Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Síða 7
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
DV
Fréttir
7
Stykkishólmsbær ætlar að losa fé:
I
n
Níu eyjar til sölu
„Bærinn hefur ekki nýtt þessar
eyjar og telur að hagsmunum sínum
sé betur borgið með því að selja þær
fáist viðunandi boð,“ sagði Óli Jón
Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi, um níu eyjar á Breiðafirði
sem settar hafa verið á sölulista en
þær hafa um langt skeið verið í eigu
bæjarins. Er ætlunin að kanna
markaðinn og gera bæjarstjórnar-
menn sér vonir um aö ná veruleg-
um fjárhæðum í bæjarsjóð með sölu
eyjanna. Eftirspurn eftir eyjum á
Breiðafirði stórjókst á síðasta ári
þegr fréttist af kaupum Sigurjóns
Sighvatssonar á Arney í Breiðafirði
en eyjuna keypti hann af Sigurði
Halldórssyni flugstjóra.
„Þó þetta sé rétt farið að spyrjast
út þá höfum við þegar fengið nokkr-
ar fyrirspurnir og mér sýnast þær
ekki síður koma erlendis frá,“ sagði
Óli Jón bæjarstjóri sem ætlar að
láta markaðinn um að ákvarða verð
eyjanna sem allar eru óbyggðar en
bjóða þó upp á ýmsa möguleika fyr-
ir áhugasama.
- áhugi erlendis
Lelöólfsey
Hvítbjarnarey
^ \
Freöinskeggi \
rmóöseyjar-
klettur Tindskcr
STYKKISHÓLIVM
iiglugrímur "’-y
Þóríshólmi '
Ljótunslwlml f'
H o LoölnshólmL
o /3
Til sölu
ATH staösetmng eyjanna
á kortinu er ekki rétt
(TtV
i ‘x'A
Eyjarnar níu á Breiöafiröi.
Eyjarnar sem settar hafa verið á
sölu, eru: Þórishólmi, Þormóðseyj-
arklettur, Leiðólfsey, Siglugrímur,
Ljótunshólmi, Loðinshólmi, Freðin-
skeggi, Tindsker og Hvitabjamarey
sem er þeirra stærst og bæjarstjórn-
armenn í Stykkishólmi binda mest-
ar vonir við að skili umtalsverðum
fjármunum við sölu.
„Við seljum ekki nema við séum
sáttir við verðið," sagði bæjarstjór-
inn sem sjálfur myndi velja Hvíta-
bjarnarey eða Leiðólfsey ætlaði
hann á annað borð að kaupa ein-
hverja af þeim níu eyjum sem nú
eru í boði. -EIR
DV-MYND GVA
Sumarið komiö í gróöurhúsin
Ásdís Ragnarsdóttir er ein þeirra sem lengja hiö stutta íslenska sumar meö því aö nýta gróöurhúsin.
Hér sést hún skoöa alþarós.
Stöðugt fleiri sveitarstjómir leggjast gegn aukningu lágmarksstærðar sveitarfélaga:
Djúpivogur vill land-
fræðilegar forsendur
Frá Djúpavogi.
Sveitarstjóm Djúpavogshrepps get-
ur ekki fallist á þá breytingu sem kem-
ur fram í frumvarpi tU laga um breyt-
ingu á sveitarstjómarlögum nr.
45/1998 um lágmarksstærð sveitarfé-
laga en þar er gert ráð fyrir að lág-
marksstærð sveitarfélaga verði 1000
íbúar í stað 50 eins og lögin kveða á
um í dag. íbúar Djúpavogshrepps voru
523 þann 1. desember 2000. Sveitar-
stjóm telur eðlilegra að sveitarfélög
verði skoðuð út frá landfræðilegum
forsendum og þjónustustigi svæðanna.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur
einnig fjallað um þessar breytingar á
sveitarstjómarlögunum og í umsögn
þeirra segir m.a.: „Stjómin er sam-
mála því sem fram kemur í greinar-
gerð með frumvarpinu að efling sveit-
arfélaga sé afar mikilvægur þáttur í
því að tryggja íbúum landsins góð lífs-
skilyrði. Jafnframt vísar hún til álykt-
unar síðasta landsþings sambandsins,
sem haldið var á Akureyri í ágúst 1998.
Þar var samþykkt að unnið skyldi að
sameiningu sveitarfélaga með þeim
hætti að undirbúningur og fram-
kvæmd væri í höndum heimamanna
sjálfra. Einnig hvatti landsþingið tfl
þess að áfram væri unnið að samein-
ingu sveitarfélaga og taldi að það væri
hlutverk sveitarstjómarmanna að hafa
frumkvæði þar um með skipulegum
hætti. Jafnframt segir í ályktuninni að
náist ekki viðunandi árangur í sam-
einingu sveitarfélaga á kjörtímabilinu
er mikilvægt að fulitrúar ríkis og sveit-
arfélaga fjalli um aðrar leiðir í samein-
ingarmálum sveitarfélaga en famar
hafa verið til þessa.“
Sveitarstjóm Dúpavogshrepps sam-
þykkti að standa ekki að yfirlýsingu
Samtaka herstöðvaandstæðinga um
kjamorkuvopnalaust sveitarfélag.
Sveitarstjómin telur eðlUegt að tUlögu
tU þingsályktunar um átak tU að auka
framboð á leiguhúsnæði verði vísað tU
nefndar sem félagsmálaráðherra skip-
aði 7. desember sl. tU að fjaUa um hús-
næðismál sveitarfélaga. Lagt var fram
á sveitarstjómarfúndi bréf ffá iðnaðar-
og viðskiptaráðuneyti varðandi áætl-
un um þriggja fasa rafmagn á lands-
byggðinni. Sveitarstjórn fagnar að
unnið sé að þessu máli og var sveitar-
stjóra falið að kanna þörfina í sveitar-
félaginu.
-GG