Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 24
28
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2001
Tilvera
I>V
lí f iö
EFTIR V I N N U
Hljómborða-
kvöld í Nýló
Vefritið Kistan og Nýlistasafn-
ið standa fyrir hljómorðakvöldi í
Nýlistasafninu klukkan 20.00 þar
semfram koma Berglind Ágústs-
dóttir, Bragi Ólafsson, Didda,
Einar Már Guðmundsson, Elísa-
bet Jökulsdóttir, Kristín Ómars-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir,
Margrét Lóa og Gímaldin, Mar-
lon Pollock, Megas og félagar og
Michael Pollock. í „hljómorðum“
felst upplestur á prósa, ljóðum
eða prósaljóðum, gjarnan meö
undirspili (söngur þó ekki útilok-
aðurj.Aðgangseyrir er kr. 500.
Leikhús
■ BLUNDUR & BLASYRA Leikritið
Blúndur & blásýra eftir Joseph
Kesselring verður sýnt í kvöld klukk-
an 20 á Stóra svlði Borgarleikhúss-
Ins.
■ KONTRABASSINN Einleikurinn
Kontrabassinn eftir Patrlck Súskind
veröur sýndur klukkan 20 í kvöld í
Borgarlelkhúsinu. Ellert A. Ingi-
mundarson leikur og leikstjóri er
Kjartan Ragnarsson.
■ JÁ, HAMINGJAN Leikritiö Já,
hamingjan eftir Kristján Þórö
Hrafnsson verður sýnt klukkan
20.30 í kvöld á Litla svlöi Þjóöleik-
hússins.
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI
Leikritið Meö fulla vasa af grjóti eft-
ir Marie Jones verður sýnt í kvöld kl.
20 á Stóra svlöi Þjóöleikhússlns.
Uppselt.
■ VÍST VAR INGJALDUR Á RAUP-
UM SKOM Ahugamannaleikhúsiö
Hugleikur sýnir í Tjarnarbíói verkiö
Vist var Ingjaldur á rauöum skóm
eftir þær Hjórdísi HJartardóttur,
Inglbjörgu HJartardóttur og Sigrúnu
Oskarsdóttur í ieikstjórn Sigrúnar
Valbergsdóttur. Miðapantanir í síma
551 2525 og sýningin hefst klukkan
20.
Klúbbar
■ DJ. MAESTRO A 22 Brazllíska
taktráöiö, í góöri samvinnu viö Null-
einn.is og Breakbeat.ls, stendur fyr-
ir alvöru búgalú-partýi á Café 22.
Krár
■ BÓTNLEÐJÁOGSfJORNUKISI
Botnleöja er komin aftur í bæinn
eftir nokkra fjarveru og heldur ijúk-
andi tónleika meö vinum sínum í
Stjörnukisa..
Sveitin
■ HALFT I HVORU A ODDVITAN-
UM Gleðisveitin Hálft í hvoru leika
fyrir Akureyringa og aðkomufólk á
Oddvitanum, Akureyri í kvöld. Það
er óhætt aö reikna með góöu stuði
eins og alltaf þegar þeir Eyjólfur,
Ingi, Gunnar, Orvar og Bergsveinn
stíga á sviö.
■ SKUGGABALDUR Á H-BARNUM
Diskórokktekiö og plötusnúðurinn
Skuggabaldur sér um fjörið á H-
barnum, Akranesi. 500 kall inn frá
miönætti.
■ SÆLUSVEITIN Á VIÐ POLLINN
Þaö er eintóm sæla og hamingja á
Viö pollinn, Akureyri, vegna Ijúfra
tóna Sælusveitarinnar.
■ SÓLDÖGG Á BREIÐINNI Rokkbolt
arnir í Sóldögg sjá um fjörið á
Breiðinni, Akranesi.
■ SÓLON Á HM KAFFI Hljómsveit-
in Sólon skemmtir gestum og gang-
andi á HM Kaffi, Selfossi.
Erlendur meö þær Margréti og Birnu til hvora til sinnar handar
„ Viö íslendingar náum alls staöar aö frekjast í gegn!“
Þau gera það gott í leiklistinni í London:
DV-MYND INGÓ
Valin í aðalhlutverkin
Þrír íslenskir leiklistarnemar, Er-
lendur Eiríksson, Margrét Kaaber og
Bima Hafstein, munu útskrifast í vor
frá Arts Ed. School of Acting i London
eftir þriggja ára nám og hafa þau öll
verið valin i stór hlutverk í loka-
stykkjunum. „Við íslendingar náum
alls staðar að frekjast í gegn,“ sagði
Erlendur hlæjandi er hann var tekinn
tali í páskafríinu. „Við Bima fengum
aðalhlutverkin hvort í sínu stykkinu,
ég í Man from la Mancha og Bima í
Mother Courage eftir Brecht. Margrét
fékk líka stórt hlutverk í því síðar-
nefnda," sagði hann þegar hann var
inntur nánar eftir frama þeirra þre-
menninga.
Sló í gegn meö Sofðu unga
ástin mín
Erlendur segir um fimmtíu
manns vera í útskriftarhópnum.
Allir komist þeir á svið í fjórum
lokaverkefnum en auðvitað sé
keppni um bestu hlutverkin. „Það
koma utanaðkomandi leikstjórar til
að stýra þessum lokastykkjum og
þeir velja í hlutverkin. Við gerðum
prufur að öllum verkunum, fluttum
einþáttunga og svo sungum við fyr-
ir þá,“ sagði Erlendur. „Ég söng
Sofðu unga ástin mín, án undirleiks
og það sló í gegn,“ segir hann og
brosir. Það mun líka vera eins gott
fyrir Erlend að geta haldið lagi því
Man from la Mancha er söngleikrit,
að hans sögn. „Ekki beint söngleik-
ur því það er svo mikið leikið í því,
heldur líkast eins og Litla hryllings-
búðin," segir hann til útskýringar
og bætir við að verkið hafi fengið
Tony-verölaunin þegar það hafl ver-
ið sýnt á Broadway.
Skólinn elnn af fjórum
bestu í Bretlandi
Skólinn sem þremenningarnir
nema við, Arts Educational School
of Acting, var nýlega valinn einn af
fjórum bestu leiklistarskólum í
Bretlandi af National Conference of
Drama Schools. Erlendur segir skól-
ann fyrirtaks útungunarstöð fyrir
góða leikara og að dvölin þar síð-
ustu þrjú árin hafi verið yndislegur
tími. Verkefni næstu vikna hjá hon-
um og hinum útskriftarnemunum
eru sýningar fyrir umboðsmenn og
leikstjóra á ýmsum prufum úr leik-
ritum og kvikmyndum. Síðan taka
æflngar á lokaverkefnunum við en
þau verða sýnd dagana 21.-25. júní.
„Ég vildi gjarnan senda boðskort til
allra íslendinga," segir Erlendur
kátur og þar með var hann aftur
floginn út til London.
-Gun.
Bíógagnrýni
Þrjóskur kafari
Regnboginn/Bíóhöllin - Men of Honor ★ ★
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísl.is
Robert De Niro og A1 Pacino hafa
löngum verið taldir fremstir meðal
kvikmyndaleikara í Hollywood og
hafa á löngum ferli getað valið væn-
legustu bitana þegar kemur að list-
rænu gildi hlutveka og hvað reynir
mest á leikarann. A1 Pacino hefur
haldið sínu striki og alltaf má
reikna með einhverju bitastæðu þar
sem hann er til staðar. Því miður er
öðruVísi farið meö Robert De Niro
og má'kannski segja að hann sé enn
eitt fórnarlamb gullkálfsins. Eftir að
hann setti á stofn framleiðslufyrir-
tækið Tribeca snemma á tíunda ára-
tugnum hefur hann með árunum
fjölgað hlutverkum og er dóm-
greindin eitthvað farin að bregðast
og nú koma meðalmyndir þar sem
honum er skartað nánast á færi-
bandi. Þessa dagana eru í kvik-
myndahúsum höfuðborgarinnar
þrjár kvikmyndir þar sem hann
leikur hlutverk, sem ég er viss um
að hann hefði ekki litið við fyrir tíu
til flmmtán árum.
Men of Honor er ein þessara
mynda, hinar eru Fifteen Minutes
og the Adventures of Rocky and
Bullwinkle. I Men of Honor leikur
hann harðjaxlinn Billy Sunday,
mikla rembu með óbilandi traust á
sjálfum sér. Sunday er kafari í flot-
Nýliðar fá yfirhalningu
Robert De Niro í hlutverki kafarns Billy Sunday, sem þjálfar nýliöa.
anum og þegar hann neyðist til að
hætta köfun er hann settur yfir
skóla fyrir verðandi kafara í sjó-
hernum. í þessum skóla hefur eng-
inn svartur nemandi komiö fyrr en
Carl Brashear (Cuba Gooding jr.)
fær inngöngu eftir að hafa sent
fjölda umsókna. Sunday er ekki að-
eins strangari en aUir aðrir kennar-
ar, heldur hatar hann negra og er
ákveðinn í að sjá tU þess að Brashe-
ar nái aldrei prófl. Það sem hann
reiknar ekki með er að Brashear
hefur viljastyrk og þrjósku á við tíu
manns og neitar að gefast upp hvort
sem er í skólanum eða siðar þegar á
að setja hann tU hliðar.
Men of Honor er að sumu leyti
ágæt spennumynd með kjarnyrtum
texta og gott dæmi um hvað mann-
skepnan þolir og lætur bjóða sér,
sérstaklega í ljósi þess að um sanna
sögu er að ræða. í dag er viðurkennt
að þrjóska og dugnaður Brashear
gerði það að verkum að margar dyr
opnuðust fyrir svarta kynstofninn i
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
bandaríska hernum, dyr sem voru
lokaðar áður. GaUar í myndinni eru
samt jafnmargir og kostirnir og þar
vegur þyngst hversu langdregin
hún er. Það er stundum verið að
gera úlfalda úr mýflugu. Hetjuskap-
ur Brashear hefur örugglega verið
mikill, en öllu má nú ofgera. Ef
þetta er lýsing á ævi hans þá er eins
og maðurinn hafi ekki mátt hreyfa
sig án þess aö sýna einstaka skap-
festu, hetjudáð og prúðmennsku.
Cuba Gooding jr. leikur Brashear
og er ábúðarfullur og traustvekj-
andi og nær ágætum tökum á per-
sónunni hvort sem hann þarf að
sýna hvað í honum býr eða þegar
hann veit að þrjóska hans er að
bitna á fjölskyldunni. Það er einnig
kraftur í Robert De Niro, sérstak-
lega þegar hann er að úthúða nem-
endum sínum og lýsa fyrirlitningu
sinni á Brashear. Þetta er nú samt
aðeins enn eitt hlutverkið sem De
Niro getur leikið hugsunarlaust.
Leikstjóri: George Tillman jr. Handrit:
Scott Marshall Smith. Kvikmyndataka:
Anthony B. Richmond. Tónlist: Mark Ish-
man. Aðalleikarar: Robert De Niro, Cuba
Goodingjr., Charlize Theron, Aunjanue
Ellis og Hal Holbrook.