Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 Helgarblað DV Catherine Zeta-Jones leikkona Þaö hefur komið í Ijós aö Zeta-Jo- nes átti ríkan þátt í tilurö kvik- myndarinnar Traffic sem tilnefnd er til nokkurra verðlauna. Catherine bak við tjöldin Leikkonan Catherine Zeta-Jones hefur verið mikið í kastljósi fjöl- miðla, ekki síst eftir að hún og Michael Douglas áttu bam saman og giftu sig með miklum tilfæring- um og allur heimurinn stóð á önd- inni með augun á stilkum. Það er mikill misskilningur að halda að nú hafi frú Douglas sest í helgan stein og einbeitt sér að hús- móðurstarfinu og móðurhlutverk- inu. Það er aldeilis ekki svoleiðis. Hún vinnur ötullega bak við tjöldin að framgangi kvikmyndalistarinn- ar. Kvikmynd sem heitir Traffic nýtur um þessar mundir mikilla vinsælda og er tilnefnd til nokkurra óskarsverðlauna. Leikstjóri hennar er snillingurinn Steven Soderbergh sem oft hefur gert mjög góða hluti. Nú hefur komið í ljós að fyrstu drög handrits þessarar góðu mynd- ar vánn frú Douglas ásamt bróður sínum, Davíð að nafni. I fyrstu sýndu framleiðendur engan áhuga en að lokum setti frú Douglas hnef- ann í borðið og sagði að ef Harrison Ford myndi ekki taka að sér hlut- verk í myndinni kæmi eiginmaður hennar til skjalanna. Þetta hreif og myndin var framleidd með frábær- um árangri. Þegar Soderbergh tek- ur við óskarsverðlaunum þá er eins gott að hann muni eftir að þakka Catherine. DV í höfuðstöðvum NASA í Houston: DV. HOUSTON:_____________________ „Samlíkirinn er í stöðugri notkun 24 tíma á dag,“ segir Bjarni Tryggvason geimfari í samtali við DV í höfuðstöðvum NASA, banda- rísku geimferðastofnunarinnar í Houston. DV slóst í för með Bjarna í nokkrar ferðir út í geiminn. Ótal skjáir í stjórnklefa geimskutlunnar, sem er nákvæmlega eins og í raun- veruleikanum, sýndu hraða og feril skutlunnar auk fjölmargra atriða sem leikmaður botnar ekkert í. Nokkur þúsund stjómrofar eru þar til staðar. Meðal þess sem kom upp á í einni ferðinni var að fjórar af fimm stjómtölvum skutlunnar voru úr leik. Þá kom upp alvarleg vélar- bilun og Bjama og félaga hans var ætlað að leysa úr vandamálunum. Skutlan sveif til jarðar og lenti heil úr öllum ferðunum. Merkilegt var að horfa út um glugga samlíkisins sem var í raun videoskjár og sýndi jörðina nálgast og á endanum flug- brautina. Sýndarveruleikinn var slíkur að allt virtist raunverulegt að því undanskildu að hreyfingar sem fylgja geimflugi vantaði. Aðrir sam- líkjar voru með þeim möguleika. Bjami er fæddur á Islandi og al- inn þar upp til sjö ára aldurs þegar foreldrar hans fluttu til Kanada. Hann var ráðinn geimfari hjá kanadísku geimferðastofnuninni áriö 1983 og fór út í geiminn með geimferjunni Discovery í ágúst 1997. Auk þess að vera flugmaður er Bjarni verkfræðingur með sérfræði- þekkingu á ýmsum sviðum svo sem varðandi veðurfar og þol bygginga til að standa af sér hvirfilvind. Hann starfar ýmist í Montreal í UV-MYNU KtTNIK IKMUÖIMOUii íslenskur geimfari Bjarni Tryggvason geimfari er í stööugri þjálfum til aö vera tilbúinn aö halda aftur út í geiminn. Hér er hann i svoköll- uöum hermi þar sem líkt er eftir flugi geimskutlu í öllum atriðum. Þegar myndin var tekin sýndu mælar aö geimskutl- an var komin út úr gufuhvolfinu og á braut umhverfis jöröu. Kanada eða í höfuðstöðvum NASA i Houston en sjálfur býr hann í Flór- ída ásamt fjölskyldu sinni. í Kanada vinnur hann að rannsóknastörfum en meginverkefni hans í Houston er að þjálfa geimfara til að starfa í Al- þjóðlegu geimstöðinni, Alfa. í John- sons Space Center í Houston starfar Bjarni einnig við að fljúga í hermi Hnattflug með Bjarna geimfara Hallgrímur Helgason___________________________________________________________________________________________________ Hin íslenska spilling Þeir voru fallegir, félagamir í Deiglunni, á sunnudagskvöldið, Halldór Ásgrímsson og Guðni Ágústsson. Þeir vom dálítið fyndnir líka. Það er alltaf eitthvað óþægilegt við aö horfa á tvo fullorðna karl- menn horfast í augu og játa hrifn- ingu sína hvor á öðrum. Ég held það væri best fyrir Framsóknarflokkinn að láta Halldór og Guðna koma fram hvorn í sínu lagi. Þegar við sjáum Halldór munum við líka að þetta er maðurinn sem bjó til kvótakerfið. Við munum það líka að hann er kvótaeigandi í ann- an liö austur á landi. Það er kannski af þessum sökum sem Halldór, svona ljómandi hress eftir flokks- þingið, í viðtali við Jóhönnu Vigdísi, minnti dálítið á Tony Soprano sitj- andi hjá sálfræðingnum sínum. Ein- hvemveginn eru þeir ótrúlega líkir. í þættinum á mánudagskvöldið var Tony einmitt svona ljómandi hress hjá sála sínum því nýbúið var að ganga frá lykilvitni í máli gegn hon- um. Þama í Deiglunni fengum við enn einu sinni að sjá íslenska frétta- mennsku eins og hún gerist best: „Hvað segiði strákar, var ekki gam- an á flokksþinginu? Þú varst kosinn varaformaður, var það ekki gam- an?“ ísland er lítið land. I byrjun febrúar hélt Guðni Ágústsson blaðamannafund þar sem hann kynnti framboð sitt til varafor- manns Framsóknarflokksins. Við sáum það í sjónvarpsfréttum og eitt- hvað fannst okkur bogið við þennan blaðamannafund; í baksýn blöstu við ljósmyndir af öllum fyrrverandi landbúnaðarráðherrum landsins. Blaðamannafundurinn var semsagt haldinn í landbúnaðarráðuneytinu. Af því að Guðni er landbúnaðar- ráðherra. Þarna sátu fréttamennim- ir og gæddu sér á kaffi og bakkelsi á kostnað ráðuneytisins og einhvem- veginn átti maður von á því að ein- hver þeirra myndi gera athugasemd við staðarvalið en það gerðist aldrei. Jæja, hugsaði maður bara og lét sig hverfa á netið. Þremur vikum síðar er ég að horfa á „West Wing“ í Ríkissjón- varpinu sem verður líklega að telj- ast besti sjónvarpsþátturinn í loft- inu nú um stundir (þú fyrirgefur, Kolla mín). „Vesturálman" er staö- sett S Hvíta húsinu og fjallar þáttur- inn um störf og starfslið Bandaríkja- forseta. í þessum tiltekna þætti stendur yfir kosningabarátta um sæti á Bandaríkjaþingi og forsetinn er að sjálfsögðu virkjaður; látinn hringja nokkur símtöl til fjáröflunar og stuðnings sínum mönnum, demókrötum. Hann er staddur í sinni egglaga skrifstofu þegar að- stoðarmaðurinn vill drífa í því að hringja. Forsetinn verður hvumsa. Hvernig dettur honum í hug að stunda kosningabaráttu á skrifstofu Bandaríkjaforseta? Hvemig dettur manninum í hug að forsetinn muni blanda saman flokkshagsmunum og hagsmunum lands og þjóöar? Banda- rísk lög krefjast þess að öll slík sím- töl fari fram á heimili forsetans. „At the residence". Þátturinn er geysilega raunsær og handritin skrifuð í samráði við fyrr- um starfsmenn Hvíta hússins. Bandaríkin eru stórt land. Og kannski er óréttlátt að bera þá sam- an, Guðna Ágústsson og Bandaríkja- forseta. En það er samt eitthvað ægi- lega rangt við þá ákvörðun landbún- aðarráðherra að halda blaðamanna- fund um sitt eigið framapot í sínum litla flokki í fundarherbergi ráðu- neytisins. Guðni blandar saman þjóðarhagsmunum og eiginhags- munum. Hann blandar saman starfl sínu og persónu. Hann misnotar ráðuneytið. Hver ætlar að segja okkur það að ráðherrann hafl ekki hringt nokkur símtöl úr ráðuneytinu í sinni litlu kosningabaráttu? Hver ætlar að segja okkur það að Guðni hafi ekki kallað til sín fólk, og haldið fundi, látið starfsfólk ráðuneytisins ljósrita, koma með kaffl og skreppa útí búð eftir meiri kleinum handa körlunum austan úr Flóa svo ráðherrann gæti orðið varaformaður? Hver ætlar að segja manni það þegar ráðherrann hikar ekki við að hefja kosningabar- áttuna í ráðuneytinu og býður þang- að öllum blaðamönnum landsins? Island er lítið land. Og falleg er okkar litla sæta saklausa spilling. íslensk spilling er ekki gerð af kænsku eða illum hug. Framsóknar- spillingin verður ekki til í ábata- skyni heldur af sveitamennsku, naí- viteti; stundum tómri heimsku. Hún er gerð af hugsunarlausu sakleysi: tómum barnaskap. Þess vegna standa spilltir herrar landsins alltaf á gati þegar komið er upp um þá. Þess vegna setja þeir alltaf upp sakleysis- svipinn og segja: „Það hvarflaði nú bara aldrei að mér að það væri eitt- hvað rangt við þetta!“ Og þess vegna fyrirgefum við þeim alltaf: „Æ já, grey karlinn. Hann gleymdi sér bara. Ég hef nú alltaf kunnað vel við hann Guðna. Hann var héma á fundi hjá okkur um dag- inn. Helvíti skemmtilegur karl.“ Og málið er dautt. Vonbrigöin felast því ekki í ákvörðun framsóknarmannsins. Það á enginn von á siðbót úr herbúðum flokks sém gert hefur hina notalegu íslensku spillingu að listgrein. Von- brigðin felast í fullkomnu viðbragða- og krítíkleysi fjölmiðla. Það hefur enginn neitt að athuga við þetta. Landbúnaðarráðherra má stunda sitt innanflokkspot á kostnað skattborg- ara. Rétt eins og Samgönguráðherra má prenta áróðursbækling í borgarmáli, Iðnað- arráðherra má bjóða starfsmönnum ráðuneytisins í afmælið sitt á kostn- að þess og Dómsmálaráðherra má ljúga að þinginu. „Og hvað segiði, strákar? Var ekki gaman á flokksþinginu?"
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.