Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 23
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
23
DV
Sviðsljós
Jackson gerist
svaramaður Gellers
Gamalt mál-
tæki segir: sækj-
ast sér um líkir.
Það gæti vel átt
við vináttu
þeirra Michaels
Jacksons, söngv-
ara og einfara,
og Uri Gellers
töframanns sem
sumir kalla
loddara. Geller
varð frægur fyr-
ir að fara hönd-
um um teskeið-
ar og matskeið-
ar og beygja
þær, að því er
virtist án þess
að beita neinu
afli. Geller seg-
ist geta stöðvað
klukkur með
hugarorku og
beygt hnífapör heima i skúffum
fólks án þess að vera þar nærri.
Hvers vegna hann er svona upptek-
inn af því að skemma borðbúnað
hefur ekki fengist útskýrt en marg-
ir telja Geller argasta loddara og
trúð sem enga hæfileika hafi aðra
en þá að skrökva að fólki.
Allt um það eru þeir Geller og
Michael Jackson góðir vinir og seg-
ir Geller það vera einkum vegna
þess að þeir skilji báðir hvernig það
er að falla ekki
alveg að hefð-
bundnum við-
miðum. Þessi
vinskapur
þeirra staðfest-
ist í því að fyrir
fáum dögum lét
Geller gifta sig í
einfaldri athöfn
sem fór eigin-
lega fram undir
berum himni í
bakgarði hans
og hann fékk
Jackson til þess
að vera svara-
mann.
Athöfnin fór
fram í Bretlandi
þar sem Geller
býr en Jackson
var að haida fyr-
irlestur í Oxford
um velferð barna sem frægt er orð-
ið. Eitthvað er tímaskyn Jacksons
ekki nákvæmt því hann mætit
tveimur tímum of.seint til svara-
mannsembættisins en sumir vilja
alltaf láta bíða eftir sér.
Þess má að lokum geta að Gelier
hefur talað frjálslega um vinskap
þeirra Jacksons við breska fjöl-
miðla og meðal annars sagt að
Jackson sé nánast fullkominn nema
hann fari offari í lýtalækningum og
Michael Jackson
Jackson tók aö sér embætti svara-
manns í brúökaupi Uri Gellers á
dögunum en mætti tveimur timum
of seint.
Johnson fékk ekki
að auglýsa
Við munum vel eftir Don John-
son. Hann er frægur leikari eða var
að minnsta kosti frægur leikari í
mjög vinsælum sjónvarpsþáttum
sem hétu Miami Vice og voru með-
al annars sýndir hér á klakanum.
Don giftist Michelle Pfeiffer
leikkonu og kannski eru þau gift
enn þá.
Johnson á í sérkennilegum úti-
stöðum við dagblaðið San Francisco
Chronicle í heimabæ sínum, San
Francisco. Blaðið hefur í tvígang
birt fréttir af samskiptum Johnsons
við konu nokkra sem hann á að
hafa hitt á bar þar í bæ. Johnson
steig, að sögn blaðsins, í vænginn
við konuna og bauð henni fé fyrir
félagsskap hennar um stund. Þessu
undi konan illa og hafnaði Don og
bar söguna í blaðið.
Johnson vildi ólmur fá að bera af
sér sakir þannig að eftir yrði tekið
og vildi fá að kaupa heilsíðuauglýs-
ingu í sama blaði til þess að básúna
ætlað sakleysi sitt. Þetta vildi blað-
ið ekki heyra á minnst og neitaði al-
gerlega að selja kappanum auglýs-
inguna.
Johnson er ævareiður vegna
þessa máls og telur að blaðið hafi
Don Johnson leikari
Johnson á í útistööum viö dagblaö í
San Francisco út af fréttum af
fylliríi hans.
farið á svig við sannleikann og heft
tjáningarfrelsi hans. Heilsiðuaug-
lýsingin átti að kosta slétta milljón
íslenskra króna en þetta mál tengist
leikarasamfélaginu með þeim hætti
að Phil nokkur Bronstein, sem er
ritstjóri umrædds blaðs, er eigin-
maður hinnar íturvöxnu leikkonu,
Sharon Stone.
akat
Stsrð:
L. 120 cm.
B. 180 cm.
H. 170 cm.
Pallur, 60x180 cm.
Fallegt hús fyrir börn í oarða, á leikvelli
eða við sumarhúsið.
Friðrik A. Jónsson ehf.
Eyjarslóö 7 • 121 Reykjavík • Sími 552 2111
GSM 892 0703 og 896 5298
Lék Simpson í
klámmynd?
O.J. Simpson
Næsta uppátæki kappans er aö fara í
mál viö timarit sem segir að hann hafi
leikiö í klámmynd
Fótboltakappinn O.J.Simpson á ekki
sjö dagana sæla frekar en endranær.
Hann varð frægur að endemum þegar
hann var ákærður fyrir morðið á eigin-
konu sinni og unnusta hennar og var
sýknaður. Margir hefðu glaðst en vand-
inn var sá að enginn í Ameríku trúir á
sakleysi hans og að auki missti hann al-
eiguna í klær lögfræðinga í tengslum
við réttarhöldin.
Simpson var í fréttum vestra af held-
ur óskemmtiiegu tiiefni nýlega en því
var haldið fram að hann hefði leikið í
klámmynd fyrir sjáifan sig við heldur
frumstæðar aðstæður. Sagan snerist um
að hann hefði fengið tvær konur til
fylgilags við sig og saman hefðu þau öll
þrjú gamnað sér næturlangt á hótelher-
bergi en Simpson mun hafa verið sá
eini sem vissi að öll þeirra atlot voru
tekin upp með falinni myndavél. Simp-
son var alls ekki skemmt þegar þetta
varð heyrinkunnugt og verður það fyrst
fyrir að leita á náðir lögfræðinganna
sem áður rúðu hann inn að skinni og
hefur með tilstilli þeirra ákveðið að fara
í mál við blaðið sem flutti fréttimar.
Það er hins vegar látið liggja miili hluta
að sagan mun vera sönn.
mu :
Nú færðu sama góða Kaffitárið í nýjum
og glaðlegum umbúðum. Þegar þú opnar
pokann, lygnir aftur augunum og finnur
ilminn dansa á móti þér, er gott til þess
að vita að nýi límmiðinn nýtist sem poka-
loka og þannig helst kaffið lengur ferskt
í pokanum
^UtMpAnMi ^ott!
www.kaffitar.is
kaffitar@kaffitar.is
L ■ ..