Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 24
24
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Helgarblað
Axel Gunnlaugsson á sér draum:
Á fætur aft-
ur og fljúga
á skíðum
- hann missti fótinn eftir smávægilegt vinnuslys og sjald-
gæf veirusýking lamaði hinn fótinn. Axel gefst ekki upp
heldur rennir sér af kappi með sérstökum búnaði
Sérstakir kennarar fyrir fatlaða
Sérstakir kennarar annast leiðbeiningar fyrir fatlaöa skíðamenn. Hér sést
hópur bandarískra kennara sem kom til íslands og hélt námskeið fyrir fatl-
aða skíðamenn og verðandi leiðbeinendur.
Axel Gunnlaugsson er al-
inn upp vestur á ísafirði.
Það er stundum sagt að
það sé bœði seigt og hart
í Vestfirðingum og það á
áreiðanlega við um Axel.
Örlögin hafa undanfarin
ár leikið hann nokkuð
grátt og má segja að þau
hafi í bókstaflegri merk-
ingu kippt undan honum
fótunum en hann lœtur
samt ekki deigan síga og
heldurfast í drauminn
um að fljúga á skíðum
eins og áður.
Axel stendur á fertugu og er
bundinn við hjólastól um þessar
mundir og má heita heimilisfastur
á endurhæfingardeild Landspítal-
ans, Grensásdeild. Hann er ein-
fættur og hinn fóturinn er að
mestu lamaöur.
Varö undir marki
Hvernig vildi þaö til að hann sit-
ur í hjólastól í stað þess að standa
í fætuma?
„Ég starfaði sem flokksstjóri hjá
Reykjavíkurborg og við vorum að
lagfæra fótboltamörk þegar ég
lenti i þvi að eitt markiö féll ofan
á mig. Það kom á mig miöjan og ég
fann ekkert sérstaklega fyrir nein-
um óþægindum þegar þetta gerð-
ist. Ég hélt áfram aö vinna, þetta
gerðist á fimmtudegi en ég fór
ekki til læknis fyrr en á þriðju-
degi. Þá var ég kominn með mikil
óþægindi og var sendur í endur-
hæfingu og var hálfhaltur um
hríð,“ segir Axel þegar hann rifjar
upp þessa atburöi í samtali við
DV.
Það sem gerðist var að þetta
smávægilega óhapp leiddi til þess
að Axel fékk blóðtappa i fótinn.
„Ég vaknaði einn daginn með ís-
kaldan og dofinn fótinn."
í kjölfariö fylgdi mjög erfiður
tími þar sem læknar börðust við
að reyna að bjarga fæti Axels en
eftir 14 aðgerðir varð ljóst að hon-
um yrði ekki bjargaö og hann var
að lokum tekinn af honum. Þetta
var langt og erfitt ferli því það liðu
níu mánuðir frá þvi að Axel lenti í
þessu smávægilega óhappi við fót-
boltamarkið þangað til læknar sáu
engan kost annan en að taka af
honum fótinn.
Veira lamar hinn fótinn
„Þetta var harður dómur og ég
átti lengi erfitt með að sætta mig
við þetta. Ég var samt í rauninni
búinn að sætta mig við að missa
fótinn en ég hef veriö mjög ósáttur
við þessa veirusýkingu sem hefur
verið að hrjá mig.“
Þama vísar Axel til þess að ári
eftir að fóturinn var tekinn af hon-
um veiktist hann af mjög sjald-
gæfri veirusýkingu sem leggst á
taugakerfiö og lamar það að hluta.
Þau veikindi má segja að hafi
kippt heila fætinum undan honum
því hann missti mátt i honum og
að hluta til í höndunum.
„Ég var eiginlega kominn á fullt
skrið, kominn upp á lag með að
nota gervifótinn og var að kanna
möguleika á starfi á nýjan leik.“
Við tók langur og erfiður tími
þar sem Axel var að mestu undir
eftirliti lækna. Langan tíma tók að
greina hvers eðlis þessi veirusýk-
ing væri en hún er svo sjaldgæf að
Axel mun vera eini íslendingurinn
sem hefur greinst með hana.
„Það var ekki fyrr en í nóvem-
ber sl. sem endanleg greining kom
fram. Ég var búinn að fara í sex
lyfjagjafir áður en fyrsta stóra
lyfjagjöfin sem á að stöðva þessa
veiru er nýlega afstaðin."
Ófrelsið er erfiðast
Axel hafði alla tíð verið heilsu-
hraustur og hafði t.d. aldrei leitað
til heimilislæknis sins fyrr en í
kjölfar þess að markið féll á hann.
„Það hefur reynst mér erfitt aö
sætta mig viö þetta. Ég var eigin-
lega búinn að ná mér á strik þegar
þetta kom. Það er erfitt að missa
allan mátt og geta ekkert borið sig
um. Mér hefur fundist ófrelsið
erfitt. En ég hef samt aldrei lagst í
neina svartsýni þótt ég hafi stund-
um verið dapur.
Það sem heldur í mér voninni er
að læknarnir segja að með réttri
lyfjagjöf og endurhæfingu eigi
áhrif sýkingarinnar að geta gengið
til baka á 1-2 árum. Það er ljós í
myrkrinu og það er það sem ég
treysti á. Ég væri ekki að sækja
dýr skíðanámskeið innanlands og
utan ef ég treysti ekki á aö komast
á fæturnar aftur."
Var sæmilega tryggður
- Axel var í fullri vinnu þegar
hann var sviptur heilsunni og hafði
komið sér fyrir með eiginkonu
sinni og þremur börnum í Grafar-
vogi. Hvaða áhrif hafði þetta á að-
stæður hans?
„Það vildi þannig tjl aö ég og fjöl-
skyldan mín vorum með persónu-
tryggingar frá Alþjóðalíftryggingar-
félaginu. Þess vegna fór fjárhagur
minn ekki um koll eins og hendir
marga aðra í svipuðum aðstæöum.
Þetta hefur auðvitað haft mikil
áhrif á fjölskylduna, sérstaklega
hefur elsti strákurinn tekið þetta
nærri sér og ég hef ekki alltaf ver-
ið í nógu góöu jafnvægi út af
þessu."
Aftur á skíðin
Axel spennti snemma skíði á
fætuma eins og flestir sem hafa
alist upp á ísafirði og má segja að
hann sé altekinn af skíðabakterí-
unni.
„Ég keppti fyrir ísafjörð þegar
ég var yngri en svo þegar við flutt-
um suður dró nokkuð úr því og ég
fór seinna að vinna sem skálavörð-
ur hjá Fram i Bláfjöllum."
Axel stundaði alltaf skíðaíþrótt-
ina sér til skemmtunar af mikilli
hörku. Þaö varð honum því mjög
erfitt að þurfa að leggja skíðin á
hilluna eins og útlit var fyrir að
hann þyrfti að gera eftir að hann
missti fótinn. Honum fannst i
fyrstu að lífið gæti ekki verið mik-
ils virði ef ekki væri hægt að fara
á skíði.
„Ég þakka bróöur mínum það að
hann rak mig á skíðanámskeið
fyrir fatlaða sem var haldið hér
einmitt í umsjá fólks frá þessum
skóla í Colorado sem við áttum
seinna eftir að sækja.“
„Ég fór ásamt félaga mtnum,
Svani Ingvarssyni, sem er einnig
fatlaður og i hjólastól, í fylgd með
Þresti Guðjónssyni skiðakennara.
Við dvöldum í Aspen í Colorado,
nánar tiltekið í Snowmass sem er
leikvöllur hinna ríku og frægu og
við sáum nokkur dæmi um það.“
Samtals voru 18 nemendur á
námskeiðinu og það eru fatlaðir
kennarar sem leiðbeina en sjálf-
boðaliðar gerast fylgdarmenn
hvers einasta skíðamanns. Sjálf-
boðaliðarnir gerast síðar kennarar
og var að þessu sinni einn íslend-
ingur í þeirra hópi, Þröstur Guð-
jónsson sem hefur slík kennara-
réttindi.
„Maöur er drifinn í stólalyftuna
sem fer hæst í 12 þúsund feta hæð
og hefur um 30 leiðir að velja nið-
ur. Þær eru litamerktar frá gulu
upp í svart og maður telst útskrif-
aður þegar maður getur farið nið-
ur svörtu brautirnar."
Fatlaðir fara hraðar
Fatlaðir renna sér sitjandi á
einu sérstöku skíði sem er útbúið
með vönduðum dempurum og