Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
DV
Sendiherrann í Peking
Joseph Prueher, sendiherra Banda-
ríkjanna í Kína, ræöir viö fréttamenn
eftir fund um njósnavélina.
Ekkert gekk í
viðræðunum um
njósnaflugvélina
Bandarískir samningamenn
héldu heimleiðis frá Kína í morgun
eftir árangurslausar viðræður við
kínversk stjórnvöld um njósnaflug-
vélardeiluna.
Samskipti Bandaríkjanna og Kína
eru mjög stirð um þessar mundir og
á næstunni má búast við að þau
versni enn. Fyrir því eru ýmsar
ástæður, eins og yfirvofandi vopna-
sala Bandaríkjanna til Taívans,
handtaka Bandaríkjamanns af kín-
verskum ættum í Kína og krafa Kín-
verja um að Bandaríkjamenn fram-
selji leiðtoga andlegrar hreyfingar
sem sakaður er um nauðgun og
manndráp.
Þá er það heldur ekki til að bæta
ástandið að her Taívans er byrjaður
í árlegum stríðsleikjum sínum þar
sem æfðar eru varnir við hugsan-
legri innrás kínverska hersins á
Taívan.
Umberto Bossi
kallar ESB Sovét-
ríki vestursins
Umberto Bossi, leiðtogi Banda-
lags norðanmanna á Ítalíu, sagði í
gær að Evrópa ætti að vera lýðræð-
islegri en ekki Sovétríki vestursins.
Sagði Bossi Evrópusambandið, ESB,
vera ofurríki sem myndi leiða til
loka fullveldis hverrar þjóðar.
Bossi, sem er bandamaður fjöl-
miðlakóngsins og stjórnarandstöðu-
leiðtogans Silvios Berlusconis, hef-
ur áður vakið athygli fyrir ummæli
sín, meðal annars fyrir að segja að
senda eigi ólöglega innílytjendur
heim til sín. Fyrr á þessu ári sagði
utanríkisráðherra Ítalíu, Louis
Michel, að grípa ætti til refsiað-
gerða gegn Ítalíu sigraði bandalag
Bossis og Berlusconis í kosningun-
um í maí. Forseti framkvædastjórn-
ar ESB, Prodi, segir að dæma eigi
stjórnir af verkum sínum.
ísraelski herinn stóð í stórræðum í nótt:
Fjarlægði vega-
tálmana á Gaza
ísraelski herinn tilkynnti í morg-
un að hann hefði fjarlægt vegatálma
sem settir voru upp á Gaza á mánu-
dagskvöld. Vegatálmarnir skiptu
Gaza í þrennt og komu meðal ann-
ars í veg fyrir allar ferðir Palestínu-
manna milli norður- og suðurhluta
Gaza.
Palestínumenn skutu tveimur
sprengjum úr sprengjuvörpu inn í
ísrael frá Gaza seint i gærkvöld.
Árásin var sams konar og sú sem
leiddi til flugskeytaárása ísraelska
hersins á mánudag, hernáms lands
á Gaza í stutta stund og uppsetning-
ar vegatálmanna.
Palestínskur lögreglumaður sem
hefur samskipti við ísraelska her-
inn sagði að hann hefði ekki séð
hvort búið væri að fjarlægja vega-
tálmana á Gaza en bætti við: „Okk-
ur var tilkynnt um opnunina í gær-
kvöld.“
Riffiilinn mundaður
ísraelskur hermaöur horfir í gegn
um kíkinn á riffli sínum á þorp
Palestínumanna á Vesturbakkanum.
ísraelski herinn sagði í yfirlýs-
ingu að vegatálmarnir hefðu aðeins
átt að vera tímabundið til að hefta
ferðir palestinskra hryðjuverka-
manna, eins og það er orðað. Ekki
hefði verið ætlunin að gera óbreytt-
um borgurum erfitt fyrir.
Annars er Palestínumönnum á
Vesturbakkanum og Gaza meinað
að fara inn til ísraels. Það veldur
því að 120 þúsund verkamenn kom-
ast ekki til vinnu sinnar.
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti
sagði George W. Bush Bandaríkja-
forseta, þegar þeir ræddu saman i
síma í gær, að Sýrlendingar áskildu
sér rétt til að svara fyrir loftárás
ísraela á sýrlenska ratsjárstöð í Lí-
banon á mánudag.
Talsmaður Hvíta hússins sagði að
Bush hefði hvatt Sýrlandsforseta til
að sýna stillingu. Sýrlendingar eru
valdamestir í Líbanon.
Geimskutlan á loft
Bandarísku geimskutlunni Endeavour var skotiö upp frá Kennedy-geimferöamiöstööinni í Flórída í gær. Geimskutían
veröur ellefu daga úti í geimnum og mun fara aö alþjóölegu geimstööinni þar sem áhöfnin mun koma fyrir kanadísk-
um róbótaarmi. Sjö menn eru í áhöfn Endeavour.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
farandi eignum:
Akrasel 29, Reykjavík, þingl. eig. Gæðir
ehf., gerðarbeiðandi Búnaðarbanki ís-
lands hf., miðvikudaginn 25. apríl 2001,
kl. 10.00.
Álakvísl 28, 0101, 3ja herb. íbúð, hluti af
nr. 24-30 og stæði í bílskýli, Reykjavík,
þingl. eig. Sólveig Pétursdóttir, gerðar-
beiðendur íbúðalánasjóður, íslandsbanki-
FBA hf. og Tollstjóraembættið, miðviku-
daginn 25. apríl 2001, kl. 10.00.
Baldursgata 28, 25% ehl., Reykjavík,
þingl. eig. Björg Stefánsdóttir, gerðar-
beiðendur íslandsbanki hf, höfuðst. 500,
og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, miðviku-
daginn 25. apríl 2001, kl. 10.00.
Flétturimi 4, 0302, 50% ehl. í 91,2 fm
íbúð t.h. á 3. hæð m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Bóas Kristjánsson, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki íslands hf., miðvikudaginn
25. apríl 2001, kl. 10,00,
Gmndarhús 14, 0101, 4ra herb. íbúð á 1.
hæð, 6. íbúð frá vinstri, Reykjavík, þingl.
eig. Margrét Helgadóttir, gerðarbeiðend-
ur Húsasmiðjan hf. og Lífeyrissjóður sjó-
manna, miðvikudaginn 25. apríl 2001, kl.
10.00._________________________________
Hellusund 6a, Reykjavík, þingl. eig. Vil-
hjálmur Knudsen, gerðarbeiðendur
Ferðakort ehf, Landsbanki Islands hf.,
aðalbanki, Ríkisfjárhirsla, Ríkisútvarpið
og Tollstjóraskrifstofa, miðvikudaginn
25. apri'l 2001, kl. 10.00.____________
Hólmgarður 20, 0201, 4ra herb. íbúð á
efri hæð og risloft, Reykjavík, þingl. eig.
Jón Viðar Sigurgeirsson, gerðarbeiðandi
íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 25. apríl
2001, kl. 10.00._______________________
Hraunteigur 18, 0301, 3ja herb. risíbúð,
Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur A.
Guðmundsson, gerðarbeiðandi Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins, B-deild, mið-
vikudaginn 25. apríl 2001, kl. 10.00.
Melgerði 21, Reykjavík, þingl. eig. Guð-
rún S. Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi
Eignarhaldsfélag Alþýðubankans hf.,
miðvikudaginn 25. apríl 2001, kl. 10.00.
Rjúpufell 1, Reykjavík, þingl. eig. Gísli
Guðmundsson, gerðarbeiðandi SP Fjár-
mögnun hf., miðvikudaginn 25. apríl
2001, kl. 10.00.
Skálagerði 11, 0103, 3ja herb. íbúð á 1.
hæð t.h., Reykjavík, þingl. eig. Bjarni
Gunnlaugs Bjamason, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður verslunarmanna, miðviku-
daginn 25. apríl 2001, kl. 10.00.
Sólheimar 20, 0001, 3ja herb. kjallaraí-
búð, 1 herb. og snyrtiherb. í kjallara,
Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Kristjáns-
dóttir og Guðni Eðvarðsson, gerðarbeið-
andi íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 25.
apríl 2001, kl. 10.00.
Stararimi 35, 50% ehl., Reykjavík, þingl.
eig. Eva Rós Vilhjálmsdóttir og Jóhannes
Oddur Bjamason, gerðarbeiðandi Kaup-
þing hf., miðvikudaginn 25. apríl 2001,
kl. 10.00.
Stigahlíð 36, 0301, 77 fm íbúð á 3. hæð
t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Jóhanna
Magnea Þórisdóttir, gerðarbeiðandi Bima
R.B. Jóhannsdóttir, miðvikudaginn 25.
aprfl 2001, kl. 10.00.
Vesturhús 6, 0001, 98,3 fm íbúð á neðri
hæð m.m. og bflstæði við norðurhom lóð-
ar, Reykjavík, þingl. eig. Daði Þór Ólafs-
son, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður,
miðvikudaginn 25. aprfl 2001, kl. 10.00.
Þórufell 2, 0203, 3ja herb. íbúð á 2. hæð
t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Hendrik
Steinn Hreggviðsson og Guðrún Brynj-
ólfsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
sjómanna og Ríkisútvarpið, miðvikudag-
inn 25. aprfl 2001, kl. 10.00.
Þómfell 4, 0202, 2ja herb. íbúð á 2. h. í
miðju m.m., Reykjavík, þingl. eig. Gunn-
hildur Ragnarsdóttir, gerðarbeiðandi ís-
landsbanki-FBA hf., útibú 532, miðviku-
daginn 25. aprfl 2001, kl. 10.00.
Þverholt 22,0201, 72,8 fm 3ja herb. íbúð
á 2. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Kristján Benjamínsson. gerðarbeiðandi
Ibúðalánasjóður, miðvikudaginn 25. aprfl
2001, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eign verður háð á henni sjálfri
________sem hér segir:________
Laugavegur 58, 0201, 112,7 fm íbúð á 2.
hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Tækni-
smiðjan ehf., gerðarbeiðendur Búnaðar-
banki Islands hf. og Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 25. apríl 2001, kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Reiðubúinn að selja
Rússinn Vla-
dimir Gúsínskí
kvaðst í gær vera
reiðubúinn að selja
hlut sinn í sjón-
varpsstöðinni NTV
sem rikisgasrisinn
Gazprom tók yfir.
Gúsínski á 49,5 pró-
senta hlut í sjónvarpsstöðinni sem
var óháð. Gúsínski vildi ekki segja
hverjum hann ætlaði að selja.
Nauðgað vegna kynorku
47 ára karl í Taílandi, sem gortaði
af kynorku sinni, hefur kært fimm
konur fyrir nauðgun. Þær ákváðu
að sannreyna getu karlsins og vísa
á bug ásökunum um afbrot.
Megawati neitar
Aðstoðarmaður varaforseta
Indónesíu, Megawati Sukarnoputri,
segir það ekki rétt að hún vilji að
forseti landsins, Abdurrahman Wa-
hid, sitji til loka kjörtímabils síns
2004.
Bannar eiturefni
Forseti Bandaríkjanna, George
W. Bush, samþykkti í gær sam-
komulag um bann við notkun 12 eit-
urefna, meðal annars DDT. Litið er
á samþykktina sem tilraun til að
draga úr gagnrýni á stefnu Bush í
umhverfismálum.
Sænsk börn of feit
Fjórða hvert barn í Svíþjóð er of
feitt. Claude Marcus prófessor segir
þörn borða of mikið og borða rangt
fæði auk þess sem þau hreifi sig of
lítið og séu stressuð.
Styðja loftslagssamning
61 prósent Bandaríkjamanna er
þeirrar skoðunar að Bandaríkin
eigi að staðfesta Kyoto-samkomulag-
ið sem miðar að takmörkun á losun
gróðurhúsalofttegunda.
Toledo með forskot
Alejandro Toledo
nýtur fylgis 56 pró-
senta kjósenda i
Perú og myndi því
sigra í seinni um-
ferð forsetakosning-
anna færi hún fram
nú. Þetta sýnir
fylgiskönnun sem
gerð var í gær. Kosningadagurinn
verður ákveðinn þegar talningu
fyrri umferðar lýkur.
Fjárfestar vilja Koizumi
Erlendir flárfest-
ar vonast til að um-
bótasinninn Jun-
ichiro Koizumi
verði kjörinn leið-
togi Frjálslynda
lýðræðisflokksins í
Japan í næstu viku
þar Sem hann trúir
ekki á útþenslu ríkisumsvifa. Stefna
hinna frambjóðendanna þykir of lík
stefnu núverandi stjórnar, nefnilega
að ná megi efnahagsbata með frek-
ari eyðslu.
Leiðtogafundur Ameríku
Gífurleg öryggisgæsla er nú i
Quebecborg í Kanada vegna leið-
togafundar Ameríkuríkja sem hefst
þar i dag. Sett hefur verið upp 3
metra há og 6 km löng girðing um-
hverfis hluta miðborgarinnar til að
halda mótmælendum fjarri.