Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 57

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 57
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 65 DV Tilvera rrestað þrisvar Óskarsverðlaunin voru afhent í fyrsta skipti 16. maí árið 1929 þegar kvikmyndir með tali voru aö koma fram á sjónarsviðið. Athöfnin fór þá fram í stórveislu sem haldin var á Hollywood Roosevelt-hótelinu, að við- stöddum 200 gestum sem greitt höfðu 10 dollara fyrir miðann. Fyrstu árin fengu dagblöð að vita um úrslitin fyrir fram til að hægt væri __ að birta þau í kvöldblöðun- Rf um sem komu út um mið- r nætti. Árið 1940 voru nöfn ^ vinningshafa hins vegar birt í ■ dagblaðinu Los Angeles Times w áður en afhending hófst og ' vissu því allir fyrir fram hverjir hefðu unnið. Eftir það var ákveð- ið að hætta að birta úrslitin áður og fólk varð að bíða eftir því að um- slagið góða væri opnað til að vita hver fengi verðlaunin. Óskarsverðlaunahátíðin hefur allt vakið athygli og strax árið 1930 var byrjað að útvarpa hluta hennar. Ákveðið var að hætta að halda af- hendinguna í stórveislum árið 1942 þar sem erfitt var að halda slíkar veislur á stríðstíma. Síðan þá hefur hátíðin ávallt verið haldin í leikhús- um. Árið 1953 var í fyrsta skipti sjónvarpað frá verðlaunaafhending- unni og 1966 var fyrsta sjónvarpsút- sendingin í lit. ABC-sjónvarpsstöðin hefur einkarétt á sjónvarpsútsend- ingum frá verðlaunahátíðinni til ársins 2008. Þegar óskarsverðlaunin voru af- hent í fyrsta skipti voru verðlauna- flokkarnir fimmtán en ári síðar var þeim fækkað niður í sjö. Frá því hafa umsvif afhendingarinnar vaxið hægt og sígandi og verðlaunaflokk- arnir orðið fleiri í gegnum árin. Verðlaun fyrir bestu aukaleikkon- una og aukaleikarann voru veitt í fyrsta skipti árið 1936 og strax árið 1947 var farið að veita óskarsverð- laun fyrir bestu erlendu myndina og var það ítölsk mynd sem hreppi styttuna í það skiptið. Aðeins þrisvar sinnum hefur verðlaunaafhendingunni verið frestað. Árið 1938 varð að fresta henni um viku vegna mikilla flóða í Los Angeles. Verð- launaafhending- unni 1968 var seinkað um tvo daga í virðingarskyni við dr. Martin Luther King sem var jarðað- Charlton Heston tekur við óskarsverölaunum áriö 1959 úr hendi Susan Hayworth Heston fékk óskarinn fyrir leik í Ben Hur sem fékk 12 óskarsveröiaun - þaö mesta sem ein kvikmynd hefur fengiö. ur sama dag og hún átti að fara fram og árið 1981 var afhendingin færð aftur um sólarhring vegna skotárásar á Ronald Reagan, þáver- andi forseta. Ekki eru seldir miðar í ósk- arsverðlaunaafhendingu og fá þeir eingöngu að vera viöstaddir sem fengið hafa boðsmiða. -MA Laugardagar eru nammidagar Stiklað á stóru í sögu óskarsverðlaunanna: Kynnirinn Steve Martin Wait Disney og Shirley Temple Disney fékk alls 32 óskarsverð- laun. Myndin er tekin þegar hann afhenti Shirley Temple ósk- arsverölaun áriö 1939. Óskars- staðreyndir Ýmislegt má tina til þegar staðreynd- ir eru skoðaðar, meðal annars þetta: Vitið þið: ... að ellefu kvikmyndir hafa fengið guilpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes og tilnefningar til óskarsverð- launa sem besta kvikmynd. ... að þijár kvikmyndir fengu gullpálmann í Cannes eftir aö þær höfðu verið tilnefndar til óskarsverð- launa (All That Jazz, Friendly Persu- asion, The Lost Weekend). ... að ein kvikmynd hefur unnið gullpálmann í Cannes eftir að hún fékk óskarinn sem besta kvikmynd (The Lost Weekend). ... að ein framhaldskvikmynd hefur fengið óskarinn sem besta kvikmynd (The Goodfather 2). ... að Katharine Hepburn á að baki tólf tilnefningar sem besta leikkona og hefur unnið fjórum sinnum. ... að árið 1999 gerðust allar kvik- myndir sem tilnefndar voru sem besta kvikmynd fimmtiu árum áður en kvik- myndin var gerð. ... að þrjár kvikmyndir hafa fengið öll flmm eftirsóttustu verðlaunin (besta kvikmynd, besti leikari og leikkona, besti leikstjóri og besta handrit) (It Happened One Night, One Flew over the Cuckoo’s Nest og The Silence of the Lambs). ... að elsti leikarinn sem unnið hefur óskarinn er George Burns (80 ára). ... að yngsti leikarinn sem fengið hefur óskarinn er Tatum O’Neal (10 ára) ... að Alfred Hitchcock var tilnefnd- ur til óskarsverðlauna sem besti leik- stjóri fimm sinnum en fékk þau aldrei í þessum flokki. ... að George Bemhard Shaw er á eina manneskjan sem hefur fengið bæði óskarsverðlaun og nóbels- verðlaun. ... að Wait Disney fékk 32 Æt óskara. ... að Walt Disney tók á móti sjö óskarsstyttum fyrir Mjallhvít og dvergana sjö. brugðist rétt við þegar óvænt atvik gerast. Frægasta dæmi um slíkt er þegar Jerry Lewis stjórnaði hátíð- inni og hún var búin fimmtán mín- útum of snemma. Til að bjarga mál- um í beinni útsendingu tók hann upp á því að grínast fyrir framan hljómsveitina, stjórna henni og fékk gesti til að taka þátt í glensinu og all- ir voru ánægðir. Steve Martin er vinsæll kvik- myndaleikari. Hann byrjaði feril sinn sem skemmtikraftur á sviði og var einn af þeim sem voru í upphafi í hin- um vinsæla þætti Saturday Night Live. Martin hefur leikið í mörgum vinsælum kvikmyndum, nú síðast í Bowfinger, sem hann skrifaði einnig handritið að. Síðari árin hefur hann verið að vinna sér sess sem rithöfund- ur. Fyrsta leikrit hans, Picasso at the Lapin Agile, var frumsýnt hjá Stepp- enwolf leikhópnum í Chicago 1993. Hlaut það frábæra dóma og rataði á Broadway. Safn smásagna hans undir heitinu Pure Drivel náði að komast á metsölulista og skáldsaga hans Shop- girl er á lista New York Times yfir mest seldu bækurnar í Bandaríkjun- um. Þá má geta þess að hann er lið- tækur banjóleikari og skemmtir sér stundum við að leika með ýmsum hljómsveitum. -HK Steve Martin í góöra vina hópi Mynd þessi var tekin viö óskarsverðlaunaafhendingu fyrir tveimur árum. Honum á hægri hönd eru hjónin Goldie Hawn og Kurt Russell. „Hann hefur allt sem til þarf, hann er kvikmyndastjama, er fyndinn og góður rithöfundur. Ég er viss um að hann hefur allt það sem þarf til að vera kynnir á óskarsverðlaunahátíð- inni.“ Þessi orö lét Gil Cates, stjórn- andi sjónvarpssendingarinnar, falla um Steve Martin sem fær þetta hlut- verk í fyrsta sinn. Steve Martin fetar í fótspor Bobs Hopes, Jerrys Lewis, Whoopi Gold- berg, Johnnys Carsons og Billys Crystals sem hafa gegnt þessu emb- ætti áður með misgóðum árangri. Bob Hope hefur lengst starfað sem kynnir og tókst ávallt vel upp, sama má segja um Billy Crystal, sem vildi hvíld þetta árið. Whoopi Goldberg fær örugglega ekki fleiri tækifæri. Hún er tvisvar búin að klúðra þessu starfi. Kynnir á þessari hátíð þarf að vera viðbúinn öllu og vera með talandann í lagi en hafa um leið þann klassa sem til þarf og geta r V- i*2. m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.