Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 22
26 2» íslendingaþættir Umsjón: María Ólafsdóttir Stórafmælí 90 ára_______________ Ketill Eyjólfsson, Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi. 80 ára_____________________________ Kristjana Jónatansdóttir, Nípá 1, Ljósavatnshr., S-Þing. ZOára______________________________ Guðjón E. Jónsson, Álfaskeiði 94, Hafnarfiröi. Guðrún Vilhjálmsdóttir, Jörundarholti 20a, Akranesi. Jón Lárus Sigurösson, Blönduhlíð 10, Reykjavík. Reynir Gíslason, Faxabraut 13, Keflavlk. Sigurjón Guðni Ingvarsson, Bleiksárhlíö 56, Eskifiröi. Þorsteinn Jón Þorsteinsson, Nesbala 62, Seltjarnarnesi. 60 ára_____________________________ Magnea Steiney Jónsdóttir, Unnarbraut 17, Seltjarnarnesi. Margrét Ólafsdóttir, Arkarholti 4, Mosfellsbæ. 50 ára_____________________________ Ásta Agnarsdóttir, Fannafold 123, Reykjavík. Halldóra Jóhannesdóttir, Kársnesbraut 35, Kópavogi. Kristján Sigmundsson, Klébergi 13, Þorlákshöfn. Ólafur Hjörtur Jónsson, Trönuhólum 6, Reykjavík. Ólöf Friðný Maríusdóttir, Drafnarbraut 1, Dalvík. Þór Jóhann Vigfússon, Jöldugróf 17, Reykjavík. 40 ára_____________________________ Baldur P. Thorstensen, Sunnubraut 3, Höfn. Dóróthea Sigurlaug Jónsdóttir, Heiöarbrún 39, Hveragerði. Guðmundur Hjaltason, Kirkjubraut 22A, Keflavlk. Guðný Oktavía Arndal, Viöarrima 33, Reykjavík. Guðrún Magnúsdóttir, Lambastaöabraut 1, Seltjarnarnesi. Heiðar Guöberg Jóhannesson, Byggöavegi lOla, Akureyri. inga Björk Ólafsdóttir, Nestúni 8a, Hellu. Ingvar Siguröur Stefánsson, Frostafold 6, Reykjavlk. Ríkharöur Jónasson, Sólbakka 3, Breiödalsvlk. Sigrún Kristjánsdóttir, Tunguvegi 14, Reykjavlk. Sigurlaugur V. Ágústsson, Brekkugötu 23, Ólafsfiröi. Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar ►I 550 5000 Sigurður Jónsson, Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund, lést sunnudaginn 15. april. Sigurvin Flnnbogason lést á Hrafnistu, Reykjavík, laugardaginn 14. apríl síöast- liöinn. Ólafur Ólafsson húsasmiður, Skúlagötu 20, Reykjavík, andaöist á Landspítalan- um viö Hringbraut mánudaginn 16. apr- II. Jóhann Guðmundsson, Boöahlein 27, lést á St. Jósefsspltala I Hafnarfiröi mánudaginn 16. apríl. FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001 I>V Sjötugur Einar Oddsson fyrrverandi sýslumaður Einar Oddsson, fyrrverandi sýslumaður, Úthlíð 6, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Einar er fæddur í Flatatungu í Akrahreppi í Skagafirði og ólst þar upp. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1953 og hélt síðan til Reykja- vikur um haustið og innritaðist í lögfræðideild Háskóla íslands og lauk embættisprófi þaðan árið 1959. Hann varð héraðsdómslög- maður 1962 og hóf störf hjá Út- flutningssjóði 1959. Hann var um hrið fulltrúi hjá sýslumanninum á ísafirði 1960 og siöan fulltrúi hjá yfirborgardómara 1960 til 1963. Einar var skipaður sýslumaður í Skaftafellssýslum frá 1. febrúar árið 1963 og varð síðan sýslumað- ur Vestur-Skaftafellssýslu þegar embættinu var skipt árið 1977. Einar óskaði eftir lausn frá störf- um af heilsufarsástæðum 1993 eft- ir 30 ára embættisrekstur. Einar hefur gegnt mörgum fé- lags- og trúnaðarstörfum. Hann var formaður stjórnar Sparisjóðs Vestur-Skaftafellssýslu, formaður Félags hrossabænda í Vestur- Skaftafellssýslu, formaður bygg- ingarnefndar elliheimilis í Vík i Mýrdal og formaður atvinnumála- nefndar Vestur-Skaftafellssýslu. Einar sat í stjórn Héraðsskólans í Skógum, í yfirkjörstjórn Suður- landskjördæmis, í stjórn Sjúkra- húss Suðurlands á Selfossi og í stjórn Hrossaræktarfélags Mýr- dæla. Einar hefur alla tíð haft mikinn Attræöur Kjartan Eiður Eiðsson húsasmið- ur, Holtsgötu 14c í Njarðvík, er átt- ræður i dag. Starfsferill Kjartan fæddist að Klungurbrekku á Skógarströnd og ólst þar upp. Ung- ur fór Kjartan á sjó og stundaði sjó- mennsku þar til hann hóf nám við húsasmíðar í Iðnskólanum í Reykja- vík. Meistari hanns var Helgi Krist- jánsson byggingameistari í Reykja- vík. Kjartan starfaði við húsasmíðar framan af starfsævinni. Síðustu 25 árin vann hann hjá Varnarliðinu, fyrst sem verkstjóri hjá Public Works og síðan við verkáætlanagerð á sama stað. Hann lét af störfum ár- ið 1996, 75 ára að aldri. áhuga á búskap. Hann rak um árabil fjárbú í Norður-Vík, en eft- ir að fjárbúskap lauk hefur Einar stundað hrossarækt og haft mikla ánægju af. Einar var varaþing- maður fyrir Sjálfstæðis-flokkinn í Suðurlandskjördæmi 1971 til 1974 og sat á Alþingi nóvember til des- ember 1971. Einar hefur verið sæmdur heið- ursmerkjunum Chevalier de l’Ordre de Merite og er riddari af sænsku Norðstjörnunni. Fjölskylda Einar kvæntist 11. febrúar 1961 Höllu Þorbjörnsdóttur, f. í Reykja- vík 30. október 1929, bamageð- lækni. Hún er dóttir hjónanna Charlottu Steinþórsdóttur og Þor- björns Þórðarsonar málarameist- ara sem bæði eru látin. Kjörsynir Höllu og Einars eru 1) Karl f. 21. febrúar 1963 í Reykja- vík, bakari og flutningabílstjóri i Reykjavík, kvæntur og skilinn við Sólrúnu Viðarsdóttur. Þau eiga þrjú börn. Sambýliskona Karls er Kristín Bragadóttir. 2) Páll, f. 4. maí 1967 á Akureyri, búfræðingur og psychotherapist i Reykjavík. Unnusta hans er Guðný Hafliða- dóttir. Systkini Einars eru þrjú. 1) Sig- urlaug f. 27. september 1932, fyrr- verandi ljósmóðir, búsett í Kópa- vogi; 2) Gunnar f. 11. mars 1934, bóndi í Flatatungu; 3) Sesselía Guðrún f. 21. ágúst 1939, nudd- kona í Kópavogi. Foreldrar Einars voru Oddur Einarsson, f. 26. janúar 1904, d. 1. maí 1979, bóndi I Flatatungu og Fjölskylda Kjartan var í sambúð með Soffíu Hóseasdóttur f. 08.08. 1916 d. 13.01. 1986. Núverandi sambúðarkona hans er Þorgerður Guðmundsdóttir f. 25.01. 1938 Börn Kjartans og Sofflu eru 1). Hrönn, f. 1942, húsmóðir, búsett á Selfossi, gift Kristjáni Stefánssyni framkvæmdastjóra; 2). Þór f. 1946, lést 1973 (var stýrimaður, fórst með Sjöstjörnunni í febrúar 1973). Þór var kvæntur Guðnýju Stefánsdóttur, skrifstofumanni í Hafnarfirði; 3). Kjartan f. 1947, sjómaður, búsettur í Keflavík, kvæntur Ingibjörgu Páls- dóttur verkakonu; 4). Gylfi f. 1951, skipstjóri, búsettur í Hafnarfirði; 5). Jóhannes, f. 1955, rafvirki, búsettur í Keflavík, kvæntur Hjördísi Áma- kona hans Sigríður Gunnarsdóttir f. 5. apríl 1899 í Keflavík í Hegra- nesi, d. 19. mars 1989. Þau bjuggu allan sinn búskap í Flatatungu. Ætt Frændur Einars eru Jón Ósmann, sem er ömmubróðir Ein- dóttur félagsmálastjóra. Barnabörn Kjartans eru 14, þar af ars, Pétur Gunnarsson tilrauna- stjóri, sem er móðurbróðir Einars, Ámi Gunnarsson, formaður Flóttamannaráös, bróðursonur Einars, og Hallgrímur Dalberg ráðuneytisstjóri sem er frændi Elnars í föðurætt. Einar verður að heiman á af- mælisdaginn. 13 á lífi. Bamabamabömin eru orð- inn 7. Kjartan er næstyngstur 8 systkina. Tvö eru enn á lífi auk Kjartans. For- eldrar Kjartans voru Eiður Sigurðs- son, bóndi og sjómaður, f. 22.05.1887, d. 15.11.1929, og Sigurrós Jóhannes- dóttir, f. 23.06. 1885, d. 10.04. 1970. Faðir Kjartans lést þegar Kjartan var 8 ára gamall. Kjartan ólst upp frá 10 ára aldri í Borgarfirði hjá móður- bróður sínum, Magnúsi Jóhann- essyni og konu hans, Mariu Ólafs- dóttur. Á afmælisdaginn tekur Kjartan á móti ættingjum og vinum í sal Verkalýðsfélags Keflavíkur, VÍK, Hafnargötu 80, efri hæð, milli kl. 17.00 og 20.00. immtug Kjartan Eiöur Eiðsson húsasmiður Ingibjörg H. Hafstað bóndi og fyrrum lcennari 1998. Á árunum 1994 til 1998 var Ingibjörg H. Hafstað, bóndi og fyrrum kennari, nú í sveitarstjórn, Vík, Skagafirði, varð fimmtug í gær. Starfsferill Ingibjörg er fædd í Vík í Skaga- firði og alin þar upp. Hún tók kenn- arapróf frá Kennaraskólanum árið 1971 og fóstrupróf frá Fóstruskóla ís- lands árið 1972. Árið 1973 tók hún við búi foreldra sinna í Vík í Skaga- firði ásamt Sigurði eiginmanni sín- um og þar býr hún enn með stórt kúabú. Ingibjörg rak auk þess sum- ardvalarheimili í Vík frá 1973 til 1992. Hún var kennari við Barna- skóla Sauðárkróks frá 1975 til 1995, þar af tvo vetur í Varmahlíðarskóla. Ingibjörg var oddviti Staðarhrepps 1994 til 1998 og í fræðslunefnd fyrir hreppinn og i fleiri nefndum um ára- bil. Hún hefur átt sæti í sveitarstjórn Skagafjarðar og byggðaráði frá árinu Ingibjörg í stjórn Sambands sveitar- félaga á Norðurlandi vestra. Hún var í stjórn Iðnþróunarfélags Norður- lands vestra frá 1996 til 1998 og í stjórn Kvenna.sambands Norður- lands vestra fyrr á árum. Þá var Ingibjörg í stjórn og var formaður Kvennfélags Staðarhrepps um ára- bil. Hún var formaður Soroptimista- klúbbs Skagafjarðar 1999 til 2001. Fjölskylda Þann 15. október 1972 giftist Ingi- björg Sigurði Sigfússyni bónda, f. 2. nóvember 1947. Foreldar hans eru Sigfús Sigurðarson og Svanlaug Pét- ursdóttir. Sonur Ingibjargar og Sigurðar er Jón Árni f. 25. júni 1972, bifvélavirki á Sauðárkróki. Sambýliskona hans er Hrund Pétursdóttir nemi og er bam þeirra Aron Már Jónsson, f. 3 júlí 1999. Systkini Ingibjargar eru 1) Þórólf- ur H. Hafstað f. 27. september 1949, jarðfræðingur hjá Orkustofnun í Reykjavík; 2) Ásdís Hafstað f. 4. júlí 1952, bókasafnsfræðingur við Menntaskólann í Hamrahlíð í Reykjavík; 3) Steinunn H. Hafstað f. 15. mars 1954, framhaldsskólakenn- ari við Fjölbrautaskólann við Ár- múla í Reykjavík. Foreldrar Ingibjargar eru Haukur Hafstað, f. 23. desember 1920, lengst af bóndi í Vík en síðar framkvæmda- stjóri Landvemdar, og kona hans, Áslaug Sigurðardóttir, f. 29. janúar 1919, húsfreyja í Vík og forstöðukona barnaheimilis stúdenta og fleira. Þau hafa verið búsett í Vík, í Reykjavik og búa nú í Hávík í Skagafirði Ætt Haukur er sonur Árna J. Hafstað, bónda í Vík, og konu hans, Ingibjarg- ar Siguröardóttur. Áslaug var dóttir Sigurðar Þórólfssonar, skólastjóra Hvítárbakkaskóla í Borgarfirði, og konu hans, Ásdísar Þorgrímsdóttur. Ingibjörg tekur á móti gestum að Löngumýri í Skagafirði á morgun, 21. apríl, eftir klukkan 20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.