Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Qupperneq 20
24
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Athafnasvæði Eimskips við Vatnagarða í
Sundahöfn.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að deiliskipulagi athafnasvæðis
Eimskips við Vatnagarða í Sundahöfn. Skipulags-
svæðið afmarkast af Korngörðum, Klettagörðum að
norðvestan, Vatnagörðum að suðvestan, Sægörðum
að suðaustan og Kleppsbakka og Sundabakka að
norðaustan.
Tillagan gerir ráð fyrir ýmsum breytingum á svæðinu
s.s. breikkun Sundabakka, breytingum á lóðafyrir-
komulagi og byggingarreitum, breytingum á
umferðarkerfi m.a. á mótum Klettagarða og
Sundagarða. Tillagan gerir og ráð fyrir niðurrifi
Sundaskála 1-2 og byggingu stórrar vöruskemmu/-
vöruhótels (sem orðið getur um 30 þús. m2 að
grunnfleti) við Vatnagarða svo eitthvað sé nefnt.
Álfheimar 74, Glæsibær, tillaga að deiliskipulagi
lóðarinnar.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að deiliskipulagi lóðar verslunar-
miðstöðvarinnar Glæsibæjar að Álfheimum 74.
Skipulagssvæðið afmarkast af Gnoðavogi í
norðaustur, Álfheimum í suðaustur, Suðurlandsbraut í
suðvestur og Engjavegi í norðvestur.
Tillagan gerir m.a. ráö fyrir að lóð verslunar-
miðstöðvarinnar stækki í átt að Engjavegi. Byggt
verði 3-8 hæða verslunar- og þjónustuhús á
norðvesturhluta lóðarinnar (þ.e. við Engjaveg) ásamt
bílgeymslu fyrir 361 bíl. Jarðhæó núverandi
byggingar stækki í norðaustur og byggð verði inn-
dregin hæð ofan á hluta hennar svo það helsta sé
nefnt.
Árkvörn 6, Ártúnsskóli, breyting á deiliskipulagi
Ártúnsholts og Árbæjarsafns.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Ártúnsholts annars vegar og deiliskipulagi safna-
svæðis Árbæjarsafns hins vegar.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að stækka lóð Ártúnsskóla
að Árkvörn 6 um u.þ.b. 2000 m2, minnka safnasvæði
Árbæjarsafns um 1200 m2 og grænt svæði á milli
lóðanna um 800 m2, heimilt verði að auka
byggingarmagn á sunnanverðri skólalóðinni um
1000m2, á einni til tveimur hæðum. Viðbyggingar
mega ekki rísa hærra en núverandi skólahús. Tillagan
gerir ráð fyrir að bílastæðum við skólann fjölgi í
samræmi við aukið byggingarmagn.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka
daga kl. 10.00 -16.00 frá 20. apríl til 18. maí 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi
síðar en 1. júní 2001.
Sérstök athygli er vakin á því að þeir sem eigi
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 20. apríl 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
g^Smáauglýsingar
byssur, feröalög, feröaþjónusta,
fyrir feröamenn, fyrir veiöimenn,
gisting, golfvörur, heiisa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaöur...tÓlT1StuncIÍl‘
Essa
Skoðaöu smáuglýsingarnar á VÍSÍI*.ÍS 550 5000
______________________________________________________FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
Tilvera DV
Dómnefndin var aö sjálfsögöu skipuö valinkunnum fagur-
kerum enda ekki á hvers manns færi aö gera upp á milli
ungmeyja sem eru hver annarri fegurri.
Sjómaður í verkfalli
Kjartan Múli yngri frá Vestmannaeyjum notaöi tækifæriö
meöan báturinn liggur bundinn viö bryggju til aö kíkja á
keppnina. Hér er hann ásamt starfsmanni Broadway.
Fögur fljóð á Broadway
- Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur 2001
Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur
I flokki kvenna fór fram með við-
höfn á skemmtistaðnum Broadway
að kvöldi síðasta vetrardags. Þar
atti friöur flokkur ungmeyja kappi
um hver þeirra bæri af öðrum í feg-
urð og yndisþokka og þótti keppnin
fara vel fram í alla staði. Eins og
vera ber hlaut ein að lokum sigur í
keppninni og heitir sú Ragnheiður
Guðnadóttir og er 21 árs Reykjavík-
urmær og mun hún vera fulltrúi
Reykjavíkur í keppninni um feg-
urstu stúlku Islands sem fram und-
an er.
Pallí einn á sviðinu
Páll Óskar Hjálmtýsson skemmti áhorfendum í hálfleik meö söng.
DV-MYNDIR EINAR J.
Fráfarandi drottning
Anna Lilja Björnsdóttir, feguröardrottning Reykjavíkur áriö 2000, ásamt
unnusta sínum, Berki Bjarnasyni.
Einbeittur keppandi
Stúlkurnar þurftu meöal annars aö
koma fram í baöfötum.
Gert út á glæsileikann
Á endasprettinum komu keppendur
fram í viröulegum síðkjólum.
Nýir stólar í Dómkirkjunni:
Biskupsstóll og
fjórir kórstólar
Dómkirkjan í Reykjavik
á sér marga góða vini og
velunnara sem hafa í
gegnum árum gefið kirkj-
unni íjölmargar gjafir.
Meðal velunnara kirkj-
unnar eru Bent Scheving
Thorsteinsson og eigin-
kona hans, Margrét Schev-
ing Thorsteinsson. í
messu á páskadagsmorg-
un tóku prestar Dómkirkj-
unnar við gjöf frá þeim
hjónum, nýjum biskups-
stól og tjórum nýjum kór-
stólum, og var þeim hjón-
um þökkuð gjöfin. Stólarn-
ir eru hannaðir af Stefáni
Snæbjörnssyni innanhúss-
arkitekt.
Nyir stolar
Séra Hjálmar Jónsson og séra Jakob Ágúst Hjálmarsson tóku viö nýjum stólum í Dóm-
kirkjuna.