Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001 Fréttir DV Ákæruvaldið fer fram á ökuleyfissviptingu flutningabílstjóra og 65.000 kr. sekt: Hvíld eða svipting öku leyf i s bíIstjóra - málið sótt í samræmi við reglugerð og EBE um aksturs- og hvíldartíma ökumanna Veröa langferöabílstjórar oftar ákæröir í kjölfar dómsmálsins? Deilt hefur veriö um hvort refsiheimildir hafi veriö fyrir hendi í málum bíistjóra sem ekiö hafa oflengi án tilsettra hvílda. Dómsmál sem nú standa yfir munu skýra línur í þeim efnum. Bílarnir á myndinni eru óviökomandi efni fréttarinnar. Miðað við tvenn réttarhöld sem hafa farið fram í Héraðsdómi Reykjavíkur mega vöruflutningabílstjórar, sem aka gjaman á milli landshluta og jafnvel fleiri úr þeirra stétt, hugsanlega rútu- bílstjórar, eiga von á því að lögreglu- embættin ákæri þá oftar en áður fyrir að aka of lengi án hvíldar ef tilefni gef- ast til. Lögreglan mun síðan ekki ein- ungis kreQast þess að bílstjóramir greiði tugi þúsunda króna sekt heldur einnig að þeir verði sviptir ökm'éttind- um og þar með vinnu sem snýr að akstri, í einn mánuð eftir atvikum. Réttarhöld fóra fram á miðvikudag vegna tveggja vöruflutningabílstjóra sem lögregla og vegaeftirlitsmenn stöðvuðu og kærðu fyrir að hafa ekið of lengi án hvílda á síðasta ári. í þess- um málum, sem era með þeim fyrstu í þessum málaflokki, krefst Lögreglu- stjóraembættið í Reykjavík refsinga bæði i krafti islenskra reglna og reglu- gerðar Evrópusambandsins. Málin em að miklu leyti byggð á ökuritum sem flestir vöruflutningabílar á landinu era nú útbúnir samkvæmt reglugerð. Mennimir era báðir ákærðir fyrir að hafa ekið vöruflutningabifreiðum á sólarhringsbili án þess að taka sér 8 klukkustunda órofið hlé frá akstri eins og lög kveða á um. Samkvæmt sakar- giftum var lengsta órofna hvild mann- anna á fjórðu klukkustund. Leyfðu ökumanninum aö halda áfram Fyrir dóminn i gær komu lögreglu- maður og vegaeftirlitsmaður sem stöðvuðu fór annars bilstjóranna á sið- asta ári. Þeir vora þá við Seleyri skammt frá Borgarfjarðarbrú þegar vöruflutningabílstjórinn kom þar ak- andi. Hann kvaðst hafa verið að aka bílnum að norðan og stansað skömmu áður til að reyna að sofna en kvaðst síðan ekki hafa viljað eða getað hvílt sig lengur og ekið áfram. Þrátt fyrir að embættismennimir tveir hafi stöðvað fór mannsins sögðu þeir að ákveðið hefði verið að leyfa manninum að halda fór sinni áfram. Vegaeftirlitsmaðurinn sagði að í raun hefði átt að kyrrsetja bílinn en þeir hefðu ákveðið að heimila manninum að aka áfram til höfuðborgarsvæðisins þar sem farmur hefði þurft að komast til skila. Auk þess hefði ökumaðurinn ekki virkað ótraustvekjandi - því hefði honum verið leyft að ljúka ferðinni þó svo að hann heföi átt klukkustunda ÍDÖMSALNUM II l|IT\ r Mm&Stiro.. Ottar Sveinsson akstur eftir og væri að fara inn á „hættulegra svæði“ eins og vegagerð- armaðurinn orðaði það. Deilt um refsiheimild í réttarhöldunum í gær deildu sækj- andi og Einar Sigurjónsson, annar verjandinn, hart um það.hvort viðhlít- andi refsiheimild væri fyrir hendi. Þannig taldi verjandinn að ekki hefði verið fyrir hendi gild refsiheimild á þeim tíma sem skjólstæðingur sinn hefði framið meint brot. Þessu mót- mælti Hildur Briem, sækjandi af hálfu Lögreglustjóraembættisins í Reykja- vík, og vísaði meðal annars til þegar genginna héraðsdóma. Ákæravaldið heldur því fram að þegar brotin, sem bílstjóramir era ákærðir fyrir, áttu sér stað hafi íslensk reglugerð um aksturs- og hvíldartíma innihaldið nægilega skýrt efnisákvæði sem standi óháð því hvort evrópskar reglugerðir hafl verið birtar eða ekki. Baldvin Jónsson sem dæmir um fegurð kvenna og kúa: Beljurnar ágengari en konurnar „Ópera var glæsileg en dálítið taugaveikluð á sviöinu eins og vera ber,“ sagði Baldvin Jónsson um kúna Óperu sem sigraði í fegurðar- samkeppni klaufdýra sem fram fór á kúabúinu Bjólu í Þykkvabænum síðastliðinn miðvikudag. Baldvin sat í dómnefnd keppninnar og er eini maðurinn í veröldinni sem bæði hefur dæmt um fegurð kúa og kvenna, enda um árabil setið i dóm- nefnd Fegurðarsamkeppni íslands: „Munurinn á þessu tvennu er af- stæður, ef einhver er, eins og feg- urðin sem sjálf er afstæð eins og all- ir vita. Það er hin heildræna mynd náttúrunnar sem skiptir máli,“ sagði Baldvin eftir að hafa fylgst með krýningu Óperu í Þykkvabæn- um. „Ég verð þó að viðurkenna að ég varð fyrir meira áreiti keppenda í kúakeppninni en í Fegurðarsam- keppni íslands. Beljurnar eru ágengari og opinskárri en konurn- ar.“ Inntur eftir muninum á sigurveg- aranum í fegurðarsamkeppninni Ungrú ísland.is og svo kúnni Óp- eru, sem sigraði í Þykkvabænum, sagði Baldvin Jónsson dóm- nefndarmaður: Baldvin Jónsson Hiö heildræna skiptir máli. „Þessar tvær eru miklar andstæður þó báöar séu spendýr." -EIR Vcðríö i kvold Sólariag í kvöld Sólarupprás á morgun Síödegisflóö Árdegisflóö á morgun 21.17 05.34 17.07 05.19 AKUREYRI 21.12 05.09 21.40 09.52 Skýröiga/ á vððurtáknum —-VINDÁTT 10°« HIII -10° 'sVINDSTYRKUR *\cpn,T í metrum á sekúndu tkuö t & HEIÐSKÍRT o o LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAO 'AV 9 RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA 0 9 EUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA mö >5J Rigning sunnan og vestan til Austan 8 til 13 m/s og rigning sunnan og vestan til en hægari og skýjað á Norðausturlandi í kvöld og nótt. Þungatakmarkanir víöa Samkvæmt uppiýsingum frá Vegageröinni er góð færð um helstu þjóövegi landsins. Víöa eru þungatakmarkanir og eru þær merktar þar sem við á. [=)SNJÓR am ÞUNQFÆRT KÓFCRT Slydda eða skúrir Norðaustan 10 til 15 m/s, slydda og hiti nálægt frostmarki á Vestfjöröum en annars fremur hæg austlæg eða breytileg átt, skúrir og hiti 3 til 8 stig. NA 10-15 m/s, snjókoma eöa éljagangur og frost 0 tll 4 stlg norövestan tll. Annars fremur hæg austlæg eöa breytlleg átt, skúrir og hltl 2 tll 7 stlg. Vindur: e—. M"V'S w? Hiti o” tn r NA 5-8 m/s, dálítll él og hltl nálægt frostmarkl á Vestfjöröum en annars hæg austlæg átt, smáskúrlr og hltl 2 tll 7 stig. gPWBB ÍiújAi Vindur: 5-5 m/» Hití 3° «1 8” 4‘*WM* Hæg 5 og SA-átt, smáskúrlr og hltl 3 tll 8 stlg. Nýr bátur Ný Cleopatra 28 til Stöövarfjaröar ásamt stoltum eigendum, Guöna Brynjari og Ársæli. Kleópatra til Stöðvarfjarðar Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi um á dögunum nýjan Cleopatra 28 bát til Stöðvarfjaðar. Kaupendur eru feðgarnir Guðni Brynjar Ársælsson og Ársæll Guðnason. Báturinn hefur hlotið nafnið Narfi SU 680 segir í fréttatil- kynningu frá Trefjum. Þetta er annar Cleopatra-bátur- inn sem útgerðin kaupir en fyrir áttu feðgarnir annan bát sömu gerð- ar. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar og er hún 420 hestafla. Sigl- ingartæki eru af gerðinni Furuno frá Brimrúnu. Spilbúnaður er frá Beiti. Báturinn er 5,9 brúttótonn og er á þorskaflahámarki. Rými er fyr- ir 12 fiskikör af stærðinni 380 lítra í lest. Svefnpláss er fyrir tvo í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, ör- bylgjuofni og isskáp. -DVÓ Kaup Hreyfils á Bæjarleiðum: Kostuðu 89 milljónir Leigubifreiðar Bæjarleiða munu endanlega sameinast og renna inn í bílaflota Hreyfils í lok næsta mán- aðar og þá verða símstöðvar stöðv- anna einnig sameinaðar. Áfram verður þó svarað í báðum símanúm- erum stöðvanna en þá undir nafn- inu: Hreyfill-Bæjarleiðir. Hreyflll greiddi 89 milljónir fyrir Bæjarleiðir að því gefnu að útistandandi kröfur og skuldir jafn- ist út. Það er því verðið sem Hreyf- ill greiddi fyrir húseignir Bæjar- leiða við Langholtsveg sem verða seldar á næstunni. Tölvubúnaður í bílum Bæjarleiða koma Hreyfli ekki að notum og hefur veriö unnið að því að undanförnu að koma nýjum tölvubúnaði fyrir í Bæjarleiðabílun- um. Er það verk vel á veg komið en kostnaðarsamt, sérstaklega í ljósi þess að engin not eru fyrir tölvurn- ar sem fyrir voru í bílunum. Hreyf- ilsmenn hafa þó óbilandi trú á sam- einingu stöðvanna því í þessum rekstri sé það stærðin sem borgi sig. -EIR Veðriö kl. 6 AKUREYRI skýjaö 3 BERGSSTAÐIR skýjaö 5 BOLUNGARVÍK skýjaö 3 EGILSSTAÐIR -1 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 6 KEFLAVÍK alskýjaö 6 RAUFARHÖFN alskýjaö 3 REYKJAVÍK skýjaö 7 STÓRHÖFÐI súld 6 BERGEN léttskýjaö 2 HELSINKI rigning 1 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 4 ÓSLÓ léttskýjaö 1 STOKKHÓLMUR rigning 1 ÞÓRSHÖFN skýjað 4 ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö -4 ALGARVE léttskýjaö 11 AMSTEROAM lágþokublettir 2 BARCEL0NA súld 7 BERLÍN léttskýjaö 2 CHICAGO alskýjaö 17 DUBLIN léttskýjaö -1 HALIFAX heiöskírt 1 FRANKFURT skýjaö 1 HAMBORG skýjaö 2 JAN MAYEN skafrenningur -3 LONDON léttskýjað 3 LÚXEMBORG snjók. á síö. klst. 0 MALLORCA súld 12 MONTREAL heiöskírt 4 NARSSARSSUAQ skýjaö 9 NEWYORK léttskýjað 8 ORLANDO heiöskírt 14 PARÍS skýjaö 2 VÍN rigning 5 WASHINGTON léttskýjaö 5 WINNIPEG léttskýjað 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.