Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 27
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 27 DV Helgarblað Ball í Gúttó „Þaö er því gríöarlegt áfall og álag sem aumingja strákarnar lenda í, eölilega," segir Valgeir Skagfjörö þessar mundir vinnur viö aö setja upp nýtt leikverk hjá Leikfélagi Akureyrar. sem um á Akureyri Valgeir Skagfjörð er ekki við eina fjölina felldur hvað snertir listræna hæfileika. Hann er menntaður leik- ari en auk þess er hánn leikstjóri, semur handrit að leikritum, tónlist og söngtexta. Út hafa komið eftir hann ljóð og sögur og núna síðast barnabókin „Saklausir sólardagar" fyrir síðustu jól. Undanfarna mán- uði hefur Valgeir unnið kappsam- lega að þvi að setja upp nýtt leik- verk í Samkomuhúsinu á Akureyri en þess utan hefur hann verið að sýsla við ýmislegt annað í menn- ingu og listum og bráðlega verður slegið upp balli, bæði i Sjallanum og gamla Gúttó, þar sem djass og blús stríðsáranna verður allsráðandi. Fékk góöa dóma í Kanada Á næstunni mun Leikfélag Akur- eyrar frumsýna leikritið Ball í Gúttó eftir Maju Árdal en Maja, sem hefur búið og starfað i fjöldamörg ár i Kanada, sat við að skrifa leikritið í Davíöshúsi á Akureyri í maí á síð- asta ári. Maja skrifaði leikritið á ensku og heitir það á frummálinu Midnight Sun og hefur nú þegar verið frumsýnt í stóru leikhúsunum í Toronto og Ottawa og fengið mjög góða dóma. Valgeir hefur séð um að þýða verkið á islensku í samvinnu við Maju, auk þess sem hann sér um tónlistarþáttinn og hefur meðal annars samið nýja söngtexta en tón- listin er einmitt mikill þáttur í leik- verkinu. Hann segir að leikritið hafi tekið töluverðum stakkaskiptum í umrituninni þvi margt hafi þurft að umskrifa. I ensku útgáfunni sé til dæmis ekki gert ráð fyrir að fólk þekki svo vel til þjóðarsálarinnar. Óður til íslenskra kvenna - Hvers konar leikrit er Ball í Gúttó? „Leikritið fjallar um þá gríðar- legu amerísku menningarinnrás sem var gerð hérna á ísland eftir striðið, þegar Ameríkanarnir komu hingað í öllu sínu veldi og með all- an djassinn og blúsinn í farteskinu. Leiksviðið er Akureyri og eru aðal- persónurnar tónlistarfólk, hann er djassleikari og hún er söngkona. Hann er að koma aftur heim til landsins eftir tveggja ára fjarveru erlendis þar sem hann var búin að vera aö drekka og spila blús og djass í Kaupmannahöfn. Persónurn- ar í verkinu eru ekki bara skáldað- ar heldur eiga þær sér alvöru fyrir- myndir úr þjóðfélaginu frá þessum árum. Það verður auðvitað uppi fótur og fit þegar skyndilega mætir í bæinn allur þessi fjöldi karlmanna í ein- kennisbúningum og tvöfaldar karl- peninginn í bænum. Það er því grið- arlegt áfall og álag sem aumingja strákarnar lenda í, eðlilega. Svo snýst allt um þetta ball, þegar Kan- arnir ákveða að bjóða öllum dömum á Akureyri á sinn dansleik - vilja bara fá þær lánaðar svona eina kvöldstund og það verður auðvitað allt vitlaust í bænum. Þótt leikritið sé að mestu leyti um músík flallar sagan um íslenskar konur og mennina sem þær elska og að þær láta hvorki segja sér fyrir verkum né kúga sig. Ef þær langar til að fara á Kanaball þá gera þær það bara, jafnvel þótt þær fái hótan- ir eins og að ef þær fari á ballið þá muni nöfn þeirra birtast opinber- lega í bæjarblaöinu undir fyrirsögn- inni Kanamellur. Eins og höfundur verksins leggur þetta upp er þetta óður til hinnar sjálfstæðu íslensku konu sem tekur ákvarðanir um sitt eigið líf,“ segir Valgeir. Gæti orðið góð bíómynd - Er þetta skemmtilegt leikrit? „Þetta er mjög skemmtilegt leik- rit og skemmtileg saga sem gerist á fjórum dögum. Það er miðsumar - Jónsmessa - þegar Kanarnar koma, þeir hafa aldrei upplifað miðnætur- sól, sofa ekki og verða bara skrýtn- ir. Þeir skilja heldur ekkert í öllum þessum fallegu konum sem koma og standa á bryggjunni þegar þeir sigla inn í höfnina - fegurðardrottningar í löngum bunum.“ - Þetta er þá fyrir þá eins og að sigla inn í eitthvert ævintýri? „Já, gjörsamlega, og eins og einn. ameríski hermaðurinn í leikritinu segir: „Ég er ekkert viss um að þið íslendingar séuð bara raunverulegt fólk.“ - Verður sýningin sett upp ann- ars staðar en á Akureyri? „Þetta er það flókin sýning tækni- lega að ég stórefast um það. Það er mikið að gerast á sviðinu, verið er að leika á mörgum stöðum í einu og það er vandasamt að koma þessu öllu saman. Viö erum inni á balli, uppi í fialli, heima í stofu, inni á tveimur heimilum, niðri við höfn og svo framvegis. Ég sé alveg fyrir mér að þetta gæti orðið góð bíómynd einhvern tímann ef einhverjir tækju sig saman og settu svolítið af peningum í það verk.“ Á leið í útvarpið - Ertu alveg hættur að leika? „Ég lék i Berfætlingunum eftir Guðmund Friðfinnsson sem óvænt var sett upp hér hjá Leikfélagi Ak- ureyrar fyrir skemmstu. Svo á að fara að taka upp útvarpsleikrit hjá RÚVAK sem er eftir mig og kannski leik ég i þvi líka. Það var talað um það fyrir nokkrum árum að gaman væri að taka upp útvarpsleikrit hér á Akureyri, nýta starfskraftana sem hér eru og gefa tæknimönnunum hjá RÚVAK tækifæri til að æfa sig i að taka upp eitthvað annað en frétt- ir og þvíumlíkt. Mönnum fannst al- veg tilvalið fyrst ég var að koma hingað norður á annað borð að láta nú slag standa og láta verða af þessu. Leikritiö heitir „Píanótím- inn“ og sigraði í leikritasamkeppni sem var haldin í samvinnu Leikfé- lags Akureyrar og MENOR. Ég breytti því úr sviðsleikriti í út- varpsleikrit, en það þýðir ekki endi- lega að það fari ekki á svið einhvem tímann i framtíðinni," segir Valgeir Skagfjörð. Stríðsáraball i Sjallanum Og það er fleira skemmtilegt sem Valgeir hristir fram úr erminni til að auðga menningarlifið á Akureyri á meðan á dvöl hans stendur þar. Með aðstoð tónlistarfólksins sem vinnur að sýningunni í LA hefur verið ákveðið að slá upp Stríðsára- balli i Sjallanum 30. mars næstkom- andi. „Það verður að virkja kraft- ana sem hér eru,“ segir Valgeir, „enda frjór jarövegurinn." Hljóm- sveitina skipa þeir Pálmi Gunnars- son og Kristján Edelstein gítarleik- arar, Vilhjálmur Ingi á blásturs- hljóðfæri og Benedikt Brynleifsson trommuleikari ásamt söngvurum úr leiksýningunni en auk þeirra koma fram grínistarnir Karl Ágúst Úlfs- son og Örn Árnason. Það verður því búið að kynda undir ærlegri striðs- árastemningu þegar Ball í Gúttó verður frumsýnt 11. apríl næstkom- andi. -w aðu >ér. ad boTga lOO\tr.fyrír ^OcJur aise'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.