Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Blaðsíða 14
+
14
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001
27
ov
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholt! 11,105 Rvík, síml: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjárn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Úlfiir, úlfiir
Undarleg umræða fór fram utan dagskrár á Alþingi
síðastliðinn mánudag og það ekki í fyrsta skipti. Jó-
hanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar,
telur það þjóna sérstökum pólitískum tilgangi að mála
skrattann á vegginn. Að mati þingmannsins er fyllsta
ástæða til þess að hafa áhyggjur af því að bankakreppa
sé fram undan.
Þeir sem leggja það fyrir sig að spá um framtíð efna-
hagsmála hafa að lokum yfirleitt rétt fyrir sér - hvort
heldur spáð er versnandi árferði eða góðæri. Fyrr eða
síðar rætast slíkir dómar. En þeim er eins farið og
smalanum sem hrópaði úlfur, úlfur - þegar á þurfti að
halda trúði honum enginn.
Mörg siðustu misseri hafa þingmenn flokksins boð-
að kreppu í íslensku efnahagslífi. Viðskiptahallinn átti
fyrir löngu að vera kominn úr böndunum með skelfi-
legum afleiðingum. „Geir H. Haarde situr á gríðarleg-
um viðskiptahalla,“ sagði Össur Skarphéðinsson í
blaðaviðtali fyrir nær ári og bætti við: „Þessi halli er
sannkölluð timasprengja sem ógnar stöðugleikanum.
Það er einungis spurning hvort hún springur fyrir eða
eftir kosningar.“ Timasprengjan er enn ósprungin og
flest bendir til að verulega sé að draga úr innflutningi,
samhliða því sem þensla í efnahagslifinu hefur minnk-
að. Og þrátt fyrir spádóma um annað hefur verðbólga
ekki farið úr böndum en verðlag hefur hækkað um
3,9% síðustu 12 mánuði.
Svartsýnishjal hefur aldrei verið vænlegt til árang-
urs í stjórnmálum og kannski er þar að leita skýringa
á slöku gengi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum
undanfarna mánuði. Hitt er svo rétt, eins og ítrekað
hefur verið bent á hér í leiðurum DV, að vextir hér á
landi eru orðnir of háir. Lækkun vaxta er nauðsynleg
á komandi vikum til að blása til nýrrar sóknar í efna-
hagsmálum. En að halda því fram að vaxtalækkun sé
nauðsynleg til að koma í veg fyrir yfirvofandi banka-
kreppu, eins og gefið var í skyn á Alþingi síðasta
mánudag, er í besta falli pólitískur útúrsnúningur.
Tímasetning og verkfall
Allt bendir til þess að verkfall sjómanna skelli á að-
faranótt komandi fóstudags. Þar með er ljóst að ekki
tekst að ná öllum þeim kvóta af loðnu sem leyft er að
veiða, eða allt að 150 þúsund tonnum, fallist sjávarút-
vegsráðherra á tillögur um auknar aflaheimildir.
Ekki þarf mikla reikningskunnáttu til að átta sig á
að verkfallið verður mikið áfall fyrir íslensk sjávarút-
vegsfyrirtæki og eru erfiðleikarnir þó nægir fyrir. Á
síðustu vikum hefur hvert fyrirtækið á fætur öðru í
sjávarútvegi tilkynnt um afkomu síðasta árs. Með
fáum gleðilegum undantekningum er ljóst að afkoman
hefur verið afleit og í sumum tilfellum ekki verri í ára-
tugi.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir telja sjómenn rétt að
vaða út í verkfall um hábjargræðistimann. Þær vonir
sem bundnar hafa verið við að erfiðleikamir væru að
baki verða því að engu gerðir. En þegar verkfall er
boðað skiptir tímasetning öllu í þeirri viðleitni að
valda sem mestum usla.
Óli Björn Kárason
DV
Skoðun
Skilagjald á rafhlöður
Skilagjald á einnota
drykkjarvöruumbúðir hefur
náð afburðagóðum árangri.
Endurvinnslan hf. hefur
fengið um 90% skil á áldós-
um og glerflöskum og um
80% skil á plastflöskum. Ég
held að verði að segja að
þessi starfsemi hefur gengið
framar öllum vonum.
Sjálfsagt má velta lengi
hvenær skilagjald eigi viö
þegar þess er freistað að
auka skil, endurnýtingu og
endumotkun. Skilningur hefur verið
að aukast hröðum skrefum á mikil-
vægi þessa málaflokks og þær Ragna
og Sif hjá Sorpu hafa ritað ágætar
greinar í Morgunblaðið um þessi mál
og verður vonandi framhald á.
Rafhlöður skila sér ekki
Meðal efna sem Spilliefnanefnd
glímir við að auka skil á eru rafhlöð-
ur, þ.e.a.s. spilliefnaraíhlöður. Lagt er
gjald á þessar rafhlöður í innflutningi
og féð notað til þess að greiða fyrir
söfnun, flutning og eyðingu þeirra er-
lendis. Þegar hefur verið bannaður
innflutningur rafhlaða sem innihalda
Guömundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
kvikasilfur annarra en
hnapparafhlaða. Spilliefna-
nefnd hefur unnið með raf-
hlöður í rúm þrjú ár og er
ekki fyllilega ánægð með ár-
angurinn.
Spilliefnarafhlöður skila
sér ekki nema um fimmtung-
ur tU móttökustöðva, nema
þá þær sem eru saman við
annan úrgang og ógjörning-
ur að flokka frá. Því er það
að nú eru kannaðir mögu-
leikar á því að skilagjald
verði sett á rafhlöður, ekki bara spilli-
efnarafhlöður heldur allar rafhlöður.
Með því ætti tvennt að vinnast. Fái
fólk t.d. 20 kr. fyrir hverja rafhlöðu
sem skUað er tU söfnunarstöðvar má
telja að 75-80% skU fengjust á spUli-
efnarafhlööum og þannig hindrað að
nema lítUl hluti þeirra fari til al-
mennrar urðunar. Hins vegar er veru-
legur ávinningur af því að ná rafhlöð-
um almennt út úr sorpinu.
Til útflutnings?
Óæskilegt er að urða rafhlöður á
venjulegum urðunarstað, jafnvel þótt
„umhverfisvænar" séu. í rafhlöðum
„Spilliefnarafhlöður skila sér ekki nema um fimmtungur til
móttökustöðva, nema þá þær sem eru saman við annan úr-
gang og ógjömingur að flokka frá. Því er það að nú eru
kannaðir möguleikar á því að skilagjald verði sett á rafhlöð-
ur, ekki bara spilliefnarafhlöður heldur allar rafhlöður.“
er talsvert magn af þungmálmum.
Nefna má sink og mangan auk
kadmíums. Þannig má fá urðunarstað-
ina mun hreinni og hugsanleg endur-
Skiljum milli sjúkra- og farþegaflugs
Til þess að þyrla í sjúkraflugi geti
tekið á loft þarf flugpall. Til þess að
hún geti lent á ný þarf aftur pall eða
slétta, litla landspildu. Þegar lend-
ingarskilyrði eru erfið þarf sérstaka
aðstoð flugumferðarstjóra og miðun-
artæki jafnt í þyrlunni sjálfri sem á
landi. Það munu vera dýr tæki. Þó
kosta þau ekki nema lítið brot af
verði flugvallar. Og það samfélag
sem vill öflugt og gott neyðarflug
fjárfestir í öryggisbúnaði fyrir þyrl-
ur. Það þarf líka að sjá fyrir þyrlu-
skýlum og viðgerðarþjónustu sem
hvoru tveggja útheimtir land og fjár-
muni. Sjálfsagt mál.
Rekstur islenskra björgunarþyrlna
útheimtir ekki nýjan alþjóðlegan flug-
völl í hjarta Reykjavíkur. Sex til níu
manna sjúkraflugvélar þarfnast hans
ekki heldur. Þeim nægir miklu
minna land. Þeim sem annast sjúkra-
og neyðarflug er lítill greiði gerður
með því að spyrða hagsmuni þeirra
saman við hagsmuni annarra flugrek-
enda í landinu. Þarfirnar eru ekki
sama eðlis. Eitt er aö koma bráðveiku
fólki undir læknishendur sem skjót-
ast. Annað að fljúga með túrista eða
skutlast með nokkra þingmenn og
forstjóra á fund. Um landið allt er
fólk að flýta sér á fund alla daga. Fólk
fer í strætó, með rútum, í bílum, á
hjóli eða tveimur jafnfljótum. Fólk
þarf að gera ráð fyrir mislöngum
tíma til að komast á fund.
Flugvellir í útjaðri þéttbýlis
Flug er vissulega til þess gert að
flýta för. En flugfarþegar geta hvergi
gert þá kröfu að stórum
flugvélum sé lagt fyrir
framan fundarstaði eins
og þinghús eða konsert-
sal, heilsugæslustöð eða
einstakar verslanir likt
og um einkabíla væri að
ræða.
Flugvellir eru pláss-
frekustu samgöngu-
mannvirki sem byggð
eru, þeim fylgir verri
hávaði en öðrum um-
ferðarmannvirkjum,
auk mengunar og stór-
slysahættu sem af þeim stafar. Þess
vegna þarf að velja stórum flugvöll-
um stað af kostgæfni í útjaðri þétt-
býlis, þannig að þeir valdi sem
minnstu tjóni í umhverfí sínu, skapi
vandamál en þeir
Steinunn
Jóhannesdóttir
rithöfundur
„Rekstur íslenskra björgunarþyrlna útheimtir ekki nýjan alþjóðlegan flugvöll í
hjarta Reykjavíkur. Sex til níu manna sjúkraflugvélar þarfnast hans ekki heldur.
Þeim nœgir miklu minna land. “
Með og á móti
ekki verri
leysa.
Staðardagskrá
skuldbindur stjórnvöld
Það hafa orðið örlög Reykja-
vikurflugvallar, jafn hentugur
og hann hefur reynst lands-
byggðinni, að staðsetning hans
eyðileggur og skaðar Reykja-
vík svo mjög að ekki verður
lengur við unað. Vegna legu
hans gat borgin ekki þróast
sem samvaxin heild, heldur
klofnaði hún á viðkvæmasta
stað. Það leiddi af sér dreifingu
byggðarinnar sem hægt og hægt hef-
ur steypt undan möguleikum til þess
að halda úti nothæfum almennings-
samgöngum, sem aftur kallar á sí-
fellt meiri notkun einkabíla, stærri
og dýrari samgöngumannvirki inn-
an borgarmarkanna, aukna slysa-
hættu, mengunarvanda og himinhá-
an rekstrarkostnað, jafnt fyrir ein-
staklinga sem samfélag.
Staðardagsskrá 21 var samþykkt í
borgarstjórn Reykjavíkur 15. febrúar
sl. með öllum greiddum atkvæðum.
Staðardagskrá 21 skuldbindur stjóm-
völd til þess að draga úr orkusóun og
auka hagkvæmni i skipulagi borgar-
innar með því að þétta byggð. í slíku
ferli munar mest um landið undir
Reykjavikurflugvelli. Það þarf ekki
að koma niður á sjúklingum þótt það
teQi nokkra þingmenn og farþega til
og frá elsta hluta Reykjavikur um
hálfa stund. Fyrsta skrefið sem
Reykvíkingar geta tekið í átt til vist-
vænna samfélags og orkuspamaðar
er að greiða því atkvæði að Flugvöll-
urinn fari úr Vatnsmýri eftir 2016.
Steinunn Jóhannesdóttir
Vegageröin ber ábyrgð
að girða af fyrir búfé?
Hættulegur „vegabúskapur“
j „Þetta er ósann-
jg* gjörn umræða.
nfljÍK Landið sem fer
K? undir vegina er
ýmist keypt eða
tekið eignamámi.
Nýjum eiganda landsins
hlýtur að bera skylda til að
afmarka sitt land og verja
með girðingum þannig að
ekki hamli fyrri nýtingu í ná-
grenni vegarins.
Vegagerðin ber einnig ábyrgð á að
þannig sé frá vegum gengið að fyllsta
öryggis vegfarenda sé gætt.
Girðingar með vegum og svo lítil
umferð búfjár sem kostur er verður
þannig hagur bæði þeirra
sem um veginn fara og einnig
búfjáreigenda og því liður í
sátt um vandasamt mál.
Sú sátt er nauðsynleg til
að búfjáreigendur geti áfram
nýtt lönd sín.“
Ari Teitsson
formaöur Bænda-
samtakanna
r„Það mætti vel
hugsa sér að al-
mennt séð skuli
Vegagerðin girða
vegi af fyrir bú-
fénaði þar sem vegir liggja
nærri byggð og um ræktar-
lönd bænda. Vegagerðin býr
yfir þekkingunni og tækn-
inni og hún er ábyrg stofnun
sem rækir sérhvert hlutverk
sitt vel. En hætta vegna bú-
fénaðar er ekki bara þar sem svo
háttar heldur líka fjær byggð og það
er einfaldlega fráleitt að ætlast til
þess að Vegagerðin girði hvern ein-
asta vegarspotta í landinu búfjár-
heldri girðingu. Eigendur
gripanna hljóta fyrst og
fremst að bera ábyrgð á
lausagöngu og meðfylgjandi
slysahættu. Fjölmörg slys og
mörg mjög alvarleg hafa orð-
ið að undanförnu vegna
lausagöngu hrossa á fjölföm-
Stefán um vegum- Þessi slys hafa af-
Ásgrímsson hjúpað átakanlega í hvers
ritstjöri fíb biaösins konar óþolandi ólestri þessi
„vegabúskaparmál" öll eru.
Meginreglan ætti að vera sú að
búfjáreigendum væri Skylt að halda
gripum sínum í tryggri vörslu allt
árið. Slíka meginreglu þarf að setja
strax. Það er ekki eftir neinu á biða.“
vinnsla rafhlaða kemur til álita. Þegar
tekist hefur að ná rafhlöðum að mestu
úr úrganginum þarf síðan að fmna
hentuga aðferð við eyðingu þeirra.
Sums staðar em þær steyptar i plastt-
unnum og urðaðar á sérstökum urð-
unarstöðum með sérstökum varúðar-
ráðstöfunum. Til greina kemur og að
flytja þær út óflokkaðar en einnig að
flokka þær hér og flytja spilliefnaraf-
hlöðurnar út eins og gert er nú.
Gildi skilagjalds
Ljóst er að skilagjald hefur ýmsa
kosti umfram aukin skil. Það gerir fólk
meira meðvitað um eðli úrgangs og
ekki síst yngsta kynslóðin lærir bæði
að þekkja úrganginn og að safna pen-
ingum og ávaxta þá. Skilagjald á þó
alls ekki við um alla úrgangsflokka.
Mest gildi hefur það þegar safna
þarf ákveðinni tegund úrgangs af
víðavangi, þegar þarf margar hendur
til þess að ná árangri. Umhverfisráð-
herra er nú að vinna að tillögum um
skilagjald á rafhlöður. Vonandi verð-
ur það enn eitt framfarasporið í með-
ferð úrgangs hér á landi, spor sem
leiðir okkur áfram til næstu skrefa.
Guðmundur G. Þórarinsson
Ummæli
í skýrslu Vegasvæðanefndar segir að óvissuástand, sem skapast vegna lausagöngu búfjár á vegum, sé óþolandi.
Vatnsmýrin undir
íbúöabyggð
„Ég ætla að
greiða atkvæði
með því að Vatns-
mýrarsvæðið
verði notað til
annarra þarfa en
flugumferðar eftir
sextán ár og með
þvi að greiða at-
kvæði á þann veg,
gef ég skipulagsfræðingum og frum-
kvöðlum nýrra atvinnugreina til
kynna, að þeir megi til með að
reikna með þessu svæði til mikil-
vægari nota í framtíðinni, þrátt fyr-
ir áhuga minn á flugvélum ... Með
þetta í huga vil ég, að Vatnsmýrar-
svæðið verði tekið undir byggð,
íbúðabyggð og byggð til eflingar há-
skólastarfsemi, þekkingariðnaðar og
rannsókna."
Helgi Pétursson borgarfulltrúi
i Mbl.-grein 13. mars.
Milliliðalaust
lýðræði
„Telja verður, að sú atkvæða-
greiðsla, sem fram fer nk. laugardg
um framtíð Reykjavíkurflugvallar,
sé þáttur í því að þróa upp hér á ís-
landi milliliðalaust lýðræði. Þess
vegna og með tilvísun til þeirra
sjónarmiða, sem blaðið hefur áður
lýst, er Morgunblaðið fylgjandi þess-
ari atkvæðagreiöslu og fagnar því,
að Reykvíkingar fái með þessum
hætti tækifæri til að láta skoðun
sína í ljósi um svo mikilsvert mál.“
Úr forystugrein Mbl. 13. mars.
Brussel eða
Reykjavík?
„Hætt er við að
Reykjavík yrði
nokkuð halaklippt
sem höfuðborg, ef
flugvöllurinn
hyrfi og því
styttra i að raun-
veruleg höfuðborg
landsins yrði
Brussel. Borgar-
skáldið Tómas, sem fyrstur orti um
fegurð borgarinnar og breytti ímynd
bæjarins úr hallærisþorpi í perlu
norðursins, orti einnig um Austur-
stræti og þar við götu var honum
reyndar reistur minnisvarði...
Þeim, sem svo einblína á hagræð-
inguna kæmi væntanlega malbikið
til bjargar og Tjörnin gerð nýtileg
sem bílastæði viö norðurenda henn-
ar. Þegar svo er komið held ég, að
mál væri, eins og skáldiö segir: „að
hljóður draga fyrir gluggann".
Ragnar G. Kvaran, fyrrv. flugstjóri, í
Mbl.-grein 13. mars.
Kjósum Vatnsmýr-
ina án flugvallar
í umræðum um framtíð Vatnsmýr-
arinnar í Reykjavík hafa samgöngu-
yfirvöld ríkisins (lesist Flugmála-
stjóri, Flugmálastjóm, samgönguráð-
herra og formaður Samgöngunefndar
Alþingis) beitt sér af mikilli hörku og
á heldur ósmekklegan hátt. Þau hóta
því að veröi Vatnsmýrin ekki nýtt
undir flugvöll, fari innanlandsflugið
til Keflavíkur. Þessi ófaglega og
blekkjandi framsetning samgönguyf-
irvalda ríkisins varpar skugga á þá
frjóu og lýðræðislegu umræðu sem
nú fer fram um skipulagsmál höfuð-
borgarinnar og framtíð Vatnsmýrar-
innar í Reykjavík.
Tímamót í lýðræðisþróun
Vegna hótana samgönguyfirvalda
er nauðsynlegt að undirstrika þá
staðreynd að í atkvæðagreiðslunni
þann 17. mars er eingöngu verið að
kjósa um það hvort Vatnsmýrin í
Reykjavík verði nýtt undir flugvöll
eftir árið 2016 eða hvort hún þá verði
tekin til annarra nota. í atkvæða-
greiðslunni er alls ekki verið að taka
afstöðu til þess hvert innanlandsflug-
ið veröi flutt ef niðurstaðan verður
sú að færa það úr næsta nágrenni
miðbæjarins. Það markar tímamót i
íslenskri stjórnmálasögu og lýðræð-
isþróun að íbúum gefist kostur á því
að kjósa beint um slíka ákvörðun í
skipulagsmálum. Þeim mun alvar-
legri er framganga samgönguyflr-
valda sem í krafti embætta sinna
reyna að afvegaleiða umræðuna.
Marklausar hótanir
samgönguyfirvalda
Staðreyndin er sú að hótanir sam-
gönguyfirvalda ríkisins um að flytja
flugið til Keflavikur verði því vísað
Hrannar Björn
Arnarsson
borgarfulltrúi
Reykjavíkuriistans
úr Vatnsmýrinni eru í
rauninni marklausar.
Það er nefnilega svo að
tími mun gefast áður en
ákveða verður framtíðar-
stað fyrir innanlandsflug-
ið og alls ekki gefið að sú
ákvörðun verði tekin af
núverandi samgönguyfir-
völdum. Mér segir svo
hugur um að áður en til
ákvarðana um framtíðar-
flugvallarstæði kemur
opnist víðari sýn hjá
samgönguyfírvöldum rík-
isins, hvort sem núver-
andi einstaklingar verða
þar enn við völd eður ei. Þá munu
menn af yfirvegun fara yfir alla kosti
í stöðunni og velja þann sem far-
sælastur þykir. Þá koma ýmsir
möguleikar til greina, bæði þeir sem
nú liggja fyrir og hugsanlega enn
fleiri kostir.
Minnst fjórir kostir utan
Vatnsmýrarinnar
f aðdraganda atkvæðagreiðslunn-
ar þann 17. mars hefur farið fram
viðamikil úttekt á valkostum verði
flugvöllurinn fluttur úr Vatnsmýr-
inni. í þeirri vinnu hefur m.a. verið
leitað til erlendra flugvallarsérfræð-
inga sem mikla reynslu hafa af slík-
um málum.
Niðurstöður þessara athugana
benda eindregið til þess að kjósi
Reykvíkingar að nýta Vatnsmýrina
undir annað en flugvöll þá standa
samgönguyfirvöldum framtíðarinn-
ar ýmsir aðrir kostir til boða. Auk
Keflavíkur er þar um að ræða flug-
völl í Hvassahrauni og flugvöll á
Lönguskerjum en hugmynd Ágústs
Einarssonar um nýtingu
Bessastaðaness undir flugvöll
er í þessu samhengi einnig
allrar athygli verð.
Keflavík nýtt sem Grýla
Reyndar hefur formaður
samgöngunefndar Alþingis,
Árni Johnsen, lýst því yfir á
opnum fundi að hann telji eng-
ar flugtæknilegar hindranir á
flugvelli á Bessastaðanesi.
Engu að síður kvaðst hann að-
spurður ekki myndu beita sér
fyrir frekari skoðun á þeirri
hugmynd. Sú afstaða Áma er í
góðu samræmi við framgöngu
samherja hans meðal samgönguyfir-
valda ríkisins, þ.e.a.s. að nota Kefla-
víkurflugvöll sem grýlu og neita að
skoða aðra kosti. í ljósi þess verða yf-
irlýsingar þeirra aö skoðast.
Kjósum betri borg
Verði niðurstaða kosninganna
þann 17. mars sú að Vatnsmýrin
verði nýtt undir annað en flugvöll
eftir árið 2016 geta samgönguyfirvöld
næsta áratugar tryggt að sú ákvörð-
un breyti engu um aðgang lands-
byggðar aö höfuðborginni. Sú niður-
staða myndi hins vegar breyta öllu
um framtíð höfuðborgarinnar sjálfr-
ar og að mínu viti stórauka mögu-
leika íslensks samfélags í samkeppn-
inni við útlönd um fólk, fyrirtæki og
fiölbreytt mannlíf. ímyndum okkur
að Vatnsmýrin væri nú ónumið land
en Reykjavík að öðru leyti í núver-
andi mynd. Dytti einhverjum í hug
að koma þar fyrir flugvelli? - Kjós-
um því Vatnsmýri án flugvallar eftir
árið 2016.
Hrannar Björn Arnarsson
„ímyndum okkur að Vatnsmýrin vœri nú ónumið land en Reykjavík að öðru leyti í
núverandi mynd. Dytti einhverjum í hug að koma þar fyrir flugvelli?