Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
I>V
Fréttir
Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík:
Þrisvar sinnum fleiri e-töfk
ur haldlagðar í ár en áður
Á þeim fjórum mánuðum sem af
er árinu hafa íikniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík og tollverðir á
Leifsstöð haldlagt þrisvar sinnum
meira magn af e-töflum en gert var
allt árið í fyrra. Að sögn Haröar Jó-
hannessonar, yfirlögregluþjóns í
Reykjavík, hald-
leggja yfirvöld
nú stærri
skammta af
fíkniefnum í
einu en á árum
áður enda hefur
lögreglan ein-
beitt sér sérstak-
Hörður lega að þvi að
Jóhannesson stöðva innflutn-
yfiriögregluþjónn. ing fikniefna síð-
an árið 1998.
„Árið 1999 var metár frá upphafi,
það var mjög mikið tekið í fyrra og
við erum búin að taka heilan hell-
ing núna,“ sagði Hörður.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur lagt hald á 9000 e-
töflur og 200 grömm af kókaíni til
viöbótar við rúmlega 7000 e-töflur
Gylfi Jónsson lögreglufulltrúi
Hann heldur hér á hluta 17.000 e-taflna sem fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík
hefur lagt hald á í einu máli á síöustu vikum. Síöan í ársbyrjun hefur lögreglan í
Reykjavík tekiö 23.400 e-töflur sem er rúmlega þrisvar sinnum meira en gert var
upptækt allt síðastliöiö ár.
Heildarmagn haldlagðra fikniefna
Þegar þessar tölur eru bornar saman veröur aö hafa í huga aö einungis er
þriöjungur liöinn af árinu 2001 og gilda tölurnar fyrir áriö 2001 frá 1. janúar
til 18. apríl. Heimild: Lögreglan í Reykjavík.
og 8 kíló af hassi í umfangsmiklu
fíkniefnamáli sem upp komst í byrj-
un apríl. Þá voru þrír karlmenn,
einn rúmlega fimmtugur og tveir 36
ára, handteknir er þeir sóttu send-
ingu af fikniefnum í vöruafgreiðslu
í Reykjavík. Efnin höfðu verið send
til landsins frá Hollandi, falin í há-
tölurum. Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði mennina í tveggja vikna
gæsluvarðhald. Fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík hafði þá unn-
ið að rannsókn málsins töluvert
lengi, og hélt hún rannsókn sinni
áfram eftir að mennirnir voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald, og leiddi
sú rannsókn seinni hluta flkniefn-
anna í ljós. Lögreglan í Reykjavík
hefur ekki áður lagt hald á jafn mik-
ið magn e-taflna.
Auk þessa máls var einn maður
úrskurðaður í gæsluvarðhald um
síðustu mánaðamót eftir að lögregl-
an lagði hald á 3000 e-töflur. Jafn-
framt voru tveir menn úrskurðaðir
í tveggja vikna gæsluvarðhald eftir
að tollverðir á Leifsstöð fundu 2800
e-töflur á einum þeirra við komu
þeirra til landsins frá Hollandi um
páskana.
Stærri skammtar
■ „Mér sýnist við taka meira magn í
einu núna og það er í samræmi við
áhersluna sem er lögð á að stöðva
innflutninginn eins og hægt er,“
sagði Hörður. Evrópskir sérfræðing-
ar telja að lögrelgan haldleggi um 5 til
10 prósent þeirra efna sem raunveru-
lega eru á markaðinum en Hörður tel-
ur að þetta hlutfall geti verið hærra
hér á landi.
„Ég held að miðað við þau áhrif
sem við höfum orðið varir við í fram-
haldi af stórum haldlagningum þá
hljóti þetta að vera hærra hlutfall
hér,“ sagði Hörður. „Það er samt
erfitt að fullyrða um þetta.“
Skammt er liðið á árið og útskýrði
Hörður að þrátt fyrir þetta mikla magn
e-taflna sem fúndist hafa nú er ekki
þar með sagt að meira verði tekið af
öðrum fiknieftium í ár en önnur ár.
Tollverðir á Leifsstöð eru ekki í að-
stöðu til þess að rannsaka fikniefna-
innflutning. Þegar þeir leggja hald á
fikniefni á Keflavíkurflugvelli tekur
fikniefnadeild lögreglunnar i Reykja-
vík því við rannsókn málsins.
-SMK
Tveir af hverjum þremur landsmönnum á reiðhjól en engar hjólreiðabrautir:
Þingmaður Suðurlands vill
merktar hjólreiðabrautir
ísólfur Gylfi Pálmason, alþingis-
maður Framsóknar á Suðurlandi,
er fyrsti flutningsmaður þingsá-
lyktunartillögu um skipan nefndar
um hönnun og merkingar hjól-
reiðabrauta. Gert er ráð fyrir að
Alþingi feli samgönguráðherra að
skipa nefnd til aö marka stefnu
um hönnun og merkingar hjól-
reiðabrauta í þéttbýli og dreifbýli.
Tekið verði tillit til hjólreiða-
manna við hönnun nýrra mann-
virkja og stefnt að því að hjólreið-
ar verði raunhæfur kostur í sam-
göngu málum á íslandi. Nefndin á
að skila tillögum sínum fyrir 1.
janúar 2002. Tillagan var sam-
þykkt með 50 atkvæðum, 13 þing-
menn voru fjarstaddir.
Markmiðið
meö tillögunni
er að vekja at-
hygli á hjól-
reiöamönnum
i umferðinni
en einnig að
fækka slysum
og auka öryggi
þeirra. Hjól-
reiðar eru vin-
sæl afþreying
á íslandi, sem
og annars staðar, og hefur hjól-
reiðafólki fjölgað mjög á íslandi á
síöustu áratugum. Hjólreiöar eru
ódýr, skemmtilegur og heilsusam-
legur ferðamáti og vinsæl fjöl-
skylduíþrótt. Fjölmörg dæmi eru
um að fólk í þéttbýli noti reiðhjól
til þess að ferðast milli áfanga-
staða. Hjólreiðar eru holl og góð
íþróttagrein og er hluti af daglegri
líkamsrækt hjá mörgum. Þær eru
einnig afar vinsæll ferðamáti
bama og unglinga og er tími til
kominn aö mótuð verði opinber
stefna í þessum málum. Einnig
hefur það mjög færst í vöxt að
bæði íslendingar og útlendir ferða-
menn ferðist um landið á reiðhjól-
um. Þannig er á sumrum mikil
umferð erlendra ferðamanna frá
Leifsstöð og einnig frá Seyðisfirði.
Aðstaða hjólreiðafólks á íslandi er
afar slæm og í mörgum tilfellum
er hættulegt að ferðast um á reið-
hjólum þar sem lítið tillit er tekið
til hjólreiðafólks. Hin fjölfarna
þjóðleið frá Hafnarfirði um Garða-
bæ, Kópavog, Reykjavík og Mos-
fellsbæ er stórhættuleg hjólreiða-
fólki, sem og gangandi vegfarend-
um. Taliö er að um 16.000 reiðhjól
hafi verið flutt inn til landsins ár-
lega á síðustu 11 árum sem þýðir
um 176.000 reiðhjól auk þeirra sem
til voru áöur. Því er talið að um
66% þjóðarinnar eða tveir af hverj-
um þremur landsmönnum eigi
reiðhjól. í Reykjavík var starfrækt
sérstök hjólreiðanefnd sem skilaði
ítarlegum tillögum til borgarráðs
áriö 1994 auk þess sem gengið var
í samtökin „Car Free Cities."
-GG
Pálmason alþing-
ismaður.
Ekkert bruðl
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hefur nú
skapað fyrirmönnum
landsins fordæmi
sem þeir geta varla
verið þekktir fyrir að fara ekki
eftir í framtíðinni. Þrátt fyrir
meinta óráðsíu í fjármálum Reykja-
víkurborgar, að
mati sjálfstæðis-
manna, þá ætla
menn að borginni
sé ekki ofviða að
borga flugfargjald
undir borgarstjóra
til útlanda í viðeig-
andi heldri manna
farrými eins og títt
er um íslenska höfðingja. Ingibjörg
Sólrún gaf hins vegar öllu titlatogi
langt nef aðfaranótt miðvikudagsins
er hún flaug heim frá London. Valdi
hún þá þann ódýrasta kost sem völ
var á og keypti miða á almennu far-
rými með flugfélaginu GO til að
spara borginni dýrmætan pening...
Liðhlaupi?
Héraðssamband Vestfirðinga mun
í sumar taka í fyrsta sinn þátt í
landsmóti UMFÍ segir í héraðs-
fréttablaðinu Bæjarins besta á ísa-
firði. Mótið er
| haldið á Egils-
stöðum og
munu Vestfirð-
ingar taka þátt
í fjölda greina.
„Við stefnum á
að standa okk-
ur vel og vera mjög áberandi á mót-
inu,“ segir Hermann Níelsson, for-
maður undirbúningsnefndar. í heita
pottinum er hermt að Hermann,
sem reyndar er íþróttakennari og ís-
firðingur að uppruna, hafi um langt
árabil verið mjög áberandi í starfi
ungmennahreyfingarinnar á Egils-
stöðum. Þótti hann mikil drifljöður
eystra en flutti vestur í fyrra. Sagt
er að Austfirðingar muni því gera
tilkall til allra hugsanlegra verð-
launa HSV á mótinu, enda sé Her-
mann liðhlaupi...
Öðruvísi mönnum áður brá
Og meira af íþróttamálum vestra.
Erfiðlega hefur gengið að skrapa
saman í knattspymulið í sveitarfé-
lögum á norðanverðum Vestfjörð-
um undanfarin
ár. Endaði þaö
með þvi að stofn-
að var til Knatt-
spyrnubandalags
ísafjaröarbæjar og
Bolungarvíkur.
Enn er uppi krísa
því nú gengur illa
að finna menn til
að stýra bandalaginu. Enn vantar
fimmta manninn í stjórn og athygli
vekur að enginn þeirra fjögurra
sem þegar hafa verið vélaðir til
starfans er frá ísafirði en þar eru
þrír Bolvíkingar og einn Flateyr-
ingur. Þykir þetta nokkur hneisa
fyrir isafjörð sem áður skartaði
knattspyrnufélögunum Herði og
Vestra og fjölda púkafélaga í fót-
boltanum. Talið er liklegast að leita
verði til fyrrum formanns Vestra,
sjálfs „Púka-Péturs“ Sigurðsson-
ar, forseta ASV...
Kristinn rukkari?
Bókstaflega allt er nú undir smá-
sjá blýantsnagara úti í Evrópu.
Þannig hefur eftirlitsstofnun EFTA
í Brússel komist að því að meira
að segja bráð-
nauðsynlegir
! byggðastyrkir
hinnar „mis-
virtu“ Byggða-
stofnunar séu til
margra ára
kolólöglegir. í
heita pottinum
velta menn fyrir
sér til hvaða ráða stjórn Byggða-
stofnunar gripi. Þykir einsýnt að
stjórnarformaðurinn, Kristinn H.
Gunnarsson, verði að lúta ægi-
valdinu frá Evrópu eða hafa verra
af ella. Sagt er að margir styrkþeg-
ar bíði nú á milli vonar og ótta um
að Kristinn birtist með rukkara-
tösku undir hendi að heimta end-
urgreiðslu á öllum ólöglegu styrk-
veitingunum...