Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Side 28
44
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
Tilvera
lí f iö
Japanskt kvöld
Dagskrá Listaklúbbs Leikhús-
kjallarans er helguð japanskri
menningu í kvöld. Þar verða sög-
ur, frásagnir, fyririestrar, dans og
músík í anda Japans. Þeir sem
fram koma eru sr. Miyako Þórðar-
son. Stefán Baldur Árnason, Björn
Þór Vilhjálmsson, Kolbeinn
Bjarnason, Þóroddur Bjarnason og
Asako Ischihashi. Dagskráin hefst
kl. 20.30
Fundir
■ HERINN BIIRT Samtök her-
stöðvaandstæðinga efna til dag-
skrár I íslensku óperunni kl. 21 í til-
efni fimmtíu ára setu bandaríska
hersins hér á landi. Dagskrá þessi
er enn fremur haldin í tilefni af því
að þennan dag kemur út á geisla-
diski þriðja útgáfa Sóleyjarkvæðls
eftir Jóhannes úr Kötlurn við lög eftir
Pétur Pálsson. Þá mun Lára Stef-
ánsdóttlr dansari sýna frumsamið
dansverk viö hluta Sóleyjarkvæðis.
Dagskráin er afar fjölbreytt og ætti
að höföa til allra aldurshópa. Hjalti
Rögnvaldsson leikari mun lesa Ijóð
ásamt Arnrúnu Þorsteinsdóttur og
tónlistaratriði veröa í höndum Vox
Feminae, Bubba Morthens og Guð-
mundar Péturssonar, gítarleikara
rapparagrúppunnar
X Rottweilerhunda og þjóölaga-
kvartettsins Emblu. Avarp miönefnd-
ar flytur Steinunn Þóra Árnadóttir
og Kolbeinn Óttarsson Proppé sagn-
fræðingur flytur pistil um ísland meö
og án hers. Kynnir á dagskránni
veröur Arnar Jónsson leikari.
■ KONIIR OG ATVINNULÍF Samtök
in Skref fyrlr skref halda málþing á
Hótel Sögu í dag, kl. 14. Yfirskrift
þingsins er „Vald og veruleiki“ -
konur á vinnumarkaði nýja hagkerf-
isins. Hvaö þarf til aö komast í
áhrifastööur og störf og halda
þeim? Framsögumenn eru Gyða L.
Jónsdóttir, Heiðrún Jónsdóttfr, Mar-
grét Hallgrímsdóttir, Sigþrúður Guð-
mundsdóttir, Þórunn Slgurðardóttir
og Hansína B. Einarsdóttir, forstjóri
Skrefs fyrir skref, sem jafnframt
stýrir málþinginu. Þátttókugjald er kr.
1.500 og innifaliö í því er síödegis-
hressing.
Sýningar
■ SMELLTU AF efsýning í
Menningarmlðstöðlnni Gerðubergi á
Ijósmyndum eftir reykvíska
grunnskólanema.. Sýningin stendur
til 2. júní.
■ BÚTASAUMSSÝNING í
RAÐHUSINU Islenska
bútasaumsfélagiö stendur fyrir sinni
fyrstu sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur
þessa dagana. Þar getur aö líta
tæplega fjörutíu teppi. Sýningin
endurspeglar feguröar- og notagildi
bútasaumsteppa og umfram allt þá
hlýju og ánægju sem sauma-
skapurinn veitir. Sýningin er opin kl.
10-19 virka daga og 12-16 um
helgar.
■ HLÍF í GALLERÍI SÆVARS
KARLS Hlíf Asgeirsdóttir sýnir í
Galleríi Sævars Karls um þessar
mundir. Sýningin ber nafniö Innivera
og þar getur að líta vatnslitamyndir,
Ijosmyndir og skúlptúr. Hildur hefur
tekiö þátt í mörgum samsýningum
bæði hér heima og erlendis fra
árinu 1992.
■ NORSKIR TEIKNARAR í
Listasafnl Reykjavíkur, Hafnarhúsi
er sýning á verkum norskra teiknara.
Þeir eru: Mllda Graham, Kalle
Grude og Sverre Eilhelm Malling. Á
sama tíma stendur yfir sýning
íslenskra teiknara í Osló sem
væntanlega er getiö í DVaffi
Óslóborgar.
Sjá nánar: Lífið eftlr vinnu á Vísi.is
Brosað í rigningunni
Sigurður A. Magnússon rithöfundur var í Fjölskyldugarðinum í gær. Með
honum á myndinni eru Gunnar Jónsson tollvörður, Kristín Sigurðardóttir
og Anton Már Gunnarsson.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn:
Nýtt leiksvæði opnað
Þrátt fyrir rigningu og hvassviðri
kom fjölmenni í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn í gær þegar borgar-
stjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, opnaði nýtt leik-
svæði fyrir börn. Á þessu nýja leik-
svæði er klifurkastali fyrir yngri
börnin og stórt ævintýraskip fyrir
börn á öllum aldri. Greinilegt var
að börnin kunnu vel að meta þessa
viðbót við annars ágætan fjöl-
skyldugarð þar sem hægt er að
skoða dýrin, keyra um á bílum eða
bara njóta útiverunnar í fallegu um-
hverfi.
OV-MYNDIR INGÓ
Gott að vera vel klæddur
Þetta eru þær Elísabet og Inga sem voru i Fjölskyldugarðinum í rigning-
unni í gær.
Bíógagnrýni
/
Arekstur
Háskólabió - State and Main: ★ ★ ★
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Is í rigningunni
Það fylgir ferð í Fjölskyldugarðinn
að fá sér ís og Ögmundur Reynis-
son vélsmiöur gæddi sér á einum
slíkum ásamt syni
sínum, Ingvari Óla.
Faðir og börn
Árni Daníel Júlíusson sagnfræðing-
ur ásamt tveimur börnum sínum,
Maríu og Ara Júlíusi.
Tvær í Fjölskyldugaröinum
Kristín Jónsdóttir dagmóöir var
skynsöm og kom með regnhlífina
með sér. Með henni á myndinni er
Sara Sif Ragnarsdóttir.
Ævintýraskipið
Nýja ævintýraskipið vakti óskipta
athygli hjá ungu kynslóðinni.
Kvikmyndað í smábæ
Julia Stiles, William H. Macy og Linda Kimbrough í hlutverkum sínum.
Það verða árekstrar af ýmsu tagi
þegar Hollywoodlið kemur til pínulít-
ils bæjar, Waterford í Vermont i
Bandaríkjunum, til að taka upp kvik-
myndina Gömlu mylluna. Bærinn Wa-
terford hafði verið valinn vegna gam-
allar myllu sem mynd er af í öllum
túristabæklingum um bæinn en
tökuliðið kemst að því þegar það hef-
ur komið sér fyrir á eina hóteli bæjar-
ins að gamla myllan brann til grunna
fyrir næstum hálfri öld eða svo. Sem
betur fer er handritshöfundurinn með
svo að hann getur skrifaö mylluna út
úr handritinu - eða getur hann það
eða eyðir hann öllum tíma sínum í að
daðra við eiganda bókabúðarinnar?
Á meðan leikstjórinn bíöur eftir
nýjum atriðum stríöir hann við ýmis-
legt annað smálegt - eins og t.d. bæj-
arstjórahjónin sem vilja bjóða
Hollywoodstjörnunum í mat en ekki
fyrr en þau hafa breytt húsi sínu í
safn, eða aðalleikkonuna sem vill allt
í einu ekki bera á sér brjóstin þótt
hún hafi lofað því í samningi og þótt
ameríska þjóðin geti teiknað þau eftir
minni eins og einn aðstoðarmaðurinn
kemst svo smekklega að orði. Eða að-
alleikarann sem er alltof hrifinn af 14
ára stúlkubörnum. Eða kvikmynda-
tökumanninn sem vill endilega brjóta
gluggann á slökkvistöðinni sem er
stolt bæjarbúa. Eða litla lögfræðing-
inn, kærasta bókabúðareigandans,
sem er á því að bæjarbúar eigi rétt á
svo og svo mörgum prósentum af
gróða myndarinnar, eða, eða, eða.
Maður ætti aö vera guðs lifandi feg-
inn að vera ekki leikstjóri!
Leikskáldið og leikstjórinn David
Mamet er sennilega þekktari fyrir
dekkri og sálfræðilega dýpri myndir
en þessa léttúð þótt hann hafi komið
nálægt kómík fyrr. Fyrsta handritið
hans sem var kvikmyndað var The
Postman always rings twice eftir sögu
James M. Cain árið 1981, með þeim
Nicholson og Lange í aðalhlutverkum,
og fyrsta leikstjórnarverkefni hans
var sáifræðispennan House of Games
frá 1987. En hér slær hann á mjög
létta strengi. State and main er ekki
fyndin án afláts en þar eru mörg veru-
lega skemmtileg atriði og sérstaklega
eru samtölin frábær, hvort sem það
eru óendanlega djúpvitur samtöl bæj-
arbúa um lífið og tilveruna („Það eina
sem maður græðir á því að fá annað
tækifæri er að fá að gera sömu mis-
tökin tvisvar") eða stórkostleg blóts-
yrði og dónaskapur sem kvikmynda-
liðið fleygir hvert í annað („Ég ætla
að rifa úr þér lungun og míga á hjart-
að á þér í gegnum gatið“), eða perla
myndarinnar: „Þetta er ekki lygi held-
ur skáldskapargáfa."
Myndin skartar líka fyrirtaks leik-
arahópi sem hefur greinilega gaman
af að leika sér með þennan afburðavel
skrifaða texta. William H. Macy er
leikstjórinn Walt Price sem þarf að
kljást við allt og alla og er frábær.
David Paymer leikur hinn dónalega
framleiðanda, Marty Rossen, og
skemmtir sér vel (en hann leikur oft-
ast einhverja kúgaða menn). Alec
Baldwin og Sarah Jessica Parker fara
létt með kvikmyndastjörnurnar, Julia
Styles er fln sem hin 14 ára grúppía og
Philip Seymour Hoffman og Rebecca
Pidgeon sjá fyrir smárómantík sem
handritshöfundurinn og bókabúðar-
eigandinn.
Það skín í gegn að allir hafa
skemmt sér vel við gerð myndarinnar
og þess vegna ómögulegt annaö en að
skemmta sér viðlíka vel sem áhorf-
andi þótt hún sé kannski ekki svo
ýkja merkileg.
Handrit og leikstjórn: David Mamet.
Kvikmyndataka: Oliver Stapleton. Leikar-
ar: Alec Baldwin, Charles Durning, Philip
Seymour Hoffman, William H. Macy, Patti
LuPone, Sarah Jessica Parker, David Pay-
mer, Rebecca Pidgeon, Julia Stiles.