Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Síða 9
9
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
DV__________________________________________________________________________________________________Neytendur
Háaleitisbraut 68 • Sími 568 4240
Tilvalin
sumargjöf
Postsendum
nsTuno
vélin inniheldur og setja á bannlista
þær síður sem loka á aðgang barna
eða merkja þær sem barnvænar.
Þessi aðferð takmarkar fjölda þeirra
síða sem hægt er að skoða en tekur
mikinn tíma. Netið er síbreytilegt
og aldrei er mögulegt að fara yfir
allt það efni sem bætist við daglega
og því töluverðar líkur á að ein-
hverjar síður sleppi í gegn.
Merktar síöur
Þriðja leiðin hefur verið við lýði í
nokkur ár en hún virkar þannig að
eigendur vefsíðunnar merkja inni-
hald hennar. Því geta þeir sem ekki
vilja síður með tilteknu efni, eins og
klámi, eiturlyfjum, vopnum eða
áfengi svo dæmi séu tekin, lokað fyr-
ir að þær síður birtist á tölvunni hjá
þeim. Þennan filter er hægt að fmna
á Internet Explorer frá Microsoft en
einn og sér þykir hann ekki virka
nægilega vel þar sem ekki nærri all-
ar síður eru merktar með þessum
hætti. Þó er hægt að stilla þennan
filter þannig að hann loki einnig á
allar síður sem ekki eru merktar en
þar með er búið að útiloka svo stór-
an hluta Netsins að það gagnast ekki
sem skyldi. Þessar merkingar verða
heldur aldrei betri en þeir aðilar sem
eiga síðumar og nokkuð er um síður
sem eru rangt merktar.
Hver þessara leiða er hest? Um
það er ekki gott að segja en þeir sem
hafa áhuga á að kynna sér hætturn-
ar sem leynast fyrir börnin á Net-
inu og hvernig best er að forðast
þær er bent á síðuna
www.safekids.com en þar er að
finna ágætis upplýsingar um þessi
mál. -ÓSB
legar afleiðingar
í ljósi stóraukinnar notkunar ým-
issa náttúruefna segir svæfmga-
læknir við FSA brýnt að ræða við
sjúklinga um notkun og hugsanleg-
ar auka- og eiturverkanir slíkra
efna, fyrir skurðaðgerðir. Sum al-
gengustu fæðubótarefnin geti t.d.
haft áhrif á blóðflögur og starfsemi
þeirra. Neysla efnanna fyrir deif-
ingu/svæfingu og skurðaðgerð geti
haft alvarlegar afleiðingar m.a.
vegna blæðingatilhneiginga. Meðal
annarra áhrifa eru hjartsláttartrufl-
anir, lengd áhrifa svæfingarlyfja og
truflun á saltbúskap líkamans.
Þannig er t.d. mælt með að notkun
náttúruefna sé hætt a.m.k. tveim
vikum fyrir skurðaðgerðir í upplýs-
ingabæklingi fyrir bandaríska svæf-
ingarlækna.
Á ársþingi skurðlækna, svæfinga-
og gjörgæslulækna (5. og 6. apríl)
ræddi Girish Hirlekar, læknir á
svæfinga- og gjörgæslud FSA, um
þessi efni. Meðal efna sem hér um
ræðir eru; ginseng, gingo biloba,
efedrín, hvítlaukur, engifer,
freyspálmi, sólhattur, Jóhannesar-
jurt, baladrian og fleiri. Þótt Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin hafl við-
urkennt notagildi og öryggi þessara
efna segir Girish hins vegar lítið
hafa verið rætt um auka- og eitur-
verkanir þeirra og þá sérstaklega í
sambandi við svæfmgar og skurðað-
gerðir. í viðtölum við sjúklinga
spyrji læknar sjaldan um notkun
náttúruefna. Sjúklingar haldi því
oft að þau geti ekki haft nein skað-
leg áhrif á líkamann og telji í lagi að
taka þau með hefðbundnum lyfjum
sem í sumum tilvikum getur hins
vegar verið varasamt eins og að
framan greinir. -hei
Notkun náttúruefna skal hætt 2 vikum fyrir skurðaögerð:
Geta haft alvar-
Tölvunotkun barna:
Leiðbeiningar
fyrir foreldra
Með þvi að stunda virkt eftirlit og
taka með því ábyrgð á netnotkun
barna sinna, geta foreldrar minnk-
að þá hættu sem getur fylgt því að
vera á Netinu. Hér eru nokkrar
reglur sem geta komið sér vel fyrir
fjölskyldur að hafa. Þær eru teknar
af vefsíðunni www.safekids.com
sem er góður upplýsingabrunnur
fyrir foreldra um umgengni barna
við Netið.
* Gefið aldrei upplýsingar á
opnum spjallrásum sem gera við-
mælandanum kleift að vita hver þið
eruð. Meðal upplýsinga sem ekki
eiga heima á spjallrásum eru heim-
ilisfang, nafn skóla eða símanúmer.
Ef þið viljið koma þessum upplýs-
ingum til einhvers sem þið þekkið
og treystið notið þá tölvupóst sem
viðtakandinn einn getur séð. Gefið
heldur ekki persónulegar upplýs-
ingar um aldur, hjúskaparstöðu eða
fjárhagslega stöðu. Notið ekki ykk-
ar rétta nafn.
* Leyfið aldrei börnum að hitta
fólk sem þau hafa kynnst á spjall-
rásum nema á fjölfórnum stað og í
fylgd með foreldrum.
* Svarið aldrei skilaboðum sem
eru dónaleg, fela í sér hótun eða
koma illa við ykkur á einhvem
hátt. Hvetjið börnin ykkar til að
segja ykkur frá ef þau fá slíkar
sendingar og tilkynnið þær til fyrir-
tækisins sem þið eruð með teng-
ingu hjá.
* Ef þið verðið vör við dreifingu
á barnaklámi látið þá lögregluna og
netfyrirtækið vita.
* Munið að þeir sem eru á
spjallrásum geta blekkt og eru ekki
alltaf það sem þeir líta út fyrir að
vera. Þar sem þið getið hvorki séð
né heyrt þann sem spjallað er við er
auðvelt að blekkja. Þvi getur ein-
hver sem gefur til kynna að hann sé
12 ára stúlka í raun verið fertugur
karlmaður.
* Setjið skynsamlegar reglur
varðandi netnotkun barna ykkar.
Ræðið þær og hengið upp nálægt
tölvunni til að börnin muni eftir
þeim. Fylgið því eftir að reglurnar
séu virtar, sérstaklega þegar kemur
að þeim tíma sem börnin mega vera
við tölvuna. Of mikill tími á spjall-
rásum, sérstaklega á kvöldin, getur
falið í sér hættu.
* Tölvur og Netið ætti ekki að
nota sem barnfóstru.
* Gerið netskoðun að einhverju
sem fjölskyldan gerir saman. Til að
svo megi verða er gott að staðsetja
tölvuna á stað þar sem fjölskyldan
dvelur mikið saman, eins og í stofu
eða sjónvarpsholi frekar en í barna-
herbergjum.
P’’ Lagerútsala
á íþrétta-tg fótbottaskóm
Diadora -f ótboltaskór
Margar geröirí barna-og , ,
fuiiorðinsstœrðum Diadora-iþrottaskor
Verö frá kr. 1.000 Margar geröir 1 barna'og
fullorðinsstœrðum
Verö frá kr. 900
3000 haturssíður
Þó aðeins 2% af heimasíðum inni-
haldi kynlífstengt efni þá er auðvelt
að nálgast það í gegnum stóru leit-
arvélarnar. Ekki þarf að taka sér-
staklega fram að verið sé að leita að
sliku efni, prófið að slá inn leitarorð
eins og „bambi“ eða „baby“ og
nokkuð víst er að eitthvað af þeim
síðum sem upp koma innihalda efni
sem ekki er ætlað börnum. Klám er
þó ekki hið eina sem foreldrar vilja
halda frá börnum sínum því á Net-
inu eru um 3000 síður sem boða hat-
ursfulla kynþáttafordóma og aðrar
síður mæla með eiturlyfjanotkun og
svindli hvers konar, nú eða kenna
börnum að búa til sprengjur.
Það eru fyrst og fremst foreldrar
og forráðamenn barna sem bera
ábyrgð á netnotkun barna sinna.
Það er best gert með því að vera
ætíð viðstaddur þegar börnin eru á
Netinu, en þvi miður er ekki alltaf
hægt að koma því við. Nú eru tölvu-
ver i flestum skólum, börnin fara á
Netið hjá félögunum og foreldrar
geta ekki alltaf verið vissir um að
einhver fullorðinn hafi eftirlit með
þeim þar.
Lokað á óæskilegar síður
í dag eru nokkrar leiðir færar til
að halda óæskilegu efni frá börnum.
Ein af þeim er að fjárfesta í hugbún-
aði sem skoðar innihald vefsíða og
kemur í veg fyrir að hægt sé að
birta síður með efni sem foreldrar
setja spurningarmerki við. Mörg
þessara forrita virka nokkuð vel,
það er þó misjafnt, en hafa þó einn
stóran galla. Þar sem þau skanna
efni síðu og banna hana ef á henni
eru tiltekin orð eða orðasambönd þá
kemur oft fyrir að lokað er á síður
sem innihalda algjörlega saklaust
efni en orðin koma fyrir. Einnig eru
sum þessaraTorrita þannig gerð að
þau strika yfir bönnuð orð en birta
allar myndir eða öfugt.
Sumar leitarvélar láta starfsfólk
sitt fara yfir efni vefsíða sem leitar-
Foreldrar geta vakt-
að netnotkun barna
- með ýmiss konar hugbúnaði
Móðir nokkur sem hef-
ur nokkuð virkt eftirlit
með netnotkun sonar
sins kíkti i tölvuna um
daginn og fór inn á
nokkrar af þeim síðum
sem hann hafði verið á.
Þá kom í ljós að inn á
milli íþróttasíðnanna
voru nokkrar kynlífs- eða
klámsíður. Hún kallaði
drenginn til sín og spurði
hvernig stæði á því að
hann væri að skoða síður
sem klárlega væru á
bannlista á heimilinu.
Svörin sem hún fékk
komu á óvart því strákur-
inn hélt því statt og
stöðugt fram að þessar
síður hefðu komið upp
þegar hann leitaöi að
íþróttaefni. Til að sanna
mál sitt sló hann inn
nokkur leitarorð sem
virkuðu sakleysisleg og
tengdust flest fótbolta og
tilteknu liði i Bretlandi.
Og viti menn, upp komu
svæsnar klámsíður. Þeir
sem reka þessar síður
nota leitarorð tengd
áhugamálum táninga og
reyna greinilega að ná
sér í viðskiptavini, eða
áhorfendur úr þeim ald-
urshópi, að því efni sem
þeir bjóða.
Börn og tölvur
Erfítt getur veriö að koma í veg fyrir að óæskilegt efni veröi á vegi barnanna á ferö þeirra um Netiö.