eru misjafnlega
dýrar. Þannig hefur það alltaf ver-
ið. Demetrius Poliorcetes, konung-
ur i Makedóníu á þriðju öld fyrir
Krist, skipaði Aþenubúum eitt
sinn að safna þegar í stað meðal
borgarbúa 250 talentum gulls.
Þessi skattheimta fór fram af
fullri hörku en þegar söfnuninni
var lokið greiddi Demetrius
grísku vændiskonunni Lamíu.
Þetta var mjög rausnarleg greiðsla
fyrir þjónustu Lamíu en upphæð-
in framreiknuð nemur um 65
milljónum Bandaríkjadollara.
Þetta fannst Aþeningum argasta
bruðl og var konungurinn mjög
óvinsæll upp frá þessu.
Spænska yfirstéttarvændiskon-
an La Belle Otero (1868-1965) mun
hafa aflað sér 25 milljóna dollara á
sinni starfsævi. Hún var ákafur
fjárhættuspilari og sóaöi auöi sín-
um á spilavítum og lést í sárri fá-
tækt. Á dánarbeði sínu var hún
spurð hvort hún sæi eftir ein-
hverju og þá mun hún hafa sagt
að sig hefði alltaf langað til að
koma á fót sérstökum háskóla fyr-
ir vændiskonur.
Þær ódýrustu
Ódýrustu vændiskonur heims
mun vera að finna í borginni Petr-
apole á landamærum Bangladesh.
Griðarleg umferð vörubíla og
fjöldi bílstjóra hefur skapaö vænd-
ismarkaö þar sem hver
trukkapúta kostar hálfan dollar
sem mun vera 40-50 krónur ís-
lenskar. Þessu sagði New York
Times frá fyrir fáum árum og
kann verðlagið að hafa hækkað
eitthvað síðan.
Viö þetta mætti bæta að vændi
hefur verið skattlagt af mikilli
hörku gegnum tíðina og Klementí-
us páfi annar, sem var við völd frá
1046, skipaði svo fyrir að hver sem
ynni fyrir sér með vændi skyldi
eftirláta kirkjunni helming eigna
sinna við andlát sitt.
Fyrstu vændishverfin
í flestum stórborgum nútímans
þar sem vændi er stundað og er
löglegt að einhverju leyti verða til
sérstök hverfi þar sem nektar-
danssstaðir, vafasamir barir og
pútnahús rottast saman. Þessi
hverfi eru nefnd á ensku -red light
districts og kennd við rauð ljós.
Það voru Kínverjar sem innleiddu
þessi rauð ljós en í Sung keisara-
veldinu í Kína (960-1279) skipaði
skattstjórinn svo fyrir að vændis-
hús auðkenndu sig með rauöum
lampa fyrir dyrum úti. Á þessum
rauðu lömpum úr silki og bambus
þekktu viðskiptavinirnir sín hús.
Viöa í heiminum eru fræg
hverfi af þessu tagi sem laða að
sér ferðamenn úr öllum heims-
homum. Margir þekkja St. Pauli
og Reeperbahn í Hamborg og
Rauða hverfið í Amsterdam. í báð-
um þessum borgum eru ferða-
menn leiddir gegnum hverfin með
skipulegum hætti.
Stærsta vændishverfi heimsins
var talið vera hið risavaxna Kra-
mat Tunggak hverfi í Norður-
Djakarta í Indónesíu sem var rek-
ið af ríkisstjórn landsins þótt
vændi væri í orði kveðnu ólöglegt.
Hverfiö hýsti um 220 vændishús
og talið var að nærri 2000 vændis-
konur hefðu starfað þar á blóma-
tima þess. Þessu risavaxna hverfi
mun hafa verið lokað í árslok
1999.
Elsta vændishúsið?
Vændi er afar forn atvinnu-
grein í einkarekstri. Talið er að
elsta ríkisrekna vændishúsið hafi
verið starfrækt í Aþenu og var
það opnað árið 549 fyrir Krist. Þar
störfuðu ambáttir og þrælar sem
sköpuðu tekjur í ríkiskassann og
naut það strax mikillar hylli með-
al karlmanna.
Xenarchus sagnaritari lýsir
starfseminni þannig:
„Þær standa fyrir utan húsið
með brjóstin ber í skipulegri röð.
Ungu mennirnir velja sér feita,
granna, háa eða þrýstna. Þær
kalla til þeirra á götunni og kalla
eldri menn: Pabbi en þá yngri:
Elskhugi minn.“
Stofnanir eins og ríki og kirkja
hafa lengi haft áhuga á að nýta
vændi til tekjuöflunar og heimild-
ir vitna um vændiskonur sem
störfuðu í musterum í
Mesópótamíu í kringum 2300 fyrir
Krist. Þær veittu gestum blíðu
sína en sinntu einnig aðhlynningu
presta og starfsmanna í muster-
inu.
Stærsta vændishúsið
Eins og á mörgum öðrum svið-
um geta Bandaríkjamenn státað af
því að hafa rekið eitt stærsta
vændishús sem sögur fara af. Á
svæðinu kringum San Francisco
blómstraði vændi í lok nítjándu
aldar og framsýnir athafnamenn
reistu risavaxnar byggingar yfir
þessa fornu atvinnugrein. Þá
komust í tísku skeifulaga bygging-
ar sem sumar hverjar voru þrjár
til fjórar hæðir og var hverri hæð
skipt í fjölda smárra herbergja þar
sem vændiskonurnar bjuggu og
störfuðu. Sennilega hafa þetta ver-
ið byggingar áþekkar Miðbæjar-
skólanum í Reykjavík sem einmitt
var byggður um líkt leyti.
Stærsta vændishúsið af þessari
gerð var byggt árið 1899 af The
Twinkling Star Corporation og
var húsið kallað Nymphia. Þar
voru 450 herbergi og mörg þeirra
sérútbúin til að mæta þörfum t.d.
gægjufíkla sem gátu dregið upp
gluggatjöld hjá vændiskonum aö
störfum með því að setja pening í
bauk'. Þá lyftist gardínan i stuttan
tíma.
í nútímanum eru til stór vænd-
ishús en ekkert í líkingu við stór-
huga ameríska pútnabændur. í
Bangkok í Thailandi mun vera
hægt að finna „nuddstofur" á
þremur til fjórum hæðum þar sem
allt að 100 stúlkur eða drengir sjá
um að „nudda“ gestina en í hús-
inu eru einnig skemmtistaðir,
tehús og barir.
í Hamborg í Þýskalandi er hægt
að finna „Kontakt Hof ‘ sem starfa
sem bílageymslur á daginn en
vændishús á kvöldin. Þar ganga
hálfnaktar stúlkur um bílastæðin
undir sterkum ljósum og fátt sem
minnir á dulúð rauðu hverfanna
en skipulagið ber þýskri ná-
kvæmni fagurt vitni.
íslenskt vændi
Það hefur lengi verið deilt um
það hvort vændi sé til á íslandi.
Slík starfsemi er ólögleg en hefur
öldum saman þrifist undir yfir-
borði samfélagsins eins og annað
ólöglegt athæfi og gerir það án efa
enn. Það hafa alltaf verið í gangi
sögur um tiltekin hús í Reykjavík
og ónefnt dagblað birti fyrir mörg-
um árum mynd af útidyrahurð í
vesturbænum og sagði aö bak við
þessar dyr þrifist vændi. Stutt er
síðan sagt var frá ungum stúlkum
sem buðu „einkanudd" fyrir 30
þúsund á Netinu. Það er því ör-
uggt að elsta atvinnugrein mann-
kynsins er stunduð á íslandi þótt
vændiskonur séu ekki meö löglegt
starfsleyfi. -PÁÁ