Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Síða 28
■> 7 manna bíll Bílhelmar FRÉTTASKOTIO SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Björn Sigurösson, bóndi í Úthlíð: „ekki ungur til eilífðar“: Tilbúinn að selja á 300 milljónir - jarðarsala þó háð „þjóðlendumálinu“ Björn Sigurösson, bóndi i Úthlíð í Biskupstungum, segist hafa hugleitt að selja jörð sína fyrir um 300 millj- ónir króna - eina landmestu jörð landsins og umsvifamestu í ferðabú- skap. Þar eru 150 sumarhús með til- heyrandi leigutekjum, sundlaug, veitingastað, gistihúsum, golfvelli og fleiru - allt á einum vinsælasta dvalarstað Islendinga til sveita hin siðari ár. Björn, sem fékk blóðtappa i höfuð á síðasta ári, kveðst orðinn nokkuð heilsuveill. Hann segist vissulega „ekki verða ungur til eilífðar". „Ég lamaðist aðeins í skrokknum sem ekki er gengið til baka - ég er því ekki heill heilsu enda farinn að reskjast og búinn að vinna langan dag. Það kemur að því með okkur öll, manni er afmarkaður takmark- aður tími á þessari jörð til athafna," sagði Bjöm sem var á leið út til að sinna skepnum í morgun þegar DV ræddi við hann. Björn segir að hann sé „alveg Úthlíö til sölu Ein stærsta jörð landsins þar sem blómiegur ferðabúskapur er stund- aður er nú til sölu. eins“ tilbúinn að selja jörðina. Hins vegar sé það háö svokölluðu þjóð- lendumáli þar sem ríkið gerir kröfu til hluta stórra jarða, þar á meðal Úthlíðar og Haukadals. „Ef ég seldi þetta einhverjum áður en dómar falla í þessum mál- um yrði ekki hægt að fá þeim lönd- um þinglýst sem eru í þessari kröfu- gerð ríkisvaldsins," sagði Bjöm sem hefur þegar rætt um sölu á jörðinni í heild við einn aðila á síöasta ári en þeim viðræðum var þó slitið. Björn sagði að engu að síður sé til sölu veitingahúsið, 5 gistihús sem eru þar við hliðina, verslunin, sund- laugin og tjaldstæði fyrir 70 milljón- ir króna. Einnig kveðst hann tilbú- inn að leigja reksturinn. En um hvað er að ræða varðandi sölu á jörðinni ef út í það yrði far- ið? „Þá er ég að tala um svo til allt sem á landinu er, jörðina, fram- kvæmdir, húsakostinn og leigutekj- ur af um 150 sumarhúsum. En þetta er háð svokölluðu þjóðlendumáli," sagði Bjöm Sigurðsson sem hefur notað tímann til að ferðast mikið er- lendis með eiginkonu sinni í haust og vetur. -Ótt Deiluaðilar ræddust ekki við á samningafundi: Verkfallið skellur á „Ég get engu spáð um það hvort til verkfalls kemur eða hversu langt það yrði. Það er hins vegar ljóst að eitthvað verður að fara að gerast ef takast á að afstýra því aö til verk- fallsins komi,“ sagði Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, þegar DV ræddi við hann í morgun um stöðuna i samningaviðræðunum við sjómenn, en verkfall sjómanna hefst á miðnætti annað kvöld hafi samningar ekki tekist. Og sem fyrr er ekkert í spilunum sem bendir til að lausn finnist fyrir þann tima. „Það eru engin tilefni til neinnar bjartsýni,“ sagði Sævar Gunnars- son, formaður Sjómannasambands Islands, í morgun. Gagnrýnisraddir á samninga- nefndir deiluaðila verða nú hávær- ari. Þannig segir Sverrir Leósson útgerðarmaður í DV í dag að nefnd- armenn beggja vegna borðsins séu ábyrgðarlausustu menn þjóðfélags- ins sem kasti á milli sín fjöreggi þjóðarinnar. „Ég svara þessu ekki. Menn sem tala svona virðast ekki Sævar Friörik J. Gunnarsson. Arngrímsson. skilja að við vinnum samkvæmt umboði umbjóðenda okkar og þeir fá sér nýja aðila til að vinna verkið sinnum við því ekki,“ segir Sævar Gunnarsson um þessa gagnrýni. 75 skipstjórar, sem margir hverjir eru einnig útgerðarmenn, hafa skor- að á samninganefndir beggja deilu- aðila að vinna af heilindum að lausn deilunnar og bæjarstjórar í mörgum sjávarbyggðum tekið und- ir. „Auðvitað vinnum við af heilind- um. Við höfum teygt okkur eins langt og við getum, t.d. höfum viö lýst yfir að við viljum taka á lægstu fiskverðunum,“ segir framkvæmda- stjóri LÍÚ. Hann segir útgerðar- menn hafa boðið ýmislegt annað og þeir geti einfaldlega ekki boðið meira. Um þær raddir að klofningur sé innan LÍÚ segir Friðrik fram- kvæmdastjóri: „Það er styrkur LÍÚ að þar eru menn sameinaðir. Auð- vitað eru ekki allir í sama rekstri en hjá okkur er enginn klofningur." Talsmenn sjómanna hafa marg- sagt að þeir geti ekki teygt sig lengra en þeir hafi þegar gert. Til staðar er því hnútur sem höggva þarf á en enginn hefur uppi tilburði í þá átt. Samninganefndir deiluaöila funduðu hjá sáttasemjara í gær en án árangurs. Svo breitt er bilið milli aðila að þótt farið hafi verið yfir alla hugsanlega þætti nýs kjara- samnings þá töluðust deiluaöilar ekki við á fundinum í gær. Samn- inganefndimar sátu hvor í sínu her- bergi en sáttasemjari bar á milli þeirra skilaboð. Ekki er nokkur hlutur sem bendir til þess að eitt- hvað muni gerast á samningafund- um í dag og á morgun sem geti af- stýrt verkfallinu. -gk MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 Voriö er komiö í Bláa lóniö Veðrið hefur leikið við landsmenn síðustu daga og fólk notar tækifæriö til útivistar eins og þessi þokkafulla og léttklædda glæsikvinna sem naut lífsins í Bláa lóninu í gær. FRJ ALST, OHAÐ DAGBLAÐ Byggðastofnun beðin að bíða með afgreiðslu láns til Goða: Getum ekki staðfest Borgarnes - segir Kristinn Þór Geirsson framkvæmdastjóri „Við þurfum smátíma til að átta okkur á þvi hver sé besti kosturinn, þarrnig að viö getum ekki staðfest Borgarnes," sagði Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdastjóri Goða, við DV í morgun. Eins og blaðið hefur greint frá liggur fyrir að velja sameinaðri kjötvinnslu fyrirtækisins stað utan Reykjavíkur. Þrír staðir hafa verið nefndir, Mosfellssveit, Borgames og Selfoss. Mikið er í húfi, því 100 störf fyljga kjötvinnslunni. Forráöamenn Selfoss og Borgamess hafa sett fram ýmis tilboð til að fá fyrirtækið til sín. Stjómarfundur Byggðastofnunar hófst klukkan ell- efu og stendur fram eftir degi. Þar stóð til að taka fyrir láns- umsókn Goða upp á nokkur hundruð milljóna króna. En nú hafa forráðamenn Goða beðið Byggða- stofnun að bíða með umfjöllun þar sem ákvörðun um staðfestingu liggi ekki fyrir, að sögn Kristins Þórs framkvæmdastjóra. „Þeir hafa leitað eftir fyrir- greiöslu hjá okkur sem grundvölluð er á því að þeir flytji starfsemi sína upp í Borgames,“ sagði Theódór Bjarnason, framkvæmdastjóri Byggðastofnunar, við DV. „Við lít- um það mjög björtum augum, því það myndi koma sér mjög vel fyrir atvinnulífiö í Borgamesi." -JSS Kristinn Þór Geirsson. L J Ó S A P E R U R - SYLVANIA tilboósveró kr. 2.750,- Merkilega heimilistækiðS Rafport Nú er unnt aö merkja allt á heimillnu, kökubauka, spólur, skóla- dót, geisla- diska o.fl. Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport o 3 O Q_

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.