Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 23
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 Helgarblað 23 r>v SLEÐADAGAR Klippið út. Auglýsingin gildir sem 10% afsláttur. Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 - sími 588 1560 www. mitre. com Liðabúningar ísland sonar, en hann býr einmitt neðar við ána, á Oddhóli. Aukinheldur hefur Friðrik með sjö öðrum fjárfestum keypt stóran hlut í skíðaskálanum og aðstöðu allri í Kerlingarfjöllum, þar sem hinn síungi Valdimar Örnólfsson hefur ráðið ríkjurn og verður reyndar áfram. „Ég held að þetta svæði búi yfir gríöarlegum möguleikum fyrir ferðamenn allt árið um kring. Við stefnum að því að koma heitu vatni i öll húsakynni þarna sem fyrst og auka þjónustu eins og hægt er. Ekki síst taka hestamenn því fegins hendi. í Kerlingarfjöll- um er lítiö þekkt náttúrufegurð sem ég er sannfærður um að megi gera að paradís feröamanna." Rekinn á afmælinu Friðrik stóð á þeim óvenjuleg- um tímamótum á afmælisdegi sín- um fyrir réttum tveimur árum að hann var rekinn úr starfi forstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna eftir 13 ára starf í kjölfar nokkurs konar stjórnarbyltingar. Friðrik hefur síðan fengist við stjórnarsetu og ráðgjöf og er stjórnarformaður Landssimans og Sambands íslenskra fiskframleið- enda, sem er skammstafað SÍF, en hann rekur einnig ráðgjafarfyrir- tækið Góðráð og það er tekið fram á spjaldinu að þau séu dýr. Það var hjá SÍF sem Friðrik ílentist eftir skóla og starfaði þar í 12 ár, lengst af sem forstjóri. Á leið milli staða sést þessi hlið Friðriks vel. Síminn hringir jafnt og þétt og á hinum endanum eru kollegar, ritarar eða menn í leit að ráðum. Friðrik svarar öllum af sömu yfirvegun og ákveðni og ákveður stjórnarfundi, leggur inn fyrirspurnir og ræðir við dóttur Kann best viö sig í sveitinni Hann hefur átt Vindás ásamt þrem- ur öörum síöan 1983 og þar eru stunduö heföbundin bústörf, hey- skapur og hestamennska. Friðrik segist hafa haft mjög gaman af því aö vera í forsvari fyrir Hollvini Reykjavíkurflugvallar en kveðst eng- an áhuga hafa á aö fara út í pólitík. sína um kökubakstur. Allt á þjóð- vegi eitt. Sérframboð ekki útilokað Friðrik sagði við lok atkvæða- greiðslu um framtíð Reykjavíkur- flugvallar að hann hefði ekki tekiö þátt i svona málfundaæfingum síð- an í menntaskóla og segist hafa haft af þessu öllu saman nokkra skemmtan. En var þetta undirbún- ingur fyrir frekari þátttöku hans í stjórnmálum? „Ég hef aldrei haft reglulega gaman af stjórnmálum. Lengi vel þurfti ég í mínu starfi að hafa mik- il samskipti við stjórnmálamenn þegar afskipti hins opinbera af at- vinnugreininni voru mikil en síð- an Verðlagsráð og skyldar stofnan- ir voru lagðar af þá hef ég aðeins haft góð kynni af stjórnmálamönn- um. Ég hef auðvitað áhuga á lands- málum, eins og allir hafa, og marg- ir hafa spurt mig í kjölfar þessara átaka út í þetta. Það sem er kúnstugt við þann áhuga er að landsbyggðarmenn hafa rætt við mig. Ég hef sagt í hálfkæringi við félaga mína að ef við fyndum „brottfluttan sveitamann með sektarkennd", eins og Ingibjörg Sólrún kallaði flugvallarandstæð- inga einhvern tímann, sem vildi leiða lista, þá ættum við að efna til sérframboðs í Reykjavík næsta vor og setja flugvallarmálið og höf- uðborgarhlutverkið á oddinn. Það myndi áreiðanlega hleypa lífi í baráttuna." -PÁÁ 15-30% afsláttur á fatnaði og fylgihlutum Sími 568 1044 „Ópið" (1893) eftir norska málarann Edward Munch (1863-1944) OPIÐ til kl. 16.00 í dag Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.