Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 Skoðun I>V Ferðu oft í bústað? Hrund Guömundsdóttir nemi: Nei, voöa sjaldan, því miöur er ég ekki meö aögang aö slíkum munaði. Bára Þorsteinsdóttir nemi: Já, kemur fyrir, þaö er góö afsiöppun. Alexander Lapas nemi: Já, viö og viö, stanslaust stuö í sveitinni. Daníel Tryggvi Daníelsson nemi: Já, eins oft og ég kemst. Góö afslöppun. Stefán Baldvin Stefánsson nemi: Nei, þaö geri ég ekki sökum tíma- leysis. Væri samt alveg til í aö skreppa. Aöalsteinn Davíösson nemi: Nei, hef því miöur ekki aögang, ann- ars myndi ég eflaust fara. Dagfari Frá dreifbýlinu Víöa eru örhrepparnir. Sameining sveitarfélaga Magnús Sigurösson skrifar: Það er alveg ótrúlegt hve margir örhreppar eru enn tO á landinu. En hvers vegna í ósköpunum hefur ekki enn þá verið gripið í taumana af hálfu hins opinbera? Enn þann dag í dag er íbúatala sveitarfélags svo það teljist halda sjálfstæði sinu (sem er í raun sjálfstæði um ekki neitt) miðuð við ibúatöluna 50 sem lágmark. Það er með ólíkindum að þessi tala skuli ekki hafa verið hækkuð. Lágmarksi- búatala sveitarfélags ætti a.m.k. að vera tíu sinnum hærri. Ég tek dæmi af sveitarfélagi, sem ég þekki, og einkennist af mismun- andi sjónarmiðum íbúanna, öllum sem þar búa til hinna mestu leiðinda. ibúafjöldinn telur tæpa átta tugi, í sveitarstjórn og til vara eru 10 manns, í skólanefnd eru jafnmargir, tvo þarf til að endurskoða reikninga sveitarsjóðs og aöra 2 tO vara. Þarna eru komnir um 24 aðilar og er þó enn eftir slatti af nefndum sem skylt er að manna lögum samkvæmt, en virka ekki á nokkurn hátt eins og þeim er - er stærsta byggðamálið „Smáum sveitarfélögum er œtlað að veita sams konar þjónustu og stœrri samfé- lögum sem er auðvitað úti- lokað í framkvœmd, og því hallar undan fœti hjá þeim þar sem þau eru. Fólkið sem einhver töggur er í flyt- ur burtu, hinir verða eftir. “ ætlað, vegna fámennis, kunningja- og skyldmenna-samfélagsins. Þá er það einnig kunnara en frá þurfi að segja að þarna er oftar en ekki um eldri menn að ræða sem skilja lítt eða ekkert hvað er að ger- ast í skólamálum, geta ekki sett sig í spor ungs fólks eða skilið þeirra þarf- ir. Það eina sem smáhreppapólitíkin snýst um er að hanga á sínu eins og hundur á roði. Þetta skipulag leiðir til mjög þröngra hagsmunagæslu á tOtölulega afmörkuðum svæðum sem þó eru meira og minna háð þróun næsta stóra sveitarfélags. Þetta er heimóttarhugsunarháttur þeirra sem hafa sjóndeildarhring sem er oftast jafnvíður túngarðinum hjá viðkom- andi. Aukin menntun vinnur þó hægt en örugglega gegn fáfræðinni og skilningsleysinu. Stundum verður að taka ráðin af fólkinu, sagði einn virtasti stjórn- málamaður okkar og forsætisráð- herra til margra ára eitt sinn. Þessi orð eiga svo sannarlega við í þessu sambandi. Og það þarf að gerast fyrr en seinna. Smáum sveitarfélögum er ætlað að veita sams konar þjónustu og stærri samfélögum sem er auðvit- að útilokað í framkvæmd, og því haO- ar undan fæti hjá þeim þar sem þau eru. Fólkið sem einhver töggur er í flytur burtu, hinir verða eftir. Ég vO skora á ráðamenn þjóðarinn- ar að skoða þessi mál af fullri alvöru áður en það verður of seint. Um jafn brýnt mál, sem verður allra hagur þeg- ar frá líður, hlýtur að vera hægt að ná þverpólitískri samstöðu. Höldum land- inu í byggð og gerum unga fólkinu ger- legt að búa í sveitum þess. Atvinnuumsóknir til skoðunar Kristinn Sigurösson skrifar: Það hefur mikið verið skrifað um og gert úr því að íslandspóstur óskaði eftir upplýsingum um ákveð- ið fólk sem sótt hafði um vinnu hjá fyrirtækinu. En er það bara ekki mjög eðlilegt aö stofnanir eins og ís- landspóstur vOji fá upplýsingar um það fólk sem það ætlar að ráða? All- ir atvinnurekendur vilja það og myndu gera slíkt hið sama og ís- landspóstur gerði, að fá upplýsingar úr dóms- eða réttarkerfmu um við- komandi áður en ráðningarsamn- ingur er undirritaður. „Ætti íslandspóstur kannski að ráða til sín fólk sem er á kafi í eða í tengslum við fíkniefni? Ég held að flestir geti verið sammála um að það eigi ekki að gerast. “ Ekki skiptir svo sem máli hvort það er lögreglan eöa annar aðOi sem veitir þessar upplýsingar. Þær eru nauðsynlegar fyrir fyrirtækin. Mér finnst það hreint bull sem frá hinni svokölluðu Persónuvernd kemur, að fyrirtækin eigi að spyrja viðkom- andi umsækjendur hvort það sé í lagi að spyrja um þessi mál. Per- sónuvernd hefur þegar orðið sér til minnkunar og ætti aUs ekki að láta heyra í sér meira. Lögreglu ætti að vera skylt að veita upplýsingar um hvort þessi eöa hinn sé á sakaskrá. Ekkert annað - það nægir. Ætti íslandspóstur kannski að ráða tU sín fólk sem er á kafl í eða i tengslum við fíkniefni? Ég held að ílestir geti verið sammála um að það eigi ekki að gerast. AUt tal um „persónuvernd" á ekki heima í þessu sambandi. mmmm Súlurnar heim Dagfari getur ekki annað en kennt í brjósti um þær Cynthiu og Pam sem þurftu að flýja Club 7 til að komast hjá því að stunda vændi. Tvær 19 ára breskar blómarósir sem héldu að þær væru lista- menn þar tU þeim var gerð grein fyrir starfsskyld- um sínum á súlustaðnum við Hverfisgötu. Stúlk- urnar urðu hissa en Dagfari varð ekkert hissa þeg- ar hann frétti þetta. Dagfari hefur nefnilega komið oftar en einu sinni á súlustað og veit fyrir víst að vændi er aðeins spurning um skilgreiningu. Hvernig dettur fullorðnu fólki í hug að vændi teng- ist ekki skemmtistöðum þar sem naktar ungpíur dansa og skekja sig fyrir framan dauðadrukkna karlmenn í lokuðum smáklefum? Skárra væri það nú náttúruleysið. Ef dansinn kostar peninga þá kostar drátturinn það lika. Dagfari hefur aldrei verið í sama stjórnmála- flokki og Stígamótakonur. En í þessu efni er hann sammála þeim öOum með tölum. Litlu, lokuðu klefanir á súlustöðunum, þar sem einkadansinn fer fram gegn greiðslu, bjóða vændinu heim. Og það er velkomið. Dagfara er sagt að lágmarksverð sé 60 þúsund krónur. Það skýrir að sjálfsögðu þá al- mennu og útbreiddu ánægju dansmeyjanna með starfið. Varla væru þær svona „happy“ yfir þvi einu að vefja sig um súluna á sviðinu á tímakaupi? Klámkóngurinn á Club 7, sem eitt sinn var sveit- arstjóri á Patreksfirði, viðurkennir í síðdegisblað- Eiginkonan á þá að breytast í dans- mey þegar rökkva tékur og sveifla sér á svefnherbergissúlunni þar til karl- inn hefur fengið nóg. Og þetta á að vera ókeypis. inu í gær að aðsókn að súlustöðunum fari minnk- andi og starfsemin sé að dala. Þetta kemur heim og saman við það sem Stígamótakonur hafa sagt um að starfsemi súlustaðanna sé að færast heim í svefnherbergin tO viðskiptavinanna sem nenna ekki lengur á staðina. Konur hafa kvartað til Stígamóta yfir eiginmönnum sínum sem vilja koma upp súlu í svefnherberginu og fá þar sömu þjónustuna og þeir eru vanir á skemmtistöðunum. Eiginkonan á þá að breytast i dansmey þegar rökkva tekur og sveifla sér á svefnherbegissúl- unni þar til karlinn hefur fengið nóg. Og þetta á að vera ókeypis. Vissulega væri þetta sparnaður fyrir heimilið og þá sérstaklega barnmargar fjölskyldur. En Dag- fari tekur enn og aftur undir með Stígamótakon- um sem vilja gefa út verðskrá fyrir húsmæður sem neyðast tO að dansa súludans heima í svefn- herberginu. Að sjálfsögðu gætu þær aldrei tekið fuflt verð fyrir dansinn heima. Én í ljósi þess að húsmóðurstarfið hefur verið metið til jafns við byrjunarlaun sjúkraliða af dómstólum væri ekki óréttlátt að næturdansinn í svefnherberginu heima væri metin til jafns við eftirvinnukaup sjúkraliða. TOlögur Stígamótakvenna myndu leysa tvö vanda- mál sem orða mætti í einni setningu: Karlinn aUtaf heima - fleiri krónur fyrir mat. ^ ^ , Á flugvallarsvæðinu Reykjavíkurmál, ekki landsbyggöar. Framtíð flugvallarins Einar Árnason skrifar: í sjónvarpsþætti í Ríkissjónvarpinu sl. sunnduagskvöld var rætt um mál- efni ReykjavíkurflugvaOar eftir kynn- ingu á kostum sem ræddir hafa veriö færi flugvöOurinn úr Vatnsmýrinni. Mér fannst eins og fyrirfram væri ákveðið að láta hafla á þá tvo viðmæl- endur sem voru fulltrúar fyrir að flug- völlurinn færi (borgarstjóra og Einar Karl Haraldsson), því ég sá ekki betur en þrír væru til staðar sem verjendur flugvallarins þar sem hann er; nefni- lega oddviti minnihluta borgarstjórn- ar og formaður Hollvina Reykjavíkur- flugvaflar ásamt Ómari fréttamanni, sem ætla verður hlynntan Reykjavík- urflugveOi. Hinir tveir óumdeildu talsmenn landsbyggðarinnar (formað- ur HoOvinanna og oddviti sjálfstæðis- manna í borginni) gera sér auðheyri- lega ekki grein fyrir að umræðan er einfaldlega ekki á landsvísu, þetta er innanbæjarumræða um málefni Reykjavíkur. Gæsir sem smitberar Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Hinn 5. mars sl. birtist prýðflegt bréf eftir hann Guðmund Guðmunds- son, fyrrv. bónda, þar sem hann ræddi um smitsjúkdóma sem kynnu að ber- ast hingað tO lands með gæsunum. Ég tek undir hvert orð Guðmundar. Það vifl svo til að blessuð dýrin sum hver sem eru á og við landið eru skaðleg okkur, og þar á ég við bæði fugla, seli og hvali. Mér þykir vænt um dýrin en því miður verða yfirvöld að taka harð- ara á þeirri einkennflegu „þjóðernis- stefnu“ sem oft er í hávegum höfð gagnvart dýrum sem smitberum. Lofrolla um land- könnuðinn Sólveig Magnúsdóttir skrifar: Mér er farin að leiðast endalaus lof- rolla og skrif um landkönnuðinn „okkar". Ég á hér auðvitað við Vil- hjáim Stefánsson, sem nú er opnuð sýning um í Lista- safni íslands. Eftir að hafa lesið um hans einkamál og viðskilnað við grænlenska konu sem ól honum son, sem hann vildi svo ekkert af vita, missti ég alla tiltrú á þessum mikla landkönnuði. Vilhjálmur Stefánsson. landkönnuöur. Dauðaslys á Reykja- víkurflugvelli Rugmaður hringdi: í nýlegum þætti í Sjónvarpinu var leitast við að skýra eða telja upp nokk- ur óhöpp og flugslys sem skeð hafa á og við ReykjavíkurflugvöU. Ekki var þar öllu tfl skfla haldið, langt í frá. Ég man t.d. eftir flugslysi á Reykjavíkurflug- velli þar sem fórust tveir ungir menn, annar þeirra þáverandi flugstjóri Loft- leiða hf. Þetta var með hörmulegri slys- um á flugvallarsvæðinu og gleymist seint. Og enn fleiri hafa þau orðið, slys- in þarna á svæðinu. Ég harma ekki þótt slysagUdran ReykjavíkurflugvöU- ur verði lagður af. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 Reykiavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.