Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 62
70
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________x>v
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
X
Jí
Laugardagur 24. mars
85 ára__________________________
Sigurlaug Helgadóttir,
Fannborg 9, Kópavogi.
Þorgeir Jónsson,
Sunnubraut 29, Kópavogi.
75 ára__________
Björg Friðriksdóttir,
Höföabrekku 9, Húsavtk.
70 ára__________________________
Gisela Schulze,
Laufásvegi 71, Reykjavík.
Guörún Brynjóifsdóttir,
Kirkjuteigi 27, Reykjavík.
Kristján Jónsson,
Smyrlahrauni 46, Hafnarfirði,
Sigurður F. Jóhannsson,
Hallveigarstíg lOa, Reykjavík.
60 ára__________________________
Gunnar Arni Þorkelsson,
Óðinsgötu 18, Reykjavík.
Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
Fellsmúla 20, Reykjavík.
50 ára__________________________
Elías Halldór Elíasson,
Dalbraut 1, Reykjavík.
Emilía Kjærnested,
Grundarási 4, Reykjavík.
Gísli Þorkelsson,
Engjaseli 83, Reykjavík.
Gyöa Kristinsdóttir,
Leirubakka 10, Reykjavík.
Inga Jónsdóttir,
Bröttugötu 47, Vestmannaeyjum.
Kristinn Sverrisson,
Heiðarbakka 10, Keflavík.
Kristín I. Hinriksdóttir,
Boðagranda 7, Reykjavík.
Ragnhildur Albertsdóttir,
Túnbrekku 1, Ólafsvík.
Rebekka Ingvarsdóttir,
Vesturbergi 109, Reykjavík.
40 ára__________________________
Arngrímur Þ. Gunnhallsson,
Hringbraut 103, Reykjavík.
Gunnar Bragason,
Brekkutúni 23, Kópavogi.
Hildur Helgadóttir,
Álfheimum 68, Reykjavík.
Jakob Schweitz Þorsteinsson,
Hraunbrún 29, Hafnarfirði.
Margeir Siguröur Vernharðsson,
Grenivöllum 30, Akureyri.
Sigrún J. Heiömundsdóttir,
Áshamri 51, Vestmannaeyjum.
Sigurður H. Magnússon,
Hvassaleiti 22, Reykjavík.
Þorvar Hafsteinsson,
Njálsgötu 35, Reykjavík.
Andlát
Sigríður Birna Bjarnadóttir, Þverholti
26, lést á heimili sínu aðfaranótt
fimmtud. 22.3.
Svava Guðmundsdóttir frá Heiöi,
Nestúni 23, Hellu, lést S Sjúkrahúsi
Suðurlands miövikud. 21.3.
Tryggvi Björnsson frá Hrappsstöðum,
lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga
miðvikud. 21.3.
Valgerður Helgadóttir hjúkrunarkona,
Miklubraut 50, Reykjavík, andaðist á
Landspítala Landakoti miðvikud. 21.3.
Jaröarfarir
Hjálmar Gunnarsson útgerðarmaður,
Grundarfirði, veröur jarðsunginn frá
Grundarfjaröarkirkju laugard. 24.3. kl.
14.00. Bent er á áætlunarferð frá
Reykjavík, BSÍ, kl. 9.00 og til baka frá
Grundarfirði kl. 16.30.
Halldór Bjarni Óskarsson, Krossi,
Lundarreykjadal, verður jarðsunginn frá
Reykholtskirkju laugard. 24.3. kl.
13.00.
Attræö
Arnheiður Sigurðardóttir
fyrrv. sérfræðingur við Orðabók Háskólans
Arnheiður Sigurðardóttir, fyrrv.
sérfræðingur við Orðabók Háskól-
ans, til heimilis að hjúkrunarheiml-
inu Eir, verður áttræð á morgun.
Starfsferill
Arnheiður fæddist að Arnarvatni
í Mývatnssveit og ólst þar upp i for-
eldrahúsum. Hún lauk prófi frá Hér-
aðsskólanum á Laugarvatni 1942,
lauk kennaraprófi frá KÍ 1944,
stundaði nám við Kennaraskóla
Danmerkur 1947-A8, las síðar utan-
skóla til stúdentsprófa og lauk þeim
frá MR 1954 og lauk meistaraprófi í
íslenskum fræðum frá HÍ 1962.
Meistaraprófsritgerð hennar, sem
Qallaði um híbýlahætti á miðöldum,
var gefin út af Menningarsjóði 1966.
Arnheiður kenndi 1944^47. Hún
var íslenskukennari • við Reykja-
skóla í Hrútafirði 1948-52 og við
Kvennaskólann 1952-53 auk þess
sem hún kenndi þar nokkur ár jafn-
framt háskólanáminu og fékkst við
þýðingar og prófarkalestur.
Að loknu háskólanámi hóf Arn-
heiður störf við Hagstofuna en
fékkst síðan við prófarkalestur og
ritstörf, einkum þýðingar. Hún hóf
síðan störf hjá Orðabók HÍ 1974 og
starfaði þar uns hún lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Arnheiður las fyrst kvenna út-
varpssögu í Ríkisútvarpið: Brotið
úr töfraspeglinum, eftir Sigrid Und-
set en hún las síðar nokkrar aðrar
útvarpssögur, m.a. Vítahring, eftir
S. Hoel. Meðal skáldsagna og
æviminninga sem Arnheiður hefur
þýtt má nefna Endurminningar A.J.
Cronins; Kristínu Lafranzdóttur eft-
ir Sigrid Undset (ásamt Helga
Hjörvar); Glettni örlaganna og
Maddame Dorothea eftir Sigrid
Undset, Síðustu sögur og Vetraræv-
intýr eftir Karen Blixen; Kofa
Tómasar frænda eftir Harriet
Beecher Stowe; Karlottu
Lövenskjold og Önnu Svárd eftir
Selmu Lagerlöv; Klíkuna, eftir
Mary Mc.Carthy; Tuttugu bréf til
vinar, eftir Svetlönu Alliluyevu; í
huliðsblæ, og Dætur frá Lian eftir
Pearl S. Buck.
Fjölskylda
Alsystkini Arnheiðar: Þóra, f.
16.2. 1920, húsfreyja að Arnarvatni,
giftist Jóni Kristjánssyni; Jón, f.
26.9. 1923, deildarstjóri KÞ á Húsa-
vík, kvæntist Gerði Kristjánsdóttur;
Málmfríður, f. 30.3.1927, fyrrv. þing-
kona á Jaðri, giftist Haraldi Jóns-
syni; Eysteinn, f. 6.10. 1931, fyrrv.
bóndi á Arnarvatni, kvæntist Hall-
dóru Jónsdóttur.
Hálfsystkini Arnheiðar, sam-
feðra: Freydís, f. 11. 4. 1903, d. 3.3.
1990, húsfreyja í Álftagerði, giftist
Geir Kristjánssyni; Jón, f. 10.1.1905,
d. 8.7. 1905; Ragna, f. 19.3. 1906, hús-
móðir í Kópavogi, giftist Hreini Sig-
tryggssyni; Heiður, f. 24.12. 1909, d.
sonar. Móðir Sigurðar á Amarvatni
var Sigríður Jónsdóttir, b. á Arnar-
vatni, Jónssonar.
Hólmfríður var dóttir Péturs,
alþm. á Gautlöndum Jónssonar,
alþm. þar Sigurðssonar. Móðir
Hólmfríðar var Þóra Jónsdóttir, b. á
Grænavatni í Mývatnssveit, Jónas-
sonar. Móðir Jóns á Grænavatni
var Hólmfríður Helgadóttir, b. á
Skútustöðum og ættföður Skútu-
staðaættarinnar, Ásmundssonar.
22.3 1987, hús-
móðir á Húsa-
vík, giftist Sig-
tryggi Jónas-
syni; Arnljótur,
f. 23.6. 1912,
bóndi á Arnar-
vatni, kvæntist
Vilborgu Frið-
jónsdóttur; Huld,
f. 20.10. 1913,
húsmóðir á
Húsavík, giftist
Páli Kristjáns-
syni; Sverrir, f.
4.2. 1916, tré-
smiður á Akur-
. eyri, kvæntist
Ingu Björnsdótt-
ur.
Foreldrar
Arnheiðar voru
Sigurður Jónsson, f. 25.8. 1878, d.
24.2. 1949, skáld og bóndi á Arnar-
vatni, og s.k.h., Hólmfríður Péturs-
dóttir, f. 17.12. 1889, húsfreyja.
Ætt
Sigurður var sonur Jóns, skálds
og b. á Helluvaði, Hinrikssonar, b. á
Heiðarbót i Aðaldal, Hinrikssonar,
b. á Tunguhálsi í Skagafirði, Gunn-
laugssonar. Móðir Hinriks i Heiðar-
bót var Katrin Sigurðardóttir. Móð-
ir Katrínar var Þórunn Jónsdóttir,
harðabónda í Mörk í Laxárdal, ætt-
fóður harðabóndaættarinnar Jóns-
Sjötíu og fimm ára
Unnur Elíasdóttir
Sjötíu og fimm ára
Benedikt Sveinsson
húsmóðir í Reykjavík
Unnur Elíasdóttir,
húsmóðir og fyrrv.
starfsmaður hjá Rauða
krossinum, Hátúni 10A,
Reykjavík, varð sjötíu og
fimm ára í gær.
Starfsferill
Unnur fæddist á Elliða
í Staðarsveit á Snæfells-
nesi, var í farskóla sem
bam og ólst upp í Staðar-
sveitinni við öll almenn sveitastörf
þess tíma.
Auk almennra heimilisstarfa
vann Unnur hjá Rauða krossinum
um nokkurt skeið. Hún stundað
einnig ræstingar við sjúkrahús og
viðar og bar út dagblöð og póst um
árabil. Þá var hún gangbrautarvörð-
ur um skeið.
Unnur hefur starfað í ýmsum
líknarfélögum og tekið þátt í safnað-
arstörfum.
Fjölskylda
Unnur giftist 1954 Eggert Jó-
hannssyni, f. 29.3. 1909, d. 17.3. 1988,
verkamanni og smið. Hann var son-
ur Jóhanns Eyjólfssonar, bónda í
Rimabæ, og k.h., Magðalenu Jóns-
dóttur húsfreyju.
Börn Unnar eru Kristján Ingi-
björn Jóhannsson, f. 13.10. 1945, bif-
reiðastjóri í Búðardal, kvæntur Sig-
urlaugur Gerði Jónsdóttur og eiga
þau fimm börn; Elísabet Sigríöur
Erla Helgadóttir, f. 12.11. 1949, d.
11.8. 1970.
Alsystkini Unnar: Kristján Elías-
son, f. 6.8. 1911, d. 12.12. 1988, rit-
stjóri Lögbirtingarblaðsins í
Reykjavík; Vigdis Auðbjörg Elías-
dóttir, f. 31.1.1914, d. 12.6.
1965, kennari og húsmóð-
ir í Reykjavík; Jóhanna
Halldóra Elíasdóttir, f.
19.6. 1915, fyrrv. hús-
freyja á Skarði í Bjamar-
firði, nú búsett í Hafnar-
flrði; stúlka, f. andvana
1916; Hulda Svava Elías-
dóttir, f. 12.8. 1917, hús-
móðir i Kópavogi; Jó-
hannes Sæmundur Elias-
son, f. 21.4. 1920, d. 21.4. 1921; Matt-
hildur Valdís Eliasdóttir, f. 21.3.
1923, húsmóðir í Reykjavík; stúlka,
f. andvana 1928.
Hálfsystkini Unnar, samfeðra:
Erla Elíasdóttir, f. 10.9. 1932, ritari
og húsmóðir á Seltjarnarnesi; Sig-
ríður Guðrún Elíasdóttir, f. 7.7.
1934, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara
og húsmóðir í Reykjavík; Magnús
Elíasson, f. 7.9. 1935, kaupmaður í
Hafnarfirði; Elías Fells Elíasson, f.
27.2. 1937, lengst af húsasmiður í
Reykjavík.
Foreldrar Unnar voru Elías Krist-
jánsson, f. 29.6. 1880, d. 10.12. 1938,
bóndi í Amartungu og á Elliða í
Staðarsveit, og f. k. h., Sigriður
Guðrún Jóhannesdóttir, f. 25.6.1888,
d. 16.10. 1928, húsfreyja.
Ætt
Elías var sonur Kristjáns Elías-
sonar, b. á Ytra-Lágafelli, og k.h.,
Vigdísar Jónsdóttur húsfreyju.
Sigríður Guðrún var dóttir Jó-
hannesar Magnússonar, b. í Skarfa-
nesi í Landsveit og í Úthlíð í Bisk-
upstungum, og k.h., Þorbjargar Jó-
hannesdóttur húsfreyju.
Unnur er að heiman.
fyrrv. gjaldkeri og aðalbókari
Benedikt Sveinsson,
fyrrv. gjaldkeri og aðal-
bókari, Vallarbraut 3,
Hafnarfirði, varð sjötíu
og fimm ára í gær.
Starfsferill
Benedikt fæddist á
Borgareyri í Mjóafirði i
Suður-Múlasýslu og ólst
þar upp. Hann var i
barnaskóla hjá frænda
sínum, Vilhjálmi Hjálmarssyni, sið-
ar menntamálaráðherra. Benedikt
stundaði nám við Héraðsskólann á
Laugarvatni og síðan við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði þar sem hann
lauk prófum í skipasmíði.
Benedikt var lengst af gjaldkeri
hjá Landsbankanum og aðalbókari
hjá Heildverslun Ólafs Gíslasonar
og víðar. Þá starfaði hann hjá
Brunabótafélagi íslands. Hann
stofnsetti innrömmunina Gallerí
Jörð ehf. í Hafnarfirði fyrir fimm
árum og starfrækir hana enn.
Fjölskylda
Benedikt kvæntist 24.12. 1948 Þór-
dísi Kristinsdóttur, f. 23.10. 1930,
fyrrv. starfsmanni á bæjarskrifstofu
Hafnarfjarðar. Hún er dóttir Krist-
ins Jóels Magnússonar, f. 25.2. 1893,
d. 28.12. 1981, málarameistara, og
k.h., Maríu Albertsdóttur, f. 9.11.
1893, d. 28.5. 1979, húsmóður.
Börn Benedikts og Þórdísar eru
Kristinn Helgi, f. 4.10. 1948, verk-
stjóri hjá Odda á Patreksfirði, en
sambýliskona hans er Elena Bour-
mistrova, f. 15.12. 1960, og er dóttir
hennar Ksenia, f. 12.4.1978, en börn
Kristins frá fyrra hjónabandi eru
Hildur Sigrún, f. 2.12.1972, í sambúð
með Pétri Lentz og er
dóttir þeirra Eva María,
f. 22.3. 1995, Jóel, f. 25.11.
1977, í sambúð með
Lindu Þóru Grétarsdótt-
ur og er sonur þeirra Jó-
el Þór, f. 28.5. 2000, en
dætur Lindu frá fyrri
sambúð eru Bryndís, f.
25.8. 1992, og Heiðrún
Eva, f. 23.9. 1993, auk
þess sem Kristinn á dótt-
urina Rakel, f. 19.4. 1973; Steinunn
María, f. 23.4. 1952, forstöðumaður
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, gift
Sverri Bergmann Friðbjörnssyni, f.
21.4. 1951, póstútibússtjóra, og er
dóttir þeirra Þórdís, f. 4.8. 1972, í
sambúð með Magnúsi Hafliðasyni
en sonur þeirra er Atli Freyr, f.
16.12. 1994, auk þess sem sonur
Sverris er Þórhallur, f. 7.11. 1969, í
sambúð meö Hildi Helgadóttur og er
sonur þeirra Dagur, f. 2.3. 2000;
Svava Björk, f. 25.1.1957, starfsmað-
ur hjá Flugleiðum, gift Gesti Krist-
jánssyni, f. 15.5. 1952, fararstjóra og
starfsmanni hjá Olíudreifingu, og er
dóttir Svövu frá fyrra hjónabandi
Lísa Ragnoli, f. 15.5. 1975, en sonur
hennar er Róbert Andri Harðarson,
f. 27.7. 1998, en börn Gests frá fyrra
hjónabandi eru Anna Dóra, f. 8.4.
1974, og ívar, f. 22.5. 1979.
Systur Benedikts eru Margrét
Sigriður Svava, f. 28.4. 1911; Unnur,
f. 5.11. 1915.
Foreldrar Benedikts voru Sveinn
Benediktsson, f. 28.1. 1881, d. 16.4.
1962, útvegsbóndi frá Borgareyri, og
k.h., Steinunn Ólöf Þorsteinsdóttir,
f. 21.6. 1892, d. 25.10. 1969, húsfreyja.
•X
Arinu eldri
Dr. Arnór Hannlbalsson
heimspekiprófessor er 67
ára í dag. Arnór hefur verið
I hópi fremstu heimspek-
inga hér á landi um árabil.
Hann lauk MA-prófi í heim-
speki og sálfræöi frá Há-
skólanum í Moskvu 1959, stundaði
framhaldsnám í Varsjá og Kraków og
lauk doktorsprófi í heimspeki viö Edin-
borgarháskóla 1973.
Arnór hefur kennt heimspeki við Há-
skóla íslands frá 1976 og ásamt Þor-
steini Gylfasyni, Mikael Karlssyni og
Páli Skúlasyni, byggt upp hina vönduöu
heimspekikennslu skólans sem vakið
hefur aðdáun og viöurkenningu víða um
heim.
Arnór er mikill sérfræðingur um stjórn-
málasögu Sovétríkjanna og ýmissa
Austur-Evrópulanda, talar rússnesku og
pólsku reiprennandi og hefur um ára-
tugaskeiö veriö einn skeleggasti gagn-
rýnandi hér á landi á kommúnisma.
Hann er sonur Hannibals Valdimarsson-
ar og bróðir Jóns Baldvins sem var ut-
anríkisráðherra þegar Islendingar uröu
fyrstir til að viðurkenna sjálfstæöi
Eystrasaltsríkjanna. Þaö má mikið vera
ef Arnór hefur ekki haft afgerandi áhrif,
beint eða óbeint, á þá afdrifaríku
ákvörðun.
Ágúst Vaifells kjarnorku-
verkfræðingur er einnig 67
ára í dag. Ágúst lauk MS-
prófi í efnaverkfræöi frá
einum virtasta verkfræði-
háskóla í heimi, MIT í
Boston í Bandaríkjunum,
og doktorsprófi í kjarnorkuverkfræði frá
lowa State University 1962. Hann var
sérfræðingur á Raunvísindastofnun Há-
skólans, prófessor í kjarnorkuverkfræði
við lowa State Univesity og hefur verið
ráðgefandi verkfræðingur fyrir íslensk
og erlend fyrirtæki og stofnanir og
framkvæmdastjóri fyrirtækja hér á
landi.
BEIínbjörg Magnúsdóttir,
starfsmaður hjá Verkalýðs-
félagi Akaness, varafor-
varaþm., er 52 ára í dag.
Elínbjörg hefur setið í bæj-
arstjórn Akaness frá
1994, situr í stjórn Fiskifélags íslands
og er fyrsta konan sem sat Fiskiþing.
Hún hefur veriö mikill félagsmálafröm-
uður í íþróttamálum á Akranesi og hef-
ur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins frá 1997 en þá fékk hún flest at-
kvæði í miðstjórn flokksins á lands-
fundi.
Tómas R. Einarsson
bassaleikari verður 48
ára á morgun. Tómas
lauk stúdentsprófi frá MH
og 6. stigs prófi frá Tón-
listarskóla FÍH, lærði
spænsku við Háskólann í
Barcelona og ítölsku í Perugia. Auk
þess stundaði hann nám á kontra-
bassa hjá Johan Poulsen og fleiri í
Kaupmannahöfn. Hann hefur spilað
með ýmsum djassleikurum hér á landi
og í leikhúsum borgarinnar, hefur skrif-
að um djass í dagblöð og verið með
djassútvarpsþætti. Þá hefur hann þýtt
töluvert, einkum eftir Isabel Allende.