Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 8
8 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 Útlönd DV Carl I. Hagen Tapar fylgi vegna ágreinings innan Framfaraflokksins. Kjósendur snúa baki við Hagen Á meðan Carl I. Hagen, leiðtogi Framfaraflokksins í Noregi, gekk á mifli sjónvarpsstöðva til að svara spurningum um ágreining innan flokksins sneru kjósendur baki við honum. Framfaraflokkurinn hefur tapað 20,9 prósentustiga fylgi síðan í september í fyrra. Á sama tímabili hefur Hægri flokkurinn aukið fylgi sitt en Verkamannaflokkurinn stendur i stað. Aðeins 55 prósent þeirra sem kusu Framfaraflokkinn í síðustu þing- kosningum myndu greiða honum at- kvæði nú. Af kjósendum Hægri flokksins í siðustu kosningum myndu 74 prósent kjósa hann nú. DNA-rannsókn á hengdum morð- ingja eftir 40 ár Líkamsleifar James Hanratty, sem var hengdur árið 1962 eftir að hafa verið dæmdur fyrir morð og nauðgun, hafa verið grafnar upp úr kirkjugarðinum í Bushey í Hert- fordskíri í Englandi. Hanratty var dæmdur fyrir morð á Michael Gregsten og fyrir að hafa nauðgað og reynt að myrða unnustu hans, Valerie Store. Ættingjar Hanrattys hafa alltaf haldið fram sakleysi hans og nokkr- ir rannsóknarmenn styðja kenn- ingu þeirra. Lífsýni úr morðingjan- um fannst á nærfötum Valerie. Verður það borið saman við erfða- efni úr Hanratty. Gerhard og Doris Schröder Ekur heldur um í Gotf eiginkonunnar en límósínu. Flytur úr embætt- isbústað vegna hárra skatta Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, íhugar að flytja úr emb- ættisíbúð sinni í Berlín í þriggja herbergja íbúð til þess að létta á skattaþunga. Kanslarinn þarf ekki að greiða leigu fyrir embættisbú- staðinn en hann þarf hins vegar að greiða 3.600 mörk á mánuði í skatta vegna nota af bústaðnum. Um helg- ar er Schröder oftast heima í íbúð- inni sinni í Hannover ásamt eigin- konu sinni, Doris, og dóttur. Kanslarinn kýs einnig að aka um í Volkswagen Golf-bifreið konu sinnar í Hannover í stað þess að greiða skatta af akstri í brynvarinni límósínu. Gin- og klaufaveiki í brennidepli á leiðtogafundi ESB: Kunna að missa helming bústofns Göran Persson, forsætisráðherra Sviþjóðar, ætlaði að hafa landbún- aðarmál neðarlega á dagskránni á fundi leiðtoga Evrópusambandsins í Stokkhólmi í gær. En útbreiðsla gin- og klaufaveikinnar í Evrópu var í brennidepli í gær. Samkvæmt beiðni Bretlands og Hollands var veikin fyrsta málið á dagskrá leið- togafundarins. Samtímis því sem leiðtogarnir komu hver af öðrum til Stokkhólms greindu sérfræðingar frá því að hætta væri á að gin- og klaufa- veikitilfelli í Bretlandi myndu tífald- ast á næstu vikum og yrðu orðin um 4 þúsund í júní. Sérfræðingarnir segja ekki útilokað að slátra þurfi helmingi bústofns Breta sem nú er 62 milljónir dýra. Um 300 þúsund klauf- dýrum hefur verið fargað frá því að veikin braust út fyrir um mánuði. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, bað leiðtogana um að- stoð í baráttunni við veikina sem ekki virðist hægt að hafa hemfl á. Frakkar hafa þegar sent dýralækna til Bretlands og Finnar, Svíar og Bandaríkjamenn hafa lofað að að- stoða ellefu hundruð breska dýra- lækna sem reyna að stöðva út- breiðslu sjúkdómsins. Dýralæknanefnd Evrópusam- bandsins leyfði í gær takmarkaða notkun bóluefnis í Hollandi í bar- áttunni gegn gin- og klaufaveiki. Víðtæk bólusetning var þó útilok- uð. Dýralæknanefndin vísaði í gær á bug tillögu Dana um bann við öll- um flutningi á lifandi klaufdýrum mifli Evrópusambandslanda. Nú er flutningur leyfður sé látið vita af honum með sólarhrings fyrirvara og samþykki bæði móttakanda og sendanda liggi fyrir. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins gagnrýndi í gær bæði inn- flutningsbann Japana á öllu kjöti frá bændum í Evrópusambands- löndum og innflutningsbann Dana á fóðri frá löndum þar sem gin- og klaufaveiki hefur brotist út. Sagði framkvæmdastjórnin þessar ráð- stafanir óþarfar öryggisaðgerðir. Evrópskir bændur flytja út mikið magn kjöts til Japans. 40 prósent af öllu svínakjöti, sem Japanar leggja sér til munns, koma frá Evrópu- sambandinu. Þriðjungur af öllu svínakjöti, sem Japanar borða, er fluttur inn frá Danmörku. Danir hafa miklar áhyggjur af tekjumissinum. Þeir vonast til að Japanar aflétti bann- inu hið fyrsta. '■ ÆBm ^ ÁriÉMMmmáw 'fesv-u • [M* W ams, me nm^rrtFfrr f .1 Þjarmað aö ráöherra Fjðlmiðlamenn þyrptust að utanríkisráöherra Rússlands, Igor Ivanov, á leiðtogafundi ESB í Stokkhótmi í gær og spurðu hann spjörunum úr um brottvísanir bandarískra sendifulltrúa frá Rússtandi. Vladimir Pútín Rússlandsforseti gerði lítið úr vangaveltum að nýs kaldastríðs væri að vænta. Pútín krefst harðari aðgerða í Makedóníu Vladimir Pútín Rússlandsforseti varaði í gær leiðtoga Evrópusam- bandsins við og sagði átökin í Makedóníu geta þróast í ástand eins og rikti í Tsjetsjeníu yrði ekki grip- ið til harðra aðgerða gegn albönsk- um skæruliðum. Pútin varði jafn- framt hernað Rússa í Tsjetsjeníu. Rússlandsforseti kom í gær til Stokkhólms þar sem leiötogar Evr- ópusambandsins funda. Göran Pers- son, forsætisráðherra Svíþjóðar benti á að þetta væri í fyrsta sinn sem rússneskur forseti fengi að taka þátt í viðræðum á fundi sambands- ins. Forseta Makedóníu, Borís Traj- kovski, hafði einnig verið boðið til fundarins og ræddi hann við Pútín síðdegis í gær áður en fundargestir snæddu kvöldverð í konungshöll- inni í Stokkhólmi. Fyrr um daginn birti rússneska utanríkisráðuneytið yfirlýsingu þar sem sagði að Kosovo væri vagga Skotiö á Albana Hermaður í Makedóníu skýtur á al- banska uppreisnarmenn í fjöitunum fyrir ofan Tetovo í gær. hryðjuverka á Balkanskaganum vegna stríðs NATO gegn Júgóslavíu fyrir tveimur árum. í yfírlýsingunni sagði jafnframt að aðgerðir NATO hefðu ekki leyst mörg vandamál svæðisins heldur aukið þau. Leiðtogar Albana í Kosovo hvöttu í gær albanska uppreisnarmenn í Makedóníu til að leggja niður vopn og snúa aftur heim. í yfirlýsingu frá þremur helstu stjórnmálaleiðtogum Kosovo voru öryggissveitir í Makedóníu einnig hvattar tfl að sýna stillingu og leysa vanda Al- bana í Makedóníu. Talsmaður friðargæsluliða NATO í Kosovo vísaði í gær á bug fregnum um að 200 óbreyttir borgarar hefðu særst í árásum hersins í Makedón- iu. „Samkvæmt okkar upplýsingum fóru 20 manns yflr landamærin til Kosovo, 11 börn og 9 fullorðnir. Einn úr hópnum særðist,“ sagði talsmaðurinn. Bréf gegn Haider Sextíu og sjö menntamenn frá ýmsum löndum gagnrýndu í gær í bréfi linkind aust- urrískra stjórn- valda gagnvart hægrimanninum Jörg Haider vegna meintra árása hans á gyðinga. Bréf menntamann- anna, sem var opið og birt í dag- blaði, var til Thomas Klestils, for- seta Austurríkis. Formannsslagur Edmund Joensen, fyrrverandi lögmaður Færeyja, berst á lands- fundi Sambandsflokksins um helg- ina við Lisbeth L. Petersen um for- mannsembættið. Ástríðumorð Sænska lögreglan hefur handtek- ið 37 ára gamlan mann sem grunað- ur er um morð á fyrrverandi unn- ustu sinni og vini hennar í Gauta- borg. Hinn handtekni sætti sig ekki við að unnusta hans fór frá honum. Mótmæla gyðingabyggð ísraelskir hermenn skutu í gær á Palestínumenn á Vesturbakkanum sem mótmæltu nýjum gyðinga- byggðum fyrir 6 þúsund fjölskyldur sunnan Jerúsalem. Palestínumenn köstuðu grjóti að hermönnunum og særðist fjöldi í átökunum. Á Gaza- svæðinu braust út skotbardagi milli Palestínumanna og Israela. Heidi Fleiss á kreik á ný Hórumamman Heidi Fleiss í Hoflywood er komin í sviðsljósið á ný og útvegar ríkum mönnum í kvikmyndaborginni vændiskonur. Hún var dæmd í 2 ára fangelsi fyrir nokkrum árum fyrir iðju sina. Sprengjumaður gripinn Heyrnarlaus Kínverji, Jin Ruchao, sem var handtekinn í Kína i gær, hefur viður- kennt að hafa staðið á bak við sprenging- amar í fjórum fjölbýlishúsum í síð- ustu viku. Viku áður hafði hann myrt unnustu sína. Gróðurhúsalofttegundir Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Romano Prodi, fram- kvæmdastjóri Evrópusambandsins, biðja George W. Bush Bandaríkja- forseta i bréfi um viðræður um hvernig draga megi úr losun gróð- urhúsalofttegunda. Njósnamálinu lokið George W. Bush Bandaríkjaforseti lít- ur svo á að njósna- máli Bandaríkjanna og Rússlands sé lok- ið. Bandaríkjamenn vísuðu fyrr í vikunni 50 Rússum úr landi vegna njósna. Rúss- ar svöruðu í gær með því að vísa strax fjórum Bandaríkjamönnum úr landi. 46 verða reknir frá Rússlandi í sumar. Stjórnin neitar að víkja Samsteypustjórnin á Indiandi neitaði í gær að verða við kröfum stjórnarandstöðunnar um afsögn vegna mútuhneykslis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.