Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
DV
Fréttir
Gjaldþrot Thermo Plus dregur dilk á eftir sér:
Hriktir í undirstöðum
Hvítasunnuhreyfingarinnar
- mikil reiði meðal safnaðarmeðlima sem hvattir voru til hlutabréfakaupa
Thermo Plus í Keflavík
Þaö sem átti að veröa nýsköpun og lyftistöng í atvinnumálum skekur nú
kristilegt samféiag hvítasunnumanna á íslandi.
Hart hriktir nú í Hvítasunnu-
hreyfingunni á Islandi eftir hundruð
milljóna króna gjaldþrot Thermo
Plus á íslandi. Ljóst þykir að fjöldi
fólks innan hreyfingarinnar tapar
miklum fjármunum og sumir ramba
á barmi gjaldþrots eftir að hafa látið
glepjast af fagurgala áhrifamanna í
söfnuðinum um ágæti þess að fjár-
festa í kælitækjafyrirtækinu
Thermo Plus í Reykjanesbæ.
Hinrik Þorsteinsson, forstöðu-
maður Hvítasunnusafnaðarins í
Kirkjulækjarkoti, var stjórnarfor-
maður í Thermo Plus um hríð eða
allt þar til Pétur Reimarsson var
settur í þá stöðu skömmu fyrir gjald-
þrotið. Mjög var litið upp til Hinriks
sem viðmælendur blaðsins segja að
hafi löngum verið talinn slyngur
peningamaður. Undir hans stjórn
var m.a. búið að byggja um gríðar-
mikla samkomuaðstöðu í Kirkju-
lækjarkoti og koma upp samkomu-
húsi sem áður hýsti tívolí í Hvera-
gerði. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV tapar Hinrik stórum
upphæðum á þessu gjaldþroti. Það
sem þó þykir öllu verra innan raða
hvitasunnumanna er að Hinrik er
sagður hafa lagt hart að safnaðar-
meðlimum að grípa tækifærið til að
ávaxta sitt pund með kaupum á
hlutabréfum í Thermo Plus.
íterkað hefur verið reynt að ná
sambandi við Hinrik í síma, en án
árangurs. Samkvæmt heimildum
blaðsins er hann sagður hafa látið
af stjórnarsetu í Thermo Plus
vegna veikinda skömmu fyrir
gjaldþrotið.
Fleiri áhrifamenn sagöir
tengjast málinu
Heimildarmenn DV segja að fjöl-
margir einstaklingar hafi nánast
lagt allt sitt að veði og jafnvel tek-
ið lán upp á verulegar upphæðir til
að fjármagna hlutafjárkaup. Einn
viðmælenda blaðsins innan hreyf-
ingarinnar orðaði það svo að þar
væri allt á öðrum endanum vegna
málsins og annar óttast það mjög
að hreyfingin sundrist í kjölfarið.
Þá hefur einnig verið fullyrt að
forstöðumaður Hvítasunnuhreyf-
ingarinnar í Reykjavík, Vörður
Traustason, hafi verið í tengslum
við Thermo Plus og hvatt safnaðar-
meðlimi til hlutabréfakaupa. Vörð-
ur segir hins vegar i samtali við
DV að hann hafi ekki haft nein af-
skipti af fyrirtækinu. Hann hafi
ekki heldur hvatt safnaðarmeðlimi
til að kaupa bréf í fyrirtækinu.
„Það er bara lygi,“ segir Vörður
Traustason. „Ég hef engin afskipti
haft af því.“
Einnig hafa verið nefndir til
sögunnar forsvarsmenn lítilla
trúfélaga sem spruttu út úr
Hvítasunnukirkjunni Fíladelffu á
sínum tíma. Ekki háfa þó fengist
óyggjandi staðfestingar á þáttöku
þeirra i að afla Thermo Plus
hluthafa.
Drifið áfram af von um
skyndigróða
í samtölum við DV hafa safnað-
armeðlimir á Suðurlandi upplýst
að í einhverjum tilfellum hafi nær
eignalausir menn tekið lán upp á
eina til tvær og hálfa milljón
króna til kaupa á hlutabréfum í
Thermo Plus með von um
skyndigróða. Allt er þetta nú glat-
að fé og margir einstaklingar eru
nú sagðir horfa fram á nauð-
asamninga eða persónuleg gjald-
þrot. Mikill kurr er undir niðri
meðal áhangenda safnaðarins. í
örvæntingu sinni hafa samt marg-
ir gripið í það haldreipi sem trúin
er og beðiö hefur verið fyrir fram-
tíð Thermo Plus. -HKr.
Slæmar horfur í fiskvinnslunni:
Húsin lokast flest
á næstu dögum
- segir formaöur Samtaka fiskvinnslustöðva
„Fiskvinnslufyr-
irtækin eru hvert
af öðru að verða
verkefnalaus og
mér þykir sýnt að
áhrifa sjómanna-
verkfallsins fari að
gæta af fullum
þunga á allra
næstu dögum. Hrá-
efnisskortur er
viða farinn að segja
til sín og því blasir ekkert annað en
lokun við hjá flestum ef ekki öllum
fiskvinnslufyrirtækjunum," segir
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, en bú-
ast má við að fiskvinnslu veröi
sjálfhætt i næstu viku ef ekki nást
samningar í kjaradeilu sjómanna
og útgerðarmanna.
Að sögn Arnars hefur vinna ver-
ið drjúg i mörgum fiskvinnsluhús-
um það sem af er verkfalli en það
ástand vari ekki endalaust. Hann
segir skipta sköpum fyrir fólk hvort
fyrirtækin halda því á launaskrá
áfram eða hvort það þarf að sækja
atvinnuleysisbætur. „Sem betur fer
hafa flest fyrirtækiri farið að til-
mælum félagsmálaráðherra og
haldið fólki á launaskrá, jafnvel
þótt engin vinnsla sé í gangi.
Hvérsu lengi það ástand varir er
ómögulegt að segja og ekki ólíklegt
að þegar enn fer að þrengja aö þá
verði breytingar á því,“ segir Am-
ar.
Útlendingar eru stór hluti vinnu-
aflsins í fiskvinnslu og að sögn Arn-
ars eru Pólverjar þeirra flestir, lík-
lega á milli sjö og átta hundruð. „Ég
hef ekki orðið var við að erlent
verkafólk hafi búið við verri stöðu
en aðrir enn sem komið er. Það er
hins vegar ljóst að grípi fyrirtækin
til þess ráðs að taka starfsmenn af
launaskrá þá fara margir útlending-
anna illa út úr því. Pólverjamir,
sem eru stærsti hópurinn, eiga til
dæmis fæstir rétt á bótum og sama
gildir um annað verkafólk sem
kemur frá löndum utan Evrópska
efnahagssvæðisins," segir Arnar.
Að sögn Péturs Sigurðssonar, for-
manns Alþýðusambands Vest-
fjarða, hefur ástandið í fjórðungn-
um verið með skaplegra móti. „Hér
hefur verið vinnsla af einu eða öðru
tagi í flestum smærri frystihúsun-
um. Það stærsta, Hraðfrystihúsið i
Hnífsdal, hefur sent sitt fólk heim
en þar eru menn enn á launaskrá.
Útlitið er hins vegar ekki gott ef
verkfall dregst enn á langinn. Þetta
hefur víðast sloppið fyrir horn og
það eigum við smábátunum að
þakka," segir Pétur Sigurðsson. -aþ
Arnar Sigur-
mundsson.
Allir farnir heim
Frystihúsiö í Hnífsdal er einn stærsti vinnustaður Vestfjarða en þar hefur
engin bolfiskvinnsla veriö aö undanförnu vegna sjómannaverkfallsins.
DV-MYND ÞÖK
Tvær Kristínar hlutu barnabókaverölaun Fræðsluráös Reykjavíkur
Kristín R. Thorlacius hlaut verðlaun fyrir þýðingu sína á Engilbjört og lllhugu
eftir Lynne Reid Banks (Muninn) og Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut verö-
laun fyrir Móa hrekkjusvín (Mál og menning). Báöar hafa þær auögaö ís-
lenskar barnabókmenntir á undanförnum árum meö vönduöum þýöingum og
skemmtilegum frumsömdum sögum.
Neskaupstaður:
Sumar og vetur frusu saman
DV, NESKAUPSTAÐ:--
Sumar og vetur frusu saman 1
Neskaupstað og veit það að sögn á
gott sumar. Hér hugsa menn því
með tilhlökkun til sólríks sumars
með hægum suðvestanþey. Engin
skemmtun var í tilefni dagsins en
þeir bæjarbúar sem voru heima
voru í garðvinnu eða bara sóluðu
sig í sundlauginni þar sem enn má
sjá litla skafla af snjó.
DV-MYND ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR
Kastað upp um lóöir
Úrskurður félags-
málaráðuneytisins
um lóðaúthlutun í
Mosfellsbæ hefur
víðtæk áhrif fyrir
sveitarfélög í land-
inu, að mati bæjar-
stjórans I Mosfells-
bæ. Jóhann Sigur-
jónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar,
telur að framvegis geti sveitarfélög
ekki úthlutað lóðum öðruvísi en með
hlutkesti. - Stöð 2 greindi frá.
Flestir farfuglar komnir
I gær, fyrsta sumardag, töldu fugla-
sérfræðingar að einungis tveir eða
þrír sumargestir séu ókomnir, krían
og óðinshaninn; og trúlega skeiðönd.
Sömu sérfræðingar segjast leggja höf-
uðið að veði að fyrstu kríurnar komi
um eða fljótlega eftir helgina. - RÚV
greindi frá.
Sótti veikan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
veikan sjómann um borð í togarann
Sjóla frá Hafnarfirði í gærmorgun.
Sjóli var þá staddur um 200 sjómílur
suður af landinu.
Framkvæmdir stöövaöar
Byggingarnefndarmenn Grímsnes-
og Grafningshrepps hafa, í framhaldi
af vettvangsferð um Sólheima, lagt til
að framkvæmdir við svokallað Sess-
eljuhús á Sólheimum og breytingar á
gróðurhúsi á staðnum verði tafar-
laust stöðvaðar þar sem leyfi fyrir
framkvæmdunum vanti.
Kreppa fram undan?
Fyrirtæki í iðngreinum eru mörg
komin í fjármagnskreppu og óvissa
er fram undan og engin stórverkefni
í augsýn. Þetta kom fram hjá Finn-
birni A. Hermannssyni, formanni
Samiðnar, við setningu ársþings sam-
bandsins í gær.
Samningar samþykktir
Félagar í Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana samþykktu í atkvæða-
greiðslu nýjan kjarasamning við fjár-
málaráðherra. Helmingur félags-
manna tók þátt í atkvæðagreiöslunni
og 70% þeirra studdu samninginn en
tæplega 30% voru á móti.
Stórfelld vetnisvæöing
Unnt verður að nýta vetni til að
knýja allt að 40% bíla- og fiskiskipa-
flotans á íslandi árið 2020. Það er nið-
urstaða athugunar sem World Wide
Fund for Nature og Náttúruverndar-
samtök íslands stóðu að. - RÚV
greindi frá.
Steinbítsvertíöin í hættu
Steinbítsvertíðin er í hættu vegna
verkfalls sjómanna. Að sögn Halldórs
Leifssonar, útgerðarstjóra Odda hf. á
Patreksfirði, ætti steinbítsvertíð nú
að standa sem hæst og steinbítur að
vera uppistaðan í vinnslunni. í stað
þess er farið að bera á hráefnisskorti
í frystihúsinu. - InterSeafood.com
greindi frá.
Afföll minnka
Afföll á húsbréf-
um hafa farið hægt
minnkandi frá ára-
mótuim. Um áramót
voru þau 11,5%, 1
lok febrúar voru af-
föllin komin í 9% og
á miðvikudag voru
þau 7,5%. Búist er
enn við minnkandi afföllum. -HKr.