Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001
11
Útlönd
Yasser Arafat á milljónir dollara á banka í Sviss:
Kaupir sér skjól hjá
Saddam fyrir leynifé
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu,
hefur lagt inn 20 milljónir dollara á
reikning í svissneskum banka. Féð
hefur hann boðið Saddam Hussein
íraksforseta gegn því að fá að dvelja
í írak þurfi hann að flýja frá Gaza-
svæðinu, að því er norska blaðið Af-
tenposten greinir frá. Aftenposten
vitnar í ísraelska blaðið Jerusalem
Post sem hefur það eftir heimildar-
manni innan ísraelsku leyniþjónust-
unnar að Arafat hafi lagt féð inn á
bankareikninginn skömmu áður en
uppreisnin braust út á herteknu
svæðunum í september síðastliðn-
um.
Leyniþjónustumaðurinn segir að
Arafat hafi sent leiðtoga Fatah-hreyf-
ingarinnar á Vesturbakkanum,
Abbas Zaki, til Bagdad til að ganga
frá flóttasamningnum. 20 milljónim-
ir á reikningnum í Sviss séu þó bara
hluti af mörgum stórum sjóðum sem
Arafat hafi yfir að ráða.
Það þykir engin tilviljun að þessar
upplýsingar leki út núna samtímis
því sem sendinefnd frá Evrópusam-
Við öllu búinn
Yasser Arafat Palestínuleiðtogi tekur á móti Önnu Lindh, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, á Gazasvæðinu. Þaö þykir engin tilviljun að upþlýsingar um
leynisjóði Arafats skuli leka út þegar fulltrúar ESB eru í Miðausturlöndum.
bandinu er í Miðausturlöndum til að
kanna efnahag Palestínumanna.
ísraelskir heimildarmenn fullyrða
að þó að Arafat reyni að láta líta út
fyrir að hann sé félaus vegna her-
náms ísraela eigi hann marga einka-
sjóði sem hann hafi sett í fjárframlög
til Palestínumanna. Viðskiptafélagi
Arafats, Mohammed Rashid, á að
hafa séð um fjárfestingar.
„Arafat er mjög góður leikari.
Hann er samtímis svalur og kaldrifj-
aður og ætlar að vera við öllu búinn.
Mörg arabalönd hafa þegar neitað
honum um aðstoð. Túnis hefur til
dæmis dregið sig í hlé,“ segir heim-
ildarmaður Jerusalem Post. Hann
segir Israela fylgjast með samskipt-
um Arafats og yfirvalda í Bagdad en
geti lítið gert. Ísíðustu viku sendi
Arafat Saddam bréf og bað um að-
stoð við palestínsku þjóðina. ísraelar
hafa búið sig undir mögulegt brott-
hvarf Arafats og hafa verið í sam-
bandi við aðra palestínska leiðtoga
sem ekkert hafa á móti því að Arafat
hverfi.
Poul Nyrup Rasmussen
Danski forsætisráðherrann vill um-
ræður um Færeyjar í þinginu.
Danska þingið
ræði Færeyjamál
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hefur boðað
að danska þingið muni ræða
sambandið við Færeyjar í byrjun
mai. Nyrup telur það nauðsynlegt, í
ljósi þess að færeysk stjórnvöld hafa
í þrígang lagt fram eigin tillögur um
sjálfstæðismál eyjanna.
„Ég tel það mjög mikilvægt að
jafnmargir flokkar í þinginu eru
einhuga um þá stefnu sem ríkis-
stjómin og ég sjálfur höfum,“ segir
Poul Nyrup við dönsku fréttastof-
una Ritzau.
Nyrup kann ekki nákvæm skil á
nýjasta útspili færeysku landstjóm-
arinnar. Hann lítur þó á það sem
merki um að Færeyingar ætli sér
enn fullt sjálfstæði.
Munkar mótmæla
Um 1 þúsund búddamunkar efndu í gær til mótmæla fyrir utan ráðhúsið í Colombo á Sri Lanka vegna eyðileggingar
Talíbana í Afganistan á búddalíkneskjum þar.
Óvíst hvenær forsætisráðherra Japans fer frá:
Neyðarráðstafanir í efna-
hagsmálum hafa forgang
Ástandið í japönskum stjórnmál-
um skýrðist síður en svo í morgun
þegar háttsettur leiðtogi stjómar-
flokksins sagði að tilraunir til að
koma hinum óvinsæla forsætisráð-
herra Japans, Yoshiro Mori, frá
ættu að víkja fyrir neyðarráðstöfun-
um til að rétta af efnahag landsins.
Til að flækja málið svo enn frek-
ar fékk Mori stuðning þingsins sem
felldi vantrauststillögu sem stjórn-
arandstaðan lagöi fram í efri deild-
inni. Að vísu hafði verið búist við
því að tillagan yrði felld þar sem
stjómarflokkurinn hefur meirihluta
í deildinni.
Shizuka Kamei, sem fer með
stefnumótun innan stjórnarflokks
Moris, gat sterklega til kynna í
Yoshiro Morl
Enginn veit hvenær hinn óvinsæli
forsætisráðherra Japans fer frá.
morgun að forsætisráðherrann
myndi sitja fram í maí, að minnsta
kosti. Almennt hafði verið búist við
því að hann myndi fara frá í næsta
mánuði. Málamiðlunarsamkomulag
sem gert var um helgina fól í sér að
Mori myndi sitja í embætti á meðan
verið væri að undirbúa afsögn hans,
hugsanlega eftir örfáar vikur.
Kamei sagði á fundi með þing-
mönnum stjómarflokksins að það
væri ekki efst á forgangslistanum
að flýta kjöri leiðtoga flokksins. „Er
í alvörunni hægt að gera það og
gera efnahagsráðstafanir á sama
tíma?“ spurði hann.
Gengi hlutabréfa á mörkuðum í
Asíu hækkaði þegar þeir opnuðu í
morgun, í kjölfar hækkunar vestra.
| BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
I BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Öskjuhlíð, keiluhöll, breyting á deiliskipulagi,
viðbygging.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Öskjuhlíðar varðandi lóð Keiluhallarinnar.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja
500m2 viðbyggingu á tveimur hæðum sunnan við
núverandi hús. Viðbyggingin byggist frá suðurvegg
hússins yfir í klettavegg er umlykur húsið.
Efnisnotkun og aðlögun hússins verður unnin í
samráði við Borgarskipulag. Bílastæðakröfur er 1
bílastæði fyrir hverja 35m2.
Ofanleiti 1-2, Verslunarskóli íslands og Háskólinn
í Reykjavík, breyting á deiliskipulagi.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á skipulagi lóða nr. 1
og 2 við Ofanleiti. Lóð nr. 2, Háskólinn í Reykjavík,
stækkar en nýtingarhlutfall lækkar úr 1.2 í 1.1 þar
sem hámarksbyggingarmagn er óbreytt. Lóð nr. 1,
Verslunarskóli íslands, minnkar. Gert er ráð fyrir
nýjum byggingarreitum og/eða þeir rýmkaðir.
Borgartún 21A, breyting á deiliskipulagi
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á skipulagi lóðar nr.
21A við Borgartún. Hús á lóðinni lengist til norðurs og
hækkar um eina, inndregna hæð. Bílastæðum á lóð
fækkar.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 14. mars til 11. apríl 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflegatil
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 25. apríl
2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.