Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 11
11 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001 py___________________________________ Útlönd Lyfjarisarnir hættir við málaferli vegna ódýrra alnæmislyfja: Stórsigur fyrir fátæk- ustu þjóðir heimsins Baráttumenn fyrir réttindum al- næmissjúkra fögnuðu mjög í gær þegar voldugustu lyíjafyrirtæki heimsins létu undan þrýstingi al- menningsálitsins og hættu við málaferli á hendur stjórnvöldum í Suður-Afríku fyrir að flytja inn ódýrar eftirlíkingar einkaleyfis- vemdaðra alnæmislyfja. Litið er á ákvörðun 39 lyfjafyrir- tækja að hætta við málaferlin sem stórsigur fyrir fátækustu þjóðir heims í baráttunni gegn alnæmis- faraldrinum. Nelson Mandela, hinn dáði fyrr- um forseti Suður-Afríku, var meðal þeirra sem fögnuðu ákvörðuninni. „Mandela er mjög ánægður með að þau skuli hafa látið málið niður falla og að það þýði að ódýrari lyf komi til Suður-Afríku,“ sagði Zelda la Grange, talskona Mandela, við fréttamann Reuters í gær. Mandela var forseti þegar lög um Sigri fagnað Margir fögnuöu ákaft í Suöur-Afríku í gær þegar stærstu lyfjafyrirtæki heims- ins hættu viö málaferli gegn stjórnvöldum sem hafa heimilað innflutning ódýrra eftirlíkinga rándýrra lyfja fyrir alnæmissjúklinga. innflutning ódýrari alnæmislyfja voru sett árið 1997. Hann hafði gagnrýnt lyfjafyrirtækin harölega fyrir að berjast gegn lagasetning- unni og sakaði þau um að græða á alnæmisfaraldrinum í þróunarríkj- unum. Þrenn samtök sem berjast fyrir réttindum alnæmissjúkra sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær þar sem sagði að ákvörðun lyfjafyr- irtækjanna væri til marks um að mannslíf ættu og gætu haft forgang á einkaleyfi. Lyfjafyrirtæki hafa gert samn- inga við einstök lönd um lækkað verð þriggja lyfja blöndu úr tíu þús- und dollurum fyrir ársskammtinn í eitt þúsund dollara. Sams konar lyf framleidd af öðrum kosta hins veg- ar ekki nema um þrjú hundruö doll- ara. Stjórn Suður-Afríku ætlar að láta lögin taka gildi hið allra fyrsta. Kimberley og Beverley Bandarísku tvíburasysturnar Kimberley og Beveriey, sem seldar voru tvisvar á Netinu, eru nú orönar níu mánaöa. Net-tvíburarnir komnir heim til Bandaríkjanna Net-tvíburarnir svokölluðu, sem hafa verið miðpunktur ættleiðingar- hneykslis, hafa verið fluttir frá Bretlandi til Bandaríkjanna þar sem þeir eru fæddir. Móðir tvíburastúlknanna Kim- berley og Beverley seldi þær tvisvar á Netinu, fyrst til bandarísku hjón- anna Richard og Vickie Allen og síðan til hjóna í Wales i Englandi, Alans og Judith Kilshaw, sem flýðu með börnin til Englands í janúar síðastliðnum. Breskur dómstóll úr- skurðaði í síðustu viku að senda ætti tvíburana til Missouri í Banda- ríkjunum þar sem þeir fæddust. Nú berjast móðir tvíburanna, Tranda, og faðir, Aaron Wecker, um forræðið yfir þeim fyrir dómstólum. Móðirin iðrast þess að hafa selt dæt- ur sínar. Faöirinn kveðst ekki hafa verið viðriðinn söluna. Sundkeppni svína 777 aö skemmta gestum dýragarös í Taílandi er meöal annars efnt til sundkeppni svína. Þessi svín lögöu sitt af mörkum í dýragarðinum í gær. Gestirnir voru aö vonum ánægöir og hvöttu keppendurna ákaft. Játa stríösglæpi Hermenn Slobodans Milosevics, fyrrum Júgóslavíuforseta, hafa játaö á sig stríðsglæpi í Kosovo. Her Júgóslavíu gengst við stríðs- glæpum í Kosovo Júgóslavneski herinn viður- kenndi í gær að einhverjir her- manna sinna hefðu framið stríðs- glæpi í Kosovo. Óháða útvarpsstöðin B92 hafði eftir Svetozar Radisic, talsmanni hersins, að tuttugu og fjögur slík til- felli hefðu komið upp og að herinn hefði réttað yfir viðkomandi. Tals- maðurinn sagði að búið væri að refsa sumum hermannanna. Talið er að þetta sé í fyrsta sinn sem júgóslavneski herinn, sem barðist gegn albönskum aðskilnað- arsinnum í Kosovo 1998 til 1999, hef- ur veitt upplýsingar um stríðsglæpi manna sinna. Vesturveldin hafa sakað júgóslav- neska herinn um grimmdarverk gegn albanska meirihlutanum í Kosovo. Á meðan NATO gerði loft- árásir á Júgóslaviu 1999 ákærði stríðsglæpadómstóllinn í Haag Slobodan Milosevic forseta. Hann situr nú í varðhaldi í Belgrad. Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. , : " f.. Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk., skr. 3/98, ek. 31 þús.Verð kr. 660 þús Opel Corsa Swing, 3 d., bsk., skr. 10/97, ek. 60 þús.Verð kr. 590 þús. Suzuki Grand Vitara V6 Excl., ssk., skr. 4/98, ek. 36 þús.Verð kr. 2100 þús. Suzuki Swift GLX„ 5 d., bsk., skr. 1/98, ek. 51 þús.Verð kr. 640 þús. Suzuki Baleno GL, 4 d., ssk., skr. 4/99, ek. 12 þús.Verð kr. 1120 þús Honda Civic Si, 4 d„ bsk.,skr. 10/98, ek. 44 þús.Verð kr. 1020 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., ssk.,skr. 3/98, ek. 43 þús.Verð kr. 1340 þús. Suzuki Jimny JLX, 3 d., bsk., skr. 6/00, ek. 19 þús.Verð kr. 1290 þús. Suzuki Wagon R +4WD, 5 d„ skr. 5/00, ek. 8 þús.Verð kr. 1140 þús. Toyota Corolla Luna L/B, ssk.,skr. 9/97, ek. 50 þús.Verð kr. 990 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI -----.......................... SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunnl 17, simi 568-5100 Reykingabann á ráðherrafundi ESB Þeir utanríkisráðherrar ESB- landanna, sem vilja reykja á fundi sínum í ráðhúsinu í Nyköping í Sví- þjóð í næsta mánuði, hafa tvo mögu- leika. Annaðhvort verða þeir að fara inn í sérsmíðaðan fjögurra manna klefa eða ganga út þar sem vænta má að fjöldi fréttamanna standi. Reykingar verða nefnilega einnig bannaðar í vistarverum fréttamannanna. Skipuleggjendur fundarins hafa ákveðið að banna allar reykingar innanhúss. Heitar umræður hafa verið um hvort banna ætti reykingar eða ekki á ráðherrafundinum sem fram fer 5. og 6. maí. Fjöldi reiðra lesenda hef- ur skrifað dagblöðunum í Nyköping bréf og kraílst þess að farið verði eftir reykingabanninu í opinberum byggingum í Svíþjóð. Reynt hefur verið að koma á reykingabanni við fyrri fundi ESB í Svíþjóð en með misjöfnum árangri. Á einum fundinum stóð grískur fulltrúi ESB undir bannskilti og púaði. Föstudags- og laugardagskvöld >'! T Skemmtistaður Akureyri Stórdansleikur Hljómsveitin Hálft í hvoru með Eyjólf Kristjánsson í fararbroddi Bl Odd-vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.