Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Qupperneq 28
l
r -v
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON.
Miklar skemmdir
Hér mátti litlu muna að illa færi
þegar bátur keyrði á annan.
Bátur nær sokk-
inn viö ásiglingu
DV. ÓLAFSVÍK:
Litlu munaði að trillubáturinn Leif-
ur RE 220 sykki við Öndverðamesið á
síðasta vetrardag. Eigandi Leifs RE var
að skaka þegar trilian Magnús HF
sigldi á Leif RE á um 12 sjómílna ferð
bakborðsmegin fyrir aftan miðju en
þar er vélarrúmið. Magnús skar byrð-
ing Leifs neðan sjólínu og alveg upp
enda fór Magnús nær hálfur upp á Leif
og rann síðan niður af honum að aftan.
Mikill sjór kom í vélarrúmið á Leif
en Magnús tók hann strax í tog og dró
hann inn til Rifshafnar. Til öryggis
kom slysavamabáturinn Björg frá Rifi
á móti þeim en ætlunin var að hún
tæki Leif í tog. Þegar í Rifshöfn kom
sökk Leifur að aftan.
Einn maður var á hvorum bát en
þeir slösuðust ekkert en litlu mátti
muna. -PJ
Auðmjúkur
söngvari
í Helgarblaði DV á morgun er ítar-
legt viðtal við Geir Ólafsson
„Iceblue", söngvara og steppara. Geir
fer sínar eigin leiðir í tónlistinni og
segir hreinskilnislega frá sigrum og
ósigrum, ástinni og framtíðinni. DV
bregður undir sig ljóðfætinum í tilefni
af viku bókarinnar og heimsækir
einnig útskriftarhóp leiklistarnema
sem æfa lokaverk sitt í Hafnarfirði.
Fjallað er um skólamál í Eyjafirði,
baksvið Thermo Plus-gjaldþrotsins á
Suðurnesjum og rætt við Jóhann Inga
Gunnarsson sálfræðing sem er að
kenna Euruvision-fórunum íslensku
að hugsa eins og sigurvegarar.
DV-MYND E.J.
Landsmenn fögnuöu sumri í gær í blíöviðri um allt land og var hátíðahald með hefðbundnum hætti víöast hvar
Skátamessur settu svip á daginn í Reykjavík og skrúðgöngurnar voru á sínum staö í dagskránni.
Grunur lögreglu í óvenjulegu fíkniefnamáli:
Skipulag innflutn-
ings frá Litla-Hrauni
- Guömundur Ingi Þóroddsson og kókaínsmyglari höfuöpaurar
Guðmundur Ingi Þórodds-
son, maður sem í júlí síðast-
liðinn var dæmdur í 7 ára
fangelsi fyrir að hafa verið
höfuðpaur í flkniefnamáli
tengdu 3.850 e-töflum, var á
miðvikudag úrskurðaður í 2ja
vikna gæsluvarðhald, grunað-
ur um að vera - sem fangi á
Litla-Hrauni - aðalskipuleggj-
andi í öðru máli sem fíkni-
efnadeild lögreglunnar í
Reykjavik er nú að rannsaka. Málið
er það umfangsmikið og alvarlegt að
lögreglan fékk tvo aðra menn, þar af
annan fanga, úrskurðaða í gæslu-
varðhald.
Mjög óvenjulegt er að lögreglan
fari austur á Litla-Hraun og hand-
taki þar fanga, og ekki bara einn
heldur þrjá. Tveir þeirra eru nú
komnir í einangrun. Lögreglan lagði
hald á tölvu og fleiri muni tengda
luuuuiuiuju. Fangar mega
ekki vera með gsm-síma og
eiga ekki að geta verið í
tölvupóstsambandi. Hins veg-
ar hafa langtímafangar, eins
og Guðmundur Ingi, greiðan
aðgang að síma og eiga rétt á
reglulegum heimsóknum.
Tveggja vikna úrskurður
bendir eindregið til að um
mikið magn sé að ræða en
lögregla getur ekki upplýst
það strax né hvaða tegund sé um að
ræða. Ástæða þess að lögreglan
krefst gæsluvarðhalds yfir fongun-
um er sú að með því móti fara þeir í
einangrun vegna rannsóknarhags-
muna. Sú einangrun mun ekki drag-
ast frá afplánunartímanum. Fang-
amir em því í raun í aukarefsingu.
Guðmundur Ingi var sá sem sagði
lögreglu haustið 1998 frá Kio Briggs
þegar þeir bjuggu báðir á Benidorm
á Spáni. I lok árs 1999 var Guðmund-
ur Ingi hins vegar handtekinn og
síðan ákærður fyrir að vera höfuð-
paurinn í framangreindu e-töflumáli
þar sem 7 ungmenni voru sakfelld
með honum. Einn þeirra, sem einnig
er fangi á Litla-Hrauni, handtók lög-
reglan einmitt í fangelsinu í fyrra-
dag. Hans þáttur er ekki talinn af-
gerandi í „nýja fangelsismálinu" og
var ekki krafist gæsluvarðhalds yfir
honum.
Þriðji maðurinn, Hafnfirðingur á
þrítugsaldri, sem situr inni fyrir að
hafa flutt 630 grömm af kókaíni frá
Mexíkó rétt fyrir jól 1998, er hins
vegar grunaður um að vera aðal-
skipuleggjandi með Guðmundi Inga
í fangelsismálinu. Sá þriöji, sem
handtekinn var á pósthúsinu í
Breiðholti, á miðvikudag hefur áður
komið við sögu fíkniefnalögreglu.
-Ótt
Guðmundur I.
Þóroddsson.
Hurðum skellt í Karphúsinu:
Minni líkur en áður á lögum
- segir sjávarútvegsráðherra
„Þessi uppákoma milli
deiluaðila í sjómannaverk-
fallinu er slæm en hún kem-
ur ekki á óvarf‘ segir Árni
M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráöherra um þá uppákomu
sem varð í Karphúsinu í gær
þegar upp úr samningavið-
ræðum í sjómannaverkfall-
inu slitnaði með hvelli,
hurðum var skellt og sátta-
semjari sleit fundi, segir
deiluaðila hafa fjarlægst hverja
aðra og enga ástæðu að boða til
samningafundar við óbreyttar að-
stæður.
„Ég skil það sjónarmið mæta vel
að fólki sé farið að finnast fullreynt
á milli þessara manna en eins og ég
hef margítrekað sagt þá leysir eng-
inn þessa deilu nema þeir
sjálfir, allt annað er bara
frestur og einhvern tíma
verða menn að taka sig
saman í andlitinu og kom-
ast að niðurstöðu. Það er
ekki hægt að treysta á það
að Alþingi grípi alltaf inn í
og setji niður samninga
þegar menn ná sjálfir ekki
samningum."
- En þú hefur líka sagt að
menn hafi ekki til þess ótakmarkað-
an tíma að ná samkomulagi.
„Já, það er alveg rétt, það getur
enginn ráðherra afsalað sér þeim
möguleika að leggja fram frumvarp
um slíkt á Alþingi en miðað við það
sem nú hefur gerst í deilunni þá er
það erfiðara en áður að leggja fram
slíkt frumvarp. Svona uppákoma
eykur ekki líkurnar á því að það sé
lagt fram frumvarp en sýnir að þeir
verða að leysa þetta sjálfir. Þeir
verða bara að átta sig á því að þeir
verða að ná saman.“
- Þannig að þú ert harðari en
áður á því að setja ekki lög til að
leysa deiluna?.
„Þetta er sama afstaðan og mér
fmnst þessi uppákoma undirstrika
hana. Deiluaðilar eru komnir
ákveðið langt í þessum samningum
en samt ekki nógu langt og það ger-
ir alla aðkomu löggjafarvaldsins
miklu flóknari en undanfarin ár. Ef
sáttasemjari treystir sér ekki til að
leggja fram miðlunartillögu hvernig
á þá að vera hægt að setja samninga
með lögum?“ -gk
Erlendur ferða-
maður fótbrotn-
aði í Esjunni
Englendingur, sem var í fjall-
göngu i Esjunni ásamt félaga sín-
um, datt og fótbrotnaði í kletta-
belti fjallsins á fimmta tímanum í
gærdag.
Fjöldi manna tók þátt í björg-
unaraðgerðunum, því ásamt lög-
reglunni í Reykjavík og neyðar-
sveit slökkviliðsins komu sex
björgunarsveitir skipaðar fjall-
göngumönnum á staðinn og að-
stoðuðu við að koma manninum
niður af fjallinu.
Fjallabifreið slökkviliðsins ók
langt upp eftir vegslóða í hlíðum
Esjunnar og gengu slökkviliðs-
menn auk annarra björgunar-
sveitarmanna á slysstað. Klukkan
19.20 var Englendingurinn kom-
inn á börur og létu björgunar-
menn hinn slasaða síga á börun-
um niður klettabeltið. Maðurinn
var kominn niöur af fjallinu
skömmu fyrir klukkan 20 og ók
fjallabifreið slökkviliðsins hon-
um á slysadeild. -SMK
Reykjavík:
Eldur í Málm-
steypunni
Slökkviliöið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað að Málm-
steypunni við Skipholt að kvöldi
síðasta vetrardags vegna elds sem
kviknaði þar innandyra. Að sögn
talsmanns slökkviliðsins var eld-
urinn staðbundinn og olli litlum
skemmdum, en hann kviknaði út
frá heitum málnii sem hafði lekið
niður á gólf. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn.
Auk þess var slökkviliðið kall-
að að sinueldi í Öskjuhlíð um
klukkan 22.30 í gærkvöldi. Greið-
lega gekk að slökkva eldinn, sem
olli litlum gróðurskemmdum, en
að sögn slökkviliðsins hefði getaö
farið illa þar sem eldurinn kom
upp inn á milli trjáa. -SMK
Stórhöfði:
Hraðbanki
skemmdur
Skömmu fyrir klukkan 7 í
morgun var lögreglunni í Reykja-
vik tilkynnt um eignaspjöll á
hraðbanka á Stórhöfða. Þar virð-
ist sem einhverjum hafi mislíkað
þjónustan sem boðið var upp á
því sá hinn sami hafði farið inn í
aðstöðu hraðbankans og brotið
þar og bramlað. Öryggismynda-
vélar eru staðsettar í hraðbönk-
um og er lögreglan með málið í
rannsókn. -SMK
Lampar til fermingargjafa
m
Tgft "
Rafkaup
Ármula 24 • sími 585 2800 U
brother P-touch 9200PC
Prentaöu merkimiða beint úr tölvunni
Samhaeft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
4
4
i
i
4
i
i
4
í
i
i
i
i
i
i
4
4
4
4
4
4
4
4