Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Page 23
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
DV
Tilvera
Jessica Lange 52 ára
Afmælisbarn
dagsins, Jessica
Lange, er ein af dáð-
ustu leikkonum í
kvikmyndabransan-
um. Hún hefur feng-
ið sex óskarstilnefn-
ingar og tvisvar hef-
ur hún hampað hinni eftirsóknar-
verðu styttu. Var það fyrir Tootsie og
Blue Sky. Sambýlismaður hennar til
margra ára er leikskáldið og leikarinn
Sam Shepard og á hún með honum
tvö börn. Eitt barn átti hún fyrir með
ballettdansaranum Míkhaíl Barys-
hníkov. Lange og Sheppard búa á
bóndabæ í Virginíu.
Gildir fyrír
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r
. Kunningi þinn launar
' þér ríkulega aðstoð sem
þú veittir honum er hann
þurfti á að halda og þú
finnur að hann metur þig mikils. Líf-
ið brosir við þér um þessar mundir.
Fiskarnlr 119. fRhr.-20. marsl:
Þú ert að skipuleggja
-^■ferðalag eða einhvem
mannfagnað og hlakk-
ar mikið til. Þú hefur
ekki riiikinn tíma fyrir sjálfan
þig-
Hrúturlnn (21. mars-19. apríl):
Þú færð á þig gagnrýni
I sem þér finnst órétt-
mæt. Það er þó best að
halda haus og láta
ekki á neinu bera.
Nautið (20. apríl-20, maít:
Ekki er ólíklegt að þú
lendir i deilum við ná-
granna þinn þar sem
spenna hefúr ríkt á
i ykkar um nokkurt skeið.
Tviburarnir (2
>>!
Tvíburarnlr (21. maí-2i. iúní):
Með vfija og mnbyrðar-
’ lyndi jafriar þessi mis-
khð sig þó fljótt.
Þeir sem eru ólofaðir
binda ?ig trúlega á næstunni eða
lenda í alvarlegum ástarævintýrum.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
Mál sem hefur lengi
I verið að þvælast fyrir
þér leysist fyrr en var-
ir og það verður þér
riéttir. Kvöldið lofar góðu.
Happatölur þínar eru 3, 8 og 27.
Liónlð (23. iúlí- 22. áeústl:
Bömin eru í aðalhlut-
verki i dag og þú þarft
að gefa þeim mikinn
tima. Breytingar eru fyr-
irsjáanlegar á næstunni og ekki er
óliklegt að þú farir í stutt ferðalag.
Mevlan (23. ágúst-22. sept.l:
a* Fólk er ekki sérlega
samvinnuþýtt í kring-
^^VjLum þig. Með lagni get-
^ r urþú þó náð því fram
sem þú vilt. Happatölur þínar em
5, 8 og 34.
Vogln (23. sept.-23. okt.):
Reyndu aö gera þér
grein fyrir því hvað þú
vilt gera í lifinu. Það
er timi til kominn aö
þusetjist niður og veltir fyrir þér
málunum.
Sporðdreki (24. okt.-21. nnv.l:
Þú færð fréttir sem
gleðja þig mjög. Þú ert
bjartsýnn og fullur
áhuga á því sem þú ert
i gera. Félagslífíð er á traustum
gmnni.
Bogamaður (22. náv.-2i. des.l:
rÁstarlífið blómstrar
um þessar mundir en
ekki er víst að það
muni starida lengi. Njóttu augnar-
bliksins. Happatölur þínar em 2,
Stelngeltln (22. des.-19. ian.):
13 og 37.
Sjálfstraust þitt er
með besta móti og þér
tekst allt vel. Gættu
þess þó að ofmetnast ekki og
sýna öðm fólki hroka.
Vogln (23. s;
ý
Sjötifgur
Hrafn Tulinius
læknir
Hrafn Hallgrímsson Tulinius lækn-
ir, Þingholtsstræti 31 í Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Hrafn varð stúdent frá Verslunar-
skóla íslands vorið 1950 og varð cand.
med. frá Háskóla íslands 30. janúar
1958. Hann stundaði sérnám í undir-
stöðuatriðum og hagnýtingu geisla-
virkra ísótópa í Bandaríkjunum frá
1964 til 1965. Hrafn fékk almennt
lækningaleyfi árið 1966 og sérfræð-
ingaleyfi í líffærameinafræði á íslandi
1966 og í Bandaríkjunum 1967.
Hrafn var aðstoðarlæknir á Klepps-
spítala febr.-apríl 1958, staðgengill
héraðslæknisins í ísafjaröarhéraði
maí-ágúst 1958 og samtímis læknir
við sjúkrahúsið þar, aðstoðarlæknir á
Fjórðungs-sjúkrahúsinu í Neskaup-
stað sept.-okt. 1958, kandídat á Land-
spítalanum frá nóv. 1958 tO mars 1959,
á Slysavarðstofu Heilsuverndarstöðv-
ar Reykjavíkur apríl-maí 1959, á
Rannsóknarstofu Háskólans í meina-
fræði frá júní 1959 til sept. 1960 og á
Landspítalanum okt.-nóv. 1960. Þá
var Hrafn aðstoðarlæknir í Þýska-
landi 1961 til 1962 og í Houston í Texas
frá 1962 til 1965. Hann var kennari í
meinafræði við Albany Medical Col-
lege of Union University í Albany i
New York-ríki frá 1965 til 1967, sér-
fræðingur í meinafræði á Rannsókn-
arstofu Háskólans og lektor í meina-
fræði við HÍ. frá okt. 1967 til mars
1969. Meinafræðingur við faralds-
fræðideild alþjóðarannsóknarstofnun-
ar um krabbamein í Lyon í Frakk-
Sviösljos
landi frá 1969 til 1975. yfirlæknir
krabbameinsskrár hjá Krabbameins-
félagi íslands frá júlí 1975. prófessor í
heilbrigðisfræði við iæknadeild HÍ frá
júlí 1976.
Hrafn sat í nefnd Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar 9. endurskoðun
dánarmeinaskrárinnar 1970-76. Hann
var formaður Nomesco-nefndar Is-
lands 1975-80. í læknisráði frá 1976.
Hrafn var fulltrúi íslands í norrænu
samstarfsnefndinni um læknisfræði-
rannsóknir á norðurslóð 1977-80 og
hefur verið í Manneldisráði íslands
frá 1977. Hrafn var i deildarráði
læknadeildar HÍ. 1978-80. í Committee
8, Nutrition and Cancer of
Commission IV, Diseases of Special
Importance, the International Union
of Nutritional Sciences 1980-90. Þá var
Hrafn formaður siðamáladeildar
læknaráðs 1980-82 og frá 1997. í
Cancer Family Study Group frá 1982
og í stjórn Association of Nordic
Cancer Registeries frá stofnun 1984. í
farsóttanefnd heilbrigðisráðuneytis-
ins (síðar sóttvarnarráði frá 1986. í al-
þjóðasamkiptanefnd HÍ frá 1990 og var
í stjórn Evrópufélags um krabba-
meinsrannsóknir 1990-94. Einnig var
Hrafn formaður stjórnar European
Network of Cancer Registries 1992-99,
formaður Hins íslenska faraldsfræöi-
félags frá stofnun 1986-1995 og Sam-
taka um krabbameinsrannsóknir á ís-
landi frá stofnun, 1995-99.
Fjölskylda
Þann 27.12.1951 giftist Hrafn Helgu
Brynjólfsdóttir, píanó-kennara, f.
1.10. 1931. Foreldrar hennar voru
Brynjólfur Jóhannsson, bankaritari
og leikari í Reykjavík, f. 3. 8. 1896, d.
8.4. 1975, og kona hans, Guðný Helga-
dóttir húsfreyja, f. 11.8. 1897, d. 20.7.
1994.
Börn Hrafns og Helgu eru 1) Már, f.
29.7.1953, læknir í Svíþjóð, maki Elín-
björt Kristjana Hermannsdóttir, f.
30.1.1954, uppeldisfræðingur; 2) Torfi,
f. 11.4. 1958, bókmenntafræðingur og
dósent við HÍ í Reykjavík, maki Guð-
björg Vilhjálmsdóttir, f. 14.12. 1956,
námsráðgjafi og lektor við HÍ í
Reykjavík; 3) Þór, leikari i Reykjavík,
f. 22.6. 1959, maki Æsa Guðrún Tul-
inius Bjarnadóttir, f. 4.3.1978; 4) Guð-
ný Helga, f. 1.1.1967, d. 17.6.1986; 5) Sif
Margrét, f. 25.3. 1970, fiðluleikari í
Reykjavík.
Foreldrar Hrafns voru Hallgrímur
Axel Axelsson Tulinius, stórkaupmað-
ur í Reykjavík, f. 14.2.1896, d. 6.3.1963,
og kona hans, Margrét Jóhannsdóttir
Tulinius, húsfreyja í Reykjavík, f.
28.3. 1904, d. 20.2. 1970.
Cindy þykir rass
Jennifer of stór
Jennifer Lopez og Cindy Crawford
eru ekkert alltof hrifnar hvor af
annarri þessa dagana. Söngkonan og
fyrirsætan lentu nefnilega i rifrildi
um fegurðarímynd. Deilan hófst með
því að Cindy gat þess í viðtali að sér
þætti rassinn á Jennifer Lopez of stór.
Þeir sem ekki eru hrifnir af horuðum
fyrirsætum hafa bent á íturvaxinn lík-
ama Jennifer og sagt hann fyrirmynd.
Reyndar þykir Jennifer sjálfri
gagnrýnin í garð Kate Moss, Calistu
Flockhart og hinum horgemlingunum
ekki réttmæt.
„Það er jafn fáránlegt að gagnrýna
þær fyrir það hversu grannar þær eru
eins og að gagnrýna mig fyrir það að
ég skuli vera með stóran rass,“ segir
Jennifer Lopez i viötali við þýska
kvennablaðið Journal fúr die Frau.
Hún notaði einnig tækifærið til að
Iturvaxin stjarna
Jennifer Lopez er ánægð meö
útlitið.
skjóta á Cindy Crawford á annan hátt.
Þegar hún var spurð aö því hvað
henni þætti um gagnrýni Cindy Craw-
ford í garð hennar sjálfrar svaraði
hún:
„Hver er Cindy Crawford?"
íviðtalinu við þýska blaðið sagði
Jennifer Lopez einnig frá því að hún
tryði ekki á ást við fyrstu sýn. Hún
kvaðst vilja taka sér tima til að kanna
hug hjartans. Það tæki talsvert langan
tíma áður en að fyrsta kossinum
kæmi. Jennifer sleit fyrr á árinu sam-
bandi sínu við rapparann Sean
„Puffy“ Combs.
„Ég er ekki fljót að verða hrifin.
Hlutirnir þurfa ekki að fara strax úr
böndunum," tók Lopez fram og bætti
við að ekki væri nauðsynlegt að hefja
kynlíf um leið og fólk kynntist.
I hjónaband
Leikkonan Brooke Shields giftist handritahöfundinum Chris Henchy á
eyju undan strönd Kaliforníu 4. apríl síðastliðinn. Brooke Shieids var áð-
ur gift tennisleikaranum Andre Agassi.
Damon á flótta
undan skothríð
Kvikmynda-
leikarinn Matt
Damon lenti
heldur betur í
óvæntu ævintýri
á dögunum þegar
hann var að leika
golf í Las Vegas.
Þegar Matti og
spilafélagi hans,
John Lodge úr
Moody Blues,
voru komnir á 16. braut kváðu allt í
einu við nokkrir skothvellir. Félag-
arnir hlupu þá sem fætur toguðu út
fyrir brautina og fóldu sig í runnum.
Löggan kom en ekkert grunsamlegt
fannst.
Þess má til gamans geta að þegar
Matt Damon var að æfa golf fyrir
myndina um Bagger Vance brákaði
hann á sér rifbein í öllum látunum og
hendur hans voru alsettar blöðrum.
GERUM GOTT
KYNLÍF BETRA!
IANDSINS MESTA ÚRVAL AF
UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLlFSINS
Barónsstíg 27 - S: 562 7400
Ball í
eftir
Maju Árdal
Næstu sýningar
föstudagskvöld og
laugardagskvöld,
kl. 20.00.
Leikstjóri
Maja Árdal
Þýðing
Valgeir Skagfjörð,
Leikmynd og búningar
Helga Rún Pálsdóttir,
Ljósahönnun
Alfreð Sturla Böðvarsson,
Tónlistarstjórn
Valgeir Skagfjörð,
Dansar:
Jóhann Gunnar Arnarsson.
Leikarar:
Hinrik Hoe Haraldsson,
Saga Jónsdóttir,
Sigríður E. Friðriksdóttir,
Skúli Gautason,
Þóranna K. Jónsdóttir og
Þorsteinn Bachmann
Dansarar:
Aron Bergmann Magnússon,
Friðgeir Valdimarsson, Guðjón
Tryggvason,
Hilmar Már Hálfdánarson,
Ýr Helgadóttir,
Katrín Rut Bessadóttir,
Rakel Þorleifsdóttir,
Sigursveinn ÞórÁrnason,
Þórdís Steinarsdóttir,
Þórhildur Ólafsdóttir
Á Akureyri
og á leikferð
Sniglaveislan
eftir:
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Sigurður Sigurjónsson.
Sýningar í Iðnó
íBLfctthtd jl
leikeélagakureyrarI
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
r i