Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 DV __________75 Helgarblað Annað músíktilraunakvöld Tónabæjar 2001: Tvær rokksveitir og einn tölvari í úrslitin Annað músíktilraunakvöldið fór fram í Tónabæ á fimmtudagskvöldið. í þetta skipti voru gestasveitirnar úr harðkjarnafiölskyldunni. Það var Snafu sem byrjaöi kvöldið og gaf það vel inn að salurinn var orðinn vel heitur þegar fyrsta tilraunasveitin, Halim úr Hafnahrði, steig á svið. Halim er rokkband, skipað trommara, bassaleikara og tveimur gítarleikurum, en annar þeirra er jafnframt söngvari. Eftir smá feed- back og stillingar, eins og tilheyrir, töidu þeir inn í fyrsta lagið. Tónlistin hjá þeim var nokkuð hefðbundið rokk en athygli vakti samspil gítarleikar- anna sem skiptust á að spila rytma og gítarlínur. Halim var nokkuð þétt og hlaut góðar viðtökur í salnum. „Grindverk dauöans" Næst í röðinni spilaði hljómsveitin Hemra fá Akranesi, en hún er skipuð gitarleikara, bassaleikara, trommara og söngvara og spilar hart og þungt rokk. Nöfnin á lögunum segja kannski eitthvað um hugarheim þeirra: „Loft- árás“, „Skítur samfélagsins" og „Grindverk dauðans" sem var síðasta lagið - hratt og stutt keyrslulag . Hemra kom nokkuð sterk inn i byrjun en þegar á leið varð manni ljóst að sérstöðuna vantaði. Þriðja atriðið á dagskránni var hljómsveitin Fake Disorder úr Mos- fellsbæ. í henni eru fimm, tveir gítar- istar, trommari, bassaleikari og söngvari. Fake Disorder er enn ein harðkjarnasveitin en sú tónlistar- stefna virðist vera hvað vinsælust hjá þeim unglingum sem eru að búa til tónlist í dag. Sérstaða hennar var að- allega fólgin í lunknu samspili gítar- anna, sem stundum kom vel út, t.d. í byrjun fyrstu tveggja laganna, en það sem dró hana niður var að það vant- aði dálitið upp á kraftinn og úthaldið og svo voru lögin líka of lík innbyrð- is. Spilaö á vekjaraklukku. Næstur sté á svið Reykvíkingurinn Arnar Jónsson en hann kom fram einn undir nafninu Hemúll. Hann var greinilega ákveðinn í að ná upp góðu stuði og byrjaði á því að taka atriði við lófatak salarins á meðan tölvan var að kveikja á sér og geri aðrir bet- ur! Tónlistin sem Hemúllinn bauð upp á var tölvupopp sem hljómaði svolítið eins og það sem menn voru að gera á níunda áratugnum. Þetta var nokkuð fjölbreytt hjá honum (fór úr syntapoppi yfir í tölvupönk), en söng- urinn og leikræn tjáning hans gerði það að verkum að það var ekki beint hægt að taka tónlistina alvarlega, þetta var meira eins og leikþáttur eða jafnvel kabarettatriði. Hemúllinn náði upp-flottri stemningu og notaði ýmis trikk, hann spilaði t.d. á vekjara- klukku í einu laginu. Eftir stutt hlé var svo komið að Reykjavíkursveitinni Heróglym. í henni eru fimm (gítar+söngur/gít- ar/gítar/bassi/trommur) og höfðu þeir nokkra sérstöðu tónlistarlega. Þeir spila mun rólegra og poppaðra rokk en þær sveitir sem á undan voru,- Tónlistin þeirra fór út í hálfgert softrokk (eða valíumrokk) á köflum og byrjunin á öðru laginu minnti tölu- vert á hljómsveitina Cure. Þó að þeir væru ekki alveg nógu vel æfðir og það vantaði svolítið upp á kraftinn hjá þeim þá var mikill metnaður í laga- smíðunum og svo er alltaf gaman að sjá hljómsveitir sem fara sínar eigin leiðir og spila ekki það sem er mest í tísku. Geimtónlist og grjóthart drum & bass. Næstsíðastir á svið voru tvímenn- ingarnir í Sensor frá Reykjavík. Þeir eru báðir forritarar auk þess sem ann- ar rappar. Þeir mættu til leiks í sér- framleiddum Sensorbolum með áletr- uninni „Aðallega geimtónlisf' á bak- hliðinni. Þeir voru líka með sviðsat- riði, eins og t.d. að spreyja á sér hárið á sviðinu, en þó að þeir hafi greini- lega haft töluvert fyrir þessu þá vant- aði aðalatriðið. Sjálf tónlistin (tvö drum- & basslög og eitt rapplag með texta um vélmenni sem hljómaði eins og eitthvað úr Stundinni okkar) var ekki neitt neitt. Siðasti keppandinn var svo Elvar Finnur Grétarsson en hann kom fram undir nafninu Skam og spilaði á tölvu og hljómborð. Ólíkt sumum öðrum tölvutónlistarmönnum, sem komið hafa fram á Músiktilraunum, var Skam ekki með neitt sprell, hann treysti algjörlega á tónlistina. Tónlist Skam er hart drum & bass. Lögin þrjú voru ólík og öll nokkuð góð, sérstak- lega fyrsta lagið sem var með nokkuð flókinni uppbyggingu og svo það síð- asta sem var einhvers konar keyrslu drum & bass með öflugum bassagangi sem minnti meira á rokktóniist en drum & bass. HQjómurinn hjá Skam var líka kraftmikill og flottur - nokk- uð sem fáir af tölvurunum á Músíktil- raunum hingað til hafa getað boðið upp á. Það kom svo í hlut hljómsveitarinn- ar Vígspár að klára kvöldið. Þeir gerðu bókstaflega allt vitlaust á með- an atkvæðin voru talin. Niðurstaðan var svo sú að áhorfendur kusu Halim, en dómnefndin valdi að þessu sinni tvo þátttakendur til þess að halda áfram í úrslitin, Skam og Heróglym. Þriðja tilraunakvöldið var svo í gær- kvöld en um það verður fjallað í DV á mánudaginn. Trausti Júlíusson. Heróglymur Hafa nokkra sérstöðu tónlistarlega, spila rólegt og poppað rokk. Hemúll Náði upp flottri stemningu og notaði ýmis trikk. 15-70% afsláttur af páskavörum og öðrum vörum fram að páskum. tlboð Ath., námskeið eru hafin. Nánari upplýsingar í versluninni eða í síma 552 1412. V umotfWpMK ---------JL- Skólavörðustíg 12 • S. 552 1412 Sylvie Brunet, Hulda Björk Garðarsdóttir, Mario Malagnini, Christopher Robertson, Ingveldur Ýr Jónsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Rico Saccani. Kórstjóri: Garðar Cortes. Kór íslensku óperunnar. Miðaverð 3.500 kr. - númeruð sæti. © Miðasala kl. 9-17 virka daga Háskólabió v/Hagatorg © Simi 545 2500 www.sinfonia.is 0 SINFÓNÍAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.