Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
29
I>V
Helgarblað
Óskarsverðlaunin
verða afhent nœst-
komandi sunnu-
dagskvöld ogjulia
Roberts er talin nær
örugg um að hampa
óskarnum fyrir leik
sinn í Eric
Brockovich. Hún er
vinsælasta og hæst-
launaða leikkona
heims, talin ein fal-
legasta leikkonan í
Hollywood og senni-
lega sú sem hefur
mesta útgeislun.
Julia Fiona Roberts fæddist
árið 1967 í Atlanta og var þriðja
barn foreldra sinna, Walters og
Bettyar, en fyrir áttu þau soninn
Eric og dótturina Lisu. Öll börnin
urðu leikarar. Foreldrar Juliu
höfðu mikinn áhuga á leiklist og
faðirinn stofnaði áhugaleikhús,
sem Coretta Scott King, ekkja
Martins Luthers Kings, styrkti
með fjárframlögum.
Eftir sextán ára stormasamt
hjónaband sótti Betty um skilnað
frá manni sínum. Skömmu síðar
neyddist Walter til að loka leik-
húsi sínu eftir miklar væringar
sem urðu eftir uppfærslu hans á
gamanleiknum The Owl and the
Pussycat þar sem Yolanda King,
dóttir Martins Luthers Kings, lék
vændiskonu sem átti í ástarsam-
bandi við hvítan mann.
Julia var tíu ára þegar faðir
hennar lést úr krabbameini og
hún hefur ítrekað sagt í viðtölum
að hún hafi aldrei jafnað sig á
þeim missi. Slúöurdálkahöfundar
hafa margir hverjir sagt að föður-
missirinn hafi leitt til þess að Jul-
ia sé í sífelldri leit að föðurímynd
og það sé ástæða þess að hún fari
frá einu misheppnuðu ástarsam-
bandi yfir í annað.
Julia varö strax sem unglingur
afar bókelsk. Enn í dag heldur
hún dagbók þar sem hún lýsir
innstu tilfinningum sínum og allt
frá unglingsárum hefur hún ort
ljóð sem kunnugir segja afar góð.
Hún á sér þann draum að gefa út
ljóðabók en móðir hennar segir
að ef af því verði muni ljóðin
koma út undir dulnefni. Skólafé-
lagar hennar áttu flestir von á því
að hún yrði rithöfundur.
Skammvinnar ástir
Julia var átján ára þegar hún
flutti til New York en þar bjuggu
systkini hennar. Bróðir hennar,
Eric, var orðinn þekktur kvik-
myndaleikari og hafði komið sér
vel fyrir í borginni. í tvö ár leitaði
Julia án árangurs fyrir sér um
kvikmyndahlutverk eða fyrir-
sætustörf en var stöðugt hafnað
þar sem hún þótti of feit. Það var
Eric sem hafði loks milligöngu
um að Julia fékk lítið hlutverk i
einni kvikmynda hans. Síðustu
árin hefur verið mjög kalt á milli
Juliu og Erics og sagt er að þau
talist ekki við en eiturlyfjaneysla
Erics átti þátt í því að leggja leik-
feril hans í rúst.
Önnur kvikmynd Juliu hét Sat-
isfaction þar sem hún lék á móti
Liam Neeson og þau hófu ástar-
samband. Næsta mynd var Mystic
Pizza en Julia fékk mjög góða
dóma fyrir leik sinn. Skömmu eft-
ir frumsýningu myndarinnar
veiktist hún alvarlega af mænu-
veiki og var um tíma vart hugað
líf. „Ég hélt að ég myndi deyja,“
sagði hún seinna. „Ég var neydd
til að horfast í augu við þá stað-
reynd og komst að því að ég var
ekki hrædd við að deyja.“
Það var leikkonan Sally Field
sem tók Juliu Roberts upp á arma
Leikkona og
ljóðskáld
sína eftir að hafa kynnst henni
við upptökur á myndinni Satis-
faction sem eiginmaður Sallyar
framleiddi. Sally kom því til leið-
ar að Julia fékk hlutverk í mynd-
inni Steel Magnolias sem færði
henni tilnefningu til óskarsverð-
launa og Golden Globe verðlaun-
in. Við upptökur á þeirri mynd
tók Julia upp samband við Dylan
McDermott sem lék unnusta
hennar í myndinni, sagði skilið
við Liam Neeson og trúlofaðist
Dylan en sleit þeirri trúlofun eft-
ir skamman tima.
Brúður á flótta
Julia var orðin stórstjarna eftir
leik í myndinni Pretty Woman
sem færði henni Golden Globe
verðlaunin og óskarsverðlaunatil-
nefningu þegar hún kynntist leik-
aranum Kiefer Sutherland, syni
Donalds Sutherlands, við upptök-
ur á myndinni Flatliners. Hann
var þekktur fyrir hraustlega
drykkju og þau Julia voru tíðir
gestir á næturklúbbum. Fljótlega
komust á kreik sögur um að vel-
Það var Eric sem hafði loks
milligöngu um ad Julia fékk
lítið hlutverk í einni kvik-
mynda hans. Síðustu árin hef-
ur verið mjög kalt á milli
Juliu og Erics og sagt er að
þau talist ekki við en eitur-
lyfjaneysla Erics átti þátt í
því að leggja leikferil
hans í rúst.
gengni Juliu hefði slæm áhrif á
Kiefer sem sagður var þjást af af-
brýðisemi. Parið tilkynnti um
væntanlega giftingu sína og
skömmu síðar birti slúðurblaðið
National Enquirer viðtal við fata-
fellu sem sagðist hafa átt i ástar-
sambandi við Kiefer sem hefði
sagt sér að það að vera með Juliu
í rúminu væri eins og að vera í
faðmlögum við lík.
Stuttu eftir að frétt blaðsins
birtist lagðist Julia inn á sjúkra-
hús. Einhverjir sögðu að framhjá-
hald Kiefers hefði lagt hana i
rúmið, aðrir sögðu hana vera í
meðferð vegna heróínneyslu. Jul-
ia harðneitaði sögum um eitur-
lyfjaneyslu: „Ég var meö flensu.
Ég var veik. Farið þið til fjand-
ans. Ég hef aldrei notað eiturlyf.
Það þykir kannski óspennandi í
Hollywood að vera ungur leikari
sem ekki er á eiturlyfjum en þá er
ég bara óspennandi."
Hún sneri sér að því að undir-
búa brúðkaupið, valdi brúðarkjól
og brúðartertu og sendi út
boðskort. Fjórum dögum fyrir
brúðkaupið aflýsti hún brúðkaup-
inu. Hún hafði ekki fyrir því að
tilkynna unnusta sínum að sér
hefði snúist hugur heldur lét um-
boðsmann sinn hringja í hann.
Hún stakk síðan af í ferðalag með
besta vini Kiefers, leikaranum
Jason Patric, en sagði skilið við
hann rúmu ári síðar þegar hún
kynntist leikaranum Daniel Day
Lewis. Ástarsamband Juliu og
Daniels varð skammvinnt og hún
kom umheiminum á óvart með að
giftast kúrekasöngvaranum Lyle
Lowett eftir einungis mánaðar-
kynni. Hún þreyttist ekki á að
lýsa yfir ást sinni á manni sínum
en skildi við hann eftir tæp tvö
ár. Vegna vinnu höfðu þau verið
aðskilin mestan hluta hjóna-
bandsins, og fyrstu átta hjóna-
Einn af fáum í kvik-
myndageiranum sem
henni hefur samið illa
við er Steven Spielberg
sem leikstýrði henni í
Hook en hann sagðist op-
inberlega aldrei mundu
vinna með henni aftur.
Julia á vissulega sína
dökku hlið.
bandsmánuðina eyddu þau ein-
ungis tíu dögum undir sama þaki.
Maðurinn í lífi hennar þessa
dagana er leikarinn Benjamin
Bratt en óvíst er hvort hann muni
halda þeirri stöðu. Sögusagnir
eru þegar á kreiki um að sam-
bandiö sé ekki lengur sú sæla sem
það var í byrjun.
Þversagnarkennd
stórstjarna
Julia nýtur mikilla vinsælda
meðal samverkafólks síns vegna
alúðlegrar og alþýðlegrar fram-
komu. Einn af fáum í kvikmynda-
geiranum sem henni hefur samið
illa við er Steven Spielberg sem
leikstýrði henni í Hook en hann
sagðist opinberlega aldrei mundu
vinna með henni aftur. Julia á
vissulega sína dökku hlið. Vinur
hennar til margra ára segir: „Á
tveimur sekúndum getur hún
breyst úr bamba í tík.“ Hún á til
að sýna kaldlyndi í mannlegum
samskiptum og margir ástmenn
vöknuðu upp við það einn daginn
að vera án nokkurrar viðvörunar
orðnir þeir fyrrverandi. Sjálf seg-
ir hún: „Ef einhverjir hafa eitt-
hvað sérlega slæmt um mig að
segja þá þori ég að veðja að þeir
hafa aldrei hitt mig.“
Hún er vellauðug en sér enga
ástæðu til aö hafa fólk í þjónustu
sinni til að sjá um heimilishald.
Hún á ekki bíl og notast við leigu-
bíla og almenningssamgöngur.
Hún sækir kirkju reglulega, er
mikill dýravinur og ötul handa-
vinnukona. Allt frá barnsaldri
hefur hún verið lestrarhestur og
eftirlætisljóðskáld hennar er
Pablo Neruda og skáldsagnahöf-
undar sem hún hefur sérstakt dá-
læti á eru Ayn Rand, Jeanette
Winterson og Paulo Coelho.
Myndir hennar eru vissulega
misjafnar að gæðum og hún hefur
fengið slæma dóma fyrir leik
sinn. Reyndar eru margir sem
draga leikhæfileika hennar mjög í
efa, þótt hún hafi rækilega sannað
sig með stjörnuleik sínum í Erin
Brockovich. Sjálf segir hún: „Ef
maður tekur góðu dómana alvar-
lega veröur maður líka að taka þá
slæmu alvarlega."
í dag stendur Julia Roberts á
hátindi frægðar sinnar, og eitt
mesta undrunarefni á væntan-
legri óskarsverðlaunahátíð verð-
ur ef hún fer ekki heim með
óskarinn.