Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Síða 51
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 DV Tilvera Menningarviðburður Frá ísafiröi. Þjóðahátíð Vestfirðinga haldin í fjórða sinn: ifur frá upphafi notið gríðarlegra vinsælda Þjóðahátíð Vestfirðinga verður haldin í fjórða sinn 17.-24 mars. Upphaf hátíðarinnar var að í árs- byrjun 1998 töluðu fáeinar konur sig saman um að halda upp á dag Sameinuðu þjóðanna gegn kyn- þáttafordómum sem er 21. mars ár hvert. Hugmyndin kviknaði vegna þess hve margir útlendingar byggju á Vestfjöröum og af fjöl- breyttu þjóöemi. Um þessar mundir býr þar fólk frá yfir fjöru- tíu þjóðlöndum. Útlendingum fór mjög fjölgandi á þeim tíma og þótt ekki hefði orð- ið vart árekstra í sambúð íslend- inga og aðkomufólks var þess þó farið að gæta að útlendingar ein- angruðust í eigin hópi en gengju ekki jafn sjálfkrafa inn í íslenskt samfélag og áður hafði tíðkast. Tilgangurinn var því og er enn að auka samgang íslendinga og út- lendinga og draga fram i dagsljós- ið hvað fleira aðkomufólkið gæti lagt til samfélagsins en þau störf sem það er ráðið í. Hvaðeina sem auðveldað getur samgang og sam- skipti, skilning og vinsemd þess ólíka fólks sem býr í samfélaginu fellur að tilgangi hátiðarinnar. Það hefur verið undirstöðuatriði hjá þeim sem unnið hafa að hátíð- inni að byggja á öllum þeim fjöl- mörgu jákvæðu þáttum sem tengj- ast aðkomufólkinu og jákvæðu viðhorfi heimamanna enda sé það vænlegast til árangurs. Öll þau þrjú ár sem hátíðin hef- ur verið haldin hefur hún sprengt utan af sér þann ramma sem henni hefur verið settur og þvi er nú gripið til þess ráðs að dreifa at- burðum hennar á um vikutíma og jafnframt milli byggðarlaga á Vestfjörðum. Þjóðahátíð Vestfirð- inga verður haldin dagana 17.-24. mars nk. Fjölþjóðleg menning Listsýningu með afrakstri sam- keppni grunn- og leikskólanema verður komið upp, sérstakur dag- ur verður fyrir íslandskynningu fyrir útlendinga með þátttöku sveitarfélaga, haldið verður pólskt kafflboð með menningardagskrá, kynning verður á alþjóðlega dúkkusafninu á Flateyri og þvi stórmerka þróunarstarfi í þremur heimsálfum sem varð kveikjan að safninu. Þá verður afrískt kvöld og viðamikil lokahátíð með menn- ingu og mat í stærsta íþróttahúsi fjórðungsins sem er á Isafirði. Verður þar m.a. boðið upp á pólskt leikhús. Þá skemmta Agnieszka Fatyga.Tadeusz Piotr Piszek og Malgorzata Cecylia Piszek pólskumælandi fólki í Hömrum, tónleikasal Tónlistar- skólans á ísafirði. Málþing um trúarbrögð verður haldið í Bol- ungarvík. Þar verður einnig afrískt kvöld í íþróttahúsinu Ár- borg og fjölmargt fleira gert til fróðleiks og skemmtunar. -HKr. Tónleikar helgaöir verkum Hafliða Hallgrímssonar: íslensk þjóðlög og önnur verk í dag, kl. 16, verða haldnir i Tón- tónleikar sem helgaöir eru verkum skóla Sigursveins D. Kristinssonar Hafliða Hallgrímssonar. Á tónleik- Þau flytja verk Hafliða Nemendur Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar sem koma fram á tón- leikunum í dag. unum flytja nemendur skólans ýmis verk Hafliða fyrir píanó, gítar og selló. Einnig mun Kammerkór skól- ans flytja íslensk þjóðlög, útsett af tónskáldinu. Tónleikamir verða í húsnæði skólans á Engjateigi 1 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSINS MESTA ÚRVAl AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónssfíg 27 - S: 562 7400 59 _ A A A A A A A A A A , A rt A A m Gítarinn ehf.¥ w Laugavegi 45, Kassagítarar Sími 552-2125 09 895**9376. SSSnGft. frá 7.900 kp. * og snura Áður 40.400 kr. Nú 27.900 kr. Rafmagnsgitarar frá 15.900 Trommusett - áður 70.000, nú 39.900 Hljómborð frá 3.900^. FRÁBÆRAR PIZZUR, FRÁBÆR TILBOÐ! L pLZZUm erum viö bestir! Ifið sendum: “ 16'pizzu m/2 áleggsteg. stór sk. af brauðstöngum, sósa og 2I kók kr. 1950 12"pizzu m/2 áleggsteg. stór sk. af brauðstöngum, sósa og II kók kr. 1599 Þú kemur... ^ kaupir pizzu og stóran skammt af brauðstöngum, kjúklingavængjum eða hvítlauksbrauð og færð aðra eins pizzu í kaupbæti. Gildir ekki med öðrum tilboðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.